Morgunblaðið - 02.08.1967, Síða 12
I
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1967
12 •
I hitu baróttunnar
*
á Ineistaramóti Islands í frjálsum íþróttum
MEISTARAMÓT íslands í
frjálsum íþróttum fór fram á
Laugardalsvellinum í síðustu
viku. Sagt hefur verið frá úr-
slitum mótsins í blaðinu, en
það er mál manna, að mótið
hafi verið sérlega vel heppn-
að og á því hafi náðst allgóð-
ur árangur. Vona menn að nú
sé aftur að lifna yfir frjálsum
íþróttum á íslandi, þótt hæp-
ið megi samt telja að sama
„gullöld“ og var hér um 1950
komi aftur. Til þess er þjálf-
un og atvinnumennska stór-
þjóðanna orðin of mikil.
Framkvæmd þessa móts var
með miklum ágætum, og er
það önnur saga en hægt er að
segja um flest öll þau frjáls-
íþróttamót sem hér hafa verið
haldin. í framkvæmdanefnd
var stjórn frjálsíþróttadeildar
KR, en leikstjóri var Einar
Frímannsson og yfixdómari
var Björn Vilmundarson, for-'
maður F.R.Í. Auðheyrt og auð-
séð var á áhorfendum, að þeir
kunnu vel að meta það hversu
alit gekk greiðleg.a og hvað
sjaldan sköpuðust dauðir
punktar í keppninni.
Til leiks í keppni Meistara-
mótsins voru, að þessu sinni,
skráðir 124 þátttakendur frá 11
íélögum og héraðsamböndum.
Flestir keppendur í karlagrein
var í 100 metra hlaupi, en þar
mættu 12 til leiks. Annars bar
töluvert á því að skráðir kepp-
endur mættu ekki til leiks.
Slíkt er alltaf mjög leiðinlegt
fyrir áhorfendur og til lítils
sóma fyrir viðkomandi íþrótta-
menn.
Ef litið er á úrslit mótsins
kemur í Ijós, að KR-ingar
hlutu flest meistarastig eða 15
alls, og öll í karlagreinum, ÍR
hlaut 3, þar af eitt í kvenna-
greinum, HSK 1 í karlagrein-
um og 1 í kvennagreinum,
UMSS 1 í karlagreinum, HSÞ
3 í kvennagreinum, UMSK 2
í kvennagreinum og UMSE og
FH sitt hvort í kvennagrein-
um.
Valbjörn Þorláksson hefuT
þegar hlotið 8 meistaratitla, í
100 metra hlaupi, 200 metra
hlaupi, 110 metra grindahlaupi,
stangarstökki, spjótkasti,
fimmtaþraut og hann var í
sveit KR er vann 4x100 og
4x400 metra boðhlaup.
Halldór Guðbjörnsson, KR,
hefur hlotið 5 meistaratitla og
Þorsteinn Þorsteinsson, KR, 4.
í fimmtán- greinum náðist nú
betri árangur en á Meistara-
mótinu í fyrra. Sett voru 5
meistaramótsmet og eitt var
jafnað. Eitt íslandsmet var
sett í 4x100 metra borhlaupi
kvenna og Þorsteinn Þorsteins-
son, KR, setti glæsilegt ung-
lingamet í 400 metra hlaupi,
hljóp á 48,2 sek.
Þórarinn Arnórsson
Ánægður með bættan árangur
Síðari dag aðalhluta mótsins
gengum við um og hittym að
máli nokkra keppendur. Fyrst
náðum við tali af Þórarni Arn-
órssyni, ÍR, sem var að kasta
mæðinni eftir 400 metra hlaup
ið.
— Þú settir persónulegt met
í 400 metra hlaupinu, Þórar-
inn?
— Já. Ég bætti það sem ég
hafði áður náð um 1,2 sek.,
og komst nú niður fyrir 50,0
sek.
— Áttir þú von á því?
— Ja, svarar Þórarinn bros-
andi, — maður vonar alltaí
það bezta. Það var mjög gott
að hlaupa núna. Hlýtt í veðri
og brautin mátulega hörð.
— Ög þú náðir þínu bezta
í 800 metrunum í gærkvöldi?
— Já, — langbezta.
— Ertu í sérstaklega góðri
þjálfun núna?
_ — Ekki mundi ég segja það.
Ég hef ekki getað æft nema lít
ið undanfarið. Hef haft mörgu
öðru að sinna og tími til æf-
inga hefur verið takmarkaður.
— Og þú ert auðvitað ánægð
ur með árangurinn núna?
— Að sjálfsögðu er maður
Ijómandi ánægður. Þetta er
mikið að skána.
— Og ætlarðu að keppa í
fleiri greinum?
— Ég er að hugsa um að
fara í 1500 metra hlaupið á eft
ir. Ég er bara dálítið slæmur
í hælnum síðan í grindahlaup-
inu í gærkvöldi.
Og Þórarinn setti enn ei*t
persónulegt met í 1500 metra
hlaupinu og hljóp á 4:11,1 mí'l.
Jón H. Magnússon
G'ð aðstaða til sleggjukasts
Við gripum Jón H. Magnús-
son, ÍR, þegar hann steig af
verðlaunapallinum eftir að
hafa tekið við fyrstu verðlaun-
um fyrir sleggjukast og auk
verðlaunapeningsins hlaut Jón
að sigurlaunum fallegan silfur
bikar.
— Þetta er í annað skiptið
sem ég sigra á Meistaramóti,
sagði Jón. — Ég kastaði núna
51,38 metra, eða tveimur metr
um styttra en ég gerði núna í
undankeppni bikarsins. Ég er
því ekkert sérstaklega ánægð-
ur með árangurinn nú.
— Gerir þú þér vonir um að
ná íslandsmetinu í sleggju í
suinar?
— Það veit maður ekki.
— Hvað æfir þú oft?
— Reglulega annan hvorn
— Og þú hefur bætt árangur
þinn mikið að undanförnu?
— Ég hef bætt mig um 2
metra á ári síðan ég byrjaði
að æfa. Það eru fjögur ár síðan
ég byrjaði og þá kastaði ég 46
metra.
— Hvernig er aðstaðan til að
kasta sleggju?
— Ég mundi segja að hún
væri ágæt bæði hérna á Laug-
ardalsvellinum og eins á Mela-
vellinum a.m.k. íyrir okkur,
sem ekki köstum lengra en
þetta. Þjóðverjinn kastaði yfir
girðinguna á Melavellinum.
— Heldurðu að þú eigir eft-
ir að leika það eftir honum?
— Það er ótrúlegt. Það er
ekki svo mikil alvara í þessu
hjá mér.
— Er þér ekki minnisstætt í
fyrsta skipti sem þér tókst að
sigra íslandsmethafann, Þórð
B. Sigurðsson?
— Jú. En mér þótti sérstak-
lega gaman að sigra á fslands-
meistaramótinu í fyrra. Það er
sá sigur sem mér hefur þótt
vænst um.
Mikill íþróttaáhugi í Eyjafirði
Sigurður Sigmundsson var
kominn langan veg til að taka
þátt í mótinu, en hann er Ey-
firðingur og keppir fyrir
UMSE.
— Ég gerði mér vonir um að
ná betri árangri en raun varð
á. Það var búið að segja mér
að það væri svo miklu betra
að stökkva hérna heldur en
norður á Akureyri. Annars má
segja að völlurinn hérna sé
mjög góður, — það er bara ég
sem er ekki nógu góður.
— Hver er þinn bezti árang-
ur í stökkunum?
— É'g á bezt 6,71 metra í
langstökki og 13,62 metra í
þrístökki.
— Hvað mættu margir Ey-
firðingar til leiks á Meistara-
mótinu?
— Við vorum fjögur, tvær
stúlkur og við Jóhann Frið-
geirsson, en hann tók þátt í
spretthlaupum.
— Og ertu ánægður með
frammistöðu ykkar?
— Sérstaklega stúlknanna,
en þær urðu nr. 1 og 2 í kúlu-
varpinu og bættu sinn fyrri
árangur mjög mikið. Jóhann
Sigurður Sigmundsson
stóð sig líka með prýði og
setti UMSE-met í 4*00 metra
hlaupi.
— Er ekki mikill áhugi á
íþróttum í Eyjafirði?
— Hann er töluverður, en
aðstaðan til æfinga og keppni
er ekki nógu góð. Sérstaklega
yfir vetrartímann, en þá höfum
við ekkert íþróttahús. Áhuginn
er ekki svo ýkja mikill á frjáls
um íþróttum, en knáttspyrnu
stunda margir. Fyrir því eru
náttúrlega orsakir. Það er
meira fjör í kringum hana, og
svo útheimtir hún ekki eins
mikla þjálfun og frjálsar íþrótt
ir gera.
— Hvað starfar þú, Sigurð-
ur?
- Ég er íþróttakennari við
Héraðsskólann að Laugum í S-
Þingeyjarsýslu. Þar er áhugi
mikill á frjálsum íþróttum,
mikið æft og þar hefur líka
náðst góður árangur. í sumar
hef ég svo verið íþróttaþjálf-
ari í Eyjafirði.
Leiðinlegt að hlaupa einn
Á meðan við spjölluðum við
Sigurð lauk keppni í 1500
metra hlaupi, en þar varð sig-
urvegari Halldór Guðbjörnsson
KR, og bætti þar með við sín-
um þriðja meistaratitli. Ekki
þó baráttulaust, því að hinn
ungi Þingeyingur, Gunnar
Kristinsson, veitti honum tölu-
verða keppni. Að lokinni verð
launaafhendingu fengum við
Halldór til að ræða við okkur:
— Ertu ánægður með tím-
ann sem þú fékkst í hlaupinu?
— Eftir atvikum. Ég fékk
Halldór Guðbjörnsson
núna 4:02,5 mín, en á bezt
3:59,1, — náði þeim tíma 1965.
— Þingeyingurinn veitti þér
töluverða keppni?
-— Já, hann ýtti nú heldur
verulega á eftir mér. Annars
hefði ég sennilega verið á öllu
lakari tíma.
— Áttir þú von á því?
— Já svona hálft í hvoru.
Hann hefur verið hérna ein-
staka sinnum og staðið sig mjög
vel. Hann veitti mér góða
keppni í drengjahlaupinu 1966,
og hefur verið í framför síðan,
þannig að maður veit, að hann
getur orðið ágætur hlaupari.
Hann þarf bara að koma hing-
að oftar til keppni.
— Saknaðirðu ekki Þorsteins
í 1500 metra hlaupinu?
— Að vísu hefði verið gam-
an að hafa hann með. Það er
svo annað mál, að maður hefði
senniléga ekki reynst jafnoki
hans. Hann er í góðri þjálfun.
Framhald á bls. 20.
1500 metra hlauparar nýlagðir af stað. Fremstur fer Halldór
Guðbjörnsson, KR, síðan Þórarinn Arnórsson, ÍR, Gunnar
Kristinsson, IISÞ, Ólafur Þorsteinsson, KR, Gunnar Snorra-
son, UMSK og Þórarinn Sigurðsson, KR.