Morgunblaðið - 25.04.1968, Qupperneq 10
10
MORGUNBLADJÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL IM8
\
Stjórn Slysavarnadeildar Lágafelissóknar. Talið frá vinstri: Þórður Guðmundsson, Saeberg
Þórðarson, gjaldkeri, Skæringur Hauksson, formaður, Erlingur Ólafsson og Gunnlaugur Jó-
hannsson, ritari. — Ljósm. P. H.
í
Slysavarnadeild stofnuð ■ IViosfellssveit
Stofníund Slysavarnadeild-
ar Lágafellssóknar var haldinn
að Hlégarði fimmtudaginn 18.
apríl. Skæringur Hauksson, lög-
reglu'þjónn, setti fundinn og
bauð sérstaklega velkomna frú
Gróu Pétursdóttur, varaforseta
S.V.F.Í. og Hannes Þ. Hafstein,
erindreka S.VF.Í., en þau voru
mætt sem gestir fundarins
Fundarstjóri var tilnefndur
Pétur Hjálmsson, ráðunautur, og
ritari Gunnlaugur Jóhannsson.
Skæringur Hauksson rakti í upp
hafi fundarins undiribúning og
aðdraganda að stofnun deildar-
innar og gat þess að félagatala
væri nú þegar komin á 4. hundr
aðið. í stjórn deildarinnar voru
kosnir Skæringur Hauksson,
Gunnlaugur Jóihannsson, Sæberg
Þórðarson, Erling Ólafsson og
Þórður Guðmundsson.
Að loknum aðalfundarstörfur*1
flutti Hannes Hafstein ræðu um
sögu Slysavarnafélagsins og
björgunasveitir þess. Frú Gróa
Pétursdóttir flutti hinni nýstofn
uðu deild heillaóskir stjórnar
S.V.F.Í. og þakklæti fyrir stofn-
un deildarinnar. Að lokum sýndi
Hannes Hafstein tvær litkvik-
myndir úr sögu S.V.F.Í,
Prestsembættið í Höfn
Eldur í síldar
verksmiðju
Akureyri, 23. apríl.
ELDUR kom upp í beinakvörn
í síldarverksmiðjunni í Krossa-
nesi, þegar verið var að vinna
við hana kl. 8.30 í morgun. Eitt-
hvert járnstykki mun hafa verið
saman við beinin, án þess að
þess yrði vart fyrr en það lenti
í kvörninni, en af þessu hlauzt
mikið neistaflug, sem kveikti í
þurru ryki, sem var umhverfis
og upp af kvörninni. Starfsmenn
m verksmiðjunnar slökktu eldinn
fljótlega með gufu og vatni, og
var hann að fullu slökktur, þeg-
ar slökkviliðið kom að verksmiðj
unni. Skemmdir urðu allmiklair
á rafmagnstækjum og leiðslum,
en eru annars ekki að fullu kann
aðar.
— Sv. P
Dregið í reið-
hjólahappdrætti
DREGIÐ hefur verið í svonefndu
Fáskahappdrætti Umferðar-
nefndar og lögreglunnar í
i Reykjavík, en miðarnir voru í
| páskaeggjum. Vinningar eru 10
, reiðhjól frá Fálkanum hf., og
komu þeir á eftirtalin númer:
12439, 37683, 42902, 59003,
77031, 112607, 126160, 135486,
146002 og 151602.
Vinningarnir óskast sóttir á
Fræðslu- og upplýsingaskrif-
stofu Umferðarnefndar í íþrótta
miðstöðinni í Laugardal fyrir 1.
maí.
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi áskorun, sem send hefur
verið kirkjumálará'ðuneytinu,
biskupinum yfir íslandi, forsæt-
isráðuneytinu og fjármálaráðu-
neytinu:
Kaupmannahöfn, 19. apríl 1968.
Samkvæmt tillögu ríkisstjóm-
arinnar hefur hæstvirt Alþingi
sem kunnugt er samþykkt að
fella niður fjárveitingu til hins
íslenzka prestsembættis í Kaup-
mannahöfn. Viljum við undir-
ritaðir Hafnaríslendingar hér
með mælast til þess að þessi fjár
veiting verði tekin upp aftur á
fjárlögum næsta árs og reynt
verði með einhverjum ráðum að
brúa það bil sem þarna verður.
Embætti íslenzka prestsins í
Kaupmannahöfn var sett á lagg-
irrnar fyrir fjórum árum. Voru
mafgir þá efins um gildi þess, en
reynslan hefur tekfð af allan
slíkan vafa meðal landa hér, því
að starfsgrundvöllur hins ís-
lenzka prests hefur reynzt bæði
mikill og fjölþættur. Hér er sem
sé ekki aðeins um hreint kirkju-
legt starf að ræða, heldur einn-
ig og ekki síður félagslegt. Hér
í borg er t.d. margt gamalla ein-
mana íslendinga, sem hefðu lítil
tengsl við ættjörðina ef ekki
nyti prestsins við. Hinn íslenzki
prestur hefur einmitt lagt mikla
áherzlu á að ná sambandi við
sem flesta landa, sem hér búa,
og mun þessi mikilvægi þáttur
starfs hans lítt kunnur heima
fyrir.
Hitt mun Islendingum kunn-
ara af blaðaskrifum, að prestur-
inn hefur unnið ósérhlífi’ð hjálp-
arstarf vegna sjúklinga, sem
leita sér læknishjálpar hér, sem
ekki fæst á Islandi. íslenzku
þjóðfélagi ber skylda til að
greiða fyrir slíkum sjúklingum
eftir megni. Við teljum að eng-
inn annar íslenzkur aðili, sem
fyrir er hér í borg geti veitt
slíka fyrirgreiðslu sem prestur-
inn hefur veitt.
Við höfum fullan skilning á
sparnaðartilraunum íslenzka rík
isins, en teljum óheppilegt að
þær bitni á hjálparstarfsemi við
gamalmenni og sjúklingá, eins
og hér er um að ræða.
Virðingarfyllst,
Armann Kristjánsson,
gjaldkeri íslendingafélagsins.
Guðrún Eiríksdóttir,
me’ðstjórnandi íslendingafél.
Erla Salómonsdóttir,
ritari Félags íslenzkra stúdenta
í Kaupmannahöfn.
Ólafur Albertsson,
gjaldk. Slysavarnadeildarinnar
Gefjunar.
Erlendur Búason,
ritari íslendingafélagsins.
Stefán Karlsson,
fyrrv. form. íslendingafélagsins.
Geir A. Gunnlaugsson,
form. F.Í.S.K.
Vilhjálmur Guðmundsson,
fulltrúi Flugfélags íslands h.f.
Guðbrandur Steinþórsson,
gjaldkeri F.Í.S.K.
Þorsteinn Vilhjálmsson,
varaform. íslendingafélagsins.
Biaira vill iriðarvið-
ræður innan 24 klst.
Aba, Biafra, 23. apríl AP-NTB
HERNAÐARLEIÐTOGI að-
skilnaðarríkisins Biafra, Odu
megwu Ojukwu, hefur farið
þess á leit við stjórnina í
Lagos, að friðarviðræður
milli ríkjanna hefjist innan
tveggja sólarhringa. Ojukwu
sagði á blaðamannafundi í
Aba í gærkvöldi, að ef sam-
bandsríki Nígeríu hafi áhuga
á friðsamlegri lausn borgara
styrjaldarinnar, væri það
skylda stjórnarinnar þar að
taka samningatilboði sínu.
Skilyrði Biafra-stjórnar fyr-
ir friðarviðræðum er vopna-
hlé, er gangi samstundis í
gildi, viðræður ráðherra, sem
fram fari í þriðja Afríkurík-
inu og viðræðunum stjórni
talsmenn Biafra- og Lagos-
stjórnanna. Ojukwu sagði
ennfremur, að án vopnahlés
væru friðarviðræður tilgangs
lausar.
Um 80 manns fórust í loftár-
ásum flughersins í Lagos á Aba
í gær, að því er upplýst var í
dag. Sjúkrahús fylltust þegar af
særðu og deyjandi fólki. Opin-
ber talsmaður aðskilnaðarstjórn
arinnar sagði, að hætta væri á
að dánartalan væri mun hærri,
þegar öll kurl kæmu til grafar.
Biaframaðurinn Dick Tiger,
heimsmeistari í léttri þungavigt,
kom tll New York í dag, þar
sem hann mun verja titil sinn
gegn Bob Föster 23. maí. Tig-
er hefur barizt með Biafralhern-
um og sagði hann við komuna
til New York, ,að hér væri um
að ræða baráttu fyrir lífi heill-
ar þjóðar. Kvaðst Tiger þess
fullviss, að Biafraher mundi
fara með sigur af hólmi í borg-
arastyrjöldinni.
Iðnaðarmálaráðherra
IMoregs hingað í maí
í BYRJUN maímánaðar n.k. er
iðnaðarmálaráðherra Noregs
væntanlegur í opinbera heim-
sókn hingað til lands og er þetta
endurgjald á heimsókn Jóhanns
Hafsteins til Noregs sl. haust.
Hinn norski iðnaðarmálaráð-
herra mun kynna sér málefni ís-
lenzks iðnaðar og veita upplýs-
ingar um þróun norsks iðnaðar
að undanförnu.
Umferðaröryggisnefnd Akra
ness undirbýr H-dug —
AKRANESI, 22. apríl —
Umferðaröryggisnefnd Akra
ness og nágrennis var stofnuð í
feb. s.l. og tók þegar til starfa.
Verkefni nefndarinnar er að
stuðla að aukinni umferðarmenn
ingu á Akranesi og nærsveitum.
Nefndin kaus sér sérstaka
framkvæmdastjórn til þess að
sjá um framkvæmdir sínar. Er
hún skipuð þeim Björgvin Sæ-
mundssyni, Birni Péturssyni og
Stefáni Bjarnasyni.
Nefndin hefir látið gera
nokkrar athuganir á umferðamál
um og því hvað gera mætti til
þess að auka öryggi í umferð-
inni á svæði nefndarinnar. M.a.
hafa þjóðvegir á svæðinu verið
teknir til sérstakrar athugunar
og vegamálastjóra ritað bréf með
ábendingum og óskum um lag-
færingar mestu hættustaðanna á
hinum fjölfarna vegi um Hval-
fjörð í Borgarfjörð. Bæjaryfir-
völd á Akranesi hafa, í samráði
við nefndina látið merkja gang-
brautir á þeim stöðum í bænum,
sem reynslan hefir sýnt, að
þeirra er þörf til öryggis gang-
andi vegfarendum. Á vegum
nefndarinnar hafa verið fluttir
nokkrir fræðsluþættir á fundum
í félögum á Akranesi og er ætl-
unin að halda því starfi áfram.
Dagana 21. — 28. apríl er
sérstök umferðarvika, sem ætl-
uð er fyrst og fremst til leið-
beiningar og fræðslu um betri
umferð. í tilefni þessa hefir
nefndin gefið út bækling, snið-
inn sérstaklega fyrir Akranes,
og er honum dreift um starfs-
svæði nefndarinnar ásamt
fræðsluritum framkvæmdanefnd
ar hægri umferðar. í umferða-
vikunni verður löggæzla mjög
aukin á götum bæjarins og enn-
fremur verða unglingar úr skól-
um bæjarins starfandi sem um-
ferðaverðir við gangbrautir. Þá
eru ráðgerðir fræðslufundir bæði
á Akranesi og í sveitunum.
Fleira hefir nefndin í huga og
má t.d. nefna aðstöðu til aksturs
æfinga fyrir bifreiðastjóra og
æfingabrautir fyrir hjólreiðar.
Umferðaröryggisnefnd Akra-
ness og nágrennis hvetur alla
íbúa umdæmisins til þess að
kynna sér umferðalögin og um-
ferðareglur. Með því að efla
þekkingu sína á umferðamálum
og temja sér tillitssemi og gætni
í umferðinni verður breytingin
í hægri umferð miklu auðveld-
ari, og reynsla Svía hefur sýnt,
að með samstilltu átaki allra
vegfarenda má ekki aðeins forð-
ast aukin slys heldur fækka
þeim að mun. Það ætti að vera
metnaður okkar allra. — J.Þ.
Björgunarsveit fallhlífa-
stökksmanna á æfingu
STOFNUÐ hefur verið björgun
arsveit fallhlífarstökksmanna,
sem starfa mun innan Flugbjörg
unarsveitarinnar. Sjö menn
mynda þessa deild, og er mikill
i hugur í þeim að æfa vel nú í
í sumar.
I Fyrir skömmu fóru þrír deild-
| armanna, Sigurður Bjarklind,
Eiríkur Kristinsson og Hermann
Isebarn með lítilli flugvél og
stukku út yfir Bláfjöll. Var þetta
þeirra fyrsta fjallaferð á sumr-
inu. Þeir höfðu með sér skíði,
sem þeir köstuðu út á undan í
fallhlíf. Mennirnir völdu sér
skafla til að lenda í og tókst
lendingin vel. Síðan var gengið
að skíðunum og fengu þeir skot-
færi tii byggða aftur. önnur æf-
ing er áformuð um hvítasunn-
una.
Oddviti Skeggjastaðahrepps í N orður-MúIasýslu, Magnús Jó-
hannsson, að störfum í „oddvita herberginu“.
Sombond íslenzhra sveitarlél.
opnar „oddvitaherbergi"
Samband ísl. sveitarfélaga hef
ur nú tekið þá nýlundu upp í
starfsemi sinni að útbúa á skrif
stofu sinni að Laugavegi 105
gestaherbergi eða skrifstofu fyrir
oddvita og aðra sveitarstjórnar-
menn sem erindi eigaií Reykja-
vík. í herberginu er skrifborð,
sími og aðstaða til bréfaskrifta,
samtala og smáfunda. Hafa þegar
margir sveitarstjórnarmenn utan
af landi notfært sér þessa þjón-
ustu og látið í ljós ánægju með
hana.