Morgunblaðið - 02.08.1967, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1967
17
Norræna æskulýðsmótið sett í dag
HINGAÐ til lands eru nú komin um
þrjú hundruð norræn ungmenni til að
taka þátt í norræna æskulýðsmótinu,
sem hér verður haldið 1.—8. ágúst.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Geir Hall-
grímsson, hýður þátttakendum til há-
degisverðar kl. 12 í dag, en kl. 14 verður
mótið sett. Jón E. Ragnarsson, fulltrúi,
formaður æskulýðsnefndar Norræna fé-
lagsins, setur mótið, Sigurður Bjarna-
son, formaður Norræna félagsins, flytur
stutta ræðu, dr. Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra, flytur stutta ræðu,
einn gesta þakkar, og Páll Líndal, horg-
arlögmaður, talar um ísland fyrr og nú.
Mótssetning fer fram í Háskólabíói.
í kvöld verður fjölbreytt dagskrá í
Iþróttahöllinni í Laugardal í tilefni
mótsins.
Frá varðeldinum á laugardag skvöldið.
Dr. Bjarni Benediktsson. Jón E. Ragnarsson.
Páll Líndal. Sigurður Bjarnason.
Hveravallafferð
Heimdallar
Helgina 22.—23. júli efndi
Heimdallur til ferðar á Hvera-
velli og um Kerlingarfjöll. Lagt
var af stað frá Reykjavík á laug
ardaginn og haldið til Hvera-
valla og hafst þar við um nótt-
ina. Á sunnudeginum var hald-
ið til Kerlingarfjalla og heim-
sóttur skíðaskóli Eiríks og Valdi
mars. í bæinn var komið seint
á sunnudagskvöld. Þátttakendur
voru margir og tókst ferðin í
alla staði mjög vel.
Fararstjóri var Árni Ól. Lár-
usson, og tók hann eir.nig mynd
irnar, sem birtast hér úr ferð-
inni.
Árni og Stefán taka sér hálendisbað.
„Við verðum að hjálpast að.“