Morgunblaðið - 10.02.1968, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 19m
Hverfisgötu 103.
Síxni eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIG/VN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
IP/R/LSff/á'F
RAUÐARARSTlG 31 SllVII 22022
Nýr sími
23-222
SENDIBÍLAR HF.
Einholti 6.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
AUÐVITA9
ALLTAF
er sanngjörn bón fjfJlda sjón-
varpsnotenda.
^ Einlægnisorð, sem
snertir andleg
viðhorf
'Ar Fær bók í stað
þeirrar, sem bökuð
var upp
Ólafur Ó. Jahnson skrifar í
dag svar til Einnar afskaplega
forvitinnar, en bréf hennar
birtist Ibér í dálkunum sl.
föstudag.
í dálkum yðar þann 2. febrú-
ar sL lásum við tilskrif „Einn
ar afskaplega forvitinnar“, en
efnd þess snýr að nokkru leyti
að okkur, af því að við höfum.
á okkar snærum urmboðið á ís
landi fyrir Pillsbury hveiti-
verksmiðjurnar í Bandan'kjun-
um. Bregðumst við snarlega
við óskum bréfritara og send-
um yður, Velvakandi góður,
nýjustu útgáfu að bökunarbók
Ann Pillsbury, og biðjum yð-
ur góðfúslega að koma bók-
inni á framfæri við „Eina af-
skaplega forvitna“.
í>ví miður getum við ekki
útvegað henni nýtt eintak af
gömlu bókinni, sem hún hefur
„bakað upp til agna“, en vænt
um þess að þessi nýja útgáfa
reynist eins vel, eða jafnvel
betur. Biðjum við ,,Eina af-
skaplega forvitna" að fara vel
með bókina, því að þetta er
síðasta eintakið, sem við eig-
um.
Það kynni svo að vera á-
hugaefni fyrir bréfritara, og
ef tál vill fleiri, að Bryndís
Brynjólfsdóttir frá Selfossi er
nú bróðlega á förum til Tex-
as sem íslandsmeistari í bök-
unarsnilli, samkvæmit úr-
skurði dómnefndar á nýafstað-
inni bökunarkeppni Pillsbury
hér á landi. í Texas leiða sam
an hesta sína sigurvegarar í
samskonar bökunarkeppnum
frá öllum fylkjum Bandaríkj-
anna, en sigurvegarar annars
staðar að úr heiminum, og þar
með talin Bryndís, eru heiðurs
gestir.
Að keppni þessari lokinni
verður svo aftur prentuð enn
ný útgáfa af „The Pillsbury
Bake-Off Cook Book“ og er
jafnvel ráðgert að gefa út ís-
lenzka þýðingu af bó’kinni í ná-
inni framtáð. Verður frekari
upplýsingum um það komið á
framtfæri, ef úr því verður.
Með beztu kveðjum,
pr. pr. O. Johnson & Kaaber hf
Ólafur O. Johnson,
Komi og sæki
bókina
Bókin, sem um getur í bréfi
Ólafs, er nú í vörzlu Velvak-
anda, sem biður Eina afskap-
lega forvitna að gera svo vel
að vitja hennar þangað.
smttur
smurt brauö 8 HÖLLIN1 brauðtertur
)opiö frá kl. 9-23:30
LAUGALÆK 6
9» SÍMI 30941
næg bilastædi(
Ræða efni mynd-
anna marga
næstu daga
Bréfritari ,sem kallar sig
H. H., skritfar Velvakanda og
tekur upp vörn fyrir sunnu-
dagsmyndir sjónvarpsins, sem
E. T. gagnrýndi hér í dálkun-
um sl. laugardag. í bréfi sínu
segir H. H. m.a:
Velvakandi.
Laugardaginn 3. feb. birtir
þú í dólkum þínum bréf frá
E. T. sem krefst þess að Sjón-
varpið sendi enskar kvikmynd-
ir, sem það sýnir á sunnudags-
köldum heim til ,,föðurtúna“.
E. T. nefnir þetta sanngirn-
iskröfu og rökstyður hana m.a.
með því að kvikmyndir þessar
séu ódýrar, í þeim leiki fáir
leikarar og slæmir, sviðið allt-
af það sama, og hugmyndaflug
framleiðenda langt undir lág-
markskröfu. Tilgangsleysi er
orki spaugilega á venjulegan
íslenzkan áhorfenda, særi jafn-
vel blygðunarkennd hans
o. s. frv.
Ef allir væru sammála um
al'lt þetta svo og það sem hér er
sleppt að endurtaka úr árósar-
grein E. T. á umræddar kvik-
myndir, væri sannarlega tíma-
bært fyrir „sensorinn" hjá
Sjónvarpinu að hefjast þegar
handa við að skritfa „aðstand-
endum samúðarkveðjurnar."
En reyndin er bara allt önn-
ur. Fjöldi fólks fylgist með
þessum myndum af miklum
áhuga, ræðir efni þeirra marga
næstu daga, jafnvel á vinnu-
stöðum. Að vonum er fólk yfir-
leitt ánægt með þær, því að
þær eru prýðilega gerðar af
hendi leikstjóra og tökumanna.
Skínandi vel leiknar og að
efni til vandaðar en látlausar
á yfirborðinu, hvar undir
brenna eldar mannlegrar til-
finninga og ástríðna, eins og
gengur í daglega Hfinu sem
fáir veita þó verðskuldaða at-
hygli. Það er kjarni þessara
óvenjulegu kvikmynda. Auð-
vitað eru þær misjafnar en þær
eru flestar góðar og sumar
mjög góðar.
„Sensor" Sjónvarpsins er því
beðinn að verða ekki við kröfu
E. T. ef til hefur staðið, það
A. J. á Akureyri skrifar:
Móðir skrifar í Velvakanda
25. jan. 1968, athyglivert bréf.
Með gleði les ég hvert orð, sem
kemur fram í Velvakanda,
skrifað í emlægni og alvöru
um hin sönnu velferðarmál
okkar allTa. í bréfi móður seg-
ir: „Á nýársnótt var efst í huga
mér þakklæti". Þar er göfug
lifsskoðun á ferð, bara að við
ættum hana sem flest. Niður-
lagið er mjög athyglivert; ég
endurtek það. „Einnig hét ég
því að reyna að láta ekki smá-
muni lífsins verða otf stór
áhyggjuefni, en treysta á hand-
leiðslu Guðs.“ — Vissulega
vildi ég geta gert þau orð að
mínum, sem og bréfið allt.
Fleiri skyld bréf berast við
og við, og finnst mér það mik-
illa þakka vert ,ág meina,
hvert einlægnisorð, sem snertir
okar andlegu viðhorf til dag-
elgs lífs og sem gæti orðið til
að móta breytni okkar. —
Kannski legðum við þá ekki
alveg eins mikið upp úr þessu
endalausa „dedúi við kropp-
inn“ (svo ég noti hið ágæta
orðalag Hjartar Pálssonar
fréttamanns, þó í öðru sam-
bandi væri, og sem ég vona
hann misvirði ekki.) En þessi
þrjú orð lýsa svo furðulega
skýrt ástandi daglegs líís í dag,
finnst mér; eða hvað finnst
ykkuT lesendur? En er það eins
mikið atriði hjá almenningsálit
inu í dag, hvaða „flíkum“ and-
inn klæðist? Kannske skiljið
þið ekki hvað ég meina. Ég
ætla að skýra það með leiðbein
ingu sem gefin hefir verið —
að dulrænum leiðum — en þar
sagði: „Einni hugsun megið
þið aldrei gleyma, að þið eruð
í þjónustu Drottins.“
Já aðeins að við vildum
reyna að skilja það, og að það
eru ekki bara voðaverkin, sem
eru brot á hans boðum. Það er
mjög margt annað etf við hugs-
um málið.
Einnig skyldum við athuga
vel, að við þurfum hvorki
langskólanám né aðra sér-
menntun, til að rækja það þjón
ustu'hlutverk; en við þurfum
að eiga hlýtt hjarta, sannleiks-
ásta — og hóværð — til að geta
þjónað því, ag ein-s og móðir
sagði, treysta á handleiðslu
Guðs — og biðja.
— A. J.
Húsbyggjendur
Gerum tilboS í allt tréverk eftir að húsið er orðið
fokhelt (eða hluta atf tréverki).
Allt á einum stað.
TIMBURIDJAN H.F.
við Miklubraut. — Sími 36710.
Nauðungaruppbnð
sem auglýst var í 28., 30. og 31. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1967 á hluta í húseigninni nr. 21 við Frakastág,
hér í borg, þingl. eign Guðbrandar Guðmundissonar
og leitað tilboða í á nauðungaruppboði, sem fram fór
15. og 21. ágúst 1967 á eigninni sjálfri, verður seldur
vegna vangreiðslu á uppboðsverði á nauðungarupp-
boði, sem fram fer á eigninni sjálfri, miðvikudaginn
14. febrúar 1968, kl. 2 síðdegis.
Reykjavík, 8. febrúar 1968.
Kr. Kristjánsson, setuuppboðshaldari.