Morgunblaðið - 10.04.1968, Side 14

Morgunblaðið - 10.04.1968, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1968 Mikilvægt að hefja nýjar f ramkvæmd- ir, sem tryggi vaxandi þjdöartekjur — þegar framkvœmdum við Búrfell og Straumsvík lýkur — sagði dr. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri r gœr ÁRSFUNDUR Seðlabanka ís- lands var haldinn að Hótel Sögu í gær. Birgir Kjaran, alþm. formaður bankaráðs Seðlabank ans bauð gesti velkomna en síð- an flutti dr. Jóhannes Nordal ræðu. Að lokum sagði Gylfi Þ. Gíslason, bankamálaráðherra nokkur orð. Hér fer á eftir ræða dr. Jóhannesar Nordals í gær, nokkuð stytt: Mikilvægt að hef ja .. , Óhætt mun að segja, að þró- un efnahagsmála á árinu 1967, hafi reynzt íslendingum erfiðari en nokkurn grunaði fyrir ári. Var orsaka erfiðleikanna að leita í óhagsstæðum ytri skil- yrðum, svo sem verðlækkunum erlendis, breyttum fiskigöngum og erfiðum veðurskilyrðum, sem fslendingar gátu engu um ráð- ið. Þótt þróunin á erlendum mörkuðum hafi þegar á árinu 1966 verið farin að breytast til hins verra vegna verðfalls mik- ilvægra útflutningsafurða, benti þó margt til þess framan af, að brátt myndi úr rætast. Allar slík ar vonir hafa til þessa algjör- lega brugðizt. 1 þess stað varð útflutningsframleiðslan á árinu 1967 fyrir stórfelldum nýjum á föllum, sem í heild leiddu til þess, að verðmæti útflutnings framleiðslunnar lækkaði um 30% á árinu. Sé borið saman við árið 1966 reyndist lækkun verðlags á útfluttum sjávarafurðum 12% á árinu, og átti sú lækkun eink- um rætur að rekja til verðfalls á þremur mikilvægum flokkum afurða, síldarlýsi lækkaði um 20%, síldarmjöl, er lækkaði um 15% og frystum fiskflökum, er lækkuðu um 16%. Ofan á þetta verðfall kom síðan lokun skreið armarkaðsins í Nígeríu vegna borgarastyrjaldar þar í landi, og lá meginhluti skreiðarframleiðsl unnar óseldur í árslok. Við þessa óhagstæðu markaðsþróun erlend is bættust loks áhrif versnandi aflabragða, einkum í síldveiðum, miðað við undanfarin ár. Lækk- aði sjávarafli á árinu 1967 um 344 þús. lestir eða 28% miðað við árið áður, en þar sem meg- inhluti lækkunarinnar kom fram á síldaraflanum varð verðmætis- lækkun aflans nokkuð minni eða um 21 % miðað við fast verðlag. Þegar þess er gætt, að yfir 90% vöruútflutningsins eru sjávarafurðir í einhverri mynd, en bein hlutdeild sjávarútvegs- ins í þjóðarframleiðslunni hefur síðustu árin numið um einum fimmta hluta, gat ekki hjá því farið að 30% lækkun fram- leiðsluverðmætis sjávarútvegsins hefði gagnger áhrif bæði á þjóð- artekjur og greiðslujöfnuð. Sé fyrst litið á þjóðartekjur, þá benda bráðabirgðaáætlanir til þess, að þær hafi lækkað á ár- inu um 80%, og áttu versnandi viðskiptakjör drjúgan þátt í þeirri breytingu. Til samanburð- ar má geta þess, að á árinu 1966 narh aukning þjóðartekna 3,7%, en 9,2% árið 1965. Þó verk aði hér á móti, að byggingar- starfsemijókst um 10% á árinu, einkum vegna þeirra stórfram- kvæmda, sem þá fór að gæta fyrir alvöru, og kom það tví- mælalaust í veg fyrir enn frek- ari rýrnun þjóðartekna. Lækkun útflutningsverðmætis ins, en hún nam 1700 millj. kr. á árinu, kom þó með mestum þunga fram í greiðslujöfnuðin- um við útlönd. Samkvæmt þeim bráðabirgðaáætlunum, sem nú liggja fyrir, varð hallirnn á við- skiptajöfnuðinum, þ.e.a.s. við- skiptum með vörur og þjónustu, 2.350 millj. kr. á árinu 1967, en árið áður- hafði hann verið ó- hagstæður um 321 millj. kr. Við mat á þessum tölum er rétt að hafa í huga, að sérstakar að- stæður voru þess valdandi, að viðskiptajöfnuður ársins 1967 var að ýmsu leyti ósambærileg- ur við það, sem var árin á und- an. Má þar fyrst til nefna hin- ar miklu nýju framkvæmdir við Búrfellsvirkjun og álbræðslu í Straumsvík, en vegna þeirra átti sér stað mikill fjármagnsinnflutn ingur á árinu. Einnig var um að ræða mikinn innflutning skipa og flugvéla, sem greiddur var að stórum hluta með er- lendum lánum. Átti þetta hvort tveggja meginþátt í því, að fjár- magnsjöfnuðurinn varð hagstæð ur á árinu um 1180 millj. kr., en það jafnaði um helming viðskipta hallans. Þegar innkomnar fjár- magnshreyfingar og skyldar greiðslur hafa verið dregnar frá hallanum á viðskiptajöfnuðin- um, kemur fram heildargreiðslu- jöfnuður ársins, en það er sú upphæð, sem mæta varð með lækkun gjaldeyrisforðans. Var heildargreiðslujöfnuður á árinu 1967 neikvæður um 1070 millj. kr. og rýmaði gjaldeyris- staða bankanna um sömu fjár- hæð. Miðað við gamla gengið. Er þetta í fyrsta skipti síðan 1959, sem gjaldeyrisstaðan hefur rýrnað. Hin reikningslega rýrn- un gjaldeyrisstöðunnar á árinu var þó 200 millj. kr. minni. Er þetta vegna þess að gjaldeyris- forðinn jókst i krónum talið við gengisbreytinguna. Sé reiknað með gildandi gengi á hverjum tíma, rýrnaði gjaldeyrisstaðan á, árinu úr 1915 millj. kr. í árslok 1966 í 1040 millj. í árslok 1967. Um einstaka liði gjaldeyrisstöð- unnar er það að segja, að eign Seðlabankans í gulli og frjáls- um gjaldeyri lækkaði um tæp- ar 500 millj., en jafnframt juk- ust stuttar skuldir hans um 383 millj. kr., og er þar meðtalið 214 millj. kr. jöfnunarlán, sem tekið var hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum á árinu. Ennfremur rýrnaði staða viðskiptabank- anna við útlönd á árinu um 162 millj. kr. og var nettóskuld þeirra í árslok að meðtöldum freðfisksöluvíxlum í Bandaríkj- unum 475 millj. kr. Hin miklu vandamál, sem sigldu í kjölfar minnkandi út- flutnings og lækkandi þjóðar- tekna hlutu að setja svip sinn á allar aðgerðir í efnahagsmál- um á árinu 1967. Má reyndar segja, að stjórn íslenzkra efna- hagsmála hafi allt frá síðasta ársfjórðungi 1966 og til þessa dags stefnt að því einu að verj- ast afleiðingum þeirra áfalla, sem þjóðarbúið varð fyrir. Þeg- ar haft er í huga, að íslending- ar hafa ekki orðið fyrir jafn- miklu tekjutapi síðan í heims- kreppunni eftir 1930, verður með engu móti sagt, að þessi varnar barátta hafi verið árángurslítil, en hún hlaut að krefjast sífellt nýrra aðgerða og endurskoðun ar stefnumiða, eftir því sem ný va-ndamál komu til sögunnar. Sú efnahagsstefna, sem mörk- uð var í upphafi árs 1967 hafði tvö meginmarkmið. í fyrsta lagi var reynt að koma í veg fyrir, að verðfall afurða hefði í för með sér samdrátt eða stöðv- un mikilvægrar útflutningsfram- leiðslu. Veu- þetta gert bæði með beinum stuðningi við sjávarút- veginn, jafnframt því sem gerð- ar voru víðtækar ráðstafanir til verðstöðvunar, en með þeim tókst að haida bæði verðlagi og kaupgjaldi óbreyttu allt frá haustinu 1966 og fram í nóv- embermánuði s.l. í öðru lagi var stefnt að því að tryggja viðunandi atvinnu, þrátt fyrir þau samdráttaráhrif, sem versnandi afkoma sjávarút- vegsins hlaut að hafa í för með sér. Var á árinu haldið uppi miklum opinberum framkvæmd- um, auk stórframkvæmda við Dr Jóhannes Nordal. virkjun Þjórsár við Búrfell og í Straumsvík. Aðgerðir í pen- ingamálum voru einnig við það miðaðar að koma í veg fyrir, að efnahagsérfiðleikarnir hefðu í för með sér snöggan og alvar- legan samdrátt í atvinnustarf- semi og fjárfestingu. f þessari stefnu fólst, að neyzla og fjárfesting yrði að miklu leyti varin fyrir áhrifum þeirrar almennu tekjurýrnunar þjóðarbúsins, er fylgdi minnk- andi útflutningsverðmæti. Mis- munurinn hlaut að koma fram í auknum greiðsluhalla við útlönd sem jafnaður yrði að nokkru með erlendum lántökum, en að nokkru með rýrnun gjaldeyris- stöðunnar. Hversu lengi þetta yrði framkvæmanlegt án óhófs- legs gjaldeyristaps, var komið undir þróun útflutningstekna á árinu. Voru efnahagsáætlanir á fyrri hluta árs 1967 byggðar á því, að útflutningsframleiðslan lækkaði ekki nema um 10-15%. frá fyrra ári, en þá hefði gjald- eyrisstaðan varla rýrnað meira en um 300—400 millj. kr. Þetta fór þó á annan veg, þar sem þróun útflutningstekna versnaði að mun, eftir því sem á árið leið, svo að tekjulækkunin varð að lokum helmingi meiri en bú- izt hafði verið við. Komu á- hrif þess fram með vaxandi þunga á síðari helmingi ársins, rýrnun gjaldeyrisstöðunnar varð örari, en samdráttar fór að gæta í tekjuþróun og eftir- spurn, einkasparn-aður minnkaði og afkoma atvinnufyrirtækja fór versnandi. Samdráttaráhrifa gætti síðar i innflutningi og gjaldeyriseftir- spurn en á öðrum sviðum, og kom því lækkun útflutningstekn ann-a að miklu leyti fram í rýrn- un gjaldeyrisstöðunnar. Var því þegar um haustið orðið ljóst, að grípa þyrfti til sérstakra ráð- stafana til þess að draga úr greiðsluhallanum við útlönd og koma á jöfnuði í fjármálum rík- isins. Voru gerðar beinar ráð- stafanir til að draga úr gjald- eyrisnotkun, m.a. til ferðalaga, jafnframt því sem dregið var úr útgjöldum ríkisins með lækkun niðurgreiðslna. Áður en séð varð, hver árangur yrði af þess- um ráðstöfunum eða öðrum, sem undirbúnar höfðu verið, breytt- ust viðhorfin vegna gengislækk unar sterlingspundsins. Varð þá ljóst, að gengislækk- un íslenzku krónunnar yrði ekki lengur umflúin, og var nýtt stofngengi, sem er 24,6% lægra en það gengi, er gilt hafði, á- kveðið af Seðlabankanum með samþykki ríkisstjórnarinnar og tilkynnt hinn 24. nóvember. Var hið nýja gengi ákveðið með til- liti til þeirra erfiðleika, sem út- flutningsatvinnuvegirnir höfðu átt við að búa vegna minnk- andi framleiðsluverðmætis, jafn- framt því sem stefnt var að því að draga úr innflutningi og koma á viðunandi greiðslujöfn- uði. Ekki leikur vafi á því, að gengisbreytingin hefur þegar haft mikilvaég áhrif í þá átt að bæta greiðslujöfnuðinn, enda þótt afkoma útflutningsatvinnu- veganna sé enn erfið vegna ó- hagstæðrar þróunar útflutnings- markaða. Hins vegar hlaut geng- isbreytingin að hafa í för með sér ný vandamál í launa- og verðlagsmálum. Vík ég þá að þróun peninga- mála, en þar komu áhrif hinnar óhagstæðu framleiðslu og út- flutningsþróunar fram með full- um þunga. Jukust erfiðleikarn- ir á peningamarkaðnum ört, eft- ir því sem á árið leið. Áttu at- vinnufyrirtæki, sérstaklega í sjávarútvegi, við vaxandi lausa- fjárerfiðleika að etja á árinu vegna versnandi afkomu, en auk þess hafði fjöldi fyrirtækja og einstaklinga ráðizt í miklar fjár- festingarframkvæmdir á árinu 1965 og 1966, sem nú varð ekki snúið aftur með, þótt aðstæður til að framkvæma þær hefðu gjörbreytzt. Jafnframt hafði stöð nun í tekjum og ótryggara efna- hagsútlit áhrif á almennan sparnað og fjármagnsmyndun, svo að mjög dró úr innláns- aukningu bankakerfisins, jafn- framt því sem eftirspurn eftir lánsfé hélzt mikil vegna greiðslu erfiðleika fyrirtækja. Varð út- lánaaukning bankanna á árinu langt umfram ráðstöfunarfé þeirra og var mismunurinn að stórum hluta jafnaður með pen- ingaútstreymi úr Seðlabankan- um. Rekstrarerfiðleikar fyrir- tækja og minnkandi fjármagns- myndun komu einnig fram í fjár hag fjárfestingarlánastofnana, svo að staða þeirra gagnvart Seðlabankanum ver9naði stór- lega á árinu. Loks átti sér stað stórfelld breyting til hins verra í fjárhag ríkissjóðs, en hann hafði orðið að taka á sig mikla aukningu útgjalda vegna niður- greiðslna á vöruverði og erfið- leika sjávarútvegsins, jafnframt því sem stöðnun eftirspurnar hafði í för með sér lakari tekju- öflun en búizt hafði verið við. Hið mikla peningaútstreymi úr Seðlabankanum, sem af þessu leiddi, kom beint fram í lækk- un gjaldeyriseignar bankans, og átti hann því erfiða hlutverki að gegna að reyna að spoma við alvarlegri rýrnun gjaldeyr- isforðans með peningalegu að- haldi, jafnframt því sem hann reyndi að leysa úr óhjákvæmi- legum vandamálum peningastofn ana og atvinnuvega vegna rekstr arerfiðleika. Skal ég nú rekja nokkrar tölur, er sýna hina pen- ingalegu þróun á árinu. Mikill samdráttur varð í aukn ingu innlána hjá bönkum og sparisjóðum, og jukust þau að- eins um 577 millj. kr. eða 6,4%. Var þetta nærri helmingi minni innlánsaukning en á árinu 1966 og um þriðjungur þess, sem ver- ið hafði 1965. Einnig dró á ár- inu úr hinni miklu útlánaþenslu, sem átt hafði sér stað undan- farin tvö ár, en þó nam út- lánaaukningin árið 1967 987 millj., og varð hún þannig 400 'millj. meiri en auknirig inn- lána. Þessi mismunur jafnaðist að nokkru af eiginfjáraukningu bankanna og af rýrnandi stöðu gjaldeyrisbankanna erlendis, en 175 millj. kr. komu fram sem skuldasöfnun við Seðlabankann umfram aukningu bundins fjár. Einnig varð Seðlabankinn að veita fjárfestingarlánasjóðum verulega aðstoð til þess að þeir gætu staðið við skuldbindingar sínar, en alls versnaði staða þeirra við bankann um 192 millj. kr. á árinu. Mest munaði þó um það, að staða ríkissjóðs og ríkisstofnana við Seðlabankann versnáði um 458 millj. kr., en hún hafði batn- að um 331 millj. á árinu 1966. Þótt hér komi fleira til en bein afkoma ríkissjóðs sjálfs, gefur þetta þó skýra mynd af þeirri miklu breytingu, sem átt hefur sér stað í þróun ríkisfjármála undanfarin tvö ár. Séu nokkrir aðrir liðir með- taldir, svo sem lækkun seðla veltu og mótvirðisfjár, kemur í ljós, að heildarútstreymi fjár vegna innlendra viðskipta Seðla bankans á árinu 1967 nam nær 1000 millj. kr. og er þá sleppt bókhaldsbreytingum á krónutölu erlendra liða vegna gengis- breytingarinnar. Er í þessum töl um búið að reikna aukningu bundinna innistæðna til frádrátt ar, en hún nam 181 millj. kr. á árinu. Rétt er að vekja sér- staka athygli á þessum tölum, þar sem margir virðast vera þeirrar skoðunar, að í innláns- bindingunni hljóti að felast, að Seðlabankinn sé sífellt að soga til sín fjármagn frá bankakerf- inu, sem ella gæti gengið til út- lána. Því fer fjarri, að þetta hafi verið raunin á árið 1967, þar sem aukning bundins fjár var aðeins lítill hluti þess fjármagns, sem Seðlabankinn lét peninga- stofnunum og ríkissjóði í té á árinu. Minni innlánsbinding hefði aðeins leitt til þess, að geta Seðlabankans til að veita slíka aðstoð hefði orðið þeim mun minni. Rétt er að benda hér a það, að megintilgangur innlánsbind- ingarinnar hefur ætíð verið sá að gera Seðlabankanum kieift að veita lán til forgangsþarfa og rekstrar og hafa þannig áhrif á skiptingu lánsfjár milli at- vinnuvega. Með endurkaupum af urðalána og ýmis konar annarri fyrirgreðslu við bankana hef- ur Seðlabankinn séð mikilvæg um framleiðslugreinum fyrir rekstrarfé með hagkvæmum kjör um, en vegna uppbyggingar bankakerfisins og mismunandi útlánagetu bankanna, er vafa- samt hvort hægt væri að tryggja þetta með öðru móti. Slíka lánastarfsemi getur Seðla bandinn því aðeins rekið, að hann fái með innlansbinding- unni hlutdeild í. innlánsaukning bankakerfisins. Tölulega kemur þetta dæmi þannig út í árslok 1967, að bundnar innstæður námu 1908 millj. kr., en útlán Seðlabankans til banka og fjár festingarlánastofnana og aðila, annarra .en ríkissjóðs, námu 2457 millj. kr. Bankinn hafði því í útlánum þessum 549 millj. kr. umfram innlánsbindinguna. Um það má að sjálfsögðu deila, hvort þessi milliganga Seðla- bankans í útlánamálum sé nauð tsynleg og hvort hagstæðara væri fyrir bankakerfið, og at- vinnuvegina að innlánsbinding- in væri lækkuð að mun, en jafn framt dregið úr þeirri miklu lánastarfsemi, sem Seðlabankinn nú rekur. Slík breyting væri vissulega i samræmi við það, sem tíðkast í nágrannalöndun- um, en aðstæður eru þar á marg an hátt ólíkar og geta viðskipta bankanna til að leysa rekstrar- Framihald á ble. 24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.