Morgunblaðið - 10.04.1968, Síða 5

Morgunblaðið - 10.04.1968, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1968 5 jsinn er bölvaldur, sem kemur og fer“ — Hafísrabb við fólk á IMeskaupstað HAFÍSINN hefur rólað fram og aftur með ströndinni að undan- förnu og af og til hefur hann lagzt að landinu og fyllt firði og voga. Víða girða menn hafnirn- ar með netum og vírum og reyna að hindra ísinn í að skemma báta við bryggjur. Við vorum í Neskaupstað sl. sunnu- dag og þar var strengd girðing á milli bryggjusporðanna til þess að hefta isrek að bátunum. Haf- ísinn hafði rekið út þennan morgun og lónaði í fjarðarmynn inu við Norðfjarðarhorn og allt þar fyrir utan. Aðeins grisjaði þó á milli og einstaka haflænur voru í ísnum. Ms. Esja kom inn til Neskaupstaðar sl. sunnudag, en skipið brauzt í gegnum ísinn frá Eskifirði og var 10 tíma að sigla 2'A tima siglingarleið. — I Neskaupstað hittum við fólk að máli og ræddum við það um hafísinn. Einnig hittum við skip- stjórann á Esju, Tryggva Blön- dal, en skipsmenn á Esju höfðu séð ísbjörninn, sem var við Norð f jörð sl. sunnudag og myndir birt ust af í Mbl. i gær. Viihjáimur Helgason, fyrrver- andi vitavörður á Dalatanga, býr nú í Neskaupstað ásamt konu sinni, Jóhönnu Sveinsdóttur. Vil- hjálmur átti heima á Dalatanga í 62 ár og var vitavörður þar í rúma hálfa öld og líklega hefur enginn fslendingur gegnt vita- varðarstarfi svo lengi. Við röbb- uðum við Vilhjálm og konu hans. — Ertu ættaður héðan af Aust- urlandi, Vilhjálmur? — Eg er fæddur á Brekku í Mjóafirði ag átti heima á Dala- tanga í 62 ár, en þar var ég vita- vörður í rúm 50 ár. — Hvað er þár minnisstæðast í sambandi við ís við Austur- land? — Jú, það var 1918. frostavet- urinn mikla. Þá var stundum mjög einkennilegt að sjá sjóinn og ég hef aldrei síðar séð rjúka eins og úr snjónum og gerði þá. Það var ekki bara eins og þegar andbert er, heldur beinlínis rauk í strókum úr sjónum. — Maður veit bara að það eru alltaf erfiðleikar þegar ísinn nálgast. Það verður að líta á ís- inn sem bölvald, sem kemur og fer. Þetta hefur verið svo lengi viðloðandi ísland að það þýðir ekkert að vera að fjargvíðrast Annars er það merkilegt þetta óvenjulega langa tímabil á milli ísa frá 1918—1965. Við snúum okkur að Jóhönnu konu Vilhjálms og innum hana eftir einhverju minnisstæðu at- viki í sambandi við ís. — Ég man nú ekki eftir neinu sérstöku í minni tíð, segir Jó- hanna, — en aftur á móti kem- ur mér í hug saga af atburði sem skeði nokkru fyrir. alda- mót. — Og þessi myndarlega kona, sem hefur búið á yztu annnesjum í áratugi segir okkur frá atburðinum, sem henni flaug í hug. — Mér var sagt að þessi at- burður hefði skeð nokkru fyrir aldamót um páskaleytið. Lo'ð- mundarfjörðurinn var þá fullur af ís og það var mikið af sel í vökum. Á páskadag fóru nokkr- ir menn í veiðileiðangur út á ís- inn skammt frá landi og drápu þar mikið af sel, sem þeir skyldu eftir og ætluðu að sækja næsta dag. Sama dag hafði systir þeirra farið að smala og hún kom ekki aftur úr þeirri ferð, því að hún hrapaði fyrir björg og beið bana vi'ð svokölluð Nesflug. Daginn eftir liðast ísinn svo allur sund- ur og veiðimennirnir náðu engu okkur í ísbjarnarflugið þennan dag. — Hvað voruð þið lengi á leið- inni hingað, Tryggvi? — Við fórum á hádegi á fimmtudag frá Reykjavík. — Hefur siglingin tekið eðli- legan tíma? — Nei, við höfum tafizt dá- lítið vegna íssins. Við þurftum t.d. að bfða eftir birtunni á Eski- firði. ísinn byrjaði hjá okkur við Breiðdalsvíkina. — Hvernig er hagað siglingu í ís? , —- Það eru menn í báðum stjórnborðum, sem fylgjast með því hvort skrúfurnar séu ísfríar. Skrúfurnar á Esju eru tvær og þær eru ofarlega og utarlega á Krakkarnir léku sér á bryggju sporðimim og ísjökum sem voru fastir á milli bryggjustólpa. síðunni. Við verðum strax að stöðva skrúfuna, ef ís kemst að henni, því áð annars getur hún brotnað. Frá vinstri: Tryggvi Blöndal, skipstjóri á Esju. Þórólfur Magn- ússon flugmaður og Lýður Guðmundsson loftskeytamaður. hrafnager hópaðist að honum með hrekkjarflögri. ísbirninum líkaði þetta auðsjáanlega illa og þreif selinn í kjaftinn og sveifl- aði honum í kring um sig. Dýrið virtist ekkert verða vart við skipið, enda fórum við í nokk- urri fjarlægð frá því. — Var íssiglingin erfið? — Við vorum 10 tíma áð sigla 2 Ví> tíma leið. — Hvert farið þið næst? — Til Seyðisfjarðar með birtu í fyrramálið og þar verður snúið við og siglt suður fyrir land til Reykjavikur. Norðfirðingar voru ákaflega ánægðir yfir áð Esjan skyldi koma, því að skipið var með ýmsar þurftarvörur og þeir voru einnig hressir yfir því að ísinn var að fjarlægjast og möguleik- ar að skapast fyrir sjósókn. Ljósmynd: Arni Johnsen. Verðið brún í fyrstu skíðaferðinni, hvort sem sól er eða ekki, með því að nota QX FRÁ COPPERTONE Fólkið heldur þeim gamla sið að spila þegar ekkert sérstakt er við að vera og notar heimasmíðaða spilapeninga. Frá vinstri: Sigurður Eiríksson, Jóhanna Sveinsdóttir og Vilhjálm- ur Helgason, fyrrverandi vitavörður á Dalatanga. — Það eru náttúrulega ýmis óþægindi, en ekkert sérlegt, hvorki slys eða önnur óhöpp. — Hefur þú aldrei lent í kasti við ísbjörn? — Jú, reyndar hef ég nú lent í því að drepa ísbjörn. Það var 1918 að ísbjörn gekk á land á Dalatanga. Við vorum að sækja ljósmóður og gengum þá fram á slóð eftir ísbjörn. Við snerum við tii bóls og sögðum frá því hvað við hefðum séð til þess að fólk færi ekki á hættusvæðið. Síðan héldum við áfram ferð okkar og náðum í ljósmóðurina og jafnframt fengum við lánaða byssu á Brekku.Ekki urðum við samt varir við neinn ísbjöm á bakaleiðinni. Daginn eftir rökt- um við svo slóðina þangað sem björninn var búinn að grafa sig í fönn í Daladal, og þar skutum við dýrið. — Nokkuð sérkennilegt í sam- bandi við ís, sem þig rámar í? af selnum. Þetta var heldur mik- ið feigðarflan. — Heldurðu að örlögin hafi spunnið þennan þráð feigðarinn- ar? — Ég held að það hafi óbless- un fylgt þeim vegna þess að þeir voru að drepa selina á sjálfan páskadag. Menn eiga ekki að gera svona. Og við kve’ðjum þessi önd- vegishjón og gest þeirra, Sigurð Eiríksson, en þegar við sóttum þau heim voru þau að spila manna og notuðu heimasmíðaða spilapeninga og nú voru spilin stokkuð og gefið á ný. Þannig drepur fólkið tímann með sto- iskri ró í góðri skemmtan. Sem fyrr segir hafði Esjan brotizt í gegnum ísinn inn til Neskaupstaðar og við röbbuðum skamma stund vfð skipstjórann, Tryggva Blöndal. Tryggvi og Lýður loftskeytamaður fóru með — Hvenær sáuð þið bjarndýr- ið fyrst? — Við vorum að nálgast Norð- fjörð skammt fyrir utan Sand- vík. Þá sáum við spor á jökun- um og skömmu seinna sáum við bjarndýrið í u.þ.b. 500 metra fjarlægð. Fyrsti stýrimaður sá það fyrst. Við fylgdumst með dýrinu á me'ðan við vorum að baxa við að brjóta okkur leið í gegnum þykka ísspöng, sem þarna var. — Stöðvuðuð þið skipið? — Við vorum alltaf að stoppa annað slagið. Það verður að sigla örhægt í gegnum ísinn. Bjarndýr ið var áð gæða sér á sel og éSStlf* . *____1f.¥ .K ♦ AUGLYSINGAR 5ÍMI SS«4*80 QX QUICK TANNING L0TI0N BY ® COPPiRTONE gerir yðurj fallega og jafn brúna ag 3 til 5 tímum. Ver yður einnig gegnj sólbruna. JL* „quick tanning" undracfnið, sem gerir yftur fallega hrún, jafnt inni, sem úti, er framleitt af COPPERTONE. 'Ar INNI — gerir yður brún á einni nóttu. ÚTI — gerir yður enn brúnni og verndar um leið gegn sóJbruna. ★ ENGINN LITUR — ENGAR RÁKIR. Q.T. inniheldur enga liti eða gerviefni, sem gerir húð yðar rákótta eða upplitaða. Q.T. inniheldur nærandi og mýkjandi efni fyir húðina. Q.T. gerir bá hluti líkamans. sem sólin nær ekki til, fallega brúna. Um leið verndar sérstakt efni í Q.T. húðina fyrir brunageislum sólarinnar. Notið hið fljótvirka Q.T. hvenær sem er ekki fitugt eða olíukennt. það er QX er framleitt af COPPERTONE IiEILDVERZL. YMIR Sími 14191.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.