Morgunblaðið - 24.01.1968, Blaðsíða 1
24 smm
Úrslit dönsku þingkosninganna:
Stjdrn Krags segir af sér
Miklar breytingar á þingmannatölu flokkanna
Radikalir unnu 17 þingsæti
— Sósíaldemokratar töpuðu 6
Kaupmannahöfn 23. janúar.
Frá fréttaritara Mbl.
KOSNINGARNAR til danska
ÞjóSþingsins leiddu til stór-
felldrar fylgisaukningar Radi
kale Venstre, sem vann 17
þingsæti og hefur þannig
fengið 28 þingsæti í Þjóðþing-
inu. N'vst á eftir radikölum
vann íhaldsflokkurinn mest
á, vann fjögur þingsæti og
hefur þá 38 þingsæti.
^ Sósíaldemokratar töpuðu
6 þingsætum, fengu 63
þingsæti nú, en höfðu 69 áð-
ur. Hjá flokkunum yzt til
vinstri í Þjóðþinginu varð
einnig mjög mikil breyting á
kjörfylgi, því að Sósíaliski
þjóðarflokkurinn tapaði 3
þingsætum, úr 14 í 11. Hinn
nýi klofningsflokkur frá SF,
vinstri sósíalistar fengu eng-
an þingmann kjörinn, en
höfðu 6 þingsæti. Frjálslyndi
miðflokkurinn (Liberalt
Centrum) tfékk ekki heldur
neiun þingmann kjörinn, en
hafði fjóra áður.
Þetta eru athyglisverðar
kosningar vegna þess
möguleika, að nú verði
Frá kjörstað í Kaupmamiahöfn í gærmorgun. Kjósendur bíða í rðum eftir að greiða atkvæði.
(Nordfoto).
Dönsk rannsóknarnefnd til
Grænlands til að
kanna geislun
— vegna B-52 flugslyssins þar
mynduð borgaraleg stjórn.
Krag forsætisráðherra til-
kynnti í kvöld, að hann
muni ganga á fund konungs
og segja af sér á morgun. Á
meðal sósíaldemokrata virð-
ist nú vera fyrir hendi greini
legur vilji til þess að fara í
stjórnarandstöðu. Spurning-
in er nú, hvers konar ríkis-
stjórn er unnt að mynda. Þar
sem radikalir, er samkvæmt
hefð vilja skipa sér stöðu í
miðju, eru á móti land-
vörnum og andliernaðarlega
sinnaðir, þá mun það verða
erfitt fyrir þá að mynda rík-
isstjórn með íhaldsflokknum,
sem samkvæmt hefð er mjög
fylgjandi landvörnum. Hugs-
anlegt er, að úrslit kosning-
anna hafi í för með sér niinni
hlutastjórn radikala og Ven-
stre, sem fékk óbreytta þing-
mannatölu í kosningunum nú
eða 35.
Gera verður ráð fyrir, að
bæta verði við framan-
greinda þingmannatölu sósí-
aldemokrata einu þingsæti
frá Færeyjum og einu frá
Jens Otto Krag.
Gr.onlandi, þ.e.a.s. þingsæti
Knud Hartlings sem að Jík-
ind um nær kjöri í norður
kjördæmi Grænlands, en þar
verður ekki kosið fyrr en 29.
febrúar.
Rytgárd.
IJIfar og snjór
*
í Iran
Teheran, Íran, 23. jan. AP.
MIKIL snjókoma hefur verið
víða í Iandinu siðustu daga.
Úlfar hafa leitað til byggða
og vitað er að þeir hafa drep-
ið að minnsta kosti 18 manns
í Hamadan fyrir nokkrum
dögum.
fliug’vélar með kjamorkuvopn
um borð væru ógnun við heims
firiðinn. í forystugrein á fyrstu
síðu, segir blaðið, að þetta mál
snerti ekki aðeins Grænland, en
að bandarískar sprengjuiflugvél-
ar með kjarnorkusprengjur
fljúgi yfir mörg lönd og opið
haf og skapi hættu fyrir öryggi
þjóðanna.
Að því er varðar bandarísku
Framhald á bls. 23
Spánskur rithðf-
undur í fangelsi
Madrid, 23. jan.
NTB.
ÞEKKTUR framfarasinnaður
spánskur rithöfundur, Alfonso
Carlos Comin, frá Barcelona
var í dag dæmdur i 16 mán-
aða fangelsá fyrir að hafa
skrifað grein í spánskt, ka-
þólskt blað, þar sem hann
fordæmdi undirokunarstefnu
Franco-stjórnarinnar.
Rithöfundurinn er 35 ára
gamall og var fundinn sekur
um að hafa haft í frammi ólög
legan áróður og gefið villandi
upplýsingar í grein sinni.
Comin, sem er verkfræð-
ingur að menntun, hefur m.a.
ritað bók, þar sem hann lýsir
fátæktinni á Suður-Spáni.
Búizt er við að hann muni
áfrýja dómnum til Ihæstarétt-
ar.
Alvarlegur atburður á Japanshafi:
Bandarískt könnunarskip her-
tekið af Noröur-Kóre umönnum
Kaupmannahöfn, 23. janúar
NTB.
Á FUNDI í danska utanríkisráðu
neytinu í dag, þar sem viðstadd-
ir voru fulltrúar úr Grænlands-
málaráðuneytinu, en einnig úr
varnamála-, kjarnorku- og
heilbrigðismálaráðuneytunum
varð samkomulag um, hvernig
skipa skuli rannsóknarnefnd
danskra vísindamanna, sem á að
fara til Thule á Grænlandi til
þess að komast að raun um, hvort
nokkur hætta geti verið á geisl-
un í sambandi við bandarísku
B-52 sprengjuflugvélina, sem
hrapaði með 4 vetnissprengjur
innanborfe.
Þar sem þetta slys ■ varð ó
diönsku svæði, ríkir af ihálfu
Dana að sjálfsögðu mikiil áhugi
á því, að hafin verði eins ræki-
leg atlhugun og unnt er á ástand-
inu á þessu svæði.
Jörg'en Koch, pTÓfesisoir við
eðlisfræð Id'eild Raupmannahafn
anháskóla, verður formaður
nefndarinnar o,g aðrir, sem í
nefndinni eru, verða þeir O. M.
Kofoed-Hansen, prófessor við
Tækniháskóla Danmerkur, H. L
Gjörup frá kjamorkumálanefnd
inni og yfirmaður geislarann-
sóknardeildarinnar fyrir heil-
brigðismél, Per Grande magist-
er. Nefndin fer þegar á morgun
fná Kaupmannahöfn með hinni
venjulegu áætiunarvél SAS til
Thule.
Sovézka blaðið Izvestija, mál-
gagn stjórnarnnar, skrifaði í
dag, að bandarískar sprengju-
Washington, 23. jan. NTB.
BANDARÍSKA skipið „Fueblo“,
sem er rúmlega 900 tonn að
stærð og var í könnunarleið-
angri, var hertekið af fallbyssu-
bátum frá Norður-Kóreu, þar
sem skipið, samkvæmt frásögn
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
isins, var á alþjóða-siglingaleið
á Japanshafi, 25 sjómílur fyrir
utan strönd Norður-Kóreu.
Eftir tökuna var „Pueblo"
flutt til hafnar undir eftirliti
margra fallbyssubáta og MIG-
flugvéia frá Norður-Kóreu til
hafnarborgarinnar Wonsan. —
Þessi atburður hefur vakið
mikla athygli og hefur þegar
leitt til aðgerða af hálfu banda-
ríska utanríkisráðuneytisins. —
Hafa Bandaríkin farið þess á
leit við Sovétríkin, að þau beiti
áhrifum sínum í Norður-Kóreu
til þess að „Pueblo“ verði leyft
að fara frjálsu ferða sinna þegar
í stað.
Af hálfu bandaríska varnar-
málaráðuneytisins hefur verið
skýrt frá því, að verið sé að
Framhald á bls. 23