Morgunblaðið - 10.04.1968, Síða 13
MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1968
13
Greinargerð
sérleyfishafa
— vegna frv. um breytingu á vegalögum
MBL. hefur borizt eftirfarandi
greinargerð Félags sérleyfishafa,
sem send hefur verið Alþingi.
Vegna frumvarps til laga um
breytingu á vegalögum, nr 71 30.
desember, 1963, sem nú er til
meðferðar á Alþingi, leyfir Fé-
lag sérleyfishafa sér að snúa sér
til hins háa Alþingis með ein-
dregnum tilmælum um, að laga
frumvarp þetta verði ekki sam-
þykkt í því formi sem það hefur
verið fram borið.
Frumvarpið gerir í fyrsta lagi
ráð fyrir hækkun þungaskatts,
sem nemur 100 til 110% frá nú-
verandi skattlagningu á sérleyfis
bifreiðir.
I öðru lagi er gert ráð fyrir
hækkun á gúmmigjaldi, sem
mun valda 25 til 30% hækkun á
verði hjólbarða, sem nýlega
höfðu hækkað um 30% vegna
gengisfellingar.
I þriðja lagi gerir frumvarpið
ráð fyrir, að hækkun þunga-
skatts verki aftur fyrir sig frá
siðustu áramótum, sem teljast
verður mjög óeðlileg skatt-
heimta.
I fjórða lagi gerir frumvarp-
ið ráð fyrir heimildarákvæði til
skattlagningar eftir ökumælum,
án þess að tilgreina nokkuð
hvernig slík skattlagning sé
áformuð, og verður því að teljast
óe'ðlilegt að gefa slíka heimild í
lögum án frekari rökstuðnings.
Hinsvegar fagnar félagið því
að gert er ráð fyrir fleiri en ein-
um gjalddaga árlega á greiðslu
þungaskattsins, svo og að fram
hefur komið í ræðu hæstvirts
samgöngumálaráðherra, að vilji
væri fyrir því, að endurgreiðsla
á þungaskatti verði heimiluð ef
bifreið er ekki á skrá í einn
mánuð e’ða lengur. Með því feng-
ist viðurkenning á margra ára
baráttu félagsins fyrir leiðrétt-
ingu þessa atriðis.
Þá skal tekið fram, að verði
frumvarpið samþykkt óbreytt,
mun það valda 4 til 6% hækkun
á reksturskostnaði sérleyfisbif-
reiða, nokkuð mismunandi eftir
aðstæðum.
Til rökstuðnings máli okkar,
leyfum við okkur að benda á
eftirfarandi:
Atvinnurekstur þessi er þegar
hátt skattlagður, því auk þeirra
gjalda, sem nú er ráðgert að
hækka, eru tollar af varahlutum
og bifreiðum, 35 til 40%, og á
brúttótekjur leggst 3% sérleyfis-
gjald. Þá viljum við sérstaklega
benda á mjög þungbæra og
óvenjulega álagningu söluskatts,
en henni er þannig hagað á sér-
leyfisakstur, að greiða skal
7%% söluskatt af brúttótekjum.
Auk þess er gert að greiða sölu-
skatt af öllum aðkeyptum vörum
og allri viðhaldsvinnu, en þessir
liðir nema allt að 60% rekstrar-
kostnaðar og veröur því um tvö-
falda álagningu söluskatts að
ræða, eða með öðrum orðum, að
söluskattsgreiðslur nemi sem
næst 11 til 12% af brúttóitekjum.
Helztu samkeppnisaðilar sérleyf
ishafa búa við mun betri hlut í
þessu efni. Má þar fyrst nefna
flugið, en það nýtur algjörra
tollafriðinda á megin hluta
rekstrarvara sinna. Samgöngur
á sjó njóta styrkja af almannafé
svo tugum milljóna' nemur.
Leigubifreiðaakstur með fólks-
bifrefðum er ekki söluskatts-
skyldur.
Augljóst er því að fargjalda-
hækkanir af hverjum sökum sem
þær eru sprottnar, gera sam-
keppnisaðstöðu sérleyfisaksturs
stöðugt verri.
Ónefnt er þó það höfuðvanda-
mál sem sérleyfishafar hafa átt
við að stríða undanfarin ár, en
það er stöðug fækkun farþega,
sem stafar fyrst og fremst af hin
um aukna bifreiðakosti lands-
manna. Slík fækkun getur í fæst
um tilfellum haft í för með sér
lækkun reksturskostnaðar fyr-
ir sérleyfishafa, þar sem þjón-
usta þeirra má ekki falla niður,
vegna farþega, er ekki hafa eigin
bifreiðir.
Vfð teljum frekari rökstuðn-
ing að sinni óþarfan, en viljum
víkja með örfáum orðum að til-
gangi nefnds lagafrumvarps og
lýsum okku rsammála stjórnvöld
um um, að nauðsyn beri til auk-
inna tekna til vegamála sem afl-
að sé með hækkun skatta þeirra,
sem um ræðir. Við teljum ekki
óeðlilegt, að hluti innflutnings-
tekna af bifreiðum og reksturs-
vörum til þeirra gangi til ann-
arra sameiginlegra þjóöfélags-
þarfa en vegamála eingöngu.
Við bendum hinsvegar á brýna
nauðsyn þess, að nýjar tekjur
sem nú er fyrirhugað að afla,
renni einvörðugu og strax til
helztu þjóðvega landsins, enda
munu þá allir njóta góðs af
þeim framkvæmdum.
Þess vegna skorumst við ekki
undan hækkun gjalda til jafns
við aðra bifreiðaeigendur í land
inu. Hins vegar sjáum við enga
sanngirni í svo freklega aukn-
um álögum á þennan atvinnu-
rekstur umfram aðra, eins og nú
er fyrirhugað, einkum með til-
liti til þess a'ð hann býr þegar
við skarðan hlut, og sem er bund
inn skyldum um að halda uppi
ferðum við erfiðar aðstæður,
þótt um mjög takmarkaðan flutn
ing sé að ræða. Slíkar kvaðir
hvíla ekki á neinum öðrum aðil-
um samgangna.
Brýnustu endurbætur á frum-
varpinu teljum við vera eftir-
farandi:
1. Þungaskattur á sérleyfisbif-
reiðum ver’ði eigi hækkaður
um meira en 30%'.
2. Hækkun þungaskattsins mið-
ist við 1. maí n.k. eða gildis-
tökudag laganna.
3. Felld verði niður úr frum-
varpinu öll ákvæði um álagn-
ingu þungaskatts eftir öku-
mæli.
4. Lögum verði breytt í þá átt,
að sé bifreið afskráð 1 mánuð
samfleitt eða lengri tíma, falli
niður hlutfallsleg greiðsla á
þungaskatti.
Við leyfum okkur a'ð vona, að
hið háa Alþingi verði við tillög-
um þessum, sem við teljum full-
komið sanngirnismál að nái
fram að ganga.
PÁSKAEGG
Clœsilegasta úrval borgarinnar
Allar stœrðir og gerðir
Opið laugardaga til kl. 6
HJARTARBIJÐ
Suðurlandsbraut 10 — Sími 8J529
MEÐ GÓÐRI LÝSINGU
NYTSAMASTA FERMINGARGJÖFIN ER
LUXO 1001
Varizt eítirlíkingar.
Ábyrgðarskírteini fylgir hverjum lampa.
RAFBÚÐ
Domus Medica — Egilsgötu 3
Sími 18022.
KUðRI! FÓ8T8RÆBIIR
SAMSÖNGUR
í Ansturbæjarbíói
MIÐVIKUDAGINN 10. APRÍL KL. 7.15. — Aðgönguskírteini dags. 30/3.
STJÓRMI: RAGIUAR BJÖRN
STYRKTARFÉLAGAR, ER EINHVERRA ÁSTÆÐNA VEGNA HAFA EKKI
FENGIÐ AÐGÖNGUSKÍRTEINI AFHENT, GOÐFÚSLEGA VITJI ÞEIRRA
TIl. FRIÐRIKS J. EYFJÖRÐ HJÁ LEÐURVERZL. JÓNS BRYNJÓLFSSON-
AR AUSTURSTRÆTI 3. STJÓRNIN.
Uppboð
til slita á sameign á hluta af Sogavegi 132, þingl. eign
Sverris Gíslasonar og Kristínar Hrafnfjörð, fer fram
eftÍT kröfu Kristins Einarssonar hdl., f.h. Kristínar
Hrafnfjörð, á eigninni sjáltfri, þriðjudaginn 16. apríl
1968, kl. 4 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 66., 68. og 71. tbl. Lögfbirtingablaðs
1968 um hluta í Rauðalæk 73, þingl. eign Jóns Þ. Áma-
sonar, fer fram etftir kröfu Gunnars I. Hafsteinssonar
hdU Hauks Jónssonar hrl., Guðjóns Styrkórssonar hrl.,
Jóns Magnússonar hrl., og Jóns Grétar Sigurðssonar
hdl., á eigninni sjóltfri, þriðjudaginn 16. apríl 1968,
kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Félag íslenzkra myndlistarmanna
II. Norrænt
æskulýðsbiennale
verður haldið í Helsingfors í október 1968. Hvert
Norðurlanda hefur heimild til að senda verk fimm
listamanna, eigi fleiri en fimm eftir hvern.
Þátttakendur skulu ekki eldri en þrítugir eða ekki
orðnir 31 árs í september 1968.
Félagið hefur skipað í dómnefnd þá:
Braga Ásgeirsson,
Einar Hákonarson
og Jóhann Eyfells.
Efni í sýningarskrá þarf að vera komið til Hels-
ingfors fyrir 15. maí.
Tekið verður á móti myndum, málverkum, högg-
myndum eða grafik í Listamannaskálanum þriðju-
daginn 16. apríl nk. kl. 4—7.
Ekkert má senda undir gleri.
Þátttaka er ekki félagsbundin.
STJÓRNIN.