Morgunblaðið - 22.02.1968, Page 3

Morgunblaðið - 22.02.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1968 3 AIXS er nú saknað 14 hrossa, sem eru í eigu hestamanna í Reykjavík og nágrenni. Öll hurfu þessi h*oss síffla sum- ars og í haust úr högum, þar sem þau höfðu veriS lengi með öðrum hrossum- Þrátt fyrir mikla leit og víðtæka eftirgrennslan hafa hrossin ekki komið í leitirnar. Nokkr- ir hrossaeigendur komu sam- an í fyrradag og báru saman ráð sín og var blaðamaður Mbl. viðstaddur fund þeirra. I»ar kom fram, að hrossaeig- endur ætla að senda skýrslu um málið til yfirsakadómar- ans í Reykjavík. Það er trú hrossaeigenda hrossin hafi verið tekin í misgripum og nýlega var einu hrossi skilað þegjandi og hljóðlaust í haga, sem það hafði horfið úr í desember sl. Mósi Kristins Ólasonar er einn týndu hrossanna- Mósi’ er 9 vetra og með stærstu hestum. Þetta eru mistðk, ekki þjófnaðir af ásettu ráði — segja eigendur týndu hrossanna, en þeir munu innan skamms senda yfirsakadómaranum í Reykjavík skýrslu um hvörf jbeirra Þessara hrossa er saknað. Jón E. Halldórsson. rann- sóknarlögreglumaður, saknar 7 vetra hests, sem er dökk- brúnn að lit. Mark: heilrifa vinstra- Hesturinn hivarf frá Sjávarfhólum á Kjalarnesi síðast í október. Jón Sigurbjörnsson, leikari saknar 6 vetra hests, sem er leirljós að lit, ættaður frá Kolkuósi í Skagafirði. Hesturinn hvarf frá Braut- arbolti á Kjalarnesi um mán- aðamótin nóv.—des. Sigurtojörn Eiriksson, Álfta nesi, saknar 9-—10 vetra hryssu, sem er brúnjörp að lit. Mark: heilrifað og fjöður aftan bæði. Hryssan gást síð- ast í byrjun september. Þórhallur Halldórsson, fulltr. hjá Heilbrigðiseftirlit- inu, saknar 7 vetra hests, sem er jarpur að lit og dökk- ur á tagl og fax. Mark: bitið framan, bitar tveir aftan hægra, bitið aftan vinstra. Þessi hestur er góður gæð- ingur undan Nökkva frá Hóimi. Hann hvarf frá Korp- úlfsstöðum í júni sl. Kristinn Ólason, brunavörð ur, saknar 9 vetra hests, sem er mósóttur að lit. Þessi hest- ur er stór og milkill, en hann hivarf af Stokkseyrarselstún- inu við Eyrarbakka síðast í október, Aðalsteinn Þorgeirsson á Korpúlfsstöðum saknar 5 v. hegts, sem er vindrauður að lit. Mark: tvístýft aftan viinstra og bitið aftan hægra. Hesturinn bvarf af Korpúls- staðatúninu um mánaðamót- in júlí—ágúst. Haukur Níelsson á Helga- felli í Mosfellssveit saknar tveggja vetra hryssu, sem er rauð að lit, tvístjömótt- Stanley Jónsson í Reykja- vík saknar vetur gamallar hryssu, sem mósótt að lit. Báðar þessar hryssur hurfu skyndilega í haust úr girð- ingu frá öðrum tryppum.. Gunnar TryggVason, starfs maður Fáks, lei'tar 5 vetra hests, sem er svartkjömmótt- ur að lit. Hesturinn hvarf frá Arnartoolti í nóvemtoer. Si'gurpáll Sigurðsson, Reykjavík, saknar 8 vetra föngulegs hests, sem er dökk brúnn að lit. Hesturinn hvarf frá Fitjakoti á Kjalarnesi síðla sumars. Þá er saknað tveggja hrossa frá Stokkseyri og tveggja frá Eyrarbakka, sem hurfu í haust úr girðinguim frá öðr- um hrossum. Mistök eða afbrot. Allir hrossaeigendurnir, sem funidinn sátu, voru sam- mála um, að hvörf hross- anna væru af mannavöldum, en töldu að þar væri um mistök að ræða, Spurn- ingin um hrossáþjófnað er fráleit í þeirra augum.. Þeir bentu á, að í sumum til'felluim væru lík hross á flækingi þar sem hross þeirra hefðu horfið og einnig sögðu þeir, að nú væri nokkuð mik- ið um uppboð á hrossum sem enginn leitaði eftir. Spurt hefur verið um týndu hross- in á öllum hugsanlegum stöð um og viðtæk leit verið gerð. Möguleikana á því að hross- in hefðu farizt, er að mestu búi'ð að útiloka m*eð leit í skurðum og annars staðar, þar sem hross gætu týnzt. Þá styður það einnig skoð- un þeirra, að flest þessi hross voru hagvön og hurfu frá öðrum hrossum, sem þau höfðu lengi verið í haga með. I>á kváðust þeir einnig hafa aðgætt, hvort verið gæti, að hrossin hefðu veríð seld til slátruniar og kom í ljós, að svo er ekki, enda töldu þeir að hrossaþjófnað þyrfti ekki að ræða í þeirri mynd, sem fyrr segir. Þegar blaðam.aður Mbl. lét í Ijós furðu sína á því, að um mistök gæti verið að ræða sagði Aðalsteinn á Korpúlfs- stöðum þessa sögu: Ei'tt sinn kom til mín mað- ur að sækja tvö hross sín. Þessi maður er enginn rati á hross og taldi ég ástæðu- laust að stan-da yfir honum á meðan ha.nn tæki hestana. Eftir nokkra stund kemur þessi maður inn til mín og segir: Nú er ég búinn að setja hestana m.ína á bílinn. Gekk ég þá með honum út svona fyrir kurtei'sissakir og viti menn — það fyrsta sem ég sá var hestur, sem ég átti og komiinn var upp á bíl mannsins. Ég benti honum á þetta og það kom í ljós, að hesturinn, sem hann var að sækja var líkur miínum, og tók maðurinn minn hest fyrir sinn, í framlhaldi af þessari sögu voru sagðar ýmsar fleiri sög- ur um misgrip hesteigenda og voru sumar æði spaugilegar. Er skaði, að ekki skuli vera rúm fyrir þær hér, en vissu- lega styrktu þær mjög trú- hesteigenda í augum blaða- mannsins. Hesturinn hans séra Sigurðar. Séra Sigurður Haukur Guð jónsson saknaði hests, sem hvarf úr haga í Ölfusinu. Séra Sigurður leitaði hestsins mik ið, en allt kom fyrir ekki- Það var engu líkara en jörð- in hefði gleypt hann. Nú fyrir skemimstu, eftir að umræð- urnar út af hvarfi hrossanna hófust, er hestur séra Sig- urðar allt í einu kominn atft- ur í sinn haga og var koma hans ekki síður dul’arfuill en brottförin. Hesturinn er fei’t- ur og lítur vel út — leynir því ekki. að hann hefur verið hatfður á gjö'f. Þessi saga styrkjr enn þá trú, að um misgrip sé að ræða í þessum hrossamálum. En ef . . . . ■ En ef nú engu að síður er hér um hrossaþjófnaði að ræða^ skulum við aðeins líta á, hvað þjófarnir eiga í vænd um, ef upp um þá kemst. Samkvæmit núgildiandi hegn ingarlögum. varðar slífct fram- ferði við 244 gr. hegningar- laganna og getur varðað allt að sex ára fangelsi, svolítið mismunaindi eftir eðii brots- ins. í Grágás, elztu lögfbók ís- lendimga eru viðurlögin fjör- baugsgarður, en með tilkomu Júnstoókar syrti heldur í ál- inn hjá hrossaþjótfu'num.. Þá urðu viðuirlögin líkamsrefs- inga.r ýmiss konar og jafnvel lfflát, ef um ítrekað eða stór- fellt brot var að ræða- Það er því ekki nema eðli- Framhald ai bls. 5 1 Jón E. Halldórsson á Blæ sín um, sem nú er saknað. STAKSTEINAR „Þar með er þessi blekking úr sögunni" Það hefur verið einkar upp- lýsandi að fylgjast með hinum mismunandi yfirlýsingum Fram- sóknarmanna síðustu mánuði um verðfallið á helztu útflutnings- vörum Iandsmanna. í nóvember og desember gerðu helztu tals- menn Framsóknarflokksins á Alþingi lítið úr verðfallinu, og ber þar hæst hinn fáránlegi mál- flutningur Sigurvins Einarsson- ar, sem Eysteinn Jónsson, þá- verandi formaður Framsóknar- flokksins, endurtók í útvarpsum ræðum skömmu síðar. Eysteinn Jónsson sagði m.a.: „Ríkisstjórnin segir, að ástæð- an sé verðhrun á útflutningsvör- um og aflabrestur. Svo langt ganga þeir í áróðri sínium í þessu tilliti, að þeir svífast þess ekki að bera þróunina í þessum málum nú saman við verstu áföll, sem íslenzka þjóðin hefur orðið fyrir á þessari öld, þ.e.a.s. verðhrun og markaðshrunið fyr- ir stríð. En hverjar eru stað- reyndirnar? Þær segja allt annað, meðalverðlag helztu útflutnings- vara þessa árs, verður álíka hátt og meðalverð síðustu 5 ára, en á þeim 5 árum hefur meðalverð á útfluttum vörum verið óvenju- lega hátt og 2 þessara ára topp- verð, sem við höfum naumast áður þekkt dæmi tii. Þar með er þessi blekking úr sögunni". Annað hljóð í strokknum! Siðan Eysteinn Jónsson við- hafði þessi ummæli í alþjóðar- áheyrn hefur tónninn í Fram- sóknarmönnum breytzt töluvert. Þess fór þegar að gæta fyrir nokkrum vikum á Alþingi. Menn veittu því athygli ,að Framsókn- armenn voru skyndilega reiðu- búnir til þess að viðurkenna að verðfallið hefði orðið atvinnu- vegunum og þjóðarbúinu þungt áfall. Það er nú komið í ljós, hvað valdið hefur þessum tón- brigðum helztu forsprakka Fram sóknarflokksins. Fregnin um erf- iðleika SÍS á að gera skil til bankanna á afurðaverði útfluttra sjávarafurða hefur vakið mikla athygli og greinilega hefur vitn- eskjan um það mál haft áhrif á afstöðu Framsóknarforingjanna til verðfallsins. „Mikið tap af verð- falli sjávarafurða" Framsóknarmálgagnið ræðir þetta mál í forustugrein á fyrra- dag, og nú er engin tilraun gerð til þess að gera lítið úr verð- fallinu, heldur þvert á móti. Blaðið segir: „. . . . að fjölmörg fyrirtæki hafa orðið fyrir mikiu tapi af verðfalli sjávarafurða, bæði beint og óheint .... Mörg rótgrónustu atvinnu- og verzl- unarfyrirtæki landsins eiga í miklum rekstrarvandræðum af þessum ástæðum. Það væri vitan lega fjarri öllu lagi, ef farið væri að ráðast á þessi fyrirtæki og bera þeim á brýn svik og óstjórn, sökum þess hvernig komið er“. Það er sannarlega ástæða til að fagna því að Fram sóknarmenn eru nú byrjaðir að sjá erfiðleika þjóðarinnar vegna verðfallsins í réttu ljósi, en jatfn- framt her að harma það að til þess að svo færi, varð Sam- band ísl. Samvinnufélaga að tapa a.m.k. 50 milljónum króna. Það getur orðið dýrt spaug, bæði fyrir þjóðarbúið og SÍS, ef slíka atburði þarf til þess að leiða Framsóknarforingjana í allan sannleik um þau vanda- mál, sem þjóðin á við að etja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.