Morgunblaðið - 24.12.1967, Page 13

Morgunblaðið - 24.12.1967, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 24. DES. 1967 13 \u XJ ry kj EINS og andlit horfir við and- liti í vatni, svo er hjarta eins manns gagn- vart öðrum. Hér I heimi gera menn sér áhyggju og leið indi af mörgu flestu Fjölda skortir og sál- Ýmsum óhæri- að lifa dag — hvað þá næstu viku — og margir falla. Hugsýki er eitur mannlegs lífs. Hún er undirrót eymda og synda. Líti menn í eigin barm sjá þeir, að þeir gætu lyft oki svart- sýninnar af sér, því marga kvöl ina höfum vér af hörmungum, sem mæta oss aldrei. Áhyggja og öfund hald- ast innilega í hendur. Hversu marg- ir gera sig ekki seka í þung- lyndi vegna þess, að þeir halda, að þeir htfðu orðið á- nægðari, ef þeir hefðu get- að orðið eitt- hvað annað en þeir eru. Þess konar á- hyggja brennir líkamann jafnt sem sálina. Margur mað- ur tortímir sér af illsku einni út í þá, er hann öfundar. — Því styttir ekki öf- und og reiði líf ið — og gerir ekki hugsýkin mann gamlan fyrir timann? Við þá öfund- sjúku er sagt — öfunda engan, þótt hann veltist í peningum og allsnægtum — öfunda engan, þótt þér þyki hann hafa það, er þú náðir ekki — því ef til vill er hann hamingjusnauðari en þú sjálfur. En hvert teygir öfundin sig? — Frá hjartanu teygir hún sig í tunguna. Lygin — rógurinn er „fegursta" afkvæmi öfundar- innar. Og mikils má rógburðurinn sín, þótt svívirðilegur sé — og þótt menn hafi andstyggð á honum, þá hlýða þeir samt á hann. og þótt menn fyrirlíti hann, þá trúa þeir honum engu að siður. Þannig gera margir menn sig að lítilfjörlegum og jafnvel engum mönnum. Vesalingur eigin vesældar og öfundar sér aldrei glaðan dag — en sá — sem lætur liggja vel á sér, er sífellt í veizlu. Á marga vegu í starfi og lifi má öðlast hamingju, ef beytt er at- hygli og almennri skynsemi. Ef menn vinna fyrir brauði sínu með höndunum, ættu þeir að auðga anda sinn með gagn- legum fróðleik og varast að láta hugsanalíf sitt slokkna. Ef menn stunda líf sitt með heil- anum, ættu þeir jafnt að var- ast, að leggirnir stirðni ekki. Vinni menn verk sín af alúð og samvisku o g sinni síðan hugðarefnum sínum. auðga þeir sál sína til farsældar, en hafna hugarvíli og vesöld allri. En vesæll er iðjuleysinginn, því bann fremur sjálfsmorð — deyr andlega, siðferðislega og lík- amlega. Starfa því og þú munt lifa. á 4V Þegar við virðum fyrir okkur mynd af litlu barni og hamingjusamri móður þess, barns augun eru björt og saklaus, móðurástin á sér engin takmörk, þá virðum við fyrir okkur œðsta og helgasta tilgang lífsins. 1 veröld fullri af grimmd og hatri. t veröld, sem gleymt hefur litla barninu og augun- um saklausu, þar er kœrleikurinn okkar eina athvarf. Og hvað þurfum við að leggja af mörkum. Við þurfum að bera hlýjar til- finningar í garð annarra. Við þurfum að brosa til barnsins, sem örlítil ástúð, örlítil hjartahlýja, getur gert svo óumrœðanlega hamingjusamt. Við þurfum að hugsa um fegurð og við þurfum að hugsa um betri heim. Við þurfum að gera okkur Ijóst, að í innstu djúpum mannssálarinnar leynist hið góða. Það er okkur misjafnlega fjar- rœnt en þó komumst við þangað öll, ef við viljum. Með einlœgri von um hamingju á komandi árum, óskum við ykkur gleði- legra jóla. Þórður Gunnarsson. Björn Baldursson. Vertu — ekki tnaður. horftrm margt leysi og stað- festuleysi meðal vor. En þar get ur hver vesæll tekið í sjálfan sig og gefið sér og umhverfi sínu staðfestu — og geisli hamingjunnar mun skína skært á kollinn hans. Margir vita því miður eigi hvert fara á — hvað þeim er á höndum í þessu lífi — og þeir láta því reka í stað þess að róa — farast í stað þess að komast. Sá, sem berst með straumn- um, sem lætur ekki stjórnast af háum lífs- reglum, sem hef ur engar hug- sjónir, '' enga sannfæringu — sá maður er dauður hlutur — bergmál en ekki rödd. Hver vill haltra við staf ístöðuleysis ins meðal vol- aðra — í stað þess að styðja stofn festu og öryggis með fá- um sáningar- mönnum, sem vart hemja sig i moldviðri ver- aldar. Hér er einn pakki á hamingjuvagn- inn, sem hver og einn getur ekið á undan sér — ef vill. Volaðir finna oft til lítillar þakklátssemi og virðingar, nema í garð þeirra, sem hjálpa þeim í glötun- ina — hjálpa þeim — til að svíkja sjálfa sig. Þegar volaðir verða þakklátir munu þeir ekki vera volaðir öllu Iengur. Því samstundis munu þeir bera virðingu fyrir sjálfum sér og um leið treysta þeir sér, til að rísa í kurteisi og hreinskilni. Fyrir þeim mun því verða borin virðing — þar til yfir lýkur. Hvað hér er að framan skráð mun sumum virðast fyrir utan efni þeirra hátíðahalda, er nú ganga í hönd. En á hverjum jólum og með hverju nýju ári ættu menn að hugleiða þá vegi, er mega færa birtu og yi inn í líf sem flestra — og hvað þeir geta gert, til að heimurinn þroskist. Segja má, að íslendingar sem þjóð — sé þjóð í dós — en gildi þjóðanna er komið undir gildi hvers einstaklings. Hver einstaklingur verður því að leggja áherzlu á að auka gildi sitt og festu hver á sínu sviði. Afneitum smáborgarapólitík — — tengjumst öll í einu verki — að skapa stórkostlegt íslenzkt ríki. Og — enn svo sannarlega — er gildi ríkisins undir því komið — hvers virði einstakl- ingarnir eru, sem mynda það. Á þessum jóium og reyndar alltaf á jólum býðst o>kkur heil- agt tækifæri. — Sem sannkristin þjóð skul- um við safnast i guðshús lands vors og strengja þess heit að færa oss — og meðbræður vora — fram til vísdóms, þroska, hamingju og hlessunar — með stoð drottins, er fæddist oss til hjálpræðis. BJÖRN BALDURSSON.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.