Morgunblaðið - 07.11.1967, Page 21

Morgunblaðið - 07.11.1967, Page 21
MOHGTJNÐl.AÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓV. 1967 21 Stefán Pétursson frá Húsavík: Nokkur orð til skipaskoðunarstjóra Það hafa orðið mikil brögð að því hin sfðari ár, að síldarskip hafi farizt og er þá oft kallað, að það hafi stafað af ofhleðslu, án þess að gild rök væru fram sett. Sjór getur að sjálfsögðu komizt í skip, án þess að um of- hleðslu sé að ræða. Það er því nausynlegt að kanna í hverju einstöku tilfelli, hver sé orsökin til þess að sjór komst í skipið. Mitt álit er að þama sé annarra orsaka að leita en ofhleðslu m. a. óhógt eftirlit með breytingum á síldveiðiskipum og búnaði þeirra. Á árunum milli 1930—40 voru hér nokkur járnskip milli 100 og 200 tonn að stærð og voru skip þessi almennt kölluð línu- veiðarar. Voru mörg þessara skipa góð sjóskip. I skipum þess- um voru þá þungar gufuvélar, en á stríðsárunum voru settar í þau diesenvélar, sem voru miklu léttari og við það raskaðist stöð- ugleiki skipanna, enda fóruet sum þessara skipa. Ég man að eitt þessara skipa fórst út af Tjörnesi og annað norðvestur af Rauðunúpum. Með tilkomu kraftblakkarinnar fóru þó síld- veiðiskipin fyrir alvöru að týna tölunni. Eftir stríðið voru keyptir nokk uð margir bátar frá Svíþjóð. Það voru aðallega þrjár gerðir 50, 80 og 100 tonna bátar. 80 tonna bátarnir voru almennt kallaðir Bárðarbátarnir. Ég held að þess- ir bátar hafi verið sæmilegir, að minnsta kosti var mikið sótt á sumum þeirra á vetrarvertíð- um. En það má öllu ofbjóSða. Þessir litlu bátar voru eftirlits- laust útbúnir til síldveiða með kraftblökk. Þessir bátar voru með bátadekk. Þegar bátarnir voru útbúnir til þessara veiða, var sett járnskúffa fyrir nótina upp á bátadekk. Svo var sett jámbóma ca. 4—5 metra há frá dekki, þar í var hengd blökkin. Nótin var svo höfð í skúffunni, sem þá hefur verið ca. 5—6 tonn að þyngd. Allt var þetta sett stjórnborðsmegin í bátinn. Það hljóta allir að hafa séð, að þessir bátar gátu engan veginn borið þessa yfirvigt, enda varð raun- in sú. Ég álít að það hafi veri'ð jafn fráleitt að kenna bátunum um að þeir ultu eins og ef menn hjálpuðust við að setja svo þung- ar klyfjar upp á hest, að hann sligaðist undir þeim og ásaka svo hestinn fyrir ræfildóm, en ekki mennina, sem létu upp klyfjarnar. Síðast voru tveir af Bárðarbátunum eftir og ég held, að þeir hafi stöðvast vegna þess að engir menn fengust til að fara um borð í þá til þessara veiða, en ekki að þeir hafi verið stöðvaðir af skipaskoðuninni. Hjálmar Bárðarson skrifar grein í Morgunblaðið 22. okt. s. 1. undir fyrirsögninni: „Síldveiðar, hagnaður og öryggi“. Þar sem mér þykir grein þessi ekki rituð af nógu mikilli ábyrgðartilfinn- ingu. af manni í hans stöðu, þá vil ég fara um hana nokkrum orðum. Hiálmar vitnar í grein Ásge’rs Jakohssonar. en þar seg- ir meðal annars: „Það er afleitt að h'irfa að hlaða skip þannig. að hað sé nánast slembilukka hvort hau komast að landi eða ekkí“, É<? skíl ekki hvernig Ás- geir wetur fellt sh'kan sleggiu- dóm oo fréf’ítea't vaeri að vita. hvn-t henn hvevður á reynslu þane nf for«inni moð Erninum í yiimor TTióimnr notar svo hessa fult’'”*inon * cnoirs =0m viðmið- 1 vn r^iv llTTl ÖrV£fí*- í grein sinni segir Hjálmar: „Ég hefi leyft mér að undirstrika orðlð þurfa í þessari setningu því spurningin er einmitt sú, hversvegna þarf að hlaða skipin svo óhóflega mikið. Þörfin hér getur eingöngu verið fjárhags- legs eðlis, enda kemur þetta greinilega fram síðar í grein Ásgeirs". Þetta tel ég mjög al- varlegar aðdróttanir. Það kann að vera, að Ásgeir sem óábyrg- ur blaðamaður, hafi leyfi til að skrifa svona, en þegar skipaskoð- unarstjóri tekur þetta upp og gerir að sínum orðum, þá er óhjá kvæmilegt áð krefjast þess, að hann færi rök að svo stórfelldri farmi. Þetta tel ég ekki eiga við skoðunarstjóri, að skipstjórar séu neyddir til þess að hlaða skipin svo, að það sé nánast slembilukka hvort þau komast að landi. Hjálmar skipaskoðun- arstjóri talar um „órýmil'ega ábyrgð" á herðum skipstjórnar- manna, að þurfa að ákveða hleðsluna sjálfir. Ég vi'ðurkenni að það er mikil ábyrgð, sem hvílir á þessum mönnum, en þetta hefur gengið um aldirnar, að formenn og skipstjórar hafa að mestu leyti orðið að ákveða hleðslu fiskiskipa og það er mitt álit að það hafi tekizt giftusam- lega, að því leyti, sem ég þekki til. „Ertu hræddur" heitir næsti kafli greinar Hjálmars. Þar er hann að ræða ábyrgð skipstjórn- armanna og þá sérstaklega ef eft- ir er síld í nótinni þegar skipið er orðið hæfilega hlaðið og seg- ir: „Það er sannarlega erfið ákvörðun hjá skipstjóra þegar skip er orðið hóflega hlaðið og mikil síld er eftir í nótinni að gefa fyrirskipun um að sleppa því sem eftir er. — Heyrt hefi ég að komið hafi fyrir a'ð óorð- var háseti á þilfari, hafi hróp- að upp í brú til skipstjóra Ertu hræddur". Hér talar Hjálmar enn með lítilsvirðingu um skip- stjóra og gefur í skyn að þeir séu undir áhrifum annarra. Hér finnst þetta minna á þegar sagt er: Ólýginn sagði mér, eða það sem haft var eftir Gróu á Leiti og kallaðar Gróusögur. Hinsveg- ar sá ég í Speglinum fyrir mörg- um árum gamanmynd af skipi, sem var að háfa síld og var nánast að sökkva og var þá einn hásetinn látinn kalla: „Einn háf enn“. Það getur verið gaman að svona frásögn í grínblaði, en mér finnst skipaskoðunarstjóri ætti ekki að skrifa um þessi mál í grínblaðastíl. Þetta eru alltof alvarleg mál til þess. Stöðugleikamælingar hafa ver ið framkvæmdar á nýju skipun- um og tel ég það nauðsynlegt. Einkum myndi ég leggja mikið upp úr stöðugleikamælingum á tómum skipum og þar væri stöð- ugleikinn hafður sem mestur. Ég viðurkenni að ég get ekki hlaðið skip eftir stöðugleikamælingu, hinsvegar get ég sagt frá minni 30 ára reynslu með hlaðin síld- arskip. Þar sem rætt er um hvort betra er að hafa dekk- hle’ðslu eða stóran lestarfarm, vil ég skýra frá reynslu minni. Mestu síldarárin 1939—45 var ég með v/b Barða, sem var 21 tonn að stærð. Þessi bátur tók 130 mál í lest, en 180—200 mál voru látin á dekkið. Næsti bátur, sem ég var með var 51 tonn og tók 250 mál í lest, en 330 mál á dekk. M/b Pétur Jónsson sem ég var lengst með, að stærð 53 tonn tók 320 mál í lest, en 410 á dekk. M/b Náttfari tók áður en hann var lengdur, 730 mál í lest og ekki var minna látið á dekkið. Allir þessir bátar voru „lifandi" og fóru vel undir farmi. Þó ég aðeins nefni þá báta, sem ég hefi verið með, þá voru þetta hleðsluhlutföllin á öllum smærri síldveiðiskipunum, eins og þá var. Ég varð aldrei fyrir því að missa síld út af dekki. En ég hefi talað við nokkra skipstjóra, sem hafa orðið fyrir því að fá á sig sjóhnút, en þá hefur ekki annað skeð, en að síldin hefur farið út af dekkinu og skipið komið upp og þá hefur hjálpað þeim hvað lítill var lestarfarmur og þau voru létt. Hjálmar talar um að síldar- skip verði „dauð“ imdir miklum farmL Þetta tel ég ekki etga við nema um mikinn lestarfarm sé a'ð ræða. Komi það fyrir, að skip með ofmikla lestarhleðslu fái á sig sjóhnút, þá yfir erfitt fyrir það skip að hafa sig upp. Ef nota mætti orðið öryggi í sam bandi við þessa hleðslu, þá snýst það um hve mikill hluti farms- ins var á dekki. Það þarf mikla aðgætni til að ferðast á svona bátum. Ef veður spillist er auð- velt að losa sig vi‘ð dekkfarm- inn og þá er báturinn létthlað- inn með lestarfarmi. Hinsvegar tel ég mikla lestarhleðslu hættu lega og myndi ekki vilja vera á skipi, sem væri þannig hlaðið, að dekkið er komið undir sjó Stefán Pétursson. með lestarhleðsluna eina. Ég trúi því að skip sem þannig eru hlað- in verði „dauð“ og varasöm, þessvegna er ég í engum vafa um, að of mikil lestarhle’ðsla er hættulegri en dekkhleðsla. Hjálmar skipaskoðunarstjóri ræðir um lengdu skipin og seg- ir: „Varðandi lengdu skipin þá er ég einnig algjörlega sammála Ásgeiri Jakobssyni. Lestarrými þessara skipa er yfirleitt alltof mikið til að þau þoli að fylla lestar, og einmitt þessi lengdu skip hlaðast mest fram með full- ar lestir“. Ég er sammála um það að margar lengingarnar eru varhugaverðar og þessi skoðun Hjálmars staðfestir mitt álit, að of mikil lestarhle’ðsla er ekki ákjósanleg. Um þessar lengingar viðurkennir Hjálmar, að hann hafi látið undan ásókn útgerðar- manna og skipstjóra, þó hann vissi að sum þessara skipa þyldu hana ekki. Ennfremur segir Hjálmar: „Að sjálfsögðu voru strax augljósir þeir gallar, sem yrðu á þessum skipum eftir leng- ingu og ég gerði það, sem hægt var til að hindra lengingarnar.“ Hjálmar getur ekki haldið því fram að hann hafi gert allt sem hægt var til að hindra lenging- amar, vegna þess að hann hafði vald til a’ð banna þær. Fróðlegt væri að fá að vita hverjir það voru, sem þurftu að sækja svona fast á að fá að lengja skip sín. Þannig lýsir Hjálmar aðferð- unum við að losa sig við síld af dekki: „Það verður að hafa það hugfast í þessu sambandi hvernig nú er farið a’ð ganga frá síldarfarmi á þilfari. Yfir öllu þilfarinu er strekt sterk segldúksábreiða reyrð niður með fram skipshliðunum og oft negld til öryggis í planka að aftan. Þeg- ar skipið kastast til getur síldin færst til innan í segldúksábreið- unni út í þá hliðina, sem skipið hallar á.“ Og enn segir hann: „Til þess að losna við síldina af þilfarinu, þarf að senda mann fram á þilfar. Þeir geta reyndar verið í björgunarbeltum og í bandi, en eru þó í verulegri hættu í sjó á sleipri segldúks- ábreiðunni, sem þeir þurfa að losa, jafnvel undir sjó í því borði, sem skipið hallast á.“ Ég hefi ekki trú á því, að sjómenn kann- ist við þessa lýsingu Hjálmars. Ég álít að engurn skipstjóra dytti í hug að senda mann nið- ur í sjóinn til þess að leysa yfir- breiðsluna þó það kæmi fyrir að skipið hallaðist. Ég skil ekki hvaða tilgangi það þjónar a'ð skrifa um þetta í slíkum reyfara- stíl. Hinsvegar er það rétt að síld getur kastast út í borðið og ábreið.an haldið henni, en þá er mjög auðvelt að fara með hníf og rista seglið, og má gera það þeim megin sem skipið er upp úr. Skipaskoðunin lét gefa út regl- ur Um hleðslu síldvei’ðiskipa og var þar ákveðið, að frá október til apríl skyldu skipin vera hlað- in á núll-línu (skamdekk). Þetta er ekki réttur mælikvarði á hleðslu hvers skips. Það fer eftir byggingarlagi skipsins og hvem- ig skipin leggjast með fulla lest Það er vitað að mörg skipin leggjast fram þegar þau em kom in á núll-Iínuna. Ef núll-línan er framan við miðju, er í regl- unum um hleðslu er ekkert tek- ið fram um það hvar núU-linan á að vera, tel ég að skipið sé búið að missa beztu sjóhæfni, og því meira, sem núll-línan færist lengra fram. Hleðslan fer einnig eftir bygg- ingarlagi skipanna. Mörg skip eru reist til endanna og því nið- urskorin, eins og kallað er, um miðjuna. Þegar þessi skip em komin á núll-línu um mitt skip er mikið burðarmagn eftir í end- um skipsins. Eftir að þesseir reglur voru settar hafa komið ný skip, sem eru méð þannig byggingarlagi, að þegar skipið er hlaðið á núU-línuna um miðj- una, má heita að allt skipið sé komið í sjó. Skip með svona byggingarlagi þurfa, að mínu áliti að hafa fríborð með lestar- hleðslu. Svo segir í reglunum að ef ve'ður er vont skuli loka öllum hurðum á þilfari. Nú vita aUir skipstjórar, að nauðsynlegt er að loka hurðum þegar vont er veður. Ef til væru skipstjórar sem ekki létu loka hurðum, em þá nokkrar líkur til að þeir menn fæm að lesa sér til í reglu- gerð, þegar þannig væri ástatt. Ég tel það móðgun við skip- stjóra að setja svona í reglugerð. I reglunum em ákvæ'ði um það hvernig eigi að ganga frá hillum í lest, séu þær notaðar. Það reglugerðarákvæði líkar mér vel, en sá gaUi er á því, að skipa- skoðunin lítur ekki eftir að það sé haldið. Þegar reglur þessar gengu í gildi var ég staddur á Austfjörðum. Þá komu menn á hverri höfn með tommustokk til að hyggja að hvort sjór væri á dekki og hve mikiU. Þá spurði ég skipstjórana hvort þessi menn hefðu athugað lestaruppstiUingu og fékk ég aldrei jákvætt svar við því. Er þó rökstuddur grun- ur til að ætla að röng uppstiU- ing í lest hafi valdið tjónL Þá datt mér í hug: Ofhleðsla skal það heita. 1 sambandi við hleðslu sUd- veiðiskipa er það mitt álit, að ekkert skip ætti að hafa stærra lestarrými en svo að með fullar lestar væri skipið hla'ðið á núll- línuna um mitt skip, og að þau skip, sem lítið eru reist tU end- anna hefðu fríborð með lestar- hleðslu. Ef skipin em hlaðin á þennan hátt, tel ég óhætt að hafa það á valdi skipstjóranna hvort þeir taka síld á dekk. Mér er ljóst að á þessum tíma árs em sjaldnast veður tU þess að hægt sé að komast tU lands með síld á dekki. I sumar vom síldveiðar stundaðar fjær landL en áður hefur verið gert. Þessar veiðar verða ekki stundaðar, að nokkru gagni, nema flutninga- skip séu á veiðisvæðinu, og þá finnst mér það öfgakennt, ef síldveiðiskipum sem em að fiska í námunda við flutningaskipið sé bannað að hla'ða meira en á núll-línuna. Hjálmar Bárðarson sækir mik- ið ráðstefnur um öryggi fiski- skipa. Ef hann lýsir ástandinu hér heima eins og hann gerir í Morgunblaðinu 22. okt. s. L, þar sem hann segir, að það sé nánast slembilukka, að síldvefðiskip okkar nái landi með afla, þá tel ég það hæpna landkynningu. Hjálmari verður tíðrætt í grein sinni um ágimd og telur hana undirrót öryggisleysisins. Ég vil segja Hjálmari, að margir em undrandi á, að hann sem skipa- skoðunarstjóri, skuli drýgja tekj ur sínar með því að teikna síld- veiðiskip, sem hann sjálfur og starfslið hans á að samþykkja og dæma. Ég vona að enginn taki orð mín svo, að ég vilji draga úr ör- yggi sUdveiðiskipa og þá um leið skipshafna, heldur þvert á móti, Mér hefur gramizt livernig Hjálmar Bárðarson skipaskoð- unarstjóri hefur skrifað um þessi mál. Það gengur eins og rauður þráður í gegnum öll hans skrif lítilsvirðing á skipstjómar- mönnum. Hinsvegar gerir hann mönnum vel ljóst hver það er, sem vit hefur á þessum málum. Til þess að ná góðum árangri I öryggismálum síldveiðiskipa er naúðsynleg samvinna skipaskoð- unarstjóra og skipstjórnarmanna. Skipaskoðunarstjóri hefur bók- legu þekkinguna, en skipstjórar reynsluna og geta þeir á þann hátt borið saman ráð sín. Stefán Pétursson. r Oskast strax tveggja herbergja íbúð með húsgögnum (sem næst Miðbænum) fyrir barnlaus hjón. Upplýsingar í síma 16115. Lokað til hádegis þriðjudaginn 7. nóvember vegna jarðarfarar. Bifreiðaverkstæðið Spindill, Skúlagötu 53. Sjávarlóð Til sölu er stór lóð undir einbýlishús við Skerja- fjörð. Lóðin er í fremstu röð. Tilboð sendist Mbl. fyrir föstudag merkt: „Sjávarlóð 319.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.