Morgunblaðið - 24.01.1968, Page 15

Morgunblaðið - 24.01.1968, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1968 15 • • * Ornólfur Arnason skrifar um LEIKLIST Fyrri hluti leikárs NÝJAR uppfærslur leikhúsanna tveggja í Reykjavík á fyrri h'luta leikársins voru a&eins firrum tals- ins, þrjár í Þjóðleikhúsinu og tvær hjá Leikfélagi Reykjaivík- ur. Engin þessara sýninga hefur valdið neinum straumhvörfum í íslenzkri leiklist, engin verið sér staklega athyglisverð, engin mjög skemmtileg, enigin mjög leiðinleg ,engin mijög nýstárleg, engin mjög gamaldags, — leik- húsin hafa haldið í horfinu, þau hafa sjálfsagt ekki hrakið frá sér neina af tryggum áhorfend- urn sínum, en heldur ekki hænt að rnarga nýja. Þjóðleikhúsið sýndi fyrst „Galdra-Loft“ Jóhanns Sigur- jónssonar undir stjór.n Benedikts Árnasonar með Gunnar Eyjólfs- son í titilh'lutverkinu. Kristhjörg Kjeld lék Steinunni og Margrét Guðmundsdóttir Disu. Þetta var mjög snyrtileg sýning, en 'á eng- an hátt mjög áhugaverð. Tónlist Jóns Leifs við verkið var no.tuð, Gottskálk og hinir biskuparnir ekki látnir birtast á siviðinu og ennfremur klipptur af leikritinu „antiklim.axinn“, þ.e.a.s. lokaat- riði biskupsins, Dísu og Ólafs yfir líki Lofts, sem var til bóta o.g nokkur nýlunda, en eng- inn nýr skilningur kom fram á verkinu eða hlutverkum þess, — allt var hófsamleg,t, 'en ekki veruLega ferskt. Næat var sýndur franskur nítjándu aldar farsi, „ítalskur stráhattur“ eftir Labiche undir stjórn Kevins Palmer. Yitri um-' gerð hans og Unu Collins, sem sá um leikmynd og búninga, tókst mjög vel, enda hefur sýn- ingin natið vinsælda. Hins vegar var leikur í flestum hinna mörgu aukahlutverka heldur lág- kúru.egur, svo að gamanið var langt undir því marki, sem e stóðu til. Á þessari sýningu kom það einnig í ljós, sem oftar sést undir stjórn innliendra leikstjóra en erlendra, að það er eins og margir snjallir Leikarar láti sér stundum sæma að slá slöku ,við, líklega þegar þeim þykir við- fangsefnið sér ekki fyllilega sam- boðið. Slíkur vinnuandi hefur lengi staðið Þjóðleikihúsinu mjög fyrir þrifum og skemmt margar sýningar, sem að sumu ley-ti hafa verið fallega úr garði gerðar. Hið þriðja í röðinni var jóla- leikrit Þjóð'leikhússins, „Þrett- ándakvöld“ eftir Shakespeare, skemmtilegasta verkefni leikhús anna það sem af er vetri. Sýn- ing þessa vandaðasta og geð- felldas/ta gleðileiks góðskéldsins í frábærri þýðingu Helga Hálf- dánarsonar og með afar fallegri tónlist Leifs Þórarinssonar, olli nokkrum vonbrigðum, þó,tt margt gott sé um hana að segja og hún sé bezta sýnimg, sem ég hef séð hér á verki eiftir Shake- speare. Leikstjóranum, Benedikt Árnasyni, tóks,t ekki að ná þeim heildarblæ á sýninguna, sem fyr ir honum hefur þó vakað eins og sésit á fáeinum atriðum. Hins vegar eru tjöld og búningar Unu Collins með miklum ágætum og leikur í nokkrum hlutverkum prýði'legur. Ber þar hæst hríf- andi leik Kristbjargar Kjeld í hlutverki Víólu, sem ég held áð sé mér eftirminnilegasta framimi staða einstakra leikara í vetur. Rúrik Haraldsson hafði mjög góð tök á Malvólíó, þótt hann vekti ekki slíka kátínu sem í smáhlutverki sínu í „ítölskum stráhatti", og Erlingur Gíslason lék Orsínó af nærfærni og glæsi- brag. Þótt ýmislegt mætti betur fara, er sjálfsagt fyrir allt áhug fólk um leikhús að sjá „Þrett- ándakvöld“. Þá voru tekin upp aftur tvö af verkefnum fyrra árs, „Jeppi á Fjalli" eftir Holberg og ,,'Horna- kórall" eftir Odd Björnsson. Mér þótti uppfærsla „Jeppa“ fremur óvönduð, en vegna leiks hms ástsæla listamanns, Lárus- ar Pálssonar, sem hlaut „SiLfur- lampann" síðastliðið vor fyrir leik sinn í hlutverki Jeppa, hef- ur sýningin hlotið mjög góða að- sókn og gengur enn. „Hornakór all“ er að mínu áliti athyglis- verðasta innlenda framlagið til íslenzks leikhúss á síðari árum. Uppfærslan bar vott um dirfsku, 'Ustræna hæfiLeika, hug- myndaauðgi og leikihúsnæmi þeirra ungu manna, sem að henni stóðu, Oddi Björnssyni, Leifi Þórarinssyni, Kri&tjáni Árna- syni og síðast en ekki sízt Benedikt Árnasyni, og þeim var líka eitthvað niðri fyr- ir, — þetta var ferskur gust- ur, sem lék óvægilega,,.^æh þó hlýlega um rá og reiða hijjjð'-' arskútunnar. Það var mikil synd, að „Hornakórall“ skyldi ekk hljóta meiri aðsókn, og reyndar undarlegt, því að f'lestir vir.tust ha.fa mikla ánægju af sýning- unni, sem hana sáu. Fyrsta verkefni Leikfélags Reykjavíkur var „Indíánaleikur" efitir Frakkann René de Obaldia, talsver.t fyndið skopleikrit, sem byggir atburðaramma sinn í viðureign landnema í Ameríku við indíána, en leitar víð-a fang ýmist um ádeilukennt eða græskulaust grín. Ég skemmti mér á sýningu þessari, vegna óteljandi ágætra brandara text- ans cig skemmtilegs leiks allra aðalleikendanna, ekki sízt Bryn- jólfs Jóhannessonar, en óveniju- legt stefnu- og stílleysi olli því, að varla var um nokkur heild- aráhrif sýningarinnar eða merk- ingu að ræða. Þetta var varla nokkurntima ádeila, sjaldan farsi, oítast kómedía, en stund- um drama. Skömmu fyrir áramótin sýndi L.R. svo tvo einþáttunga eftir Jónas Árnason. Ég held, að flesit- ir hafi orðið fyrir vonbrigðum af sýningu þessari, eða a.rn.k. þeir, sem væntu þess, að höfundurinn hefði lagt meiri metnað í verk sitt og verið meira niðri fyrir en t.d. „Járnhausinn“ sýndi. Jónas hefur þó auðvitað ríka kímni- gáfu og næmi fyrir fól'ki, eins ag sögur hans hafa sannað, en hann hefur leikritsformið illa á valdi sínu, þrátt fyrir talsverða reynslu af leikhúsi, og kannski er honum það sjálfum ljósit og sú ástæðan fyrir því, að hann treystir sér ekki til að kafa dýpra í mannlífið en raun ber vitni, heldur fleyta kerlingar á yfirborðinu. Fyrri þátturinn, „Táp og fjör“, en samf allskemmti legur og vel leikinn, einkum af þeirn Steindóri Hjörleifssyni og Guðmundi Pálssyni, en hinn síð- ari, „Dnottins dýrðar koppalogn", þar sem höfundur gerir þó dá- litla tilraun til ádeilukenndrar líkingar, er mjög gallaður að uppbyggingu, svo að til skila komas.t aðeins fyndin, en sund- urlaus áhrif nokkurra skrinigi- legra persóna, sem Brynjólfur Jóhannesson, Guðmundur Páls- son, Jón Aðils, Sigríður HagaUn og Jón Sigurbjörnsson leika oft með miklum ágætum. Þessar persónur ræða rnarg.t skemmiti- legt saman, en samfelldan þráð og nauðsynlega stígandi vantar, þar sem höfundurinn hefur of- metið áhrifamátt þess blutverks, sem koma á til Leiðar spennu í leiknum og til skila ádeilulik- ingunni. Auk þessa galla í samn- ingu þáttarins, er hlutverkið ekki vel af hendi leyst. Ég get þó ímyndað mér, að it.d. Steindór HjörLeifsson, sem lék brennivíns- dauðan lækni á sömu sýningu hefði verið tilvalinn í þetta hlut- verk. Því geri ég þetta að svo löngu umtalseíni, að mér hefði þótt, og þykir reyndar enn, Jónas líklegur til meiri stór- ræða á þessu sviði. Þá hefur verið sýrut í allan vetur fyrir fuHu húsi verkefni frá fyrra ári, „Fjalla-Eyvindur" eftir Jóhann Sigurjónsson. Vin- sældirnar byggjast vafalaust fyrst og fremst á afburðaleik hjónanna Helgu Bachmann og Helga S'kúlasonar í hluitverkum Höllu og Kára. Leikflokkurinn Gríma sýndi þakkarverða viðLeitni og sýndi eitt af ágætustu verkum leikhúss absúrdista, „Jakob, eða uppeld- ið“ eftir Ionesoo í snjallri þýð- ingu Karls Guðmundssonar. Starfsemi Grímu á skilinn miklu meiri áhuga leikara ag almenn- ings. 'Hún er eini vottur leiklistar áhuga atvinnufó'lks á íslandi án ágóðavonar. Nýr leikflokkur tók til starfa á árinu, Leikflokkur Litla sviðs- ins, sem rekur starfsemi sína í Lindarbæ. Þetta eru nýútskrif- aðir nemendur Leiklistarskóla Þjóðleikhússins. Þeir sýndu fyrir áramót prófverkefni sín, sem Kevin Palmer hafði æft með þeim, „Yfirborð" eftir Alice Gersitenberg og „Dauða Bessie Smith" etfir Albee. Var þetta hressiLeg sýning, sem áreiðanlega kom mörgum á óvart fyrir það hvað hún var vel unnin. Næstu verkefni leikhúsan.na eru „Íslandsklukkan" eftir Hall- dór Laxnes, sem mestra vinsælda hefur notið allra sýninga Þjóð- leikhússins, er hún var sett upp þar áður, og „Haustið ‘37“, nýtt Leikrit efitir Jökul Jakobsson, sem mesta og almennasta at- hygli hefur vakið íslenzkra leik- ritahöfunda á síðari árum. Leik- rit hans „Hart í bak“ sló öll að- sóknarmet í Iðnó. Ætla má, að flestum leiki forvitni á að sjá hið nýja verk hans, sem nú er í æfingu. Örnólfur Árnason. BÓKHALDARI óskar eftir starfi hálfan eða allan daginn. — Vanur að vinna sjálfstætt að bókhaldi og öðrum skrifstofustörfum. — Verzlunarmenntun. — Góð meðmæli. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 30. jan. merkt: „Janúar 1968 — 5200“. Skriístofustúlka óskast Okkur vantar strax duglega stúlku tií starfa í skrifstofu verksmiðjunnar á Álefossi. Herbergi og fæði á staðnum. Upplýsingar gefnar á skrifstofu Álafoss, Þing- holtsstræti 2, Reykjavík. HUSMÆÐUR HafiÖ þér áhuga á sjálfstæðum tekjum? Fyrirtæki leitar að duglegum umboðsmönnum til kynningar og sölu á viðurkenndum vörum. Yður verður séð fyrir þjálfun og aðstoð í starfinu og getið stundað það allavega eftir hentugleikum. Umsækjandi sé 18 ára eða eldri. Sendið nafn og heimilisfang til afgreiðslu Morg- unblaðsins merkt: „Umboðsmaður — 504“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.