Morgunblaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 28
HEIMILIS IILIITIILIU TRYGGING -Híy- nm>) ALMENNAR TRYGGINGAR V rÓSTHÚSSTHÆTI » SlMI 17700 RITSTJORN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA-SKRIFSTÓFA SÍMI 10*100 MIÐVIKUDAGUK 2. AGUST 1967 „Mér finnst ég vera að heilsa skyldmenni" sagði borgarstjóri Gimli er hann ávarp- aði forseta Islands á Islendingadaginn Einkaskeyti til Mbl. frá Elínu Pálmadóttur, Gimli, Man., 1. ágúst. „MÉR finnst ég vera að heilsa skyldmenni14, sagði Violet Ein- arsson, borgarstjóri í Gimli við forseta íslands í ræðu, sem hann hélt á íslendingadaginn í Gimli við Winnipegvatn á mánudag, og það voru í rauninni orð þeirra 4—5 þúsund manns, er þarna var samankominn á hátíðinni. Þessi 78. íslendingadagur hafði mjög íslenzkan blæ yfir sér, ís- lenzkir fánar blökktu víða við hún, íslenzka tungan var ríkj- andi og viða mátti sjá íslenzka þjóðbúninginn. Fjallkona var Signý Eton, kona eins eiganda stórverzlunar húsanna um alla Kanada, seim er íslendingur í báðar ættir. Hrvatti hún fólkið á íslenzbu til að halda sínu tungumáli. Um 50 telpur í þjóðlbúningum sungu íslenzk barnalög og dönsuðu, dótturdóttir Guttorms J. Gutt- INIafn stúBkunnar sem beið bana UNGA stúlkan, sem lét l'ííið, er hún varð fyrir flugvélahreyfli á Reykja víkiu:rfl ugvelli sl. sunnu- d.ag, hét Anna Kristín Kristjáns- dóttir, og var 19 ára að aldri. NUREYKJAVIK 1.-8.ÁGUST1967 NORRÆNA æskulýðsárið 1967— 1968 hefst í dag kl. 14 í Háskóla- bíói með sameiginlegum fundi allra þátttakenda. Mótið setur Jón E. Ragnarsson, formaður Æskulýðsráðs Norræna félags- ins, en það gengst fyrir mótinu. Að lokinni setningarræðu flytur formaður Norræna félagsins, Sigurður Bjarnason, alþingismað ur frá Vigur, ávarp og síðan for sætisráðherra dr. Bjarni Bene- diktsson. Ávörp flytja fulltrúar hinna Norðurlandanna og að þeim lokn um flytur Páll Líndal, borgarlög maður erindi er nefnist: Island fyrr og nú. Mótsgestir eiga síðan kost á því að sjá kvikmynd um Surts- ey kl. 16, en kl. 20 verður kvöld vaka í íþróttahöllinni í Laugar- dal fyrir þátttakendur mótsins og almenning. Bæði gestir og heimamenn munu sjá um skemmtiatriði og íþróttasýningu. í mótinu taka þátt 78 Finnar, 24 Færeyingar og komu þeir hóp ar til landsins í fyrradag. í gær- kvöldi kl. 18 komu Norðmenn- irnir 37 að tölu og helmingur Svíanna. Hinn helmingurinn og danski hópurinn komu til lands- ins seint í gærkvöldi. Svíarnir eru alls 70, en Danirnir 62. Mótið, sem er liður í Norræna æskulýðsárinu hefur að mark- miði kynningu á íslandi nútím- ans. (Sjá blaðsíðu 10). ormseonar söng m.a. Sandybar og um kvöldið kom fólk saman og var þá fjöldasöngiur. Voru sungin mörg íslenzk lög. Auk þess var fegurðarsamkeppni stúlíkna úr íslendingabyggðum. Forsetinn, herra Ásgeir Ás- geirsson, sagði í ræðu, að menn- ingararfurinn hefði geymzt vel meðal íslendiniga í nýja landinu og borið ávöxt. Georg Johnson, menntamálaráðherra, talaði fyrir minni Manitobafylikis og Wint- ers, viðskiptamálaráðherra fyrir hönd Kanada. Harðfiskur var þarna á boð- stólum og var pakkinn seldur á einn dollar. Seldust 400 pakk- ar fyrstu 20 mínúturnar en um Fram'hald á bls. 27 Ófundin enn EKKERT hefur enn spurzt til Ingibjargar Salóme Sveinsdótt- ur, sem hvarf að heiman frá sér sunnudaginn 23. júlí. Hún sást síðast fara um borð í Kronprins Friðrik, sem lá hér í höfninni. Rannsóknarlögreglan sendi skeyti út til Danmerkur og spurð ist fyrir um hana, en án árang- urs. Fréttaritari Morgunblaðs- ins í Færeyjum segir, að engin fyrirspurn hafi borizt lögregl- unni þar, en Kronprins Friðrik er væntanlegur til Reykjavíkur í dag, og verður áhöfnin þá yfir- heyrð. ATHUGUN FARI FRAM A ÞÖRF BÆNDA Á KALSVÆÐUNUM Landbúnaðarráðherra og Búnaðar- félag íslands fjalla um málið SEM kunnugt er, er allmikið kal í túnum á Norðaustur- Iandi og sumstaðar talið svo mikið, að ekki verði hjá því komizt að veita bændum stuðning ef um rýrnun bú- stofns verði að ræða á þess- um slóðum. Búnaðiarfélag íslands hefur rit- að landbúnaðarrá-ðherra, Ingóllfi Jónissyni, bréf út af þessu méld og m.a. farið fram á að nefnd yrði skipuð tid að rannsaka þetta máa. fnekar. Um þessar mundir mun vera komin sæmileg grasispretta á svæðum norðanlands, en tíðar- far háir iheysbap og hiefuT raun- ar valdið því að spreittan er mjöig síðbúin. í bréfi Búnaðarfélagsinis til ráð herra siegir að féLagið sé þesis al- búið að kanna í lok ágÚBitmánað- ar hversu ásiatt sé um h-eyöflun í landinu, ekki einasta á harð- i nd asvæðu num, heldur ednnig þeim svæðum, sem betur er á- statt um í þessum efnum, og sjá þannig hvemig heyfengur verð- ut um land allt. í sambandi við þá athiugiun er lögð til skipun þriggja manna nefndar til að gera tillögur um hvernig með þetta rnáil megi fara. Búnaðarfé- lagið telur að ástandið sé mjög alvarlegt og þees vegna verði að leita að leiðum til að draga úr stórfelldri skepnuförgun og þá hvaða búfénaði beri helzt að farga. Einnig þurfi rækilega að athuga hjá þeim, sem verst eru settir, hverjar 'ráðstafanir megi koma þeim að beztum notum. í framlhaldi af þessu heíur bún að'armálas’tjóri rætt við Ingóitf Jónsson ráðherra. Líkur eru til að heytfengur verð'i í meðallagi á Suðurlandi og hey þar mjög góð. í Gunnarsholti á Rangárvöd- um er kögglagerð og gæti hún unnið talsverðan varatfóðursjóð fyrir bændur. Gert er ráð fyrir að unnið verði af fullum krafti við kögglagerðina í surnar og að þar megi framleiða 500—600 tonn af köglum. Þeir eru sem kunnuigt er hið ágætasta fóður og einkar hentugir í flutningum þar sem þeir taka stórfellt minna rými í fhrtningi en heyið, og geymsílu- þol þeirra er mun m'eira og fóð- urgildisrýrnun sáraiitil. Ástæða er til að gefa þessari stofnun ríkisins gaum og vera kann að í framtfðinni rnegi tryggja f óðurva ras j óði með ÞESSA ungu stúlku hitti ljós myndari Mbi., ÓI. K. M., nið ur við Tjöm í gær, þar sem hún spókaði sig léttklædd í góða veðrinu. Og samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er ekki útlit fyrir, að dætur Reykjavíkur þurfi að klæðast yfirhöfnum á næstunni, því að lítil breyting er á veður- kortinu, og er spáð áfram- haldandi léttviðri næstu dægr slíkri kö'gglagerð oig þá viðar á í in. — landiinu en nú er. íslendingur fótbrotinn í árás í Færeyjum * Arásarmaðurinn situr í varðhaldi Þórshöfn, 1. ágúst. UNGUR piltur frá íslandi, Jó- hann Sigurgeirsson, sem mun vera frá ísafirði, liggur hér í sjúkrahúsinu fótbrotinn eftir líkamsárás er hann varð fyrir á sunnudagskvöld. Þetta gerðistf hér í útlhverfi bæj arins skammt frá íþróttaleik- vanginum. íslendingurinn hafði komið hingað til Færeyja ásamt allmörgum löndum sínuarn til að vera á Ólafsvökunni. Hann og félagi hans báðu mann nokkurn um að aka sér í bíl sínum spöl- korn. Mun leiðin sem ekin var hafa verið um einn km. Krafði þá ökumaðurinn, sem er ekki starfandi leigubílstjóri, íslend- ingana um ökugjald og setti upp 25 færeyskar krónur (rúmar 150 ísl. kr.). Þessu höfðu íslending- arnir mótmælt. Færeyski ökumaðurinn brást þá hinn versti við og réðist á mennina báða og barði svo harkalega, að annar þeirra, Jó- hann Sigurgeirsson, fótbrotnaði er hann féll í ryskingunum. Lögreglan var kölluð tii að skakka leikinn. Flutti hún hinn slasaða í sjúkrahúsið, en félagi hans, sem nú er á heimleið slapp minna meiddur. Lögregiu yfirvöldin úrskurðuðu árásar- manninn í gæzluvarðhald og sit- ur hann nú í varðhaldi og bíður þess að mál hans verði tekiS fyrir. — Arge.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.