Morgunblaðið - 22.10.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OJCT. 1967
5
Háspenmilínumaður við viðg-erðarstörf að vetri til.
Rafmagnsveitur ríkisins:
Rafstðövar eru nú 26
með 29.000 kw afli
— Samtal við Valgarð Thoroddsen, rafmagnsveitustjóra
JAFNT og þétt er að því unntð,
að koma rafmagninu inn á nærri
því hvert heimili í landinu.
Þetta er mikið verk og kostnað-
arsamt, og sem dæmi má nefna
að á þessu ári verða lagðar nýj-
ar háspennulínur sem eru
hvorki meira né minna en 300
kni að lengd. Það eru Rafmagns
veitur ríkisins, sem framkvæma
þetta verk og veitir Valgarð
Thoroddsen rafveitustjóri þeim
forstöðu. Morgunblaðið hefur
nýlega átt samtal við Valgarð
um starfsemi og verksvið Raf-
magnsveitnanna.
Hvað er verksvið Rafmagns-
veitna ríkisins til aðgreiningar
frá öðrum rafveitum?
—Rafmagnsveifur ríkisins
framleiða og kaupa raforku,
flytja hana víðsvegar uim land-
ið með háspennulínum sínum
og selja hana til notenda. Þær
kaupa orkuna aðallega í stærstu
landa, Eitthvað ætt.u þeir
stöðvunum, Sogsvirkjun og Lax
árvirkjun, en svo framleiða
þær einnig í eigin stöðvum,
dreifðum víðsvegar um landið.
Slíkar eigin stöðvar rafmagns-
veitnanna eru nú 26 að tölu,
með um 29000 kw. afli.
Rafmagnsveitur ríkisins selja
raforku beint til notenda, svo
og til bæjarrafveitna, sem
sjálfar annast dreifingu. Utan
þessa eru þó mestu þttbýlis-
kjarnar landsins, svo sem það
sem stundum er nefnd Stór-
Reykjavik og Akureyri.
En hvar er Landvsirkjunin í
þessu skipulagi?
— Landsvirkjunin er sérstakt
fyrirtæki, sem framleiðir raf-
orku og selur hana aðeins á
tveimur tilteknum stöðum við
Reykjavík og í Straumsvík, svo
og við stöðvarveggL Lands-
virkjunin er eign ríkisins og
Reykjavíkurbæjar. Kaupendur
raforkunnar eru aðallega Raf-
magnsveita Reykjavíkur, Raf-
magnsveitur ríkisins og væntan-
leg aluminverksmiðja í Straums
vík.
En Laxárvirkjun?
— Laxárvirkjun er Norður-
landi sem Landsvirkjun Suð-
vesturlandi en Laxárvirkjun er
einnig sameign Akureyrarbæjar
og ríkisins.
Hvað er að frétta af rafvæð-
nigu landsins. Hvað þokast
áfram á þessu ári?
— Við erum í þann veginn að
ljúka áætluðum verkum þessa
árs, en það eru um 250 bm af
llkv háspennulínum ásamt
spennistöðvum og heimæðum.
Þessár veitur ná til ríflega 200
sveitabýla og um 60 annarra
staða í sveit.
Fyrir nokkrum árum byrjuðu
Rafmagnsveitur ríkisins á því í
sparnaðarskyni, að nota móður
jörð sem einn leiðara á há-
spennulínum, og voru þá að-
ems notaðir 2 vírar þar sem 3
vorú notaðir áður og einn þar
sem tveir voru áður, Þetta
hefur reynzt ve'., þar sem viss-
ar aðstæður eru fyrir hendi. Á
þessu ári voru byggðar þannig
150 km af 11 kv. sveitaveitum
með einum vir af áðurnafndum
250 km.
Auk þessa hafa verið byggðir
um 50 km. af öðru.m háspennu-
linum um landið. Þær línur eru
til Dalvíkur, Borgarfjarðar
eystri og sæstrengur yfir Hrúta-
fjörð til Borðeyrar. Þá hafa
verið framkvæmdar þessar ár-
legu aukningar raflínukerfa í
þekn 50 kaupstöðum og kaup-
túnum, þar sem Rafmagnsveitur
ríkisins hafa á hendi raforku-
dreifingu.
Hvað um fjármuni til að
standa undir þessum fram-
kvæmdum?
— í stórum dráttum má segja
að sjálfur rekstrarkostnaður
Rafmagnsveitna ríkisins sé um
200 millj. króna og tekjur af
raforkusölu m. m. svipuð upp-
hæð, en árl. kostnsður til nýrra
mannvirkja um 100 millj. kr.
að auki, þar með taldar aukn-
ingar díselstöðva. Til aukning-
anna leggur ríkið fram um 25
millj. vegna nýrra sveitaveitna,
en afganginn verðum við að
taka að láni. Hvorttveggja dreg
ið í grófum dráttum.
Þér minnist á dieselstöðvar.
Eitthvað hef ég lesið í blöðunum
um að þið væruð að byggja
díselstöð í Neskaupstað?
— Jú, mikil ósköp. Við erum
að drekkja okkur í díselolíu. Að
vísu er ekki um alveg nýja
díselstöð að ræða í Neskaup-
stað, heldur stækkun og endur-
bót til þess að fullnægja stöðugt
vaxandi raforkuþörf. En sama
sagan gerist víðar en þar.
Einnig á Seyðisfirði, Flat-
eyri, Bíldudal og í þremur öðr-
um kauptúnum, þar sem orkan
er af skornum skammti.
En hvers vegna notið þið þá
ekki okkar innlendu orku,
vatnsorkuna?
— Díselstöðvar hafa fyrst
verið byggðar á hinum einangr-
uðu stöðuim, þar sem ekki þótti
henta að byggja vatnsaflstöðvar.
Síðan hefur notkun á hverjum
stað aukizt og ódýrasta lausnin
þótti að bæta við nýrri eða skipta
um og setja nokkuð stærri vél.
Svona hefur þetta giengið koll
af kolli .Síðar hafa nokkur
svæði verið samtengd og reist
vatnsaflsstöð, en innan skamm*
Valgarð Thoroddsen
rafmagnsveitustjóri
hefur hún verið fullestuð og þá
er gripið til fljótlegustu og ódýr
sutu stofnkostnaðar-lausnar
með nýrri og aukinni díselvél
þvílí'k lausn raforkumála er
hagkvæm að vissu marki, en ég
er þess fullviss, að því marki er
nú náð. mjög víða á landinu.
Hvernig standa þeasi mál
núna? Hve mikið virkjað afl
hafa Rafmagnsveiturnar í vatns-
orku og díselorku.
— Sumstaðar á landinu er
raforkan eingöngu framleidd
með díselorku, svo sem í Horna-
Framh. á bls. 18
Horft til Grimsárvirkjunar.
ANGLI - SKYRTUR
COTTON - X COTTON BLEND
09 RESPI SUPER NYLON
Fáanlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47.
Ilvítar — röndóttar — mislitar.
Margar gerðir og ermalengdir.
ANGLI - ALLTAF