Morgunblaðið - 15.12.1967, Page 11

Morgunblaðið - 15.12.1967, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. DES. 1967 11 — Náttúrlega fer ek'ki hjá Iþví, að nokkurs áróðurs gæti í frá- sögn höfundarins, einkum af ættfólki sínu og einkalífi, og þarf e.t.v. að taka snirnu með nokkurri varúð. Og þó hún fari ekki sérfega mjúkum höndum um föður sinn, þá tekst henni samt, með réttu eða xöngu, vit- andi eða óvitandii, að kippa hon- um upp úr vökinni, til hálfs eða vel það. í meðförum hennar verður þessi mi'kli einvaldur og harðstjóri þrátt fyrir allt menns'kur maður, hverju sem við annars vi'ljum um hann trúa. Hann var einmana og tortrygg- inn gamall maður, sem ekki reyndist „hollt að hafa ból, hefð ar uppi á jöku‘ltindi“ hinna miklu valda, því beið hann tjón á sálu sinni, — og einkalífi — að túlkun höfundar, og því varð „kerfi“ hanis svo blóði drifið, sem raun bar vitni. — Hins veg- ar mun þó engu-m tjóa að nedta, að ýms-u hafi ver'ð snúið til betri vegar í Rússlandi, þá og síðan, en um það fjallar bókin því miður ekki að neinu ráði, og einungis með óbeinum hætti. Séra Sveinn Víkingur: Ég tel mig hafa haft bæði ánægju og gagn af að lesa þessa bók. Frásögnin er hreinskilin og hógvær, laus við öfgar og áróð- ur. Og mér finnst ég skilja 'bet- ur hina örlagaríku sögu Rúss- lands á síðasta aldarhelm-ingi, eftir lestur hennar. Og það er vegn-a þess, að hér er ljósinu varpað fyrst og fremst á það fóik, s-em þá sögu hefur skapað. Faðir SVetlönu, Jósef Stalín, er 'hér ekki hin ómenhska ófreskja né heldur sá allsráðandi eirevaldur, sem fréttir dagblað- anna hafa viljað vera iáta. Hann er eftir allt samn veikur og breyskur maður, tilfinningaheit- ur, o-ft áhrifagjarn og minnir stundu-m meira á peðið, sem aðr ir leika fram á hireu mdkla skákborði, sjálfum sér til ávinn- ings og framdráttar en á þann sem taflinu stjórnar í raun og veru. Á hátindi fnægðarinnar er hann einmana og óhamingjusamur. Valdið gjörir -hamn tortryg.ginn og í rauninni andlega sjúkan. Það gerir hann eins og oft vill verða að miklu verri manni en efmi og upplag standa til. Svetlana gerir enga tilraun til þess, að afsaka né fegra föður sinn. En ég held, að sú mynd, sem ihún gefur ok'kur af honum sé sannari og réttari em þær sem við áður höfum séð, enda dregin af dóttur hans ,sem bæði hefur þekkt hann og skilið bet- ur en aðrir. Ég er þakklátur fyrir þessa bók og tel hana tii þess fa'llna, að vekja dýpri skilnimg á rúss- nesku þjóðinni og ýmsum þeim sem þar hafa komið mest við sögu á síðari árum. Lýsingar Svetlönu á móður hennar og fóstru eru hugljúfar og fagrar og ást hennar til landsims og þjóðar sinnar vermir hjartað. Ný skákbók komin út ,Fléftaia6 eftír P. A. Ronianovskij BLÍÐBUBMRFOIÍ ÓSKAST^M GEFIN hefur verið út ný skák- bók. „Fléttan“, eftir sovézka skákmeistarann P. A. Romano- vskij. Er það síðari bókin af tveimur eftir þennan höfund um miðtaflið, en hvor þeirra m sig er þó sjálfstæð heild. Vænt- anlega verður fyrri bókin, sem nefnist „Áætlun“ gefin út á næsta ári. Hafundur bókarinnar, P. A. Roma-novskij fæddist í Rússlandi árið 1892 og var því jafnaldri Aljekín-s. Hann lézt árið 1964. Romanovskij varð skákmeistaii Sovétríkjanna 1927 og í minning- argrein. sem um hann birtist eft- ir lát hans í tímaritinu „Skák Sovétríkjanna" er honum lýst sem frábærum skákmeistara og merkum skákkennara. Meira en 35 ár eru liðin, síðan báðar þessar bækur komu fyrst út, en síðan hafa þær verið gefn- ar út mörgum^ sinnum og verið endurbættar. Útgáfan, sem ligg- ur til grundivallar þeirri bók. sem nú kemur út á íslenzku, kom út í Sovétríkjunum 1962. Bóik þessi er ætluð þeim. sem þegar hafa lært undirstöðuatrið- in skáklistarinnar. í henni eru skýrðar fjöldi skáka og skák- hluta og þar er að finna 198 stöðumyndir. Sérstök áherzla er lögð á, að skýra margar fegurstu skákfléttur allra tíma. Helgi Jónsson, verkfræðingur, hefur þýtt bókina úr rússnesku. en hún er 247 bls. að stærð útgefandi er tíimaritið skák. Formála fyrir bókinni skrifar Friðrik Ólafsson, stórmeistari í skák og s-egir þar m.a.: Bók þessi markar þáttaskil í sögu ísl. skákbókmennta, því að hér er í fyrsta skipti farið inn á þá braut að gefa út rit, sem fjallar um skáik á fræðilegan háitít eiingöngu. Þau rit, sem fram að þessu hafa litið dagsins ljós, hafa fyrst og fremst verið við það miðuð. að ná til fjöldans og afieiðingin hefur orðið sú, að hinir kunnáttusamari í h-ópi ís- lenzkra skákmanna hafa i æ rík- ari mæli orðið að leita á náJir erledra hiálpargagna, eftir því s-em þekking þeirra hefur staðið til. Þessi skortur á fræðiritum á íslenzku hefur áreiðanlega stað- ið skákmennt íslendinga mjög fyrir þrifum og hindrað eðlileg- an þroska fjölmargra skák- manna. Með útgáfu þessarar bók- ar er gerð tilraun til, að vinna bug á þessari menningarlegu ein angrun og lyfta íslenzkri kák- mennt í æðra veldi. Er það von mín, að tilraunin gefist vel og verði vísir að enn umfangs- meiri útgáfustarfsemi í framtíð- inni. Gjoiii til Eeðverndar- félagsins KIRKJUNEFND kven-na Dó-m- kirkjunnar í Reykjavík ákvað á sl. fundi sínum að veita úr Lí'kn arsjóði Dómkirkjunnar kr. 5.000.00 — fimm þúsund krónur — til Geðverndarfélagis íslands með innilegum jóla- og nýárs- kveðjum og ósk um blessun í starfi. Frú Elísabet Ámadóttir afhenti gjöf þessa fyrir hönd sjóðsins. Geðverndarfélagið metur gjöf þessa mjög mikils, svo og aðrar þær gjafir, sem félaginu hafa borizt að undanförnu, bæði frá fyrirtækjum, félagssam'tökum og e instaklingum. Sérhvert framlag er Geðvernd arfélaginu bæði kærkomið og til miki'ls istuðnings vi ðframk'væmd ir félagsin-s a-ð Reykjalundi. Blaðið hefur verið beðið um að flytja gefendum innilegt þa'kk læti Geðverndarfélagsins. Laugavegur neðri — í eftirtalin hverfi Laufásvegur I — Túngata — Laufásvegur II — Aðalstræti — Hjallavegur. To//ð v/ð afgreibsluna i sima 10100 ÓDÝR MATARKAUP HREFNUKJÖT Stór stykki eða smásteik í 1 kg. pökkum. Bragðgott meirt, beinlaust, fitulaust, nýtist allt. Beztu kjötkaup, sem hægt er að gera. Fæst í flestum stærri matvöruverzlunum. Heildsölubirgðir: SJÓFANG HF. Sími 24980. Rauða krossfrímerkin á jólapóstinn Flugpóstur til Norðurlanda: Burðargjald kr. 6/50 (RK-merki 3/50 og RK-merki 3/00). Flugpóstur til Bretlands: Burðargjald kr. 7.00 (Tvö RK-merki 3/50). Flugpóstur til U.S.A.: Burðargjald kr. 7/00 (Tvö RK-merki 3/50). Sendið jólakortin tímanlega! Notiðfrimerki Rauða Kross íslands Nýtízku gerðir og litir .. . • . Falleg áferð . . . ■. Fyrsta flokks vörugæði.... eru einkenni pólskra efna. CETEBE útflutningsfyrirtæki Lodz, Nautowicza 13, Póllandi. Símnefni Cetebe, Lodz, Telex 88210, 88226. Sími 28533 — Pósthólf 320. býður: Bómullarefni og margs konar gerviefni í kjóla, dragtir, kápur, barnafatnað, undirfatnað o. fl. Gervisiikiefni úr rayon og steelon (nylon) einlit, marglit, við allra hæfi. Hör- nietravörur og tilbúnar vörur úr hörefnum eins og handklæði, borðdúkar, sængurfatnaður o. fl. Leitið upplýsinga hjá umboðsmönnum okkar á íslandi: * Islenzk-Erlenda Verzlunarfélagið hf. Tjarnargötu 18 — Sírai 20400, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.