Morgunblaðið - 03.03.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1968
5
Segja má, að fátt sé stórtíð-
inda frá Alþingi í liðinni viku.
Allmörg mál voru tekin til 2. og
3. umræðu, og urðu yfirleitt litl-
ar umræður um þau, þar sem
þau voru þess eðlis, að sam-
staða var um afgreiðslu þeirra.
Ástoerg Sigurðsson flutti
myndarlega jómifrúræðu, er loð-
dýrafrumvarpið kom til 2. um-
ræðu í neðri -deild á þriðjudag-
inn. Var greinilegt, að þingmað-
urinn hefur kynnt sér þessi mál
ítarlega, og fjallaði um þau af
meiri þekkingu, en flestir þeir
sem tekið hafa þátt í umræðum
'um þau á umliðnum árum. Marg
ar athyglisverðar staðreyndir
komu fram í ræðu Ásbergs. Má
þar til nefna, að árið 1949 fengu
íslendingar hæsta meðalverð
minkaskenna, allra Evrópuþjóða
og að í Danmörku eru nú um
6000 minnkabændur og fram-
leiðsla þeirra skilar í gjaldeyri
um 255 millj. dönskum krónum.
Getur hver og einn reiknað
hvað sú upphæð gerir í ís-
lenzkum krónum.
Ræða Ásbergs ætti að færa
enn betur heim sannindi þess,
að líkur eru á að minkabúskap-
ur gæti verið arðvænleg atvinnu
grein á íslandi .Skilyrðin eru
óvéfengjanlega góð, þar sem sam
an fer hagstætt loftslag og nægi-
legt og gott fóður. Það er orðið
fullkomlega tímabært að gera til
raun með þessa atvinnugrein hér
lendis. þótt vissulega megi segja
að eldri spor hræði. En útbúnað-
ur minkabúa er nú orðinn all-
ur annar en áður var, og fróðir
menn telja lákur tiil þess að
minkar sleppi úr búrum, hverf-
andi litlar. Það er svo einnig rétt
sem bent hefuir verið á, að stofn
kostnaður við minkabú mun vara
allmikill, þótt svimandi upphæð
ir sem netfndar haía verið í því
sambandi fái ekki staðizt.
Fjárhagsnefnd neðri -deildar
lagði í vikunni fram breytingar-
tillögur við framkomið stjórnar-
frumvarp um að ábyrgjast lán
fyrir dráttarbrautir og skipa-
smíðastöðvar. Leggur nefndin til
að lánsábyrðarheimilin verði
hækkuð um 10 miilj. kr., eða í
50 millj. kr., og í annan stað
að ábyrgðarheimild geti numið
allt að 80 af stofnkostnaði, séu
fullnægjandi tryggingar fyrir
hendi. Sú regla hefur gilt á und-
angengnum tímum, að ríkis-
ábyrgð mætti ekki nema meiru
en 60 stofnkostnaðar. Þettafrá
vik frá reglunni mun hinsvegar
hafa mjög mikla þýðingu fyrir
umrædd fyrirtæki, þar sem byrj
unarörðugleikar þeirra eru mikl
ir, svo og stofnkostnaður allur.
Hefur engin ríkisstjóm sýntmál
efnum þessum eins mikinn skiln-
ing og núverandi ríkisstjórn, og
mun þessi ráðstöfun örugglega
bera tilætlaðan árangur til upp-
byggingar þessari þýðingar-
miklu atvinnugrein hérlendis.
Þórarinn Þórarinsson beindi
tveimur fyrirspurnum til forsæt-
isráðherra á undi Sameinaðs-Al-
þingis á miðvikudag. Var spurt
um á hvaða stigi fyrirhugaðar
byggingar Alþingishúss og
stjórnarráðshúss væru .Ráðherra
upplýsti, að nú lægju fyrir til-
löguteikningar að nýju stjórnar-
ráðs'húsi, en hins vega'r virðist
fyrinhuguð bygging Alþingishúss
enn skemra á veg komin. Það
fær engum dulist, að húsnæði
þessara tveggja stofnana er ófuli
nægjandi og eðlilegt má teljast
að farið verði að hugsa til hreyf-
ings í þessu efni. Vafalaust eiga
eftir að verða deilur um stað-
setningu og útlit þessara húsa,
rétt eins og um fyrirhugað ráð-
hús Reykjavíkurborgar. Hitt
ættu hinsvegar allir að vera sam
mála um að þessum gömlu hús-
um, Alþingishúsinu við Austur-
völl og stjómarráðshúsinu vif
Lækjartorg má í engu raska.
hvorki að utan né innan, né 1
helidur þrengja um of að þeim
með nýtízkulegum byggingum,
Og einhvern veginn finnst manni
einkennilegt til þess að hugsa
að þingfundir verði haldnir ann
arsstaðar en í Alþingishúsinu
gamla.
Fyrstu umræðu um frumvarp
um breytingu á þingsköpum Al-
þingis lauk í vikunni í neðri-
deild. Frumvarp þetta er samið
og flutt af nefnd, sem skipuð var
samkvæmt ályktun Alþingis frá
1966, til að endurskoða þingskap
arlögin. Eins og áðu'r hefur ver-
ið að vikið, mun mörgum finnast
tillögur nefndarinnar ganga of
skammt, enda kom það á daginn
að skiptar skoðanir eru um frum
varpið. Það kom fram í ræðu
framsögumanns, Sigurðar Bjarna
sonar, að mörg sjónarmið komu
fram í nefndinni, en hún valdi
hinsvegar þann kostinn að flytja
aðeins þær tiliögur sem sam-
staða var um. Það eru einkum
tvö atriði, sem koma til með að
verða umdeild. Er þar um að
ræða fyrirspiurnar tími A1
þingis, og útvarp frá um
ræðum á Alþingi. Það kom glögg
lega fram í umræðum sem urðu
um málið, að vilji er fyrir hendi
að fyrirspumir verði færðar í
annað form en nú er til siðs
m.a. að um þær fengju aðeins
að ræða fyrirspyrjandi og við-
komandi ráðherra, og hefðu til
þess takmarkaðan tíma. Ef sam
þykkt fengist á þessu væri það
stórt spor í þá átt að fyrirspurn-
ir þjónuðu tilgangi sínum. Þing-
menn mundu þá orða fyrirspurn
ir sínar á annan veg, gera þær
gleggri og styttri — láta þær
miða að því einu að fá upplýs-
ingar um ákveðin atriði, en ekki
að gefa með þeim tilefni til
langra almennra umræðna, eins
og svo oft á sér stað núna.
Forsætisráðherra benti einnig
á það í umræðum um málið, að
nauðsynlegt væri að setja reglur
um fyrirspurnir og skýrslugerð-
ir utan dagskrár. Til þessa tima
hefur slíkum umræðum verið lít-
il takmörk sett, og jafnvel dæmi
þess að allur fundartminn færi
í að ræða slík mál, og það talið
gerræði hjá forseta að neita um
slíkar fyrirspurnir. f einstökum
tilfellum getur verið að þing-
menn telji sig þurfa að koma fyr
irvaralaust spurningum til ráð-
ráðherra, en því þarf að sníða
miklu þrengri stakk en hingað
til hefur tíðkast, og það verður
ekki gert nema á þann eina hátt,
að um það verði sett ákvæði í
þingsköpin,
Allt frá því að byrjað var að
útvarpa umræðum frá Alþingi
hafa þær umræður verið með
sama sniði. Alþingismenn hafa
dregið fram skrifaðar ræður og
þulið svo hratt sem þeir mega,
og hvergi dregið af sér í áróðri
og ásökunum. Sá sem hefur sína
einu kynningu af störfum Al-
þingis af slíkum umræðum, veit
í raun og veru lítið hvað þar
fer fram. Fólki fer að virðast
að það sé alltaf sama platan sem
verið er að spila, og áhugi þess
hverfur í slikum umræðum.
Þetta er þingmönnum vel kunn-
ugt um ,hvað sézt bezt á því að
Stein vnnn Hort
í Los Angeles
ÞRÍR stórmeistarar í skák, þeir
Vlastmir Hort frá Tékkósló-
vakíu, Samuel Reshevsky frá
Bandarikjunum og Leonid Stein
frá Sovétríkjunum eru nú að
berjast um áttunda sætið í tfjórð-
ungsúrslitum heimsmeistara-
keppninnar í móti sem stendur
nú yfir í Los Angeles. Eftir tvö-
falda umferð, þ.e. keppendur
hafa teflt tvær skákir innbyrðis,
stóðu allir enn jafnt að vígi, eng-
inn unnið skák, enginn tapað
skák, sem sagt allar skákirnar
endað með jafntefli. í sjöundu-
umfedð kom fyrst vinningurinn,
Stein vann Hort og er Stein því
sigurstranglegastur í keppninni.
Hinir 7. keppendumir sem
enn eru eftir í keppninni um
heimsmeistaratitilinn eru: Lar-
sen, Danmörku, Gligoric, Júgó-
slavíu, Portisch, Ungverjalandi
og rússnesku stórmeistararnir
Geller, Korchnoi, Spasski og Tal.
Heimsmeistari í skák er Tigr-
an Petrosyan frá Sovét-Armeníu.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSlA*SKRIFSTOFA
SÍMI 10-100
Rýmingarsala
Úr, klukkur, skartgripir.
Þar sem verzlunin er að hœtta
verður 15 til 20°Jo afsláttur
af öllum vörum.
Ursmiður Ingvar Benjamínsson
Laugavegi 25
BLAÐBURDARfOLK
OSKAST
í eftirtalin hverfi
Lambastaðahverfi
Talið við afgreiðsluna / sima 10100
útvarpsumræður eru nú oft
styttri heldur en mögulegt er
samkv. gildandi • þingsköpum
Hvort sem samstaða næst um það
núna að leggja útvarpsumræður
í þessari mynd niður að fullu og
öllu, mun koma að því fyrr eða
síðar að svo verði, og að tekið
verði upp annað og raunsann-
ara form.
Á það var bent í umræðunum
af tveimur þingmönnum Fram-
sóknarflokksins og einum Al-
þýðuflokksþingmanni, að úti á
landi væri enn töluverður áhugi
á kappræðufundum, t.d. fyrir
kosningar. Sagði' Eysteinn Jóns-
son í sinni ræðu, að svo virtist
sem menn væru farnir að sækj-
ast eftir því að fá pólítíska
andstæðinga á fundi til að
ræða stjórnmál. Þetta er rétt,
en það munu fáir sækjast eftir
því að stjórnmálamenn standi í
kappræðum við einhvern einn
eða tvo aðila. Hitt er nær sanmi,
að samtök t.d. ungra stjórnmala-
manna leitast við að fá forystu-
menn annara flokka á sinn fund
til þess að skýra sjónarmið sín,
og síðam svara fyrirspuirnum,
sem allur þorri fundarmanna
tekur virkan þátt í. Slíkt form
kemur í veg fyrir einhæfan ár-
óðursmállflútning eða fuillyrðlingu
á móti fullyrðingu og er miklu
líkari því sem t.d. útvarp og
sjónvarp hefur tekið upp er
blaðamenn spyrja forystumenn
st j órnmálaflokkanna,
Steinar J. Lúðvíksson.
Skdkþing Reykj avíkur-úislitakeppni:
Brogi Kristjánsson langefstur
í FIMMTU umferð úrslitakeppn-
innar, sem var tefld í fyrrakvöld
vann Bragi Kristjánsson, Guð-
mund Sigurjónsson og Gimnar
Gunnarsson, Andrés Fjeldsted.
Jón Kristinsson og Leitfur Jó-
steinsson gerðu jafntefli en Bjöm
Þorsteinsson og Benóný Bene-
diktsson eiga biðskák.
Vinningsstaðan að tveimur
umferðum óloknum er nú þessi:
Bragi 4% vinn., Jón og Leifur
2% v. hvor, Benóný 2 og 1 bið-
skák, Gu'ðmundur 2 vinn., Björn
1% og 2 biðskákir, Andrés og
Gunnar hafa 1 vinning og 1 bið-
skák hvor. I dag verða tefldar
biðskákir, i félagsheimili TR að
Grensásvegi 46 og hefjast kl. 14.
Kr. Kristjánsson hrl.
fyrrv. yfirborgarfógeti
aðstoðar við skipti búa, samningu arfleiðsluskráa
og kaupmála, sölu og kaup fasteigna og innheimtu
skulda.
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 14858
(hús Silla & Valda).
Stúlhur, ntvinnn
Okkur vantar nú þegar tvær stúlkur til verk-
smiðjustarfa og eina til eldhússtarfa.
Upplýsingar á skrifstofu Álafoss, Þingholtsstræti 2.
Sumarvinna í Englandi
11. JÚNÍ — 10. SEPTEMBER,
Getum útvegað ungu fólki vinnu við sumarhótel
í Englandi. Val er um ýmis störf, s. s. framreiðslu,
afgreiðslu, barnagæzlu o. fl. í skemmtilegu um-
hverfi á nokkrum vinsælustu sumardvalarstöðum
í Suður-Englandi, þar sem aðstaða er til sunds,
útiveru, íþróttaiðkana og skemmtana. Frítt uppi-
hald og kaup nálægt £7.0.0. á viku. Tilvalið tæki-
færi til æfingar í ensku talmáli. Umsækjendur
séu ekki yngri en 18 ára og þurfa að hafa undir-
stöðukunnáttu í ensku.
ÓÐÝRAR FERÐIR MILLI LANDA.
* *
FERÐASKRIFSTOFAN IJTSYIM
Austurstræti 17. — Sími 20100/23510.
Enskunám í Englandi
Enskukunnátta er öllum nauðsynleg. Getum út-
vegað unglingum frá 12 ára aldri sumarnámsskeið
í ensku, þar sem þeir njóta leiðsagnar úrvalskenn-
ara og dveljast á völdum enskum millistéttarheim-
ilum meðal jafnaldra við reglusemi og vandað mál-
far. Kynnisferðir vikulega til merkra staða undir
umsjá leiðsögumanna, einnig helgarferð til Parísar.
Nægur tími til lieilbrigðrar útivistar, sunds og
íþróttaiðkana. Kostnaður aðeins £65 á mánuði.
ÓÐÝRAR FERÐIR MILLI LANDA.
* *
FERÐASKRIFSTOFAN IJTSYN
AxistUrstræti 17. — Sími 20100/23510.