Morgunblaðið - 15.12.1967, Page 2
r
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DES. 19«7
Skipið í mestri hættu er losað
var um þarann í gatinu
- Sjóprófum úf af strandi Blikurs að mestu lokið
„Eldur í æðum"
Framhald bókarinnar \ fótspor
feðranna eftir Þorstein
Thorarensen kom út í gærdag
LOKIÐ er að mestu hér í Reykja
vik sjóprófum út af strandi fær-
eyska flutningaskipsins Blikur
norður á Kópaskeri á dögunum.
Það kom fram þar, að ástæðan
fyrir því að skipið strandaði var
sú, að miðunarljós fyrir siglingu
inn og út af höfninni, slokknuðu
meðan skipið hafði 1V2 klst við-
dvöl á Kópaskeri, án þess að
þess yrði vart í landi. Staðar-
menn staðfestu þetta við skip-
stjórann þegar um nóttina. Þeg-
ar skipstjórinn á Blikur áttaði
sig á þvi, að skipið var komið
út af þröngri siglingaleið, tókst
ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraun
ir, að koma í veg fyrir að skipið
strandaði á klöppum.
Skipstjórinn á Blikur kom fyr
ir sjóréttinn um klukkan 2 síð-
degis á miðvikudaginn og lagði
þá fram leiðarbók skipsins, en
síðan hófust yfir honum yfir-
heyrslur sem stóðu yfir hvíldar-
laust í rúmar 5 klst.
Skipstjórinn, sem strax eftir
strandið bað vitaskipið Árvakur
‘Uim aðstoð, rómaði mjög alla þá
hjálp sem skip og skipshöfn
veitti. Hann taldi Blikuc ekki
hafa verið í beinni hættu fyrr
en komið var til hafnar í Húsa-
vík og búið að binda skipið. Að
vísu hafði skipshöfn Árvakurs
ÁÆTLAÐ er, að andvirði
birgða sjávarafurða ásamt
væntanlegri framleiðslu til
áramóta og andvirði útfluttra
en ógreiddra vara, nemi um
1700 milljónum króna. Við út
flutning greiðast þessar vöru
birgðir á eldra gengi en
gengislækkunin verður varið
í þágu sjávarútvegsins eins
og fram kom í Mbl. í gær.
Áætlað er, að þessi gengis-
komið yfir í Blik með dælur
er sjór var kominn upp á „sving-
hjól“ aðalvélar og hjólið farið
að ausa sjó yfir vélina. Ekki
skapaðist þó neitt neyðarástand
við það, sagði skipstjórinn.
Alvarlegast var ástandið er
farið var að kanna botnskemmd-
irnir á skipinu eftir að það var
komið til hafnar í Húsavík. Kaf-
arar frá Árvakri höfðu fundið í
botni undir vélarrúmi allstórt
gat. En það einkennilega hafði
gerzt að gatið var nærri troð-
fullt af þaraflækju. Er kafarar
fóru að hreinsa þarann frá, belj-
aði sjórinn inn í skipið og höfðu
þá engar dælur við sem um borð
voru. En kafararnir voru fljótir
að finna ráð til þess að stöðva
lekann að mestu. Þeir stungu
sér innundir skipið með ullar-
teppi sem gripin voru samstundis
og þeim troðið í gatið. Tókst
köfrunum á skömmum tíma að
stöðva lekann þarna að mestu, og
síðar svo til alveg er þeir þéttu
um gatið með tréfleygum og
smjörlíki. Annað minna gat var
framar og hafði grjótið gengið
inn í einn olíugeymi skipsins og
vætlaði olía þar út. Var líka
þétt.
Blikur sigldi þessu næst. til
Akureyrar og síðan til Reykja-
hagnaður muni nema um 400
miiljónum króna. Af þeirri
þeirri upphæð munu um 140
millj. renna til greiðslu ým-
issa gjalda og kostnaðar en
um 260 millj. í Gengishagn-
aðarsjóð og skiptist hann í
fjóra jafna hluta, þar af
renna 65 milljónir til Verð-
jöfnunarsjóðs fiskiiðnaðarins
sem stofnlag.
Þessar upplýsingar komu fram
víkur og hreppti hið bezta veð-
ur alla leið.
Hér í Reykjavik var skipið
tekið í Slippinn. Þar kom í ljós
að stýrishællinn hefur brotnað
og er botn skipsins mikið dældað
ur. Ákveðið er að hér verði smáð
aður nýr hæll, en að öðru leyti
verður gert við Blik ytra, þar
sem aðstaða hér er ekki til þess
nerma þá með mjög miklum og
kostnaðarsömum ilfæringum.
Fullnaðarviðgerð myndi taka,
að því er skipstjórinn á skipimu
tjáði Mbl. í gærkvöldi, mokkra
mánuði en í stærri erlendri
skipasmíðastöð einungis nokkr-
ar vikur.
— Vonast ég til að Blikur
verði tilbúinn til heirmferðar
20-21. desember og að við verð-
um komnir hingað aftur kring-
um miðjan febrúar og getum þá
byrjað strandsiiglimgar á ný.
Mig langar að biðja Mbl. fyrir
jóla- og nýárskveðjur til vina
og kunningja áhafnar Blikurs út
um land altt og færa skipshöfn
Árvakurs kveðjur og þakkir okk
ar. — Við vorum heppnir að
það var Árvakur sem kom til
hjálpar þegar svona illa stóð á
fyrir okkur, sagði skipstjórinn
að lokum.
í ræðu Eggerts G. Þorsteinsson-
ar, sjávarútvegsmálaráðherra, í
umræðum í Efri deild Alþingis
í gær. Ráðherra gerði grein fyr-
ir skiptingu fjársins. Hann
sagði, að áætlað væri, að 35
milljónir gróna gengu til
greiðslu á hækkun rekstrar-
kostnaðar og flutningsgjalda af
afurðum sem framleiddar eru
fyrir árslok 1967 vegna gemgis-
breytingarinnar, 12 milljónir til
skreiðarframleiðenda vegna
markaðserfiðleika, 10 milljónir
til bræðslusíldariðnaðarins, 7
milljónir til • verðfallsuppbóta á
frystri rækju, 16 milljónir til
greiðslu á útflutningsgjaldi og
60 milljónir til framlaga vegna i
sjávarútvegsins.
t GÆR kom út á forlagi Fjölva
bókin „Eldur í æðum“ eftir
Þorstein Thorarensen fyrrum
blaðamann. Er hér um að ræða
hliðstætt ritverk hans sem út
kom í fyrra: f fotspór feðranna."
Hin nýja bók Þorsteins fjallar
um sama tímabilið, en
meðan Fótsporin fjölluðu
um valdamenn þees tímabils:
Þorsteinn Thorarensen
Komunga, danska stjórn-
arherra, landshöfðingja og ís-
lenzka ráðherra, er hér litið á
málin frá hinni hidðinni, þ.e.a.s.
sagt fná „Uppreisnarforingjum"
þjóðarinnar, — mömmum sem
stefndu að því ljóst og leynt, að
slíta tengslin við Danmörku og
framkvæma þjóðfélagslegar bylt
ingár. — Voru í uppreisn við
samfélag, móti landisstjórn og
kirkjuvaídinu í landinu, en boð-
uðu nýjan 'heim með lýðréttind-
um, jafnræði og úrbótum fyrir
hina fátæku.
Bóikinni er skipt í fimm aðal-
kafla og ber sá fyrsti heiitið Vér
eigum nógan eldinn. Er hún Lóð-
lína úr hinum alræmda „Ráð-
herrabrag“, sem skólapiltar
kyrjuðu yfir Hannesi Hafstein
þegar hann kom nýskipaðhr ráð
herra til landsims. Kvæði þetta
hefur verið feimnismál i sögunni
vegna þess hve íllyrt það var.
Leitast Þorsteinn Thorarensen
við að útskýra þann uppreisnar
anda er þarna bjó að baki og
rekur rætur bans al'lt aftur til
íslendingabrags Jóns Ólafssonar
fná 1870. Síðan er lýst hlutverki
Jóns Ólafssonar og sagt frá
hinni miklu framsókn Thorod-
sens-bræðranna fjögurra og þýð
ingu þeirra í viðreisnarbaráttu
þjóðarinnar, og loks koma
stórir kaflar sem fjalla um
Skúla Thoroddsen. Þar reynir
Þonsteinn að rekja þá stöðugu
andúð, sem ríkti milli Skúla og
Hannesar Hafstein allt frá því
á skólaárum og árekstri Skúla
við landshöfðingjavaldið, sem
náði hámarki í Skúla-málunum
svonefndu. En þau enu rakin ýt-
arlega og í fyrsta skipti eftir
dómsskjölum.
Lokakafli bókarinnar nefnist
„Guð dæmdur til dauða“ og fjaJl
ar um byltingarsinnaða baráttu
Þonsteins Erlingssonar gegn öll-
um háyfirvölduim, hvort sem
þaru voru veraldleg eða kirkju
leg. Margar myndir prýða bók-
ina, meðal þeirra margar, sem
aldrei hafa áður birzit opin.ber-
lega. Er myndasafnið eiff hið
mérkilegasta. Bókih er rúmlega
450 blaðsíður. ÞeSá má að lokum
geta, að fyrri bók Þ. Th. í fót-
spor feðranna", vákti óskipta
ánægju og arthygli ef hún kom
út í fyrra. Hann getUr þess í
stuttum eftirmála að þessar
tvær bækur séu hluti af ritflokki
sem fjailar um líf og sögu þjóð-
arinnar kringum siðustu alda-
mót.
Leiðrétting
SÚ missögn varð í fréttatilkynn-
ingu frá Bókaútgáfunni Hlað-
hamri um bókina Úrval íslenzkra
einbýlishúsa, að þar var sagt að
bókin væri gefin út í samrwinnu
við arkitektafélagið. Útgáfan
sneri sér till einstakra arkitekta,
sem allir eru félagar í arkitekta-
félaginu, en félagið sem slíkt
hefur ekkert haft með bókina og
tilbúning hennar að gera.
Skemmtun fóstru-
400 milljóna gengishagnaöur
af útfluttum sjávarafurðum
- Oseldar birgðir, ógreiddar vörur og
áœtluð framleiðsla til áramóta nema
um 1700 milljónum
Leyfisgjöld af bílum I ækkuð
— áhrif gengisfellingarinnar minnkuð um tœpan helming
nema á morgun
LEYFISGÖLD af bílum voru í
gæf lækkuð úr 125% niður í
90% og gaf fjármálaráðuneytið
út reglugerð þar að lútandi. Var
þá þegar byrjað að afgreiða bíla
úr tolli samkvæmt henni.
Mbl. sneri sér í gær til bíla-
innflytjanda og spurðist fyrir
um það, hvaða áhrif þessi lækk-
un hefði á verð bíla. í ljós kom,
að venjulegur amerískur bíll,
sem hækkáði um 110.000 krónur
við gengisfellinguna, lækkar um
45.000 krónur í verði við þessa
lækkun leyfisgjaldanna, en
venjulegur evrópskur bíll, sem
hækkaði um 50.000 krónur við
gengislækkunina, lækkar um
Vnrðnrfélagar
.þEIR Varðarfélagar, sem enn
hafa ekki gert skil á happ-
drættismiðum, eru hvattir til að
gera það í dag, enda síðustu for-
vöð.
Sjóifvlrk símslðð
að Heflu
SJALFVIRK símstöff var opn-
uff aff Hellu á Rangárvöllum sl.
miðvikudag. Um 40 notendur
eru tengdir stöðinni og eru síma
númer þeirra á milli 5800 og
5899, en stöffin hefur svæffisnú-
meriff 99, eins og Selfoss.
Ráðgert er að taka í notkun
í næstu viku sjálfvirka stöð fyr
ir Þykkvabæ og Voga. Sjálfvirka
símakerfið nær enn ekki til Vest
fjarða, Austfjarða né vestasta
hluta Norðurlands, auk þess sem
Hellissandur og Ólafsvík njóta
þess ekki heldur.
17.000 krónur í verði við lækk-
un leyfísgjaldanna.
A MORGUN, laugardag halda
nemendur Fósturskólans skemmt
un í Austurbæjarbíói og hefst
hún kl. 3 eftir hádegi. Miffar
hafa veriff seldir á 40 kr. á barna
Persónur í leikþættinum Bangsarnir þrír.
heimilum og leikskólum borgar-
innar í gær og dag, en þeir sem
afgangs verffa eru seldir við inn
ganginn í Austurbæjarbíói.
Margt verffur þarna til skemmt
unar og eru atriðin einkum ætl-
uff börnum undir skólaaldri, 3-6
ára.
Nemafélag Fósturskólans héf-
ur æft af kappi undanfarna
viku fyrir skemmtunina og fengu
stúlkurnar Jón Júlíusson, leikara,
til að aðstoða við undirbúning,
en Jón er leiðbeinandi fóstru-
nema í framsögn.
Til skemmtunar verða leik-
þættirnir Á brúðusjúkrahúsinu,
Karíus og Baktus, og Bangsarn-
ir þrír. Þá verður söngiu- með
þátttöku áhorfenda, sungin jóla-
lög og dýralög og .korna ýmis
dýr í heimsókn. Ekki má gleyma
að geta þess, að, jólasveinar
nókkrir köiha og heilsa uþp á
börnin.
Eíns og fyrr segir hefst
skemmtunin kl 3 í Austurbæj-
arbíói í dag og stendur hún um
eina og hálfa klukkustund.