Morgunblaðið - 07.11.1967, Síða 5

Morgunblaðið - 07.11.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓV. 1967 5 Staldrað við hja Styrktar- félagi lamaðra og fatlaðra ÞAÐ var á laugardaginn var. Þá skrapp ég í leikskóla á Sjafnargötu 14. Það var tylli- dagur hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Tylli- dagur, vegna þess að húsið þeirra nýja að Háaleitisbraut 13 var orðið fokhelt og var því að góðum og gamalli venju haldið reisugildi, arki- tektum. meisturum og verka- mönnum boðið ásamt ýmsum vinum og velgjörðamönnum félagsins. Aðspurður, sagði Svavar Pálsson framkvæmdastjóri flagsins, að Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefði rekið æfingastöð að Sjafnar- götu 14 síðan 1956. Lömunar- veikifaraldur hefði geisað um haustið 1955 og fram á árið 1956. Þá hefðu margir sjúklingar fengið nauðsyn- lega eftirmeðferð þar. Húsið hefði áður verið ein- býlishús, og hefði félagið keypt það síðast á árinu 1955 og látið gera nauðsynlegar breytingar á því. Öllu hefði því verið í verk komið á ein- um mánuði með aðstoð danska lömunarveikifélags- ins. Frá upphafi hafi það verið ljóst, að þessi stöð yrði ekki rekin nema til bráðabirgða. Árin væru þó þegar orðin tólf, síðan stöð þessi tók til starfa og starfaði hún enn. Svavar Pálsson sagði sömu- Leiðis, að stjórn félagsins og framkvæmdanáð hafi á síðast liðnu ári ákveðið að byggja nýja æfingastöð og hafi borg- arstjórn heimilað félaginu að byggja stöðina að Háaleitis- braut 13, Reykjavík. Hús þetta sem er tæpir 400 rúmmetrar að stærð og fer Öll starfsemin fram á einni hæð sem er sex hundruð fer- Húsið uppsteypt. metrar að flatarmáli, og er þetta ólíkt hentugra fyrir- komulag en það, sem búið hefur verið við, það er eins og að líkum lætur. Erfitt er að hjálpa fötluðu fólki upp og niður stiga í æfingaklefa, sundlaug, og svo frv. Um leið og þetta nýja húsnæði verður tekið í notkun, er hægt að taka á móti fleirum sjúkl- ingum í einu, þjálfa fleiri, þar sem klefarnir verða stærri og rýmri, og getur þá sami sjúkraþjálfarinn hjálp- að fleirum en einum í senn. Nú hefur félagið selt húsið að Sjafnargötu 14 og mun verða á brott með alla starf- semi sína þar hinn 1. október 1968. Segir Svavar, að ef allt gangi að óskum, þá ætti að vera hægt að flytja starf- semina þá þegar að Háaleit- isbraut 13. En segið okkur, Svavar, hafið þið ekki ein-hver spjót úti með fjáröflun núna? Er ekki þetta orðið ykkur dýrt? Ja, spót, dýrt? Jú, við byrj- uðum með símahappdrætti okkar þann fyrsta september, og verður dregið á Þorlákis- messu, og síðan hringt í vinningshafa strax, en vinn- ingar eru tveir bílar og tutt- ugu aukavinningar. Það hef- ur gengið nokkuð dræmt með happdrættið, enn sem komið er, en ekki þýðir annað en að vona allt hið bezta í þess- um efnum. Happdrættið nær til allra kaupstaða á landinu. Nú, svo hefur félagið feng- ið lán úr Erfðafjársjóði til byggingarframkvæmdanna. Líkan af húsinu fullgerðu. Hvað kostnað snertir, þá sbendur verkið í fjórum millj- ónum ennþá, og hefur allt staðizt áætlun. Líklegt er, að við getum flutt inn fyrir aðrar fjórar milljónir, en hvað kostar að fullgera mann virkið og ganga frá öllu end- anlega er ekki hægt að segja, að svo komnu máli. En hvernig er nú það, Svavar, gerið þið ráð fyrir að vera búnir að fá hitaveitu í húsið fljótlega? Það er ekki gott að segja. það er meiningin, því getur seinkað eitthvað, og því er í ráði að setja olíukyndingu inn til að byrja með, það er nauðsynlegt, en auðVitað kostar það eitthvað það er skiljanlegt. Það má þá kannske selja hana seinna, og það fæst þó alltaf eitthvað fyrir hana. Ætlið þið að selja eitthvað fleira í sambandi við bygg- inguna? Já, við komum til með að hafa nóg af notuðu timibri til sölu og ágætils vinnuskúr, sem mætti t. d. nota fyrir sumarbústað. Hann er smíð- aður af okkar ágætu smiðum, og get ég því persónulega mælt með framleiðslunni. Hafa ykkur ekki borizt einhverjar gjafir, Svavar? Jú, við höfum notið gjaf- mildi margra. Stærstu gjaf- irnar voru hálf húseignin Óðinsgata 30 (hinn helming- inn fékk Hringurinm), sem ekkjan Sigurbjörg Pál-sdóttir eftirlét okkur, húseignin Eiríksgata 19, og eitt hundrað þúsund krónur, sem Kristján Benediktsson fró Raufanhöfn arfleiddi Okkur að. En svo má ekki heldur gleyma að útgjöld okkar eru mikil, við höfum sjö sjúkraþjálfara í fastri vinnu, og skrifstofu- stúlku til að hugsa uim papp- írsvinnu. Allt kostar þetta peninga og upphæðirnar fara sjálfsagt hækkandi með hækkandi verðlagi. Sjáifsagt er nú að tefja ekki framkvæmdaistjórann lengur, svo að ég kveð, þakka upplýsingarnar og vona að happdrættið þeirra lýsi upp jólin hjá einhverjum göngu- limum sem ekki á nein hand- rit til að sóla skóna sína með. M. Thors. JUKE BOX Rock-ola (stereo) 200 lög, lítið notað, til sölu. Upplýsingar í síma 36424. Kona óskar eftir atvinnu Er vön verzlunarstörfum. Hef unnið í sérverzlun með afborgunarkerfi. Upplýsingar í síma 81894. Kvenfataver/lanir Til sölu eru þrjár amerískar útstillingagínur. SÓLBRÁ, Laugavegi 83. Skrifstofuhúsnæði iil leigu við Laugaveg í nýju húsi. Upplýsingar í síma 38415. ' Frá Ford í Þýzkalandi getiS þér valið __________ um fjórar tegundir traustbyggðra bíla: y//" 'rTw" \ Taunus 12 M, 15 M, 17 M, og 20 M. Árgerðin 1968 býður upp á: Áukið vélarafl, 12 volta rafkerfi, tvöfalt hemlakerfi, tvöföld bakkljós, loftræst- ingu með lokuðum rúðum, þægilegri i- J stóla. BÍLARNIR SEM SAMEINA: RÝMI — ÞÆGINDI — FEGURÐ. HR. HRISTJÁNSSON H.F. U M D 0 Fl 10 SUÐURLANDSBRAUT 2 • SÍMI 3 53 00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.