Morgunblaðið - 02.08.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1967
3
Greinargeri frá Skipulagsstiórn
STAKSTEINAR
— varðandi skipulagningu við Reykjahlíð við Mývatn
Blaðinu barzt í gær eftirfar-
andi greinargerð frá Skipu-
lagsstjórn ríkisins:
í LOK síðastliðinnar viku lét
náttúruverndarráð birta í blöð-
um og útvarpi greinargerð um
fyrirhugað vegarstæði mill'
Reykjahlíðar og Grímsstaða við
Mývatn. í greinargerð þessari er
sagt á mjög villandi hátt fró máJ
um og jafnvel beinlínis rangt, að
því er snertir afskipti Skipulags
stjónnar ríkisins.
Skipulagsstjórnin lýsti þegar í
stað yfir, að hún mundi birta
greinargerð um afskipti sín af
málinu, þar sem leiðrétt yrðu
ranghermi náttúruverndarráðs
efir því sem efni statnda til.
Upphaf þessa máls er það, að
árið 1964 var ákveðin bygging
þétt'býlishverfis nálægt Reykja
hlíð vegna fyrirhugaðs verk-
smiðjurekstrar á þeim slóðum.
Þótti rétt, að Skútustaðahrepp-
ur yrði allur gerður skipulags-
skyldur, og í samráði við hrepps
nefndina var það ákveðið, sbr.
lög nr. 19/1964. Jafnframt var
ákveðið, að skipulagningin
skyldi að svo stöddu aðeins takl
til áðurgreinds svæðis rið
Reykjahlíð.
Skipulagsstarfið hefur síðan
farið fram í fullri samvinnu við
hreppsnefndina, þótt náttúru-
verndarráð gefi annað til kynna
í greinargerð sinni. Tillaga að
skipulagi hefur. síðan hlotið að
að öllu leyti þá meðferð, sem
áskilin er í skipulagslögum og
síðast staðfestingu ráðherra
mánudaginn 31. júlí sl.
Þegar á fyrsta fundi með
hreppsnefnd Skútustaðahrepps,
þar sem allir meðlimir Skipulags
stjórnar voru viðstaddir, kom
fram sameiginlegur áhugi allra
viðstaddra á því, að reynt yrði
við skipulagningu að varðveita
sem bezt hinn sérstæða og fagra
svip Mývatnssveitar, landslag og
fuglalíf. Skipulagsstjórn telur, að
frá upphafi hafi þetta verið eitt
meginsjónarmiðið í sambandi
við gerð skipulagstillagna.
Meðal þess, sem einkum
þurfti að athuga. var staðsetn-
ing vegar frá hinu nýja þéttbýl-
ishverfi og verksmiðju til Húsa-
víkur.
Við gerð tillögu um það voru
höfð eftirfarandi meginsjónar-
mið:
1. að vegurinn lægi ekki í
gegnurn þá byggð, sem nú er í
Reykjahlíð og þá, sem fyrirhug-
að er. Er hér um að ræða meg-
inatriði við skipulagningu að um
ferð sé beint framhjá bæjum og
þorpum fremur en gegnum þau,
bseði til að sporna við slysum
og ónæði og að tryggja greiða
umferð.
2. að vegarlagning væri tækni
lega séð framkvæmanleg og fjár
hagslega séð ekki kostnaðarsöm
og þannig hagað að vegur væri
fær til umferðar allt árið.
3. að með vegarlagningu væri
ekki spillt túnum eða mannvirkj
um eða búrekstur truflaður um-
fram það, sem óhjákvæmilegt
væri.
4. að reynt væri, eins og áður
segir, að varðveita sem bezt hina
ósnortnu náttúru og fuglalíf.
Mál þetta hefur að sjálfsögðu
verið rætt margsinnis á fundum
skipulagsstjórnar og við fjölda
aðila, sem hlut eiga að máli. m.a.
við fulltrúa náttúruverndarráðs.
Er það því mjög villandi, hvern-
ig greinargerð náttúruvérndar-
ráðs hefst, en það er á þessa
leið: „Náttúruvemdarráð fékk
um það vitneskju á sl. vori o.s.
frv.“ Er með þessu gefið til
kynna, að náttúruverndarráð
hafi frétt um málið á skotspón-
um, en það hafði þá haft að-
stöðu til að fylgjast með málinu
hátt á annað ár.
Eftir ýtarlegar athuganir voru
færðir á uppdrátt fjórir mögu-
leikar á vegastæði, en síðan auk-
ið við fleiri möguleikum að ósk
skipulagsstjórnar.
Skipulagsstjórn hallaðist helzt
að möguleika, sem auðkenndur
var 1 B, og leitaði umsagnar
hreppsnefndar um hainn. Varð
síðar að samkomulagi að færa
hann lítillega frá vatninu og er
það vegarstæðið, sem nefnt er
leið II í greinargerð náttúru-
verndarráðs.
Var skipulagsstjórn einhuga
um það, að sá möguleiki full-
nægði bezt þeim sjónarmiðum,
sem áður eru nefnd, en þau eru
engan veginn takmörkuð við
svokölluð „hagsýnissjónarmið“
eins og eitt dagblaðanna komst
að orði.
Af hálfu náttúruverndarráðs
kom lengi vel það eitt sjónar-
mið fram, að vegarlagning, skv.
leið II truflaði fuglalíf. Nú munu
flestir ef ekki allir þeirrar skoð-
unar, að þessi leið, sem yrði
hvergi nær vatninu en 120 m,
hefði engin teljandi áhrif á fugla
líf, sem er raunar ekki mikið
á þessum kafla. Þegar þetta var
orðið ríkjandi skoðun, tóku full-
trúar náttúruverndarráðs að
benda á, að vegurinn yrði til
spjalla á hrauninu. Lagði nátt-
úruverndarráð til, að valin yrði
leið nr. IV en hvorkj hrepps-
nefnd • né skipulagsstjórn hafa
getað á það fallizt, enda telja
þær báðar, að einmitt af henni
yrðu „hin mestu náttúruspjöll"
svo að orðalag náttúruverndar-
ráðs sé haft.
Telur skipulagsstjórn að með
vali þeirrar leiðar væri brotið
í bág að meira eða minna leyti
við öll þau fjögur meginsjónar-
mið, sem hún telur að hafa beri
í huga.
Sú leið mundi kljúfa sundur
Reykjahlíðarbyggðina og með
þvi skapaðist bæði slysahætta
fyrir ibúana og verulegt ónæði,
svo og erfiðleikar fyrir umferð.
Tæknilega séð væri leiðin erfið
vegna snjóþyngsla og yrði að
hafa veginn mjög upphækkaðan.
Hlyti sá vegur af þeim sökum
að fara illa í landslagi og ekki
síður valda spjöllum á hrauninu
næst byggðinni, en leið II. Leið
IV veldur miklu meiri spjöllum
á ræktuðu landi en leið nr. II,
og skapar auk þess margháttaða
erfiðleika við búskap, þar sem
vegurinn muindi skilja sundur
annars vegar tún og bæjarhús,
en hins vegar beitiland.
Sikipulagsstjórn telur, að leið
nr. II sé eins og áður segir bezt
í samræmi við viðurkennd skipu
lagssjónarmið, hér verði um að
ræða snjóléttan veg, sem lagð-
ur verði með aðfluttu efni um
hraunið, þannig að hann fari vel
í landslagi enda ekki um neina
röskun að ræða utan sjálfs veg-
stæðisins. Auk þess valdi hann
hvorki búendum né íbúum hinj
fyrirhugaða þorps óþægindum,
sem heitið getur, miðað við leið
nr. IV.
Skipulagsstjórnin leggur á það
mikla áherzlu að með leið nr.
II skapas't friðað belti hvergi
minna en 120 metrar á breidd frá
vatni mælt að hinum nýja vegi.
í greinargerð náttúruverndar-
ráðs er reynt að gera lítið úr
þessu. í greinargerðinni segir:
„Vandséð er, hvaða aðili getur
ábyrgst, að eigi rísi byggingar
vatnsmeginn við veg eftir leið
nr. II“, Þar sem hreppurinn er
skipul'agsskyldur eins og áður
segir, hefur hreppsnefnd eftirlit
með því, skv. 5. gr. laga nr. 19/
1964. Hefur skipulagsstjórn enga
ástæðu til að vantreysta hrepps-
nefndinni til slíks eftirlits.
Náttúruverndarráð vitnað mik
ið í umsögn náttúruverndar-
nefndar Suður-Þingeyjarsýslu,
og .fær skipulagsstjórn ekki séð,
að umsögn hennar'raski neinu,
sem skipulagsstjórri heldur fram,
þegar málið er metið í heild.
Fleiri en eitt Vietnam.
Havana, 28. júlí NTB — Banda
ríski blökkumannaleiðtoginn
Stokely Carmichael sagði í við-
tali sem birt var í Havana í dag
að skapa þyrfti tvö eða þrjú
Vietnam-vandamál og fullyrti
jafnframt áð viðurkenna yrði að
Detroit og New York væru í
raun og veru slík Vietnam-
vandamál.
auglVsingar
SIIV!I 22.4-BO
Rétt þykir að benda á það, að
ráðlð hafði ekkert samband við
náttúruverndarnefndina, fyrr en
skipulagsstjórn benti á nauðsyn
þess.
Skipulagsstjórn telur, að flest-
ir hljóti að verða sammála um
það, er þeir meta þetta mál í
heild, að sú leið, sem hún legg-
ur til, að valin verði, sé að öllu
ieyti heppilegri en sú, sem nátt-
úruverndarráð heldur fram, og
muni meðal annars verða til
mun meiri náttúruverndar en
sú, sem ráðið leggur til.
Að lokum vill hún taka fram,
að sú vegarlagning, sem hér um
ræðir, er á engan hátt til kom-
in að hennar frumkvæði, heldur
óhjákvæmileg afleiðing af þeim
verksmiðjurekstri, sem senn
hefst við Mývatn og náttúru-
verndarráð hefur látið óátalinn.
Hún leggur á það áherzlu, að
hún vill ástunda gott samstarf
við náttúruverndarráð, en það
Þýðir hins vegar ekki, að hún
hljóti að samþykkja allt, sem frá
því kemur og allra sízt þegar,
málstaður er jafnlitlum rökum
studdur eins og í þessu máli og
málflutningur allur af miklu
kappi en lítilli forsjá. Hinsvegar
telur skipulagsstjórnin mjög mið
ur farið að stofnun eins og nátt-
úruverndarráð skuli láta frá sér
fara greinargerð, þar sem svo
mjög er hallað réttu máli eins
og nú hefur hent það.
13 úro með yfir
10 þús. kr. hlut
Stykkishólmi, 28. júlí.
HANN heitir Hlöðver Haralds-
son ag á heima á Skúlagötu 3 í
Stykkishólmi, hress Qg lífle'gur
drengur. Hann hefur frá því um
miiðjan júní sl. verið á hand-
færaveiðium á mb. Björg SU 9,
sem gerð er út frá Stykkiahólmi.
Hafaþ eiir bæði veitlt í Rreiða-
firði og ein® fyrir Suðuinlandi og
meðal annars verið við Eldey.
Þar voru þeir um daginn, þeigar
Hlöðver hitti á stór'an feng, en
það var 50 kig. lúða, væn og
fönguleg. Kom hann henni af
sjálfsdáðum upp í vatnsskorp-
una, en þá fór nú erfiðið að auk-
ast og varð hann að fá hjálp fé-
laga sinna til að korma henni alla
leiið upp í bátinn, en það tókst
með ágætum og var Hlöðver
h.rósað yfir góðum fenig.
Hlöðver er fæddur 1954 og
því um 13 ára gamall og er
hann búinn að fá milli 10 og 12
þúsund króna hlut og þykir það
gott, þegar tillit er tekið til þess
að ekki hefiur' alltaf verið sjó-
Viður og því komið nokkrar
gloppur í úthaldið. — Préttarit-
ari. —
Ot.R\FST0F/l fy
TOURIST
ITFERÐIR:
f UTANLANDSFERÐA-
BÆKLINGI OKKAR ERU
NÁNARI UPPLÝSINGAR
UM ALLAR IT-FERÐIRNAR
ÁSAMT VERÐUM. EINNIG
ERU f BÆKLINGNUM NÁ-
KVÆMAR UPPLÝSINGAR
UM HINAR ÞEKKTU FERÐ-
IR PRESTSINS í TJÆRE-
BORG, SEM FERÐASKRIF-
STOFA RÍKISINS HEFUR
EINKAUMBOÐ FYRIR Á
ÍSLANDI
FERÐAS KRIFSTOFA
RfKISINS
f IT-FERÐUNUM KAUPIR VIÐSKIPTAVIM URINN FLUGFAR, GISTINGU OG
JAFNVEL FLEIRA í EINUM PAKKA HJ 4 FERÐASKRIFSTOFUNNI. IT-FERÐ-
IRNAR VERÐA MEÐ ÞESSU MUN ÓDÝR \RI HEI.DUR EN ÓSKIPULÖGÐ FERÐA-
LÖG. SEM DÆMI VILJUM VIÐ NEFNA N^KKRAR AF HINUM FJÖLBREYTTU
OG HAGKVÆMU IT-FERÐITM Á LÆKKUÐUM FARG JÖLDUM, SEM VIÐ BJÓÐ-
UM YÐUR f ÁR:
Glasgow: 1 ðaga ferð, gistingar, morgunv. og kynnisferð um hálendi Skotlands
innif., kr. 6.350.—
Kaupmannahöfn - Amstsrdam - London:
14 daga ferð gistingar og mo gunv. innif., kr. 10.660.—
Róm - París - London: dasa ferð, gistingar og morgunv. innif. kr 14.790.—
Komið, skrifið eða hringið og við mtinum senda yður eintak af ut-
anlandsferðabæklingnum.
Berið saman verð og gæði, áður en þér ákveðið ferðalagið!
LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SÍMI 11540
Olafur Gunnarsson
og rógurinn
Um alllangt skeið hefur Ólaf-
ur Gunnarsson frá Vík í Lónl
stundað þá iðju að reyna að ó-
frægja íslendinga erlendis, og
um þessar mundir virðist hann
sérlega upplagður við þessi skrif.
Honum er sem öðrum kunnugt
um það að illa árar hér nú.
Afli hefur verið lítill og verð-
lag útflutningsafurða lágt. Þetta
eru staðreyndir, sem allir vita
um hér á landj og viðskiptamenn
okkar erlendis vita líka. Þá sér
Ólafur Gunnarsson sér leik á
borði. Honum finnst, að nú muni
gullvægt tækifæri til að sann-
færa menn um það í nágranna-
löndunum, að kreppuástand sé
yfirvofandi á íslandi og allt sé
hér á fallandi fæti. ’
j
Heldur því fram, að
laun hafi lækkað
um helming
Meðal þess fróðleiks, sem
þessi landi okkar bar á borð í
grein, sem hann ritaði sl. laug-
ardag í Politiken, er, að launa-
lækkun sé almenn hér á landi
og allt að því helmingslæklcun
launa, mikið atvinnuleysi sé og
menn hafi nú ekki lengur efni á
að byggja sér íbúðarhúsnæði. Og
hið furðulega skeður, Politiken
slær upp þessari grein án þess
að kynna sér, hvað satt og rétt
sé í málum. Undrar það íslend-
inga mjög að blað ein.s og Poli-
tiken og önnur blöð á Norður-
löndum skuli birta þetta níð og
ranghermi Ólafs Gwnnarssonar.
Blaðamenn í Danmörku ættu
þó að vita, að þar er haldið fram
furðulegri endaleysu, svo greið-
ar sem samgöngur milli land-
anna eru.
Hvaðan hefur
hann fréttii'nar?
Því er að vísu ekki að leyna,
að í kosningabará ttunni í vor
héldu sjórnarandstæðingar því
mjög á lofti, að allt væri að far-
ast hér á landi, en þeir gengu
þó ekki svo langt að það gæfi
Ólafi Gunnarssvni tilefni til
þeirra skrifa, sem hann hefur
látið frá sér fara, enda visau
allir menn, að stúrnarandstæð-
i ingar meintu ekki nema lítinn
hluta af því sem beir sögðu eins
og oft vill verða í harðri baráttu.
Auðvitað er sjálfsagt að segja
rétt og satt frá staðreyndum, erf
iðleikum ekki s’ður en meðbyr,
og hvorki verða innlendir né er-
lendir menn duldir þess, að á
'fi 'hJr"'' v r " ’htmTS af óviðráð-
anlegum ástæðum. En það er
hið mesta óþurftarverk að gripa
þetta tækifæ i til þess að skrifa
á þann veg, sem súrskaðað gæti,
ef menn tækju mark á orðum
manns eins oig Óla.fs Gunnarsson-
ar, og það kunna einhverjir
þeir að gera, sem ekki þekkja
til hans og iðju hans um all-
langt skeið. Annars væri gam-
an að fá upplýst hvert þessi mað
ur leitar til að fá upplýsingar
I um ástandið hér. Er hann e.t.v.
ekki vandlátari á heimildir en
svo, að hann lesi einungis Tím-
ann? — Og leggi síðan út af um-
I ',æ!um hans á sinn sérstæða hátt.
4