Morgunblaðið - 22.02.1968, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.02.1968, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 198« Loftur Júlíusson; SJÓSLYSIN MIKIð er nú rætt og ritað í enskum blöðum um hin hörmu- legu og tíðu sjóslys hér við land að undanförnu og mikið gert til að fá svör við ýmsum spurningum varðandi orsök slys anna, um skipin og útbúnað þeirra, og hvernig koma megi í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Við íslendingar höfum einnig orðið fyrir átakanlegu tjóni á sama tíma, en hver eru viðbrögð okkar í þeim efnum? Hvers vegna förum við ekki á fund okkar forsætisráðherra og heimt um opinbera rannsókn á örygg- isútbúnaði fiskiskipa okkar og athugum hvað ábótavant er í þeim efnum og látum lagfæra það sem .betur má fara. Er ekki íslenzkum þingmönnum skamma nær að reyna að finna lausn á, hvernig hægt er að koma í veg fyrir sjóslys hér við land en að karpa um og gera tillögur varð- andi styrjöldina í Vietnam. Hér höfum við misst í hafið hlutfalls lega miklu fleirri menn en styr- jaldaraðilar í Vietnam og okkur ber skylda til að gera eitthvað í málinu og það strax áður en næsta áfall dynur yfir. Ég vil hér leggja fram nokkr- ar tillögur og spurningar: 1. Hversvegna eru ekki nú þeg ar sendir menn út til Eng- lands til að fylgjast frá byrj- un með rannsókn sjóslysanna og gefa ýtarlega og nákvæma skýrslu um framgang mála. 2. Er ekki full ástæða komin til að banna litlum fiskibát- um að sækja á djúpmið yfir vetrarmánuðina í svartasta skammdeginu samanber 40 tonna báta er sækja útundir Halamið 40-70 sjóm. undan landi. 3. Er ekki kominn tími til að skylda öll skip, strandstöðv- ar og hafnaryfirvöld að nota V.H.F. (labb-rabb) tæki, sem flest öll erlend, og nokkur íslenzk skip og Reykjavíkur höfn nota með mjög góðum árarígri. Erlendis er notkun slíkra öryggistækja talin sjálf sögð skylda meðal hafnsögu- manna og hafnaryfirvalda,en slíkt þekkist ekki hér utan Reykjavíkur, meðan öll venju leg loftnet voru slitin niður vegna ísingar gátu Óðins- menn haft talsamband við sjó mennina á enska togaranum „Notts County" á strandstaðn um og talið í þá kjarkinn í gegnum ofannefnt tæki. 4. Því er ekki strax hafizt handa með rannsókn á klæðn aði íslenskra sjómanna á fiski skipum sem er stórábótavant og skylda þá til að klæðast ullarfötum yfir vetrarmánuð- ina að minnsta kosti. 5. Hvers vegna barst tilkynning fyrst frá Grænlandi um strand danska skipsins Hans Sif útaf Melrakkasléttu? Eru ekki fullgildir loftskeyta- menn, er skilja enska og danska tungu sem hlustverð- ir allan sólarhringinn yfir vetrarmánuðina á strandstöðv um einsog ísafirði, Siglufirði eða Raufarhöfn? 6. Hvað dvelur tilkynningar- skyldu allra fiskiskipa hér við land, er ekki enn búið að koma henni á? Á að bíða eftir fleiri sjóslysum áður en hún kemst á stað. Ég tel að viðbrögð brezkra togaraeigenda eftir hina miklu og átakanlegu sjóskaða flyti fyr ir smíði fleiri sktutogara lil veiða hér við land í framtíðinni. Ég þekki það af eigin reynzlu hversu mikið meira öryggi er fólgið í tveggja þilfara skuttog- urum í stórsjóum, snjóbyljum og frosthörkum samfara mikilli yfirísingu í svartasta skammdeg inu hér á N.Atlandshafi, og er full ástæða og tími kominn til að flýta fyrir endurnýjun okk ar gömlu síðutogara með smíði fullkomnustu skuttogata. Ég tel einnig að Radar-fram- leiðendur geri allt sem hægt er Sigurður Meyvants- son — Minningarorð Nú er hann góður genginn, æskuvinur minn hefur kvatt þennan heim eftir langa og erf- iða sjúkdómslegu, mikið þrek og hugarró, þarf til að bera svo vel þær miklu þjáningar sem Sigurður gerði, en ávallt er vin- ir komu í heimsókn að sjúkra- beði hans var hann með bros á vör og viðræðuþýður sem hann var, enda hafði hann aldrei á- hyggjur af sjálfum sér heldur bar velferð annarra fyrk brjósti. Hann var maður hjálpfús, á- valt boðinn og búinn til að rétta hjálparhönd ef með þurfti, en spurði ekki um laun. Ég kynntist Sigurði fyrst, er hann kom unglingur í kaupa- vinnu til foreldra minna, sem þá bjuggu að Vaðnesi í Grímsnesi. Fljótlega tókst vinátta með þess um glaðværa ungling og öllu heimilisfólkinu hann varð for- eldrum mínum kær vegna dyggr ar þjónustu, en við bræðurnir höfðum eignast góðan félaga og vin. Það var gaman að vera með Sigurði hvort heldur var í leik eða starfi, hann var glaður á góðri stund, fróður og víðlesinn enda hafði hann yndi af bók- um. Sigurður var vel verki far- inn enda lagði hann stund á margvísleg störf um dagana. Hann starfaði um langt árabil við akstur vörubifreiða og bif- reiða til mannflutninga, ýmist með sitt eigið atvinnutæki eða í þjónustu annara. Hann reynd- ist farsæll og gætinn í því starfi sem öðru er hann tók sér fyrir hendur. En nú síðustu árin vann hann hjá fyrirtæki Egils Vilhjálmssonar, eða þar til hann varð að hætta störfum vegna las leika. Sigurður Meyvatnsson kvænt ist 1941 eftirlifandi konu sinni Klöru Sigurðardóttur hinni ágæt ustu konu og ólu þau upp eina dóttur sem Sigurður reyndist bezti faðir, enda með afbrigðum barngóður. Ég er einn af þeim mörgu, sem við fráfall Sigurðar hefi á bak að sjá góðum vin, og þakka ég honum ljúfar endurminning- ar. Vil ég fyrir hönd fjölskyldu minnar og foreldra færa eftir- lifandi eiginkonu hans, dóttur, tengdasyni og barnabörnum, svo og ástvinum öllum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Vinur minn, far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Gunnlaugur Jón Ingason. ískort yfir vestanvert N-Atlantshaf, Labrador, Nýfundnaland og Nova Scotia. til að finna lausn á því stóra vandamáli að ganga þannig frá Radar auganu (scanner) að ís- ing blindi það ekki og geri Rad arinn óvirkan. 2 og jafnvel 3 Radartæke eru talin vera nauðsynleg uppá ör- yggi um borð í fiskiskipum, er stunda veiðar hér í N.A.tlands- hafi árið um kring. FASTEIGNÁSALAN GARÐASTRÆTI 17 Símar 24647 - 15221 Til sölu Við Eskihlíð 5 herb. rúmgóð íbúð á 2. hæð, útb. má skipta á nokkra mánuði. 1. veðréttur laus. Hagstætt verð. 3ja herb. góðar íbúðir við Garðastræti og Hverfisgötu. 3ja—4ra herb. íbúð á 7. hæð við Ljósheima. 3ja, 4ra og 5 herb. hæðir við Hraunbæ, næstum fullbún- ar. 4ra herb. íbúð við Hvassa- leiti á 4. hæð. 5 herb. sérhæð við Asvalla- götu. 5 og 6 herb. sérhæðir í Kópa- vogi með bílskúnum. Einbýlishús, parhús og raðhús í Kópavogi. Við Hringbraut 2ja herb. rúm góð íbúð á 1. hæð. Einbýlishús við Gufunes, 4ra herb., hagstætt verð. Eignaskipti 4ra herb. íbúð á 1. hæð við Álfheima í skiptum fyrir 5 til 6 herb. séríhæð með bíl- skúr. r I smíðum Raðhús í Fossvogi, múríhúðað að utan með hitalögn. Æski- leg skipti á 3ja herb. íbúð. Árni Guðjónsson, hrl. Þorsíeinn Geirsson, hdl. Helgi Ólafsson, sölustj. Kvöldsími 40647. Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o. fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168 - Sími 24180 LO F T U R H F. Ingólfsstræti 6. Pantið tíma í síma 14772. Veðurkort og ísmóttöku- tæki eru í vaxandi mæli tekin í notkun um borð í skuttogarana er fiska á fjarlægum miðum og hefi ég það frá einum skipstjór anna á þessum skipum, er tæk- ið notar, að það komi að góðu gagni á fjarlægari miðum. Einn- ig geta skipstjórnarmenn fylgst með ísreki og einstökum hættu- IMAR 21150 • 21570 Höfum góða kaupendur að íbúðum af öllum stærðum. Sérstaklea óskast 2ja herb. íbúð í nánd við Borgar- sjúkrahúsið í Fossvogi, 3ja herb. íbúð í Hlíðunum og góð hæð eða einbýlishús á Teigunum eða í nágrenni. TIL SÖLU Raðhús í Fossvogi, glæsilegt hús í smíðum. Skipti æski- leg á 3ja—4ra herb. íbúð. 2ja herb. glæsileg íbúð í há- -húsi við Austurrbún. 2ja herb. kjallaraíbúð í Vest- urborginni. Máluð með hurð um og fl. Verð aðeins kr. 450 þús. Ný og glæsileg einstaklings- íbúð í Vesturborginni, næst- um búin. 3ja herbergja rishæð í Kópavogi, fremur lítil, teppalögð og vel um gengin, á mjög góðum stað. Verð kr. 475 þús. Útb. að- eins kr. 200 þús. 3ja herb. ódýr rishæð við Grettisgötu. 3ja herb. góð íbúð í steinhúsi við Grettisgötu. 4ra herbergja 4ra herb. ný og glæsileg íbúð við Ljósheima með sérhita- veitu. Verð aðeins kr. 1150 þús. 4ra herb. góð rishæð við Drápu.hlíð, góð kjör. 4ra herb. góð risihæð við Sig- tún, vel um gengin, góð kjör Glæsilegt parhús í Kópavogi. Glæsileg hæð í smíðum í Austurborginni í Reykjavík. Glæsileg 6 herb. íbúð í smíð- um í Fossvogi. AIMENNA FASTEI6NASALAN LINDARGATA 9 SÍMAR 21150 21570 legum jökum á siglingarleið eða fiskimiðum viðkomandi skipa. Allar upplýsingar byggjast á (•eglubundnu ískönnunarflugi. Hérmeð læt ég fylgja sýnishorn af ískorti eins og það kemur út- úr móttökutækinu um borð í skipinu, en útsending fer fram minnst tvisvar á dag, frá Lond on og Halifax. AÐAL- fasteignasalan Laugavegi 96-Sími 20780. Til sölu m.a. Við Mosgerði 3ja herb. kjallaraíbúð í góðu standi. Útb. 300 þús. Við Sólvallagötu 3ja herb. jarðhæð, 80 ferm. nýjar innréttingar. Við Gnoðarvog 4ra herb., 95 ferm. jarðhæð í 1. flokks standi. Teppi á gólfum. Við Sólheima í háhýsi, 3ja herb. íbúð á 4. hæð, 4ra herb. á 12. hæð. Við Hvassaleiti 4ra herb. á 4. hæð. Við Álfheima 4ra herb. endaíbúð á 4. hæð. Tvö herb. í risi fylgja. Við Laugarteig 4ra herb. kjallaraíbúð, 115 ferm., þarfnast standsetning ar. Við Rauðardrstíg 2ja herb, íbúð á 1. -hæð. Nýj ar innréttingar. í Hlíðunum 4ra herb. risíbúð, 100 ferm., svalir, teppi á gólfum. Breiðholtshverfi 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir tilíb. undir tréverk. Kópavogur Einbýlishús í smíðum og einnig tilb. íbúðir. AÐAL- fasteignasalan Laugavegi 96-Sími 20780. Kvöldsími 38291.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.