Morgunblaðið - 22.02.1968, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.02.1968, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 1908 Vi&reisnin nýja Áttræður í dag: Ólafur Jónsson Eystra-Geldingaholti NÚ ER mikið um að vera hjá oss, ný gengisfelling, sem hefur legið í loftinu að því er talið er um lengri tíma. Þó virtist sem ekki mundi hafa orðið af henni nú, ef enska pundið hefði ekki verið fellt. Margar voru nú get- gáturnar um það, hve mikil sú gengisfelling yrði, og hafði mað nr heyrt nefnt allt að 50%, en ég segi fyrir mig, að mér datt ekki í hug að hún yrði svona há, hélt að hún yrði 25—30%. og það munu fleiri hafa haldið. Mitt álit er það, að stjórnin hafi gengið þar framar öllum vonum. Gengisfelling var óhjákvæmileg því hvernig áttu atvinnuvegir landsins að þola þær verðhækk anir á útlendum vörum, afla- brest, dýrtíð, erfitt árferði og fleiri örðugleika, sem að þjóð- inni stríða, án þess að þjóðin í heild hefði þurft að taka þátt í þeim. Hefur svo mikið verið rætt um það af svo miklu fær- ari mönnum að ég tel óþarfa að hafa þar um mörg orð. Um geng isfeilinguna sjálfa er það að segja, að mér fannst ekkert vit að vera á móti henni, hún vax lífsnauðsyn, þvi enda þótt ójnögu legt sé að neita því, að hún er kjaraskerðing þá ættí hver heil vita maður að sjá áð hún er lífs nauðsyn. eins og nú standa sak- ir. Þjóðin þarf öll, hvert ein- asta mannsbarn, að taka þátt í henni, hver eftir sinni getu en það hefur held ég — því miður — orðið misbrestur á því. Ég er þeirrar skoðunar að þeir fá- tækustiu hafi orðið þar harðast úti, en þetta þarf að breytast. Já, þessu verður að breyta ef vel á að fara. í sambandi við þetta hafa marg ir „hamstrað“ sem kallað er, og það er að vonum. Ég hef aldrei getað fellt mig við stjórnmálaskoðun Framsókn armanna, líkar ekki þeirra við horf til stjórnmála. Þeir eru vís- ir til að þjóta upp. ef minnzt er á stjórnmál eins og naðra, komnir upp á það hæsta. blóðið er svo heitt, ólgan svo mikil, já, og mér liggur við að segja vit- leysan í stjórnmálum. Einn þeirra sagði: „Allt, sem stendur í blöðum andstæðinganna er tóm lygi, en allt sem stendur í okkar blöðum er satt“, og þá er langt gengið, því að mín skoð- un á þessu máli er sú, að allir hafi til síns máls nokkuð. og að öllum verði þeim fótaskortur á tungunni sem kallað er. Ég fylgi Sjálfsíæðisflokknum af því ég held að hann hafi mest af því „góða“. Ég skýt því hér inn í til gamans að einu sinni voru það atkvæði okkar hjónanna, sem bókstaflega ollu því, að einn af mönnum Sjálfstæðisflokks- ins komst á þing vegna þess að við ku-sum hann. Þetta var þegar Dalamenn áttu 2 menn á þingi, þá Ásgeir Bjarna son og Friðjón Þórðarson. >á vorum við flutt til Reykjavíkur, en áttu-m lögheimili á Ketilsstöð um í Hörðadal og þess vegna vorum við á kjörskrá fyrir vest- an, og þá var það, að ef við hefð um kosið Framsókn, hefði Frið- jón ekki komizt á þing s-em upp- bótarþingmaður. Þegar Magnús Pétur-sson féll fyrir Tryggva Þór hallssyni hefi ég aldrei getað fylgt þeim flokki, sem Tryggvi fylgdi þá. Mér líða seint úr minni þau orð. sem Magnús sagði þá. Hann sagði, að það væri far ið ver með sig en sakamann, því þeir fengju að verja sig en það fengi hann ekki, og það var satt, því Tryggvi fór um hérað- ið án þess að Magnús væri með og safnaði atkvæðum. Síðan hef ég fylgt Sjálfstæðisflokknum eftir að hann var stofnaður og reyni að mynda mér stjórnmála skoðun eftir því, sem ég held að þjóðinni sé fyrir beztu, en ekki eins og mér sjálfum kem- ur bezt eins og ég hygg að marg- ir muni gera, því miður. Ég var um tíma á báðum átt- um hverjum stjórnmálaflokki ég ætti að fylgja og kau.s jafnvel ekki af þeim ásæðum, en nú hef ég tekið fasta og ákveðna skoð- un, og hygg að ég fylgi Sjálf- stæðisflokknum hér eftir, svo sem mér endist aldur til og er það vegna aðgerða hans í gengis- fellingarmálinu. Ég hlustaði stundum á útvarpsumræður, en fannst lítið á því græða. þar sem hver segir a-nnan ljúga og allir hafi á réttu að standa. Ég minnist þess, þegar Her- mann Jónasson sagði í d-esem- ber 1958, að ómögulegt væri að halda saman þeirri stjórn sem þá var við völd og sýnir það glöggt að ómögulegt er stjórna landinu af öðrum en Sjálfstæðis flokknum með aðstoð annarra flokka, ef hann hefur ekki sjálf ur hreinan meirihluta á Alþingi, og liggja til þess ýmsar orsak- ir, sem hér verða ekki greind- ar. Ég álít að þjóðin lifi um efni fram, kunni ekki fótum sínum forráð í því efni og mér blöskr- ar að sjá hve miklu er hent bæði af ætu og óætu, og get ég ekki annað en hugsað til þeirra vesa linga, -sem deyja úr hun.gri úti í hinum stóra heimi, og þarf ekki þangað til þess því tiltölulega stutt er síðan að við íslending- ar urðum að spara og nýta allt, sem hægt var, og það geri ég sjálfur enn þann dag í dag og finnst ekki veita af. enda hef ég komist vel af síðan ég kom til Reykjavíkur fyrir 10 og % ári, og sama held ég að aðrir gætu, ba-ra ef þeir færu vel með efni sín þrátt fyrir alla dýrtíð og erfiðleika. Eysteinn Eymundsson. ÞRÁTT fyrir vond veður hefur verið hal-dið áfram vinnu við nýja veginn, Elliðavog, í Reykja vík, þann' sem í framtíðinni á að verða ein aðalumferðaæðin í Reykjavík og út úr bænum. Hefur undanfarið verið unnið við að bera ofan í kaflann, sem liggu-r nj-eð voginum og Kl-epps- veginum innst, en ætlunin er að malbika hann í sumar. Þetta er í dag er nágranni minn, Ólaf- ur í Geldingaholti, áttræður. Ég veit þó, að þeir sem virða hann fyrir sér um þessar mundir, muni ekki ætla að hann eigi svo mörg ár að baki, sem raun ber vitni, þar sem hann gengur að starfi með áhuga og fjöri ungra manna. Þó hefur veröldin verið honum harðhent fóstra á köfl- um. Hann hefur mátt ganga und- ir erfiða holskurði í tvö skipti og orðið fyrir áföllum, bein- broti á efri árum. Allt þeta hef- ur hann staðið af sér og er nú, þótt aldraður sé, léttur- í spori og vílar ekki fyrir sér að skjótast til næstu bæja, þegar honum býður svo við að horfa og hleypur þá gjarnan við fót, léttur í máli og fjörmikill í hugs un. Ólafur er vinmargur, enda er hann gestrisinn með afbrigðum og hjálpsamur þeim, sem höllum fæti standa, en það þekkja ná- grannar hans og sveitungar bezt Um skeið átti hann sæti í fjögurra akreina gata, sem í framtíðinni á að fara undir Miklutorautina og tengjast veg- inum á Suðurnes, og í hina átt- ina með sjónum niðuir á höfn. Búið er að opna þennan nýja undir Klepp, og verðu-r nú hald- veg frá Suðurlands'braut og út ið eitthvað áfram m-eð ha-nn í átt að nýju Sundalhöfninni. hreppsnefnd sveitar sinnar og um langt árabil hefur hann ver- ið deildarstjóri Sláturfélags Suð urlands og er það enn. Þau störf hefur hann rækt af stakri kost- gæfni og jafnan leitazt við að koma til móts við óskir manna, væru þær réttmætar og bornar fram af sanngirni. En heima á búi sínu hefur hann að sjálf- sögðu unnið sitt aðalstarf. Með konu sinni, Pálínu Guðmunds- dóttur, hefur hann stýrt rausnar búi hátt á fimmta tug ára af prýði og myndarskap og verið ómetanlegur styrkur s'veitarfél- agi sínu. Hin síðari ár hafa þau hjón haft stuðning af sambýli við son sinn og tengdadóttur. Á áttræðisafmæli Ólafs færi ég honum og heimili hans þakkir mínar og sveitunga okkar fyrir langa og góða samfylgd, með ósk um að elliárin megi verða honum hæg og ánægjuleg. Steinþór Gestsson. Unnið við Ingningu breiðgötunnnr EUiðnvognr Pétur K. Hjátmsson: aff veftvangi Ályktun SUS-þings um land búnaðarmál. Ungir Sjálfstæðismenn minna á: — miklar framfarir í land- búnaði undanfarin ár, — nauðsyn þess, að í landinu verði framleiddar sem flest ar landbúnaðarvörur fyrir innanlandsmarkað, og áiykta: — að stefna beri að því, að landbúnaður geti orðið sem arðvænlegust atvinnu grein, m.a. með stækkun búa, — að varasamt sé að fram- leiða þær landbúnaðarvör ur til útflutnings, sem greiða þarf stórlega niður af almannafé, — að reynt verði að gera landbúnaðarframleiðsluna sem fjölbreyttasta til að mæta óskum neytenda, m.a. með blöndun erlendra bú- fjárstofna við innlenda til bættrar kjötframleiðslu, — að spomað verði gegn of- framleiðslu á einstökum landbúnaðarvörum, — að dregið verði úr einok- unarsölu á ýmsum land- búnaðarvörum. Ályktun 19. þings S.U.S. um landbúnaðarmál, felur í sér trú ungra Sjálfstæðis- manna á íslenzkan landbún- að. Landbúnað ber að reka á þann veg, að hann geti orð- ið arðvænlegur atvinnuvegur, og hann er það, þar sem bú- stærð og búskaparlag er í réttu hlutfalli við þau land- gæði og markað, sem fyrir hendi eru. Það er alls ekki einhlítt að álíta það, að stækk un búa, hljóti að leiða til meiri ágóða af búinu. Þarna þarf margt annað að koma til. Það sem mestu máli skptir, er að búið sé fyrst og fremst rekið á þann veg, að það skili sem mestum arði af hverri búeiningu. Það næst bezt á þann veg, að saman fari fullkomin hagræðing og afurðasamir gripir. Stefna ber að því að hvetja bændur til þess að reka bú sin þannig. Einnig er vert að benda á þá staðreynd, sem hefur staðið ó tal búum fyrir þrifum, en það er skortur á rekstrarfé, sem hefur orðið mörgum bóndan- um dýrkeypt reynsla. því þarf að vera hægt að veita bændum lán, til reksturs búa, svo að þeir geti stefnt að auk inni hagræðingu, án þess að þurfa stöðugt að berjast í bökkum, af rekstrarfjárskorti Hafa verður það hugfast, að framleiðsla flest allra land- búnaðarvara, krefst mjög langs tíma og langrar bind- ingar á rekstrarfé, sem aftur getur valdið því að mjög erf- itt getur reynzt bóndanum að stækka og eða bæta búið, svo að fullkominn árangur náist af rekstri búsins. Stefna ber að því að gera la.ndlbúnaðarvörur þannig úr garði að þær verði eftirsótt- ari af neytendum, en verið hefur. Því er auðvelt að ná með hagkvæmari neytendaum búðum og jafnframt breiðara bili á milli vöruflokka, hvað gæði og verð snertir. Þannig að þeir, sem vilja kaupa 1. flokks vöru fái hana og jafn- framt borgi fyrir hana sem slíka. Vilji neytandi kaupa lakari vöru, þá á að gefa hon- um kost á því. Stefna ber að því að verðleggja vörur meira eftir gæðum en verið hefur. Oft hefur verið talað um offramieiðslu á ýmsum land- búnaðarvörum og að svo og svo mikið magn þurfi að selja úr landi og að greiða þurfi með þessari Vöru af almanna- fé. Þeir sem um þessi mál hafa fjallað, hafa oftast gert óþarf, lega mikið veður út af þess- um málum og að umræður um þessi mál hafa beinlínis orð- ið til að skaða bændastéttina, algjörlega að ástæðulausu. Það er mjög eðlilegt að ýmsar landibúnaðarvörur séu fram- leiddar í það miklum mæli að eitthvað hlaðist upp og getur það þá verkað óþægilega á þá framleislugrein, um stund- arsakir, sem getur þá leitt til þess að eitthvað dragi úr fram leiðslu í þeirri búgrein, þar til að jafnvægi hefur náðst. Útflutningur á landbúnaðar- vörum á fullkomlega rétt á sér, þjóðhagslega séð. Hitt er svo aftur annað mál, að vafa- samt má telja, að framleiða landbúnaðarvörur beinlínis fyrir erlandan markað, þar elu við erum í þeirri aðstöðu að erfitt mun að gera íslenzkar landbúnaðarafurðir samkeppn ishæfar á erlendum markaði, þar eð framleiðsluikistnaður er yfirleitt það hár hjá okkur á hverja búeiningu. Stefna ber að því að fram- leiða betri vöru á hagkvæm- ara verði og til að ná því á hiklaust að flytja inn erlend búfjárkyn, til kynbóta íslenzk um búfénaði, því telja má víst, að slíkur innflutningur á ekki að þurfa að flytja með sér sjúkdóma hingað til lands ins. Islenzkir bændur eiga að fá tækifæri til að framleiða eftirsótta vöru, sem getur orð ið lyftistöng íslenzkum land- búnaði. Okkur ber að fá tæki færi til að bæta okkar búfé, með erlendum búfjárkynjum í þeim tilvikum, að vísinda- menn telji það hagkvæmt. Landbúnaður hefur verið stundaður hér á landi frá landnámstíð og hann hefur verið og er hornsteinn í þjóð- lífi okkar. Okkur ber skylda til að hlú að honum og efla hann á þann veg, að hér á lanidi sé hægt að fullnægja eftirspurn neytenda á land- búnaðarvörum, og jafnframt að styrkja íslenzka bændur í starfi þeirra við ræktun og uppbyggingu sveitanna. Jafn framt þarf að stuðla að því, að íslenzkar landbúnaðarvör- ur séu og verði eftirsóttar, fyrir gæði, hvar sem er í heiminu. Ég vil þakka 19. þingi S.U.S. fyrir tillegg sitt til landbúnaðarmála, og fyrir þann skilning sem S.U.S. he^- ur á þessum málum. Ályktun þingsins bendir eindregið í þá átt og skýrir á mjög ákveð- inn hátt hug Sjálfstæðismsnna og Sjálfstæðisfloklkisins til ís- lenzks landlbúnaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.