Morgunblaðið - 10.02.1968, Side 24

Morgunblaðið - 10.02.1968, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1968 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA allt ætlaði vitlaust að verða. Ein hver æpti niðri á fyrstu hæð, en margir menn, að mér fannst, komu út úr geymslunni og hlupu eftir ganginum að lyftunni. Sterkt ljós kviknaði einhvers staðar, og ég reyndi að brölta á fætur. En það tókst rruér ekki. I>að lá maður þarna á gólfinu, stynjandi. Það var O'Brian, skotinn gegn um brjóstið. 39. kafli. Ég lá í rúrninu iheima hjá ung- frú Mattie, áður en Jim kom í heimsókn til mín. Ég vissi frá Tony og eins úr blöðunum, að morðinginn hafði verið innikró- aður þarna um nóttina og hafði framið sjálfsmorð í lyftunni. En Tony vildi ekkert um það taia. — Hann Jim segir þér frá því, elskan, sagði hann. — Ég þekki ekki enn söguna út í æsar. Þú verður að bíða. Hann var mikið hjá mér. Það var ekki eins og ég væri alvar- lega veik. Ég hafði fengið tauga- áfall og var máttlaus, enda hafði ég haft mikla áreynslu undan- farið. Amy Richards stóð yfir mér og lét þess getið, að enginn köttur með nokkra sjálfsvirð- ingu mundi fara að sitja um mig fyrir utan músarholu. — Ekkert nema viðhein og rif, sagði hún með fyrirlitningu. — Ef hann Tony Wainwright sér eitthvað við þig, þá hlýtur hann að vera eitthvað ruglaður. Þarna nokkra stund í dag og hugsaðu. síðan álits vina. Leitaðu Jómfrúin 24. ágúst — 23. sept. Reyndu áð innheimta skuldir þínar og vertu röggsamur. Taktu ekki mark á fánýt- um loforðum um bót og betrun. Vogin 24. sept. — 23. okt. Góður dagur til ferðalaga, en helzt skaltu vera með öðrum. Gróðamöguleikar á næsta leiti. 10. FEBRÚAR Hrúturinn 2. marz — 20. apríl. Óþolinmæði getur eyðilagt margt fyrir þér. Ljúktu verkum þínum, svo að þú get- ir notið kvöldsins. Nautið 21. apríl — 21. maí. Góður dagur til verklegra athafna. Ger- ið hýreikninga. Kaupið ekki hluti dýrt. Tvíburarnir 22. maí — 21. júní. Skemmtu þér í dag og láttu ekki um þig sannast að þú sért félagsskítur. Vertu kátur. Krabbinn 22. júní — 23. júlí. Láttu ekki samvizkuna angra þig. Góð- ar fréttir berast þér í dag. Ljónið 24. júlí — 23. ágúst. Reyndu að vera einn með sjálfum þér Drekinn 24. okt. — 22. nóv. Vertu ekki þunglyndur, reyndu að björtu hliðar tilverunnar. Hugsaðu. sja Bogmaðurinn 23. nóv. — 21. des. Skemmtu þér í kvöld. Athugaðu hvernig fjármálin standa og gerðu viðeigandi ráð- stafanir. Steingeitin 22. des. — 20. jan. Fjölskyldan þarfnast hjálpar þinnar í dag. Framtíðarhagur þinn byggist á því, að þú breg'ðir vel við. Vatnsberinn 21. jan. — 19. febr. Gættu að heilsufarinu, farðu til læknis, ef þú telur ástæðu til. Fiskarnir 20. febr. — 20. marz. Biddu fólk fyrirgefningar á því, sem þú sagðir í gær. Haltu fjölskylduboð. veitingahúaið ASKUK BÝÐUR YÐUR r HELGARMATINN í handhœgum umbúðum til að táka HEIM GRILLAÐA KJTJKLINGA ROAST BEEF GLÖÐARSTEIKT LAMB GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR HAM BORGARA Gleðjtð frúna — f fjölskjlduna — vinina — njótið hinna Ijúffengu rétta heima í stofujðar. Ef þér óskið getið þér hringt og pantað við sendum leiguhíl með réttina heim tiljðar. A S KU R. matreidir fyrir yáur alla daga mlcunnar Suðurlandubrau114 simi 38550 er rjóminn þinn. Drekktu hann. En hún var uppfull af forvitni um viðburði þessarar nætur í Klaustrinu. Því að svo virtist sem ég fengi minn hluta af eft- irtektinni, sem þeir vöktu. „Lög- reglumaður alvarlega slasaður. Æst stúlka skýtur næturvörð". Hún las fyrir mér fyirsagninar í blöðunum þangað til. Tony stöðvaði hana. — Haltu þér saman, Amy. Láttu stúlkuna í friði. — Hún er kannski stúlkan 81 þín? — Já, með valbrárblettum ög öllu saman. — Valbrárbletti, þó þó. Hún er ekki með einn einasta. Hún hefur fallegasta hörund, sem ég hef nokkurn tíma séð. — Hefðirðu ekki annars gott af að fara svolítið út að ganga? Tony var að verða sjálfum sér líkur aftur. Hann gat komið inn, brosandi og fært mér eitthvað mér til skemmtunar, vindlinga- kassa sem spilaði lag og tvo fugla, sem tístu. Hann fyllti her- bergið mitt með blómum, enda þótt ekkert þeirra væri úr gróð- urhúsunum i Klaustrinu. Ég furð aði mig á því, en Jim útskýrði það fyrir mér. Hann kom til mín einn daginn, heldur fbygginn og saigði mér, að 0‘Brian væri að skána. — En þetta verður langt frá honum, sagði hann. — Þetta var stór byssa, Pat. En hann kenmr þér ekki um þetta. Hann skilur allt. En hefðirðu gert þetta tíu mínútum fyrr — eða kannski dá- lítið seinna — þá hefði það getað eyðilagt allt fyrir okkur. — En þetta verður langt frá nonum, sagði hann. — Þetta var stór byssa, Pat. En hann kennir þér ekki um þetta. Hann skilur allt. En hefðirðu gert þetta tíu mínútum fyrr — eða kannski dá- lítið seinna — þá hefði það getað eyðilagt allt fyrir okkur. Hann var ekki lengi að segja mér alla söguna. Hann hafði vitað talsvert af henni, eftir að við opnuðum gamla kofortið hennar Maud. Hann hafði meira að segja grunað það áður, þegar hann sá opinberu tilkynninguna um lát hennar. Hann hafði klippt hana út og athugað hana. „Jess- ica Maud Wainwight, ekkja John C. Wainwright." Svo að hún hét þá líka Jessica, og svo var örið á brjóstinu á Don Morg am. — Ég fór að velta þessu fyrir mér. Hann hafði látið skeranafn ið burt, fyrir ævalöngu, en það þurfti ekki að þýða neitt sér- stakt. Möng kvennöfn byrja á J. En þá fékk ég Tony einn dag- inn til að tala um föður sinn. Hann mundi ekki eftir honum. Sagði, að hann hefði fallið í stríðinu — fór á vígvöllinn snemma með Kanadamönnum og kom aldrei aftur. Ég var ekki viss um, að hann hefði fallið. Maud hafði svo gifzt J.C. gamla, fimm árum síðar. Væri hann enn á lífi, var þetta mistökin, sem hún hafði gert. Hún hefði átt að bíða sjö ár, en það gerði hún ekki. Þetta var nú bara tilgáta, en athugaðu það sjálf. Hann virtist hafa slegið Evans niður og tek- ið lyklana han . Hann hafði brotizt inn í Klaustrið oftar en einu sinni. Og loks hafði hann verið myrtur í leikhúsinu þar. Það hlaut að vera einhver á- stæða til þess. Og vitanlega var það svo. Það er hin raunveru- lega saga. — Don Morgan var fyrri mað- urinn hennar Maud. Og sem meira var svo virtist sem síðari giftingin hennar væri ólögleg. Ég vissi þetta vitanlega ekki og var enn að geta mér til, þang- að til ég fann þessi bréf hennar í geymslunni, en ég bar þau sam- an við einhverjar kvittanir, sem ég átti í skjalasafninu. Rithönd- in var sú sama, og loks fór þetta að taka á sig ákveðna mynd. — Við skulum fara ofurlítið aftur í tímann. Einn dag í á- gústmánuði fer Maud til borg arinnar. J.C. gamli er fallinn frá, en að öðru leyti er hún vel stödd. Hún á Tony. Hún á nóga peninga, vini og allt hVað eina. Hún ekur áfram og þarna er þá Morgan rétt við bílinn. Hann sér hana og hún sér hann. Hún fellur saman í bílnum, en Morg- an nær í númerið á bílnum, fer í eftirlitið og fær að vita, hver hún er. — Hann hlýtur að hafa feng- ið kast, manngarmurinn. Ef hann hefur verið maðurinn, sem þú sást við gluggann á leikhús- inu í júní, hefur hann sennilega verið að reyna að koma auga á Audrey sem snöggvast en kona hans er nú orðin frú Wainwright og slúðurblöðin eru að hafa orð á því, að Tony og Audrey séu eitthvað að draga sig saman. Þau eru hálfsystkini en vita það ekki. En nú þekktir þú hann Morg- an. Utan þessarar kvensemi sinn ar, var hann ekkert afleitur ná- ungi, en þarna er hann kominn í fjandans klípu. Hann vill ekki eyðileggja allt fyrir Maud, en hann verður að hitta hana. Hann reynir það en fyrst verður hún veik og rúm- liggjandi, og seinna finnur hann, að hann getur ekki náð í hana í síma og að hún hefur einkaritara, sem opnar öll bréf- in hennar. Hann er þvi kyrr í borg- inni, en leigir sér útleigubíl og er svo að sveima kring um klaustrið að næturlagi, en ár- angurslaust. Loksins slær hann því Evans niður og tekur lykl- ana hans. Þú veizt framhaldið af því. Hann vissi vitanlega um stöðu gamla mannsins, þar sem hann hafði sjálfur strokið með dóttur hans. — Gott og vel. Látum þetta allt gott heita. En hver myrti hann? Ég var viss um, að Tony þekkti ekki söguna, ef nokkur var. Jafnvel þótt svo hefði ver- ið, hefði hann aldrei farið að myrða sinn eigin föður. Hvað þá? Gerði Maud það? Kynni að vera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.