Morgunblaðið - 29.07.1967, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JTTLf 1997
tJitgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. )
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
iRitstjómr: Sigurður Bjarnason frá. Vigur. ;
Matthías Johannessen. \
Eyjólfur Konráð Jónsson. |
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. $
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. s
(Ritstjórn og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Sími IO-iIOO.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 02-4-80. |
í lausasölu: 7.00 eintakið. s
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. j
ERFITT ÁRFERÐI
k rferði er nú hér á landi
með erfiðasta móti. Slæm
ur vetur og kalt vor sköpuðu
landbúnaðinum erfiðleika,
en menn vonuðu að úr mundi
rætast. En því. miður hefur
tíðarfarið í heilum landshlut-
um orðið þannig, að sýnt er,
að heyfengur verður með
allra minnsta móti og valda
þar einnig um verulegar kal-
skemmdir.
Má því segja, að fyrir ís-
lenzkan landbúnað ári nú
mjög illa og hefði nálgazt
hallærisástand áður fyrr,
þegar menn ekki bjuggu yfir
þeirri þekkingu, sem við höf-
um tileinkað okkur og ekki
höfðu þann góða kost tækja,
sem auðvelda störfin.
Því miður er heldur ekki
nein gleðitíðindi að segja af
sjávarútvegi okkar þetta ár-
ið. Vetrarvertíðin skilaði
okkur 500 milljónum kr.
minna verðmæti en áður, og
síldveiðarnar hafa gengið,
sérlega illa það sem af er,
enda hefur sú síld, sem veiðst
hefur verið sótt lengst norð-
austur í haf við hinar erfið-
ustu aðstæður. Ef við nú ekki
ættum hinn glæsilega nýja
skipaflota, mundi ekkert hafa
veiðst þetta árið, svo að
segja má að einnig á sviði
sjávarútvegsins hafi hin nýja
tækni bjargað því sem bjarg-
að varð.
Enn er þó ótalið það, sem
mestum erfiðleikum veldur,
það er að segja mikið verð-
fall á útflutningsafurðum
okkar, sem virðist ætla að
vara lengur en gert var ráð
fyrir. Allir eru þessir erfið-
leikar þess eðlis, að það er
mikið öfugmæli þegar sagt
er, að góðæri sé nú á íslandi.
Hitt er annað mál, að lífs-
kjör hér á landi eru góð og
enn er ekki ástæða til að ætla
annað en að við getum við-
baldið hinum góðu lífskjör-
um þrátt fyrir þá erfiðleika,
sem nú er við að etja, ef við
sjáum fótum okkar forráð
og stillum í hóf kröfugerð.
Hinar geysimiklu framfarir
hér á landi síðustu árin hafa
einkum miðað að því að
treysta atvinnulífið, enda
hefur verðmætisaukning í at-
yinnutækjum numið yfir
50% á síðastliðnum 7 árum.
Þessi auðlegð gerir það að
verkum, að við erum vel und-
ir það búnir, íslendingar, að
taka á móti nokkrum áföll-
um.
Þar að auki höfum við safn
að verulegum gjaldeyrisvara-
sjóðum, sem standa sem
trygging fyrir því, að ekki
þurfi að skerða innflutning
eða taka upp haftakerfið, þótt
verðmæti útflutningsins
lækki nokkuð um skeið.
Það er þess vegna engin
ástæða til að örvænta um
hag íslenzks þjóðarbús, en
samt er nauðsynlegt og sjálf-
sagt að gera sér rétta grein
fyrir aðstöðunni, og þegar
menn skoða hana fer ekki á
milli mála, að nú er ár erfið-
leika, sem vissulega hefði
reynzt okkur þungt í skauti,
ef ekki væri jafnvel búið í
haginn og raun ber vitni.
ÚTSENDINGA-
DAGAR
SJÖNVARPS
Það er allra manna mál, að
upphaf sjónvarps á íslandi
hafi tekizt mjög vel, og eru
allir sammála um, að starfs-
menn sjónvarpsins hafi unn-
ið þrekvirki við erfiðar að-
stæður.
Nú er þess krafizt, að stráx
í haust verði sjónvarpsdögum
fjölgað upp í 6 í viku, og
virðist sem ráðamenn sjón-
varpsins ætli að láta undan
þessari 'kröfu, sem þó er
meira en háepin. Morgun-
blaðinu er kunnugt um það,
að ýmsum þeim, sem mesta
reynslu hafa fengið af rekstri
sjónvarpsins, finnst fráleitt
að hefja sjónvarpssendingar
6 daga í viku, þeir vilja miklu
fremur vanda sjónvarpsefnið
þá daga, sem sjónvarpað er
og bíða síðari tíma með fjölg-
un útsendinga.
Þess er og að gæta að ís-
lendingar virðast enn sem
komið er fylgjast svo vel með
dagskrá sjónvarps, að erfitt
er um fundahöld, leiksýning-
ar og aðrar samkomur á sjón-
varpskvöldum. Væri það eitt
nægileg ástæða til þess að
geyma fjölgun útsendinga-
daga, þar til nýjabrumið er
farið af, svo að hægt væri að
nota sjónvarpslausa daga til
samkomuhalds. Og raunar er
það síður en svo, að ástæða
sé til sjónvarpssendinga á
hverjum degi í náinni fram-
tíð, og mætti vel hugsa sér
að á því yrði nokkur bið, að
sjónvarpið yrði oftar en 4
daga í viku. Miklu meiri
ástæða er til að hraða dreif-
ingu sjónvarpsins um landið
í samræmi við þá stefnu, sem
þing og stjórn markaði á síð-
asta Alþingi.
En óðagot þeirra, sem hæst
hafa um nauðsyn þess að
sjónvarpað verði 6 daga í
viku, er rökstutt með því að
þá loki Keflavíkursjónvarp-
ið. Sannleikurinn er auðvit-
að sá, að litlu sem engu máli
Þjóðvarnarliðsmenn í Maryland fara fyrir slökkvibifreið inn á óeirðasvæðið í Cambridge.
Brunarústir liðinnar nætur blasa við.
Kynþáttaóeirðirnar í
„stúdentasamtaka gegn of-
beldi“, sagði við fréttamenn
eftir að hann var handtek-
inn af lögreglunni, sakaður
ÍFTIR
CHRISTOPHER MINICLIE
— AP
HVÍTIR og blakkir Banda-
ríkjamenn fylgjast nú skelf-
ingu lostnir með útbreiðslu
kynþáttaóeirðanna í landinu
og vaxandi áhyggjum um
eigin velferð og eignir. Skoð
anir þeirra á orsökum óeirð
anna og ráðum til að stöðva
þær eru mjög mismunandi.
Undanfarinn hálfan mánuð
7 hafa 14 borgir, stórar og
i smáar orðið að þola reiðar-
slag óeirða, sem höfðu í för
með sér morð, íkveikju, mis-
þyrmingar og þjófnaði. Þetta
eru versta sumar í sögu
Bandaríkjanna hvað kynþátta
óeirðir snertir og þó er þaff
aðeins hálfnað. Yfir 70
manns hafa látið lífið, þús-
undir særzt og enn affrar þús
undir verið handteknar. Þús-
undir hafa einnig misst heim
ili sín og eigur, sumir stanða
uppi með tvær hendur tómar,
Þaff voru óeirðirnar í New-
ark í New Jersey, sem
kveiktu í tundrinu og það
sem af er hafa óeirðirnar ein
göngu átt sér stað í norður-
hluta Banðaríkjanna.
Um 40 manns hafa látið
lífið í Detroit og er það mesta
mannfall í einni borg. Eigna
tjónið er gífurlegt, ekki und
ir einum milljarð dollara að
því er talið er. Hvítir menn
hafa ekki tekið þátt í grip-
deildum blökkumanna fyrr
en nú í Detroit. Lagasmiðir,
leiðtogar mannréttindahreyf-
inga og almennir borgarar
kanna leiðir til lausnar vanda
málunum. Robert Byrd, öld-
ungadeildarþignmaður segir
að óeirðir eigi að bæla nið-
ur með hörku og valdi og að
skjóta eigi fullorðna, sem
staðn:r séu að ránum, á staön
um.
I.eiðtogar Repúblíkana í
báðum deildum Bandaríkja-
þings hafa lagt fram tillögu
um að skipuð verði sameig-
imeg þingnefnd til þess að
fjrlla um leiðir og aðferðir
til að ráðá bót á því ástandi
er rekur blökkumennina í
blökkumanna hverfunum til
að grípa til slíkra örþrifa-
ráða til að reka eftir og
leggja áherzlu á kröfur sín-
ar um aukin réttindi í banda
ríska þjóðfélaginu. Aðrir
þingmenn hafa hvatt til auk-
innar fjárveitingar stjó nar-
innar til útrýmingar fátækra
hverfa. Styrjöldin í Vietnam
hefur höggvið stórt skarð í
ríkissjóðinn. Fyrir ári nam
fjárlagafrumvarpið fjórum
milljörðum dollara, í ár er
það aðeins 2 milljarðar og
þar af á einn milljarður að
fara til borga, ef þingið sam
þykkir það. Whitney Young
jr„ framkvæmdastjóri borga
sambandsins segir að harkan
af hálfu þingsins hafi átt sinn
þátt í að koma óeirðunum
af stað. Young sagði: „Laga-
smiðirnir felldu mannéttinda
löggjöf sl. ár lögðust á móti
frumvarpi um rottueyðingu
í sl. viku og hlógu. að. Slík
hegðun kemur ekki í veg fyr
ir óeirðir. Prestur nokkur
sagði að það væri furðulegt
hve auðveldlega stjórninni
tækist að finna leiðir til að
afla -fjár til styrjaldarrekst-
urs í Vietnam, á sama og
ekki væri hægt að veita fé
til þegna þjóðfélagsins og
upuppbyggingar þess. Slík af-
staða hlyti að skapa óánægju.
H. Rap Brown, leiðtogi
um að hafa hvatt til óeirða:
„Við munum brenna landið
til grunna, hvítu mennina og
allt annað“. Demókratar og
Repúblikanar hafa rætt þessi
vandamál undanfarna daga,
en ekki komizt að sameigin-
legri niðurstöðu um orsakir
þeirra. Repúblikanarnir segja
að Joimson forseti, hafi tap-
að tíma við að senda hermenn
til aðstoðar. Demókratarnir
segja hinsvegar að Repúblik-
anarnir hafi lagt meiri
áherzlu á að skera niður fjár
lagafrumvörp, en að leysa 1
vandamál borganna.
Johnson Bandaríkjaforseti,
var hræddur við að senda
hermenn til aðstoðar þjóð-
varnarliðinu í Detroit. Óttað
ist hann að með því yrði sett
fordæmi, sem ekki yrði snúið
frá aftur. Skv. bandarískum
lögum er það á ábyrgð ein-
stakra staða og fylkja að sjá
um að friður sé haldinn, en
ekki stjórnarinnar. Þá koma
stjórnmál einnig inn í þetta
mál, því að Romney ríkis-
stjóri í Michigan-fylki, sem
bað um hermennina, er tal-
inn líklegur andstæðingur
Johnsons í forsetakosningun-
um á næsta ári. Johnson sagði
í sjónvarpsræðu er hann til-
kynnti liðsflutningana, að
þeir hefðu því aðeins verið
samþykktir að Romney sann-
aði svo ekki yrði um villzt
að hann gæti ekki komið á
friði í Miehigan án aðstoðar
stjórnarhermanna. Þetta end
urtók Johnson þriisvar í ræðu
sinni, svo að það færi ekki
fram hjá nokkrum manni.
Ronald Reagan, ríkisstjóri
Kaliforníu, sagði, að ræða
Johnsons hefði verið líkust
inngangsræðu fyrir kosninga
baráttuna 1968.
skiptir hvort íslenzka sjón-
varpið er rekið 4 daga í viku
eða 6. Keflavíkursjónvarpið
getur nákvæmlega jafnt lok-
að, þótt ekki sé íslenzkt sjón-
varp hvert einasta kvöld. Það
geta engir verið svo sólgnir
í sjónvarpsútsendingar, að
þeim líði ekki jafnvel, þótt
þeir hefðu 2—3 kvöld vik-
unnar frí frá sjónvarpi til að
sinna öðru.