Morgunblaðið - 03.03.1968, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1968
9
Kunnur Iseknir
í heimsókn
I GÆR, laugardag, kom til lands
hinn kunni, norski læknir og
predikari, Einar Lundby. Margir
hafa beði'ð komu hans hingað
með mikilli eftirvæntingu, ekki
sízt þeir, sem hafa af honum
náin kynni áður eða um hann
heyrt.
Einar Lundby útskrifaðist sem
læknir árið 1920. Árin 1925—
1939 starfaði hann að mestu sem
læknir í heimabyggð sinni,
Brummunddal í Noregi, að öðru
leyti en því, að hann dvaldist í
Berlín á árunum 1929—1930 og
Einar Lundby.
nam þar sálarfræði. Hann hefur
alla tíð tekið virkan þátt í fé-
lagsskap kristinna lækna og var
formaður þess félags árin 1939
til 1949. Einna kúnnastur er
hann þó fyrir a'ð stofna og starf-
rækja um 15 ára skeið, frá árinu
1949, hvíldar- og hressingar-
hælið Sólborg í Hringaríki, sem
hann sjálfur nefndi: „Et hjem
for hvile og sjelesorg". Sá fjöl-
menni hópur, sem átt hefur þess
kost að dveljast þar nokkurn
tíma, mun sammála um, að öðru
eins heimili hafi þeir ekki
kynnzt. Alit hjálpaðist þar að:
Staður í fögru umhverfi, um-
hyggjusamt starfsfólk með Einar
Lundby í fararbroddi eins og
bezta föður, sem átti það eitt
markmið að gleðja aðra, enda
sjálfur hrókur alls fagnaðar,
leiftrandi af gamanyr’ðum og ið-
andi af fjöri. Fyrst og fremst var
hann þó hinn mikli sálusorgari,
sem virtist skynja á óskiljanleg-
an hátt, hvað með hverjum og
einum bjó og hvers einstakling-
urinn þarfnaðist fyrst og fremst.
Helgistundirnar á kvöldin, þegar
dvalargestir söfnuðust saman til
að hlusta á Lundby útskýra
.Guðs orð á sinn skýra og ein-
falda hátt, fléttað með lifandi
frásögnum af atburðum úr dag-
lega lífinu, eru stundir, sem ó-
sennilegt er, að nokkur viðstadd-
ur geti gleymt. Einstæð hand-
leiðsla Drottins, sem Einar Lund
by hefur reynt um margra ára
skeið, hefur vafalaust átt meiri
þátt en nokkúð annað í mótun
hans sérstæða lífs og persónu-
leika. Margir hafa kynnzt þeirri
reynslu hans í bókum þeim, sem
hann hefur ritað, en hann er
kunnur rithöfundur og bækur
hans gefnar út í stórum upplög-
um.
Þegar Einar Lundby taldi fyrir
aldurssakir rétt að hætta sjálfur
að veita Sólborg forstöðu, flutt-
ist hann aftur til bernskustöðva
sinna í Brummunddal og býr
þar á ný í sínum gamla læknis-
bústað. Engan veginn er hann
þó seztur þar um kyrrt, því
stöðugt er á hann kallað til
predikunarstarfa. Er hann því á
miklum ferðalögum víðs vegar
boðandi fagnaðarerindið. Mun
um Noreg og önnur Norðurlönd,
þa'ð vera sjaldgæft, að ekki sé
húsfyllir, hvort heldur er í
kirkjum eða samkomuhúsum,
þar sem hann lætur til sín heyra,
því að marga fýsir á hann að
hlýða. Mun sú og væntanlega
verða raunin hér á landi þann
tíma, sem hann getur dvalizt
hér.
Ætlunin er, að Einar Lundby
verði aðalræðumaður á samkom-
um þeim, sem fyrirhugað er að
halda nú á hverju kvöldi þessa
viku í húsi KFUM og K við
Amtmannsstíg. Samkomurnar
hefjast í kvöld kl. 20:30 og eru
allir velkomnir.
Gamall Sólborgargestur.
ÞEKKIRÐU
MERKIÐ?
B10
TAKMARKAÐUR
ÖXULÞUNGI ÖKUTÆKJA
Þetta er bannmerki, en þau eru
hringlaga með rauðum jaðri og
gulum miðfleti, þar sem nánar
er gerð grein fyrir banninu með
táknmynd. Þetta merki kveður á
um takmarkaðan öxulþunga öku-
tækja. Með tilkomu hinna stóru
flutningabila eykst mjög álag á
vegi og brýr, sem ekki eru byggð-
ar fyrir slík tæki. Það er tvimæla-
laust öllum fyrir beztu, að fara
eftir settum reglum í þessu efni
sem öðrum, þar eð slikt bann er
ekki sett nema nauðsyn beri til,
og er til hagsbóta fyrir ökumenn-
ina sjálfa.
HFRAMKVÆMDA-
NEFND
HÆGRI t.
UMFERÐAR 1
Verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði
Til leigu er nýtt og fullgert 170 ferm. verzlunar-
og skrifstofuhúsnæði á mjög góðum stað í borginni.
Upplýsingar í síma 17888.
Kominn heim
Tek að mér að nýiu þýðingar, túlkun og alls konar
fyrirgreiðslu í sambandi við landkynningu, alþjóða
mót o.s.frv.
Hefi margra ára alþjóðareynslu að baki mér.
Pétur (Kidson) Karlsson, lögg. skjalaþýðandi og
dómtúlkur — enska, þýzka, rússneska. Sími 22252.
Síminn er 24300
TIL SÖLU OG SÝNIS. 2.
Einbýlishús
af ýmsum stærrðum og 2ja—-
8 herb. íbúðir viða í borginni.
Einnig 2ja og 3ja íbúða hús
í borginni.
Výtízku einbýlishús og 2ja—
5 herb. íbúðir i smiðum og
margt fleira.
Komið og skoðið
Sjón er sögu ríkari
Alýja fasteignasalan
Laugaveg 12 K2SEŒHSI
Til sölu
Einbýlishús við Tjaldanes á
Arnarnesi. Lóðin er 1406
ferm. á bezta sta'ð í hverfinu.
Sverrir Oermannsson
Skólavörðustíg 30.
Sími 20625, kvöldsími 24515.
íbúðir óskast
Höfum kaupendur
að einbýlishúsum og raðhús-
um og að 2ja, 3ja, 4ra, 5 og
6 herb. íbúðum í Reykjavík
og Kópavogi, Talið við okkur
sem fyrst ef þér viljið selja
eða skipta fyrir vorið.
Einar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4.
Sími 16767, kvöldsími 35993.
FÁSTEIGNASALAN
GARÐASTRÆTI 17
Símar 24647 - 15221
Til sölu
Húseign með tveimur 3ja
herb. íbúðum skammt frá
Miðbænum.
Raðhús á Látraströnd, fok-
helt, bílskúr.
Eignaskipti
3ja herb. íbúð við Klepps-
veg, í skiptum fyrir 5 herb.
íbúð.
Raðhús í Kópavogi, í skipt
um fyrir 4ra herb. hæð í
Reykjavík.
Höfum kaupanda að ein-
býlishúsi 5-6 herb. Þarf ekki
að vera laust fyrr en 1. sept.
næstkomandi.
Árni Guðjónsson, hrl.
Þorsíeinn Geirsson, hdl.
Helgi Ólafsson, sölustj.
Kvöldsimi 40647.
HUS 0(j HYI6YLI
Sími 20925
Ibúð óskast
Höfum kaupanda nú þegar að
3ja-4ra herb. íbúð í smíðum
í Fossvogi. Góðar greiðslur.
HCS «C HYI6YL1
HARALDUB MAGNÚSSON
TJARNARGÖTU 16
Símar 20925 ^ 20025
BEZT að auglýsa
í Moigunblaðinu
HIS 0(5 HYI6YLI
Sími 20925.
Nýtt - fullbúið
4ra herb. íbúð við Hraun-
urbæ. Alit fullfrágengið.
Verður tilbúin tii afhend-
hendingar eftir tæpan mán
uð. Seljendur lána um 250
þús. £ 9-10 ár. Möguleiki
að beðið verði eftir Hús-
næðismálastjórnalánL
5 herb. ný vönduð íbúð
með sömu kjörum.
HARALDUR MAGNUSSON
TJARNARGÖTU 16
Símar 20925 - 20025
GSugifci-
tjaldadamask
breidd 1,20 á kr. 166.00. 3 litir.
Borðdúkadamask — gult og
hvítt.
Vöggusett, 2 stærðir.
Koddaver, 2 stærðir.
Handklæði, mjög gott úrval.
Stór baðhandklæði, 150x80
cm. á kr. 128.00.
Eldhúshandklæði á kr. 26.00.
Bómullarteppi á kr. 165.00.
Telpnapils — plíseruð.
Telpnakjólar, terylene.
Peysusett á telpur.
Hettukápur á 1-5 ára.
Hettupeysur — ungbarna.
Barnagallar — tvískiptir.
Smábarnahúfur.
Póstsendum.
Verzl. Anna
Gunnlaugsson
Laugaveg 37 — Sími 16804.
Húsnæði til leigu
við Miðborgina. Stærð 40—80 ferm.
Hentugt fyrir lækningastofur, teiknistofur eða
ánnan rekstur.
Upplýsingar: sími 11076 og 14949.
EIGNARLAND
Til sölu eignarland á fallegum stað í nágrenni
borgarinnar. Hugsanlegt sem 3—4 lóðir, ef bygg-
ingarleyfi fengist. Tilboð merkt „Eignárland —
5313“ sendist afgr. Mbl.
Zjn herbergjn íbúð
óskast á leigu fyrir tvær einhleypar konur eigi
síðar en 1. maí næstkomandi.
Upplýsingar í síma 10123 og 20903.
ÚTB0Ð
Tilboð óskast í sölu á 670 götuljósastólpum fyrir
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora.
Tilboðin verða opnuð þann 21. þ.m. kl. 10.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Vonarstræti 8 sími 18800.
Blaðburðarfólk óskast
í Kópavog.
KÁRSIMESBRAUT
Talið við afgr. í síma 40748.
1
HtogguitUtafrifr
Skriístofustúlka óskast
Viljum ráða skrifstofustúlku til starfa frá 1. apríl
n.k. Góð þýzku- og vélritunarkunnátta nauðsynleg.
SMITII & NORLAND H.F.
Vcrkfræðingar — Innflytjendur.
Suðurlandsbraut 4 — Sími 38320.