Morgunblaðið - 24.10.1967, Side 11

Morgunblaðið - 24.10.1967, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKT. 1967 11 Leikfélag Kópavogs að hef ja starfsemina LEIKFÉLAG Kópavogs er að hefja starfsemi sína og er það 11. starfsárið í röð. S.l. vetur voru sýnd hjá fé- laginu þrjú leikrit: Óboðinn gestur eftir Svein Halldórsson, leikstjóri Klemenz Jónsson, Ó, amma Bína eftir Ólöfu Árna- dóttur, leikstjóri Flosi Ólafsson og Lénharður fógeti eftir Einar H. Kvaran, leikstjóri Baldvin Halldórsson. Einnig voru haldn- ar tvær skáldakynningar, þar sem lesið var úr verkum Davíðs Stefánsson, skálds frá Fagra- skógi og Halldórs Kiljans Lax- ness, rithöfunds. Á aðalfundi félagsins, sem haldinn var 31. maí s.l., var kosið í núverandi stjórn, sem þannig er skipuð: Gunnvör Braga Sigurðardóttir, formaður, Sigrfður Einarsdóttir. gjaldkeri og Brynhildur Ingjaldsdóttir, ritari. Æfingar standa nú yfir á gamanleikritinu Boeing-Boeing eftir Marc Camoletti, sem mun verða frumsýnt innan skamms, leikstjóri er Klemenz Jónsson. Þá verða teknar upp að nýju sýningar á Lénharði fógeta. I ráði er að efna til skáldakynn- inga í vetur. Fari hin fyrri fram í nóvember, helguð Magnúsi Ásgeirssyni, skáldi og ljóða- þýðanda, en hin síðari eftir ára- mót, helguð Guðmundi Kamban, skáldi og leikritahöfundi. Mótmælo einahogsaðgerðum MBL. hafa borizt mótmæli vegna efnahagsaðgerða ríkis- stjórnarinnar frá fjórum stéttar- félögum og fara kaflar úr þeim hér á eftir: „Fundur í Starfsmannafélagi ríkisstofnana haldinn 21. 10 1967 mótmælir harðlega þeim ráðstöf unum, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi til laga um efnahagsaðgerðir. sem fela í sér stórfelida kjaraskerðingu alls launafólks". „Fundurinn skorar á heildar- samtök íaunþega, BSRB og ASÍ, að mynda samstöðu til áð koma í veg fyrir að slrkum aðferðum verði beitt við tilraunir til lausn ar efnahagsvandamála þjóðarinn ar“. Á fundí Nótar, sveinafélags netagerðarmanna, sem haldinn var 15. þ.m., var eftirfarandi sam þykkt gerð með samhijóða at- kvæðum: „Félagsfundur í Nót, sveina- félagi netagerðarfnanna, haldinn þann 15. obtóber 1967, mótmælir harðlega þeirri kjaraskerðingu sem gert er ráð fyrir í efnahags málafrumvarpi ríkisstjórnarinn. ar, sem lagt hefur verið fyrir Alþ Kjaraskerðing þessi er fram- kvæmd með stórfelldum verð- hækkunum á algéngustu neyzlu vörum og hækkunum á ýmsum almennum gjöldum heimila. Eftirfarandi álytkun var gerð á fundi stjórnar og trúnaðar- mannaráðs Landssambands vöru- bifreiðastjóra sl. laugardag: „Fundur Landssambands vöru- bifreiðastjóra. haldinn 21. okt- óber 1967, mótmælir harðlega þeirri árás á lífskjör launþega, er þegar hefur verið framkvæmd með verðhækkunum á brýnustu lífsnauðsynjar almennings og telja verður brot á þeim verð- stöðvunarlögum, sem í gildi eru. Einnig mótmælir fundurinn frum varpi ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum ,er nú liggur fyrir Alþingi, og mun, ef að lögum verður, rýra í auknum mæli kaup mátt launastéttanna". „Landssam'band vörubifreiða- stjóra væntir þess, að viðræður þær, sem nú hafa verið ákveðn- ar milli launþegasamtaka og rík isstjórnar, megi leiða til þess„ að aðrar og heppilegri leiðir verði fundnar til lausnar þeim vanda, sem við blasir, en þær sem felast í frumvarpi ríkis- stjórnarinnar. Það er skoðun Landsambands vörubiffeiðastjóra, að kaupmátt launastéttanna megi ekki rýra, og telur að ekki komi til mála að svipta Iaunþega þeim rétti, að verðlagsuppbót verði greidd á laun þeirra". Á fundi stjórnar og trúnaðar- mannaráðs Félags afgreiðslu- stúlkna í brauð- og mjólkurbúð um sem haldinn var 20. þ.m., var eftirfarandi samþykkt gerð með samhljóða atkvæðum: „Fundur haldinn í stjórn og Framlhald á bls. 12. IV BÍLAR Tilboð óskastí Chevrolet ’58 Zodiac ’59 Zephyr ’59 Volga ’59 Opel Kapitan ’58 Simca ’63 Peugeot ’65 Tilboðin miðist við staðgr Verðið á bílunum miðast við hagstæða greiðsluskil- mála. ^VOKULLHf. Chrysler- Hringbraut 121 umboðið sími 106 00 FÉLAGSLÍF Framarar Meistara-, 1., 2. flokkur kvenna og karla. Félagsheimilið verður opið á þriðj.udagskvöldum frá kl. 20,30—23. Tennis, töfl, spil og músik. Fjölmennið og skemmt ið ykkur saman. Knattspyrnudeild. KR, knattspyrnudeild. Æfingatafla. 5. flokkur: Sunnudaga kl. 1,00. Mánudaga kl. 6,5ö. Föstudaga kl. 6,55. 4. flokkur: Sunnudaga kl. 1,50. Fimmtudaga kl. 7,45. 3. flokkur: Sunnudaga kl. 2,40. Fimn iudaga kl. 8,35. 2. flokkur: Mánudaga kl. 9,25. Fimmtudaga ’kl. 10,15. 1. fl. og meistaraflokkur: Mánudaga kl. 8,35. Fimmtudaga kl. 9,25. Harðjaxlarnir: Mánudaga kl. 7,45. 5., 4. og 3. flokks drengir, athugið breyttan æfinga- tíma. KR, knattspyrnudeild. Illllllllllllllllll Seljum ídag Rambler American ’65 og ’66 Rambler Classic ’63, ’64, ’65 Rambler Marlin ’65 Chevrolet impala ’66 Zephyr ’66 D.K.W ’64, ’65 Bronco ’66 Land-Rover ’65 Hagstæðir greiðsluskil- málar lílkl Rambler- JUN umboðið LOFTSSON HF. Hringbraut 121 — 10600 lllllllllllllllllll S. Helgason hf. LEGSTEINAR MARGAR GERDIR SÍMI 36177 Súðarvogi 20 KLÆÐSKERI vanur afgreiðslu, óskar eftir vinnu. í fataverzlun frá 1. nóv. Nánari upplýsingar í síma 1435, Sel- fossi, kl. 9—2 og 4—6 í dag og næstu daga. Getið þér gert betri bílakaup ©1200 kostar aðeins krónur 136.800.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.