Morgunblaðið - 01.09.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGUR !. SEPT. 1967
11
-■> . o
\ rústum Borgarskála
ÞA9 var heldur óhugnanlegt
um að litast í vöruporti Eim-
skipafélagsins við Borgartún
í gær. Hrottalegar rústir
vöruskemmanna tveggja
blöstu við augum likt og
gapandi sár. Brunnar vörur
og skemmdar mættu auganu
alls staðar og hvar sem
skyggnzt var í rústirnar
blasti viðurstyggð eyðiiegg-
ingarinnar við.
Slökkviliðsmenn voru enn
að störfum, þegar við geng-
um þarna um laust eftir há-
degi í gær og logaði þá glatt
víða í skemmunum. Hálf
brunnin teppi lágu við vest-
urgafl skemmu númer fjögu>r
og upp úr rústunum við
norðurgafl skemmu númer
tvö stóð koparafsteypa af Út-
lögum Einars Jónssonar eins
og klettur úr hafinu. Inni í
rústunum gaf ýmislegt á að
líta. Þar logaði í dagblaða-
pappír og sífelldar sprenging
ar áttu sér stað í brúsum og
dunkum ,af mörgu tagi. Alls
kyns varningur hefur þarna
orðið eldinum að hráð. M.a.
fann blaðamaður Mbl. þarna
mikið af hálfbrunnu tyggi-
gúmmí og píputóba'ki en Ijós-
myndarinn starði daufur á
ónýtan myndapappír og
brunnar Ijósmyndavélar. Þá
sást í ýmis heimilistæki, sem .
aldrei koma til með að
skreyta íbúðir íslendinga og
margt var þarna fleira, sem
of langt yrði upp að telja.
En það voru fleiri en ís-
lendingar, sem urðu fyrir
eignatjóni í þessuim stór-
bruna. Brezka heimsveldið
átti þama húsgögn, sem urðu
eldinum að bráð og hittum
við þá Kristján Þórhallsson
og Michel Mc‘Locklen, starfs-
menn brezka sendináðsins, þar
sem þeir voru að virða leif-
ar þeirra fyrir sér.
— í þessum kassa voru hús
gögn til Mc’ Locklen, sagði
Kristján. Hann er nýr sendi-
ráðsritari hérlendis og er bú-
inn að bíða eftir þessum hús-
gögnum í eitt ár. í gær vorum
við búnir að tollklára alla
pappira en okkur vannst ekki
tfmi til að ná í húsgögnin,
sem nú eru farin veg allrar
veraldar. Verðmæti þeirra var
um 150.000 krónur.
— Voru húsgögnin tryggð?
— Það er mér ókunnugt
um.
Þegar við spurður Mc'Lock
len, hvernig hohuim hefði orð
ið við að sjá eldinn gleypa
langþráðu húsgögnin, sagði
hann aðeins: Þetta var óhapp
og ekkert annað.
Þegar okkur varð litið á
leifar skemmanna sjálfra kom
Framhald á bls. 21.
Á efri myndinni sjást vöruskemmur E. í. við Borgartún eins og þær voru fyrir hrun-
ann. Neðri myndin var tekin úr lofti um kl. 7 í gærmorgun og sjást glögglega á henni
hin miklu umskipti við bninann. Efri myndina ók Ævar Jóhannsson, en Ól.K.M. þá neðri.
Bárujárnið tekur á sig ýmsar kynjamyndir í átökunum við eldinn. Ljosm.: Sv. Þ.
Kristján Þórhallsson og Mic hel Mc’Locklen virða fyrir sér
leifar húsgagnasendingarinnar. (Ljósm.: Sv. Þ.)
. —
«vs