Morgunblaðið - 15.12.1967, Side 1
32 SIÐUR
54. árg. 286. tbl.
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gagnbylting
Atburðirnir vekja ugg — Ovísí
um viðurkenningu á stjórninni
Aþenu, Róm, Bríissel, Kaupmannahöfn, London
og Washington, 14. desember — NTB—AP —
HERFORINGJASTJÓRNIN í Grikklandi virðist
vera traust í sessi eftir að hafa unnið algeran sig-
ur í uppgjörinu við Konstantín konung og stuðn-
ingsmenn hans, og allt virðist vera með kyrrum
kjörum í Aþenu og víðast hvar annars staðar í land-
inu. Hinn nýi forsætisráðherra, Georg Papadop-
oulos ofursti. sagði á blaðamannafundi í dag, að
þjóðhættulegt samsærj hefði verið brotið á bak aft-
ur án blóðsúthellinga og í Grikklandi væri enn þing-
bundin konungsstjórn.
nstantíns bæld niöur
Konstantín konungur, sem
kom til Rómar i morgun, ásamt
fjölskyldu sinni, móður sinni,
Friðriku drottningu, og forsætis-
ráðherra sínum, Konstantíni Kol
Verður sumið
við konung?
ÁREIÐANLEGAR heimildir
í Washington hermdu í kvöld.
að sú ákvörðun Konstantíns
konungs að fresta blaðamanna
fundinum gæti bent til þess
að tilraun hafi verið gerð til
að koma á sáttum milli hans
og herforingjastjórnarinnar í
Aþenu, og konungur vUji
ekki útiloka samkomulag.
Rent er á að Papadopoulos
forsætisráðherra varaðist að
gagnrýna konung á blaða-
mannafundi sónum og að vara
konungur var skipaður. Þá
kunni konungur að hafa frest
að blaðamannafundi sínum
til þess að þurfa ekki að
svara spurninguin sem gætu
komið í veg fyrir samkomu-
lag v'ð Papadopoulos, að því
er segir i AP-frétt.
ias, dvaldist í bústað gríska
sendiherrans í borginni í dag, og
orðrómur var á kreiki um það
að hann héldi til Kaupmanna-
hafnar á laugardaginn. — En í
kvöld fór Konstantín konungur
úr bústaðnum með leynd og hélt
tii heiuiilis frænda síns í Róm.
Konungur hélt engan fund með
blaðamönnum eins og búizt
hafði verið við.
1 Kaupmannahöfn sagði
danski forsætisráðherrann, Jens
Otto Krag. að konungi og fjöl-
skvldu hans væri velkomið að
dveljast i Danmörku ef hann ósk
aði. í London sagði Wilson for-
sætisráðherra, að stjórnmálasam
band Bretlands og Grikklands
væri ekki lengur i gildi, þar
sem konungur væri farinn úr
landi. 1 Washington sagði opin-
ber talsmaður, að bandaríska
stj rnin mundi fresta að taka á-
kvörðun um viðurkenningu á
nýju stjórninni i Grikklandi.
í Brússel var ástandið í Grikk-
landi tekið fyrir á ráðherra-
fundi Atlantshafsbandalagsins,
sem lauk í dag, en fundurinn
gerði enga tillögu eða ályktun,
þó að sagt væri að atburðirnir
vektu hvarvetna ugg. Allt er á
huldu um viðurkenningu fjölda
landa á hinni nýju ríkisstjórn
Konstantín konungur og Anna María drottning við komuna til Rómar.
sem Papadopoulos ofursti mynd-
aði í gær, enda virðist hún eng-
an lagalegan grundvöll hafa eft-
ir flótta konungsins.
Konungurinn hjá frænda sinum.
Brottför Konstantíns konungs
úr gríska sendiráðinu vakti
mikla furðu, en ástæ'ðan er
sennilega sú að hann hafi vilj-
að firra sendiherrann erfið-
leikum vegna þess að hann hef-
ur veitt svörnum fjandmanni her
foringjastjórnarinnar húsaskjól.
Konungurínn fór úr sendiráðinu
bakdyramegin og ók burtu í blá
um bil í fylgd með lögreglubif-
reiðum til villu frænda síns,
Heinrich prins af Hessen. Hóp-
ur grískra stúdenta og ítalskir
konungssinnar hrópuðu „Lifi
konungurinn", en Konstantín
veifaði til þeirra.
Fyrr í dag hafði talsmaður
gríska sendiráðsins sagt, að kon-
ungurinn ætlaði að halda blaða-
mannafund í villu Heinrich
prins í Róm kl. 18,30, en þegar
blaðamenn komu þangáð var
hliðið lokað og enginn beið
þeirra. Þeir biðu í tvo klukku-
tíma og fór að gruna að verið
væri að reyna að villa um fyr-
ir þeim. Að lokum sagði tals-
maður utanríkisráðuneytisins, að
konungurinn kæmi ekki en héldi
kannski blaðamannafund á morg
Harmel-skýrsian um verkefni
NATO næstu áratugi gefin út
Brússed, 14. desember — NTB —
f LOK ráðherrafundar Atlants-
hafsbandalagsins í Brússel í dag
var birt skýrsla sem gerir grein
fyrir hernaðarlegum og pólitísk
um stefnumiðum bandalagsins
tvo næstu áratugina. Tvö helztu
atriði skýrslunnar, sem kennd
er við Pierre Harmel, utanrík-
isráðherga Belgíu, eru þau að
NATO sé varnarbandalag og
muni bandalagið halda áfram
þelrri viðleitni sinni að draga
úr spennunni í sambúð austurs
og vesturs.
ÖIl aðildarlöndin, þar með
talin Frakkland, hafa lýst yfir
stuðningi við skýrsluna, þar sem
meðal annars segir að hernaðar-
legt öryggi og viðleitni til að
draga úr spennu þurfi ekki að
stangast á, enda stuðli sameig-
inlegar varnir að jafnvægi í al-
þjóðamáluim og séu nauðsynleg
forsenda þess að friður ríki í Ev-
rópu og bæði Bandaríkin og Sov
étríkin verði að taka þátt í því
starfi að leysa vandamál Evrópu.
Sam.tímis því sem sfyrk banda
lagsiins verði haldið óskertum
verði haldið áfram að bæta saim
búðina við Austur-Evrópu til
þess að tryggja aukið jafnvægi
í álfunni svo að leysa megi þau
pólitísku vandamál, sem séu
undirrót spennunnar. f skýrsl-
unni segir að nauðsynlegt sé að
aðildarlöndin ráðfærist meir sín
í milli en stjórnir landanna
þurfi ekki að leita samþykkis
fastaráðs NATO á því, að þær
reyni hvert í sínu lagi að bæta
sambúðina við Austur-Evrópu,
enda þótt fastaráðið sé mikil-
vægur vettvangur skoðanaskipta
um tilraunir til að draga úr
spennunni.
Harmel-nefndin leggur tii að
aðildarlöndin marki þá stefnu
sem hagkvæmust sé í þvi starfi
að finna varanlega og réttláta
lausn á vandamálum Evrópu,
meðal annars Þýzkalandsmálmu
og öryggismálum Evrópu. Þann
ig hafi gagnlegur undirbúning-
ur átt sér stað þegar rauniveru-
legar samningaviðræður geti haf
izt. NATO-löndin muni halda
áfram að vinna að afvopnun og
hagnýtum aðgerðum er miði að
eftirliti með vopnabúnaðd og
fækkun í liðsaflanum. Að lok-
um er bent á suðaustursvæði
bandalagsins og sagt að það búi
við sérstaka haettu. Varnarmál-
in verði að rannsaka í ljósi auk-
ins áhuga Rússa á Miðjarðar-
hafssvæðinu. Þessi uggur kom
einnig í ljós í lokatilkynning-
unni um ráðherrafundinn, sem
gefin var út í dag, en hún er
mjög á sömu lund og Harmel-
skýrslan.
Me'ðan þessu fór fram köstuðu
vinstrisinnaðir óeirðasegigir flösk
um með málningu og benzíni að
lögreglumönnum, sem öftruðu
þeim frá því að komast að
gríska sendiráðinu. Óeirðasegg-
irnir komu af fundi sem félagið
„Frelsi fyrir Grikkland" hélt á
torgi í grenndínni.
Fyrr í dag var haft eftir á-
reiðanlegum heimildum, að kon
ungur færi til Kaupmannahafn-
ar á laugardagsmorgun, en ver-
ið gæti að hann frestaði brott-
förinni vegna hins ótrygga
ástands.
Konungur þreytulegur
Konstantín konungur var
þreytulegur og þerraði burt tár
frá augunum þegar hann kom
til Rómar í morgun ásamt fjðl-
Framlhald á bls. 31
Pearson hættir
flohksiorystu
Ottawa, Kanada, 14. des AP
LESTER B. Pearson tilkynnti
á blaðamannafundi í gær, áð
hann hefði sagt af sér sem
formaður Frjálslynda flokks-
ins í Kanada.
Á fundinum las Pearson
upp bréf þess efnis og seg-
ir, að hann taki þessa ákvörð
un með miklum söknuði, en
hann sé sannfærður um, að
hún sé rétt. Hann kvaðst
mundu gegna áfram störfum
forsætisráðherra. Pearson
sagði, að hann hefði alla tíð
noti'ð fádæma góðs stuðnings
og trygglyndis og hann vildi
áfvam vinna landi og þjóð það
sem hann mætti.
Pearson hefur verið forsæt
isráðherra í nær fimm ár, for
maður flokks síns í tíu ár og
þingmaður í 19 ár.
«c