Morgunblaðið - 10.04.1968, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1968
„Tíu tilbrigði"
Höfundur: Oddur Björnsson
Tónlist: Leifur Þórarinsson
Leikstjórn, leikmynd og búningar:
Brynja Benediktsdóttir
Á >VÍ er enginn vafi að Oddur
Björnsson er sá íslenzkra
leikritahöfunda sem líklegastur
er til að hafa hressandi áhrif
til breytingar leikhúsinu og af-
stöðu leikhúsgesta. Hann gerir
djarfari tilraunir með að-
ferðir en aðrir höfundar,
— en það er ekki mesti
kostur hans, heldur hitt, að
hann fæst við nærtæk og mikil-
væg vandamál mannlífsins á
nýstárlegan og einarðlegan hátt.
Þótt augnabliksáhrif verka
Odds séu fyrst og fremst hlátur,
þykir mér bezta og augljósEista
einkenni hans sem höfundar
vera sú alvara, sem hann leggur
í könnunina á umhverfi sínu, og
sú staðfasta viðleitni að ráðast
til atlögu við þá þætti mannlegs
lífs, sem koma okkur raunveru-
lega við. Þessi alvara kemur
ljóslega fram bæði í vali við-
fangsefna og meðferð þeirra, —
því að gamanið er grátt.
Leikrit Odds Björnssonar
„Tíu tilbrigði" er mjög persónu-
lega stílfærð skopstæling á sam-
skiptum tónskálds við eigin-
konu, sem sér honum farborða.
Skolphreinsun
Losa um stífluð niðurfallsrör.
Niðursetningu á brunnum. —
Smáviðgerðir. Vanir menn.
Sótthreinsun að verki loknu.
Sími 23146.
____________________
Pilkington6s tiles
postulínsveggflisar
GRBBtóVffil22-24 Stærðir 11 x 11, 7y2 15 og 15 x 15
»30280-3262
Mikið úrval — Gott verð.
■ PIERP0NT-ÚR Allar nýjustu gerðir af Pierpont úrum,
ÍMy* I fyrir dörnur og herra.
! \\l Pierpont úr er vönduð
fermingargjöf.
Úrsmiður
Hermann
H Jónsson Lækjargötu 2.
! STiJbrli|®J
s Ítö§|áu§ frá brauöbæ er bezt og ódýrast
BRAUÐBÆR VIÐ ÓÐINSTORG, SÍMI20490 7
Leikritið er að efnisviði og stíl
£ anda absúrdista, mörg tiltæki
eru óbeizluð og leitandi, en
mörg hæfa beint í mark. Þótt
hugarflug höfundarins brjóti
öll lögmál hversdagslífsins og
sveiflur leiksins séu á sinn hátt
f jarstæðukenndar, er auðvelt að
greina hvað fyrir honum vakir,
og næmi hans fyrir hinu leik-
ræna gerir honum víða kleift
að ná skemmtilegu áhrifasam-
bandi við áhorfendur. Ég minn-
ist þess ekki að hafa orðið vitni
að eins vel heppnuðu sambandi
absúrdleikhúss við gesti sína og
á frumsýningunni í Lindarbæ sl.
sunnudag, nema ef vera skyldi
á sýningu „Sköllóttu söngkon-
unnar“ eftir Ionesco.
Oddur Björnsson er ekki til-
takanlega orðhagur höfundur,
og oft hefur mér þótt höndum
kastað til texta verka hans. En
honum er svo augsýnilega mik-
ið niðri fyrir að mér þykir stirð-
mælgi hans oft hafa geðfelld
eða jákvæð áhrif, einkum ef
borin er saman við verk orðhag
ari manna, þar sem lipurð tján-
ingarinnar undirstrikar bara enn
betur að þeir hafa ekkert að
segja. Texti „Tíu tilbrigða" er
þó miklu vandaðri en margra
fyrri verka Odds, þótt þar megi
enn finna einstaka hortitti, eins
og t.d. „að binda endi á e-ð“.
Brynja Benediktsdóttir hefur
sett „Tíu tilbrigði" á svið, gert
leikmyndina og teiknað búning
ana. Leikmyndin ásamt lýsing-
unni, sem Brynja hefur gert með
Kristni Daníelssyni er ekki
þýðingarminnsti þáttur vel-
gengni sýningarinnar, og mættu
.margir reyndari leikhúsmenn
rvera stoltir af því verki. Þá
hefur Brynju farizt leikstjórnin
•skemmtilega og skynsamlega úr
hendi. Er erfitt að meta hve
drjúgan þátt hún á t.d. í túlkun
•leikendanna þriggja, sem allir
hafa fremur litla sviðsreynslu
en standa sig furðuvel.
Leifur Þórarinsson hefur gert
■tónlist og hljóðeffekta við leik-
•ritið. Er verk hans mjög
skemmtilegt, meinfyndið og
áhrifamikið og hjálpar sýning-
unni ekki lítið, enda eru þeir
Oddur orðnir þaulvanir sam-
starfsmenn.
: Sigurður Skúlason fer með
hlutverk Lúðvíks tónskálds. Sig
urður hefur fengið talsvert mik-
ið öryggi og sjálfstraust á sviði,
enda hefur hann líklega tekið
þátt í fleiri sýningum á undan-
förnum tveimur árum en nokk-
ur annar yngstu leikara Þjóð-
leikhússins. Hann hefur skýran
talanda, á auðvelt með að gera
ýmsa einfalda hluti, en hættir
um of til að notfæra sér þær
aðferðir, sem hafa reynzt hon-
um vel áður. Líklega hefur Sig-
urður ekki gert eins vel áður
og nú í „Tíu tilbrigðum", en
hann skortir einhverja festu,
frumleika eða áræði, þegar til
átaka kemur, svo að leikur hans
verður á köflum dálítið holur
eða yfirborðslegur að sjá. Sig-
urður leysti þó hlutverk sitt af
hendi greindalega og skilmerki
lega.
Ung og óþekkt leikkona, Mar-
grét Jóhannsdóttir, lék Málfríði,
eignkonu Lúðvíks. Fæ ég ekki
betur séð en að þar sé athyglis-
- /.o.gt. -
Stúkurnar Dröfn og Verðandi
halda útbreiðslufund í
Templarahöllinni í kvöld kl.
8,30. Ungtemplarar flytja stutt
ávörp. Einsöngur Ingveldur
Hj altested, leikari kemur í
heimsókn og að lokum verður
stiginn dans. Gömlu dansarn-
ir. Allir þeir er áhuga hafa á
bindindismálum velkomnir
með húsrúm leyfir.
Æðstitemplar.
Stúkan Mínerva nr. 172.
Fundur í kvöld kl. 20,30.
Kosning þingfulltrúa.
Æðstitemplar.
johivs - mmm
glerullarcinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum
Enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 214” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Sendum um land allt —
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
Akureyri: Glerárgötu 26.
Sími 21344.
verður leikkraftur. Óhætt mun
að fullyrða að Margrét á mestan
þátt í að kæta áhorfendur. Hlut-
verk hennar er hið skemmtileg-
asta í leikritinu, og hún vinnur
ásamt leikstjóranum úr því
marga skopléga hluti. Búningur
hennar, einkum nærskorin leð-
urstígvélin, sem ná langt upp
fyrir hné, var mjög vel til fund-
inn.
Auður Guðmundsdóttir fór
með hlutverk afturgenginnar
tengdamóður tónskáldsins
Henni tókst prýðilega að áuka
við ógnvekjandi áhrif atriða
sinna með tryllingslegum svip
á andliti og látbragðsleikur
hennar og Lúðvíks fjórhent á
píanóið var feiknalega hlægi-
legur.
Andlit brúðunnar, sem hengd
var í stað tengdamömmu, var
afar .vel málað af Sigurjóni Jó-
hannssyni sem vakið hefur at-
hygli fyrir gerð leikgríma.
Starfsemi Leiflokks litla
sviðsins í Lindarbæ í vetur hef-
ur tekizt ágætlega. Unga fólkið
hefur ekki aðeins fengið tæki-
færi til að þjálfa sjálft sig og
halda við skólalærdómi sínum,
heldur hefur það komið upp
mjög sómasamlegum sýningum,
sem auðgað hafa leiklistarlíf
borgarinnar. „Tíu tilbrigði" er
sú þessara sýninga, sem ég hef
haft mesta ánægju af að sjá,
sérstaklega vegna þess að þar
þykir mér bæði viðfangsefni og
vinnubrögð vera á nýstárlegri
braut, sem ungu fólki er bæði
nauðsyn og skylda að kanna bet
ur. Sýningin var full af lífi og
þrótti, og það var ósvikinn leik
húsþefur af henni.
„Tíu tilbrigðum“ var afburða
vel tekið af frumsýningargest-
um. Ömólfur Árnason.
FÉLAGSLÍF
Unglingameistaramót
Hafnarfjarðar í sundi verð-
ur háð í Sundhöll Hafnarfjarð
ar. Mánudaginn 22. apríl kl.
8,15.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum, í þeirri röð sem get-
ið er:
50 m baksund stúlkna.
50 m flugsund drengja.
50 m skriðsund telpna.
100 m bringusund drengja.
50 m baksund telpna
50 m bringusund sveina.
50 m flugsund stúlkna.
100 m skriðsund drengja
100 m bringusund stúlkna
50 m skriðsund sveina.
50 m bringusund telpna.
100 m baksund drengja.
100 m skriðsund stúlkna.
50 m baksund sveina.
Þátttökutilkynningar send-
ist Trausta Guðlaugssyni,
Norðurbraut 22, sími 51471
eða í Sundhöll Hafnarfjarðar
sími 50088 fyrir þriðjudag 16.
apríl.
Golfklúbbur Reykjavikur
Æfingar fyrir meðlimi og
aðra áhiugamenn um golf. Mið
vikudaga og föstudaga kl. 20
til 21,30 í leikfimisalnum á
Laugardalsvellinum. Kennsla
á staðnum fyrir þá, sem þess
óska.
Æfingan^nd.
KR-ingar — skíðafólk
Ferðir um páskana eru sem
hér segir:
Miðvikudag kl. 8 e. h.
Fimmtudag kl. 10 f. h.
Föstudag kl. 10 f. h.
Laugardag kl. 2 e. h.
Sunnudag kl. 10 f. h.
Mánudag kl. 10 f. h.
Gott skíðafæri er nú í Skála-
felli, lyfta í gangi. Veitingar
á staðnum.
Fjölmennið í Skálafell.
Stjórnln.
fR-ingar — skíðafólk
Skíðaferðir í ÍR-skálanum
um páskana eru sem hér seg-
ir: Miðvikudagskvöld kl. .. 8
og kl. 10 f. h. hina dagana.
Stjórnin.