Morgunblaðið - 02.08.1967, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1967
bond ueard tue
SOUNDOFA CAR
wzæp
GOLDFINGER'S
uouse, wrru/n.1
rrs secrets. ..
tOOKS HARMLCSfi
MÖUOH. HANPy HAVIMG T«
JE'S.OWN MECHAWICff-Á*
TRAP
TRAP,
TOO í
f BmuD the m
r WERE WORKSUC
WMCH SEEMED 7
Afmæliskveðja til T ryggva
Þorfinnssonar skólastjora
- ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 12.
— Hefur þú æft vel að und-
anförnu?
— Ég get ekki sagt annað.
Ég hef æft á hverjum degi í
allan vetur og hef reyndar
gert það síðan ég byrjaði í
íþróttunum, þangað til í fyrra,
en þá varð ég fyrir smá siysi
og gat ekki æft um tíma. Æf-
ingin er hinsvegar ekki sem
skyldi. Ég hef verið að festa
kaup á húsnæði og því komið
til fjárhagsáhyggjur og erfið-
leikar, sem alltaf fylgir slíku.
— Nú lendir þú stundum í
því Halldór, að vera eini kepp-
andinn í langhlaupunum — er
það ekki leiðinlegt?
— Það fer allur glansinn af
þegar maður verður að hlaupa
einn, eða hefur kannski litla
keppnL Það er til að drepa
mann alveg niður. Sigurinn
verður alltaf sætari ef maður
þarf eitthvað fyrir honum að
hafa, og maður nær heldur
aldrei góðum tíma, ef enginn er
til að keppa við.
— Fannst þér ekki skemmti-
legt þegar þér tókst að sigra
Kristleif bróðir þinn í fyrsta
skipti?
— Auðvitað þótti mér það,
en þó ekki sem skyldi. Hann
var að leika sér niður á þessar
stuttu vegalengdir, sem ekki
voru hans greinar, bara til þess
að skemmta okkur. Maður sigr
aði hann því aldrei raunveru-
lega í hans greinum.
Óráðinn með tugþrautina
— Ert þú byrjaður að æfa
fyrir tugþrautina, spurðum við
Jón Þ. Ólafsson að aflokinni
keppni í kringlukasti, en þar
varð Jón 5. og kastaði 43,41
metra.
— Nei, ekki er það nú, svar
aði Jón. — Hef reyndar að und
Verðlaunagripurinn skoðaður. Ólafur Guðmundsson varð að
sjá á eftir bikarnum til Gests-Þorsteinssonar, UMSS, sem nú
vann langstökkskeppnina. Milli þeirra stendur Guðmundur
Jónsson, HSK, er varð annar í langstökkinu.
anförnu æft meira fyrir þessar
tugþrautagreinar, einkum
vegna þess, að það er svo
slæmt að stökkva hástökk
hérna á vellinum. Það er alls
ekki nógu gott, að þegar mað-
ur er upp á 2,05 metra, eða
rúmlega það kannske, á Mela-
vellinum, að geta ekki stokkið
nema 1,90 metra hérna og það
með harmkvælum. Brautin er
mjög laus í sér og er leitt til
þess að vita að ekkert sku,i
gert fyrir hana, — ekki sízt
vegna þess að langstökks og
þrístökks brautirnar eru sér-
lega góðar.
— Er það ekki að brjótast í
þér að snúa þér einvörðungu
að tugþrautinni?
— Mig langar til þess, en er
ekkert búinn að ákveða enn.
Ég þarí að bæta mig verulega
í 3—4 greinum til þess að út-
koman verði sæmileg. Það eru
110 metra grindahlaupið, stang
arstökk, — já, og svo nenna að
hlaupa í 400 metrum og 1500
metrum.
— Ertu ánægður með
frammistöðu þína á þessu móti,
ef við undanskiljum hástökk-
ið?
— Eftir atvikum er ég það,
já. Þetta var t.d. mín önnur
bezta langstökkskeppni. f sann
leika sagt er ég alveg „búinn“
núna. Ég keppti á 12 daga tíma
bili í 27 íþróttagreinum og þar
á meðal 300 og 400 metra
spretti í boðhlaupum. Það var
því ekki við miklu að búast
af mér eftir svona lagað.
— Og þú keppir auðvitað í
tugþraut og fimmtaþraut móts
ins?
— Ég veit ekki hvort ég legg
í það að fara í fimmtaþrautina,
— ég er svo þungur á mér og
þreyta í mér. Tugþrautina er
ég hinsvegar ákveðinn að fara
í, enda verður hún seinna. í
ár er ég búin að bæta mig í
100, 200 og 400 metra hlaupum,
Iangstökki og spjótkasti svo ég
vona að ég geti náð sæmileg-
um árangri í þrautinni, sagði
Jón að lokum.
— stjl.
bættri menntum matsveina, varð
honum strax mikið áhugamál, —
strax er hann sjálfur hafði lokið
prófi í þeirri grein við skóla í
Danmörku. Markvisst vann hann
að málefnum matsveina, með
fram daglegum störfum sínum.
Það var samdóma álit allra
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Hafþórs Guðmundssonar hdl., fer fram
nauðungaruppboð að Mávahlíð 25, hér í borg, föstu
daginn 4. ágúst 1967, kl. 10.30 árdegis og verður
þar selt: Áleggsskurðarvél og ískista, talið eign
Guðm. Kristjánssonar v/Krónunnar, verzl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Jón Þ. Ólafsson
EINN helzti framámaður ís-
lenzkra matsveina, Tryggvi Þor-
finnsson, skólastjóri, verður
fimmtugur í dag.
Ekki er það beinlínis fyrir
það eitt að Tryggvi hafi nú náð
svo virðulegum aldri, að ég sting
niður penna, heldur hitt, að mér
er kunnugt um að stór er sá hóp-
ur manna sem Tryggvi hefur
starfað með er vildi fá tækifæri
til þess, er hann yrði fimmtugur
að hylla hainn og þakka honum
fyrir unnin störf í þágu íslenzkra
matsveina, en þar hefur Tryggvi
unnið hreinlega stórvirki, Þáttur
hans I því að vinna að aukiinni og
IAN FLEMING
Aftur inni í húsinu . . .
— Bezt að líta á baðherbergið og svefn-
herbergin. Þar eru mestu leyndarmálin
venjulega falin . . .
þeirra er bezt þekktu til, að er
ákveðið var að stofna Matreiðslu-
og veitingaþjómasikólann, þá kom
enginn annar til greina til að
veita þeirri stofnun forstöðu en
Tryggvi sakir hæfileika og mennt
unar, emda vafðist það ekki fyrir
ráðamönnum skipun skólastjór-
ans. Hefur Tryggvi síðan gegnt
skólastjórastarfinu af alkunnum
dugnaði og samvizkusemi og tek-
izt að skipa skólanum sess hlið-
stæðum þeim er við þekkjum hjá
nágrannaþjóðum okkar.
Er sá hópur nú orðinn allfjöl-
mennur matreiðslumanna og
framreiðslumanna sem Tryggvi
hefur brautskráð frá skóla sín-
um. Fyrir hönd þessara gömlu
nemenda hans, vil ég í dag færa
honum alúðarfyllstu þakkir. En
það er svo önnur saga og lengri,
að með okkur tókst náin vin-
átta hér fyrr á árum, sem aldrei
hefur nokkum skugga borið á.
Fyrir þetta, fyrir ánægjustundir
yfir alvarlegum úrlausnarefnum
sem ég hef leitað með til
Tryggva, — og fyrir ótal ánægju-
stundir á laxveiðum og annarri
tómstundaiðju, vil ég færa vini
mínum Tryggva innlegar þakkir
á þessum merkisdegi hans. Ekki
lýk ég þessum línum án þess að
senda konu Tryggva, frú Brigitte
hamingjuóskir með „gamla mann
inn“, sem ég reyndar veit að
seint muni eldast.
Tryggvi og kona hans, taka I
dag á móti gestum á heimili sínu,
Skipholti 42.
Stefán ólafsson
veitxngamaðm•.
Bond heyrði bifreið aka bnrt. Hann var
aleinn í þessu leyndardómsfulla húsi
Goldfingers . . .
— Hvort sem þetta er gUdra eða ekki,
er tækifærið of gott tU að láta það ónotað.
Bak við húsið var verkstæði, sem leit
út fyrir að vera fyrir einhvers konar
málmvinnu.
— Virðist svo scm nógu saklaust. Lag-
tækur maður með sitt eigið verkstæði.
Hann hlýtur að hafa dældað hliðina, þessi
þjónn.
JAMES BOND
áames Bond
MN FLEMN6
OlUWiG 8Y JOHN McLOSKY
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Áma Guðjónssonar hrl., fer fram
nauðungaruppboð að Vesturgötu 2, hér í borg,
föstudaginn 4. ágúst 1967, kl. 10 árdegis og verð-
ur þar seld stillivél Hartridge, Serial No. N.U.E.
3260, talin eign Diesils, stilliverkst.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Ágústs Fjeldsted hrl., fer fram nauð-
ungamppboð að Hverfisgötu 32, hér í borg, fimmtu
daginn 3. ágúst 1967, kl. 5 síðdegis og verður þar
seldur fjölritari Multilith 2066, talinn eign Sig-
urjóns Þorbergssonar.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Gulldósir
Hurfu af borði í gangi handlækningadeildar Lands
spítalans þ. 31.7. Dósimar em um 3x3 á stærð,
rifflaðar beggja megin, merktar G.J. Upplýsing-
ar í síma 16033.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 14. og 16. tölubl. Lögbirt-
ingablaðsins 1966 á Háteigi 19, Keflavík, eign Haf-
steins Ólafssonar, fer fram eftir beiðni sölubeið-
anda á eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. ágúst 1967.
kl. 11 fyrir hádegi.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
ATVINNA
Okkur vantar nú þegar starfsmenn til starfa við
kvöld- og næturvaktir, svo og til aksturs. Rétt-
indi til aksturs stórra farþegabifreiða nauðsynleg.
Upplýsingar á skrifstofu okkar að Reykjanesbraut
12.
Landleiðir h.f., sími 20720.
Kona
óskast til eldhúsverka. Upplýsingar í síma 12112.