Morgunblaðið - 24.10.1967, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKT. 1967
MAYSIE GREIG: 40
Læknirinn
og
dansmærin
Antoinette kom inn til hennar og
sagði, að Sellier læknir væri
kominn og valdi tala við hana.
Hún stirðnaði upp í sömu
sporum. Hún gat ekki trúað
þessu. Og þá fann hún, að hún
skalf öll frá hvirfli til ilja.
—Sagðirðu honum, að ég væri
heima?
— Já, ungfrú, sagði Antoin-
ette og leit eitthvað sk/rítilega á
hana. Hann bíður niðri í dag-
stofunni. Húsbóndinn er farinn
til Nice, eins og þér vitið.
— Ég kem eftir andatak.
Hún greiddi sér og lagaði á
sér andlitið, en hún vissi sjálf,
að þetta vax aðeins gert tii að
tefja tímann. Hvaða erindi gat
Marcel átt við hana? Var það til
þess að segja henni, að nú væri
hann orðinn giftur?
Loksins píndi hún sig til að
fara út úr herberginu og niður
stigann og í dagstofuna. Marcel
stóð þar og sneri baki að arn-
inum. Hann var svo fallegur þar
sem hann stóð þarna. Kannski
yrði þetta í síðasta sinn, sem hún
fengi að sjá hann. Hvernig gæti
hún þolað þá tilhugsun?
Hún hlaut að hafa gefið eitt-
hvert hljóð frá sér, því að hann
leit snöggt til hennar, og svo
breiddi hann út faðtminn. —
Yvonne, sagði hann.
Hún færði sig ósjlálfrátt til
hans, rétt eins og rekin af ein-
hverju innra afli. Hann vafði
hana örmum. — Yvonne, elskan
mín, elskan mín! Hann kyssti
hana fast og lengi.
Það var eins og hana svimaði.
Hún vissi ekki, hvernig hún var
komin í fangið á honum, hvers
vegna hann vildi faðma hana —
hann sem var nýgiftur. En hún
var enn svo ástfangin af honum,
að hún vildi ekki meina honum
að kyssa sig. Hún var hamingju-
söm — í fyrsta sinn í margar
vikur.
Hún stamaði: — Ég skil þetta
ekki. Ég hélt, að þú hefðir far-
ið til Parísar til þess að gifta
þig-
— Já, ég fór til Parísar, en
ég gifti mig ekki. Ég átti alvar-
legt viðtal við Alise og sagði
henni, hvernig allt var.......að
ég væri ástfanginn af þér og
héldi ekki, að ég gæti fært henni
neina hamingju, þó að við fær-
um að giftas. Og hún tók þessu
miklu betur en ég hafði búizt
við. Bún sagði, að sig hefði
lengi grunað, að ég væri ást-
fanginn af þér. Hún gaf líka
hálfgert í skyn, að einhver ann-
ar væri kominn til sögunnar, og
að minnsta kosti félli henni þetta
ekki sérlega þungt. Þú sérð þess
vegna, elskan miín, að nú er
ekkert til fyrirstöðu hjlá okkar
lengur — ef þú ert ennþá ást-
fangin af mér.
— Hvort ég er ástfangin af
þér! sagði hún, en fór þá að
gráta.
— Æ, elskan mín, hvað geng-
ur að þér?
— Ég hef verið ástfangin af
þér næstum frá fyrstu byrjun,
sagði hún. — En hvað segja for-
eldrar þínir um þetta?
— Ég býst nú varla við, að
þau séu sérlega ánægð með það,
en þegar ég var búin að útskýra
málið fyrir þeim, eru þau reiðu-
búin til að láta það gott heita
og taka við þér. Kvíðirðu nokk-
uð fyrir því, els'kan? Ég er viss
um, að þeim þykir vænt um
þig þegar þau hafa kynnzt þér.
Hún laut höfði. Hún gat enn
ekki ráðið við tárin. Þetta hafði
komið henni svo á óvart. En hún
var dásamlega hamingjusöm.
— En hvað eiga öll þessi kof-
ort að vilja þarna framm‘í for-
stofu? sagði hann. — Eru Henne
sy og Dickie að fara?
— Já, og það er ætlunin, að
ég fari með þeim.
Hann greip hana aftur í fang-
ið. — En það geturðu bara ekki!
Ég mundi engan láta taka þig
frá mér. Og ég tek það ekki í
mál, að þú farir. Ég vil hafa þig
einhvers staðar nærri mér, nú og
framvegis. Við getum gift okk-
ur svo að segja strax, ef þú vilt.
Segðu mér ekki, að þú sért hætt
að elska mig.
Hún hló lágt. — Vitanlega
els'ka ég þig, Marcel. Mér hefur
liðið hræðilega undanfarnar vik
ur. Ég kom einn daginn í stofuna
til þín og frétti, að þú værir
farinn til Parísar. Og þá varð
ég dauðhrædd um, að þú hefðir
farið til þess að gifta þig. Og
ég hef verið hrædd æ síðan.
— Og var það þessvegna, að
þú samþykktir að fara vestur
með Hennesy og Dickie?
Hún kinkaði kolli. — Já, ég
hélt, að það gæti hjálpað m-ér til
að gleyma þér. Og Aron og
Dickie voru svo áfjáðir í, að ég
kæmi með þeim.
— Ég held, að Hennesy sé eitt
hvað ástfanginn af þér. Er hann
það ekki?
— Kannski. Hún roðnaði og
þurrkaði af sér tárin, — Hann
hefur verið mér mjög góður.
— En þú elskar hann ekki, er
það?
Hún hristi höfuðið. — Nei, en
ég dáist að honum, og m.ér er
vel til hans, en ég gæti aldrei
elskað annan en þig.
— Ó, elskan mín! Hann faðm
aði hana að sér aftur. — Ég
skal útvega þér einhvern dval-
arstað þangað til við getum
gift okkur. Og þér er sama þó
að það verði dálítið fljótt?
Hún hló en var skjálfrödduð.
— Ég veit ekkert, hvað ég er að
samþykkja núna. En hvernig
verður það með dansinn? Æti-
arðu nokkurn tima að lofa mér
að dansa framar?
— Já, í góðgjörðaskyni. Það
eru nóg tækifæri hérna til þess
að dansa í góðgerðaskyni. En
ég vildi ekki, að konan míri væri
dansmær að atvinnu. Þú skilur
það, elskan mín?
Hún andvarpaði, en henni var
valið auðvelt. Hún var svo ást-
fangin af Marcel, að hún gat
Kenwood strauvélin
Yður eru frjálsar hendur
við val og vinnu
Simi
11687
21240
Laugavegi
170-172
Hekla
Vikuþvottinn. lök, sængurver,
borðdúka, handklæði, kodda-
ver o. fl. o. fl. er nú hægt að'
strauja á örskamnari stund.
Þér setjist við vélina slappið
af, látið hana vinna allt erfiðið.
Engar erfiðar stiiður við strau-
borðið. Kenwood strauvélin
losar yður við allt erfiðið, sem
áður var.
Á stuttum tíma komist þér upp
á lag með að strauja. skyrtur
og annan vandmeðfarinn þvott
vei og vandlega. Lök, sængur-
ver og önnur stærri stykki er
hægt að strauja án allra vand-
kvæða í Kenwood strauvél-
inni, sein er með 61 cm valsi.
Þér getið pressað huxur, stífað
skyrtur og gengið frá öllurn
þvotti í Kenwood strauvélinni
eins og fullkominn fagnaður.
Verð aðeins kr: 5.350.
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
ekki hugsað sér sjálfa sig sem
annað en konuna hans, sem hugs
aði um hann, fæddi honum börn
og væri í einu orði sagt, sönn
eiginkona.
"yrir manni.
Hún hló. — Já, en góði Dickie,
þú verður að vera hamingju-
samur fyrir mína hönd. Ég er svo
hamingjusöm sjálf.
— Já, ég skal gera eins o.g þú
vilt, sagði hún.
Hvorugt þeirra tók eftir því,
að Dickie stóð í dyrunum og
horfði á þau. Það var hneykslun
arsvipur á andlitinu á honum.
— Þetta þýðir sjálfsagt sama
sem, að þú ætlir ekki að koma
með okkur vestur, Yvonne? sagði
hann og var allur hinn herská-
asti.
— Nei, því miður verður víst.
ekkert af því, Dickie.
— Bless, sagði hann. — Þið
þurfið víst að fara að kyssast
aftur fyrirgefið, að ég skyldi
ónáða ykkur.
— Þú ert ágætur, Dickie. Hún
vafði hann örmum og, þrýsti hon
um upp að sér. — Ég skal aldrei
gleyma þér né heldur hve góð-
ur hann pabbi þinn hefur verið
mér.
— Jæja, bless, sagði drengur-
inn aftur og gekk síðan út, óá-
nægður á svipinn.
Hún gekk til hans og breidd;
úr faðminn. — En láttu það ekki
á þig fá. Ég er svo afskapiega
hamingjusöm.
— Elskarðu þennan náung’a?
spurði hann.
Hún kinkaði kolli. — Já, meira
en orð fái lýst,
— Mér datt þetta í hug, að þú
værir skotin í honum, sagði
hann. — En þú hefðir nú samt
átt að koma með okkur, Yvonne.
Ég er viss um, að pabbi verður
bálvondur.
Ég skal útskýra þetta fyrir
honum, eftir því sem ég get,
Dickie, sagði hún í hálfum hljóð-
urn. — Mér þykir fyrir því að
gera ykkur báðum þessi von-
brigði. En þú skilur, að ég elska
hann Marcel svo heitt.
— Ég vona, að ég komist
aldrei í svona ástarvesen, sagði
Dickie. — Það eyðileggur allt
— Þykir þér fyrir því, að ég
s'kuli vera að rugla fyrir þess-
um áætlunum þínum? sagði
Marcel.
- Ég er of hamingjusöm til
þess að finna til þess, enda þótt
mér þyki lei-tt að rugla fyrir
Aron og Dickie. En ég elska þig
svo heitt.
Hann tók hana aftur í fang
sér og kyssti hana á augun,
m'unninn og háisinn. — Ég vona
bara að þú elskir mig alltaf eins
og þú gerir í dag, elskan mín,
sagði hann hás. Hve fljótt get-
um við gift okkur?
— Hvenær sem þú vilt, hvísl-
aði hún. — Ég elska þig svo
heitt, að ég gæti ekki neitað þér
um neitt.
— Þá giftum við okkur eftir
viku. Og megi ást okkar ætíð
haldast eins og hún er í dag.
(Sögulok).
V erkakvennafélap;ið Framsókn
Félagsfundur fimmtudaginn 26. október kl. 8.30
eftir hádegi í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Fundarefni:
1. Félagsmál. ,
2. Kosning á 3. þing Verkamannasambands
íslands. /
3. Rætt um skipulagsbreytingu A.S.Í. Frum-
mælandi Óskai Hallgrímsson.
4. Önnur mál.
Konur fjölmennið og mætið stundvislega.
STJÓRNIN.
BLAÐBURÐARFOLK
ÓSKAST
í eftirtalin hverfi
Vesturgata I — Þingholtsstræti — Laugarásvegur
— Aðalstræti — Baldursgata — Bárugata — Hjalla-
vegur — Granaskjól — Ægissíða — Selás — Máva-
hlíð — Hraunbær frá 102.
Talið við afgreiðsluna i sima 10100
fHmgmiiMiifrifr