Morgunblaðið - 10.04.1968, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.04.1968, Qupperneq 18
1 18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 196« Auglýsing um skoöun bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkur Aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavík- ur mun fara fram 16. apríl til 24. maí næstkomandi sem hér segir: Þriðjudaginn 16. apríl Ö-1 — Ö-50 f Miðvikudaginn 17. apríl Ö-51 — Ö-100 f Fimmtudaginn 18. apríl 0-101 — Ö-150 w Föstudaginn 19. apríl 0-151 — Ö-200 Mánudaginn 22. apríl Ö-201 — Ö-250 §■ £ Þriðjudaginn 23. apríl Ö-251 — Ö-300 Miðvikudaginn 24. apríl Ö-301 — Ö-350 1 Föstudaginn 26. apríl Ö-351 — Ö-400 ¥ Mánudaginn 29. apríl Ö-401 — Ö-450 I Þriðjudaginn 30. apríl Ö-451 — Ö-500 m Fimmtudaginn 2 maí Ö-501 — Ö-550 £ Föstudaginn 3. maí Ö-551 — Ö-600 I Mánudaginn 13. maí Ö-601 — Ö-650 1 Þriðjudaginn 14. maí Ö-651 — Ö-700 É Miðvikudaginn 15. maí Ö-701 — Ö-750 1 Fimmtudaginn 16. maí Ö-751 — Ö-800 É Föstudaginn 17. maí Ö-801 — Ö-850 Mánudaginn 20. maí Ö-851 — Ö-900 # Þriðjudaginn 21. maí Ö-901 — Ö-1000 1 Föstudaginn 24. maí 0-1001 — Ö-1200 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til bifreiðaeftirlitsins Vatnsnesvegi 33, og verður skoðun framkvæmd þar daglega kl. 9—12 og 13—16 30. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugar- dögum. Festivagnar, tengivagnar, og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Einnig skal færa létthjól til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini, sýna ber skilríki fyrir því að bifreiðaskattur og vátryggingariðgjöld öku- manna fyrir árið 1968 séu greidd og lögboðin vá- trygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Þeir bifreiðaeigendur sem hafa viðtæki í bifreið- um sínum skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnota- gjalda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1968. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöld- in eru greidd. Vanræki einhver að koma með bifreið sína til skoðunar á réttum degi verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum, og lögum um bifreiðaskatt, og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn í Keflavík, 8. apríl 1968. Alfreð Gislason. - BOKASAFN Framhald af bls. 17. tekið fram — betri lykill að skáldverkum Hagalíns en nokk- urt annað verk hans. Var því vel til fallið, að hún skyldi verða númer eitt í þessu umrædda bókasafni Al- menna bókafélagsins. Og ekki spillir inngangur höfundarins, sá sem hann hefur skrifað fyrir útgáfu þessari, enda þó sag- an sjálf þurfi að vísu engra skýr- inga við. VI Erindi Nordals, Líf og dauði (þetta er þriðja prentun erind- anna) eru heillandi lesning, hvernig sem á er litið. Er á eng- an hallað, þó Nordal sé talinn okkar mesti ritgerðahöfundur á þessari öld. Með skarpleika, skáld legu innsæi og persónulegum á- hrifum hefur hann unnið far- sælla starf en nokkur ann- ar bókmenntafræðingur ís- lenzkur, samtíða honum. Hann er ekki aðeins einn af fá- um, sem lagt hafa rækt við ritgerðina sem listrænt form, held ur hefur hann beinlínis orðið fyr- irmynd annarra í þeirri grein. Hann hefur aldrei einskorðað sig við staðreyndatal, heldur gegn- lýst sérhvert efni, varpað á sér- hvem hlut nýju ljósi. Ef venju- leg hrósyrði missa nokkru sinni marks, þá verður sú raunin, ef lofa skal verk Nordals, því þau lofa sig sjálf betur en orð ann- arra manna fá gert. Sem að líkum lætur fjalla flest ar ritgerðir Nordals um bók- menntir. Erindin Líf og dauði eru því nokkuð sér á parti. En hvort tveggja er, að höfundur hefur lagt í þær mikla hugsun og þekk- ing og efni þeirra er ekki heldur víðsfjarri sviði hans sem fræði- manns, þannig að erindi þessi eru með því ljósasta og skemmtileg- asta, sem frá honum hefur komið. Fremur hefði ég þó kosið að fá í hendur úrval af ritgerðum háns um bókmenntir, því þær hafa þó alla vega haft varanlegri áhrif en erindin um líf og dauða, og sumar þeirra eru hreint og beint ómissandi fyrir hvern þann, sem vill vera samtalshæfur um bókmenntaleg efni. Mér koma í hug ritgerðirnar um Bjarna Thor arensen, Matthías við Dettifoss, Grím Thomsen og Jóhann Sigur- jónsson. En meðal annarra ritgerða, sem ekki fjalla um þjóðskáld, en eru þó jafn opinberandi, minni ég á ritgerðina Svo kvað Konráð. Sú ritgerð er einmitt gott dæmi þess, hvernig Nordal gefur huganum lausan tauminn án þess þó að fara nokkru sinni út fyrir þau takmörk, sem fræðigreinin ósjálf rátt setur honum. Og töfrar les- andann þannig á sitt mál. Þegar rithöfundur hefur unnið svo mikið og gott starf, eins og Nordal hefur unnið í þágu ís- lenzkra bókmennta og menningar sögu, munu ýmsir líta svo á, að ekki megi geta um ritverk hans nema til að lofa þau og prísa. Þau eigi að vera hátt hafin yfir ágreiningsmál og skiptar skoðan- ir. Á þau viðhorf get ég engan veg inn fallizt. Þegar svo er komið, að ekki er lengur minnzt á rit- verk nema til að skjalla það hugs unarlaust, er rauniii undantekn- ingarlaust sú, að ritverkið er orð- ið úrelt, það er búið að gegna sínu hlutverki og verður ekki framar kvatt til vitnis um eitt eða neitt, sem máli skiptir. Ég held langur tími líði, áður en verk Nordals verði svo úrelt. Að minnsta kosti standa þau enn í fullu gildi. En svo lengi sem þau halda gildi sínu, hljóta menn vita skuld að greina á milli þess, sem þeir fallast á, og hins, sem þeir geta ekki fallizt á í þeim. Það er óhugsandi og hreint ekki æski- legt, að allir menn fallist á allt, sem fræðimaður hefur sagt, jafn- vel þó hann hafi oftast haft rétt fyrir sér. Ýmis sjónarmið Nor- dals hafa verið umdeild. En þar með hafa verk hans ekki mink- að, heldur stækkað. vn. Fimm bækur — það telst nú ekki vera mikið bókasafn. En vís- ir er það engu síður. ímyndum okkur, að einhver eignist allt þetta safn, ert sjái ekki neinar bækur aðrar. Hvað hefur hann þegar feng- ið? Og hvað vantar hann tilfinnanlegast? Nei annars. Það er út í hött að setja dæmið svona upp. Ég gat þess í upphafi, að Ijóð hafa ekki enn verið tekin upp í þetta safn. Sjálfsagt er ástæðan sú ein, að fimm bækur eru fáar bækur — að röðin er ekki enn komin að ljóðunum, gn kem- ur vonandi að þeim bráðum. En hvað yrði þá fyrst fyr- ir? Hvað hefur lengst orð- ið útundan? Mér detta í hug nokkur ágæt skáld frá sautjándu og átjándu öld, sem enn liggja óprentuð. Gaman væri að fá eitt- hvert þeirra í þetta safn. Og svo verð ég að minnast á ljóð okkar yngstu skálda, þeirra sem sent hafa frá sér bækur síð- ustu fimmtán árin eða svo, en eru þó — sakir fordóma — svo fjar- læg mörgum ágætum lesanda, að ekki er öðru líkara en ljóð þeirra þrumi á morknum skinnhand- ritum í Árnasafni og hafi aldrei komizt á prent. Væri ekki upplagt verkefni fyrir AB að taka saman þvílíka antó- lógíu til að prýða með þetta verðandi heimilisbókasafn? Mér koma líka í hug ritgerðir frá nitjándu öld, sem liggja nú grafnar og gleymdar, margar hverjar, í blaða—, tímarita— eða bókastöflum, þó andinn frá þeim þökti enn í vitund þjóðarinnar. Það væri vekjandi að fá í hendur úrval slíkra ritgerða. Af nógu er að taka. En hitt skal játað, að þessar óskir 'og ábendingar mínar eru fljóthugsaðar, og ef til vill eru mörg önnur verkefni jafnbrýn, þó mér komi þau ekki í hug í svipinn. Aila vega lofar útgáfa þessara fimm bóka nokkuð góðu, og mun því verða tekið eftir hverri nýrri bók, sem bætist við þetta safn. Erlendur Jónsson. RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA#SKRIFSTOFA SÍMI 1Q*1QQ Nýjasta bók Jóns Helgasonar: Kviðnr of Gotnm og Húnum Hamdismál, Guðrúnarhvöt, Hlöðskviða Með skýringum. „Bók sem mœtti með réttum ripkum telja beztu bók ársins 1967.“ Ólafur Jónsson (AlþbL) „Með skýringum Jóns Helgasonar á engum að verða skotaskuld að lesa kviðurnar sér að gagni.“ Erlendur Jónsson (Mbl.) Verð kr. 380,00 + sölusk. Sérstök viðhafnarútgáfa af Kviðum af Gotum og Hún er einnig fáanleg, prentuð í 75 tölusettum og árituðum eintökum á úrvalspappír. Fyrsta bindið af Eddukvæðaútgáfu Jóns Helgasonar: Tvæi kviður fornnr Völundarkviða og Atlakviða er nú komið í nýrri prentun með fáeinum breyt- ingum og viðaukum. Verð kr. 300,00 -þ sölusk. HEIMSKRINGLA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.