Morgunblaðið - 06.01.1968, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 06.01.1968, Qupperneq 24
AUGLYSINGAR 5ÍMI 22.4.8D Geymarnir munu ekki tæmast í dag — Nú œttu menn að huga að kötlum i DAG standa vonir til að hita- veitugeymarnir tæmist ekki og er þá lokið í bili þeim heita- vatnsvandræðum, er herjað hafa hluta gamla bæjarins í nýaf- stöðnu kuldakasti. Gunnar Krisrt- insson, verkfræðingur hjá Hita- veitunni skýrði Mbl. frá því í gærkvöldi, að heitt vatn hefði verið í geymum til kl. 7 í gser- kvöldi og með sama veðri væri þess að vænta að á þessum sólar- hring yrði aldrei vatnslaust á þeim stöðum. er hæst liggja. Nokkur brögð kvað Gunmar hafa verið að því, að otfnar og vatnslagnir spryngju undan- farna daga, bæði heitavafns- og neyzluvatnslagnir, einkum þar sem þær hafa legið iítt varðar í útveggjum, í rishæðum eða kjöll- urum. Vatn hefur flætt á þó nokkrum stöðum, en skemmdir að öðru leyti orðið furðu lit.lar. Gunnar sagði, að það væri gott ef fólk vildi nota tímann nú á næstunni til að huga að kötlum, sem víða væru til í húsum, en margir hverjir ónothætfir ef ekki væri að þeim gert. Væri Hita- veitan reiðubúin að veita fólki aðstoð við að koma þeissum kötlum í nothæft ástand, en betra væri að vera við öllu bún- ir áður en næsta kuldakast legð- ist að. Fjölgun flugferða í Færeyjaflugi — Nýr samningur milli Fl og 5A5 NÍR samningur milli Flugfé- lags íslands og SAS um áætlun arflug á sérleyfisleið SAS, Fær eyjar-Kaupmannahöfn, verður Mljaldurinn forðaði sér HÚSAVÍK 5. janúar: — Mjald- urinn, sem var í Breiðuvík á Tjörnesi í gær, var horfinn þaðan í birtingu i morgun. Bónd inn i Breiðuvík sagði hinsvegar þær fréttir í dag, að óvenjulega mikii'l trjáreki sé þar nú á fjör- um. Hafði hann ekki farið yfir nema lítinn hluta víkurinnar, en var búinn að bjarga tuttugu trjám á land. nú lagður fyrir færeysk yfirvöld- áður en frá honum verður end- anlega gengið, sagði Birgir Þor- gilsson, sölustjóri Ft, við Mbl. í gær. Samkvæmt þessum nýja samningi fjölgar ferðum milli Færeyja og Kaupmannahafnar úr tveimur í fimm yfir sumar- mánuðina. , 1. apríl 1967 hófst samvinna F.í. og SAS um flug á þessari leið og rennur sá samningur út nú 1. apríl. Samkvæmt honum flýgur F.í. tvisvar í viku milli Færeyja og Kaupmannahafnar — fram og til baka — og yfir hásumarið flaug F.í. einu sinni í viku millá Færeyja og Glasgow. Nýi samningurinn gerir ráð fyrir, að 1. apríl nk. fjölgi ferð- unum í þrjár í viku. en að alls verði flogið fimm sinnum í viku Framhald á bls. 5 | Skírnir brot.inn niður til þess að heiðra álfadans. Ljósm. Sv. Þorm.) ,. - Og skipin koma og skipin blása og skipin fara sinn veg“ — Nokkur orð um gamalt skip, sem brennt verður í kvöld „Hér heilsast fánar framandi þjóða. Hér mæla skipin sér mót, sævarins fákar, seim sæina klufu, og sigruðu úthafsins rót. Og höfnin tekur þeim opnum örmum. og örugg vísar þeim leið. Því Skip er gestur á hverri höfn. þess heimkynni djúpin breið. Svo mælir Tómas Guð- mundsson í einu kvæða sinna úr „Fögru veröld“. Ekkert tæki sem mannshöndin stjórn ar er eins lifandi og skipið, skipið, sem hefur öslað gegn ólgandi hafi, liðið um sléttan sæ álfabreiða og hlaðizt gulli land.s okkar. Þeir sem ganga um bryggjurnar og horfa á skipin bundin við kengi sjá, að þau toga stöðugt í og vilja hreyfingu og þau toga ósjálf- rátt í mannin.n sem horfir á og koma honum á hreyfingu einnig, hvort sem það er af gleði eða ótta. Skip njóta styrkra handa sjómanna í hversdagsbaráttunni og hver hlutur um borð á sína sögu og sál, því skipið er flókin keðja tryggra hlekkja, stýr- ishjól, kjölur, ankeri, kaðlar, kinnungur, stefni, landþernur o.fl. o.fl., sem mannshöndin hefur handleikið. Þessar línur eru hripaðar í tilefni þess að í kvöld verð ur bálför gamals skips íslenzku þjóðarinnar, skips, sem færði björg i bú og átti giftu heppninnar. Skipið kem.ur ekki oftar se-m gest- ur til hafnarinnar, eða heim til sín á miðin, það verður bálköstur á þrettándagileði og álfadansi í Keflaví'k í kvöld, það mun brenna eins og skip víkinganna forðum. Vél'báturinn Skírnir var keyptur til Akraness frá Flat eyri af Haraldi Böðvarssyni árið 1926. Þá var sett ný vél í fleytuna, sem var 26 tonn að stærð og aflakóngurinn Eyjóflfur Jónsson á Akrnesi var ráðmn skipstjóri á bát- inn. Aðra vertíðina sem Eyj- ólfur var með bátinn sett.i Fram'hald á bls. 5 Brunapóstur frá ISIew York á leið til lands Selfosshreppur kaupir hitaveitu kauptúnsins Kaupfélag Árnesinga stofnaði hana 1947 og kaupverðið er 14 millj. kr. holur. Þegar mat var gert á hita veitunni fyrir rúmum tveim ár- Fram'hald á bls. 5 NVTT JARÐHITASVÆÐI FUNDIÐ í REYKJAVÍK? Selfossi, 5. janúar. NÚ um áramótin tók Selfoss- hreppur við hitaveitu Selfoss, af Kaupfélagi Árnesinga. sem átt hefur og rekið hitaveituna frá upphafi, Er þar með lokið samningum, sem staðið hafa yf- ir um að Selfosshreppur kaupi og taki að sér rekstur hitaveit- unnar. Kaupverðið er 14 millj- jónir króna. Samningurinn um kaupin er í aðalatriðum á þá leið, að Sel- fosshreppur kaupir mannvirki hitaveitunnar, 80 sek lítra af 80 stiga heitu vatni á virkjunar- stað í Laugardælalandi. að frá- dregnum 6 sekl. á veitukerfinu. sem Kaupfélag Árnesinga ha.g- nýtiir fyrir fasteignir sínar. Þá mun Kaupfélag Árnesinga fá til afnota 10% af mögulegri aukn- ingu hitaveitunnar á virkjunar- stað. Þá fylgir hálfur hektard lands. EfniSbirgðir fylgja eftix sérstöku mati. Greiðsluskilmálar eru þeir, að 5 millj. króna eru greiddar við móttöku, þ.e. nú 1. jan. Yfirtek- in lán eru rúml. 2,3 millj„ en afganginn skal greiða á 15 ár- um með jöfnum afborgunum og gildandi bankavöxtum. Svo sem fyrr segir. er vatns- magn hitaveitunnar í Laugar- dælalandi 80 sekl. af 80 stiga heitu vatni. Hefur vatnsmagnið aukizt mjög mikið á sl. tveim árum, eftir að boraðar voru og tengdar við veituna nýjar bor- BORHOLAN í Blesugrófinni hef ur gefið mjög góða raun, og eiru starfsmenn jarðborunardeildar rikisins í sjöunda himni yfir á- rangrinum. Að sögn ísleifs Jónssonar, verk fræðings, er holan 1264 metrar að dýpt og gefur hún 47 iítra á sekúndu af sjálfrennandi sjóð- MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við Matthías Guð- mund/sson, póstmeistara, og spurðist fyrir um hvort fregnir hefðu borizt af afdrifum íslenzku póstsendingarinnar, er var í pósthúsinu í New York, sem brann skömmu fyrir jólin. Matthias sagði. að póststof- unni hefði borizt tilkynning að vestan, þar sem sagt var að all- andi vatni. Er þetta vatnsmesta borholan í Reykjavík, og mun hún gefa mun meira vatnsmagn með dælingu. ísleifur sagði, að þetta væri fremur óvæntur árangur, þar sem holan liggur fyrir utan hið þekkta hitasvæði í Reykjaviik. En ur íslandspósturinn hefði verið afgreiddur um borð í skip hinn 29. desember sl. Hins vegar var ekki tiltekið með hvaða skipd hann kæmi, né í hvernig ásig- komulagi p>ósturinn væri. Sagð- ist Matt'hías því ekki geta sagt um það að svo stöddu, hve stór hluti póstsendingarmnar væri ó- nýtur eða skemmdur. það sem væri mest virði kvað ísleifur vera, að þessi bor'hola virðist óháð hinum borholunum við Suðurlandsbraut, svo að þarna viirtist vera um að ræða jarðhitasvæði — ekki nátengt hdnu, og bentu etfnafræðilegar rannsóknir og þrýstingurinn í holunni eindregið í þá átt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.