Morgunblaðið - 25.04.1968, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRfL 19««
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
SUMRI FAGNAÐ
j dag er sumardagurinn
fyrsti. Sumum finnst nóg
um frídaga á íslandi, en það
er engin tilviljun að þessum
degi er fagnað á íslandi- Vet-
urinn leggst þungt á menn
hér á landi og beðið er eftir
sumrinu með óþreyju og von
um að það verði hlýtt og
gott, en jafnframt ótta um
að veðráttan verði ekki nægi-
lega vinsamleg eins og stund-
um hefur orðið.
Það er enginn vafi á því að
skammdegið hefur slæm
áhrif á íslendinga. Nóg er að
benda á þá staðreynd, að slys
á mönnum og hvarf er mjög
algengt í janúarmánuði og
segir það sína sögu. En þeg-
ar skammdegið hefur slík
áhrif á íslendinga nútímans,
sem búa við hin mestu þæg-
indi, getum við kannski
ímyndað okkur hvaða áhrif
sá árstími hefur haft á fólk
hér áður fyrr.
Liðinn vetur hefur verið
okkur erfiður að flestu leyti.
Veðráttan hefur verið með
versta móti. Frosthörkur og
annar veðurofsi mikill og
hafís við landið nú fyrir
skömmu. Vertíðin hefur einn
ig verið erfið. Hún hefur að
vísu gengið nokkuð vel frá
Grindavík til Hornafjarðar,
en hún hefur gengið illa frá
Faxaflóa til Vestfjarða. Þetta
hefur einhig verið erfiður
vetur til sveitanna eins og
hlýtur að verða þegar frost-
hörkur eru svo miklar sem
verið hefur í vetur.
Það er því rík ástæða til
þess fyrir okkur að fagna
sumri og sól. Vonandi er
að þetta sumar verði hlýtt og
gott og ekki síður að sjórinn
og landið verði gjöfulli nú
en í fyrra, þótt hætt sé við
að svo verði ekki. En íslend-
ingar hafa alltaf orðið að
lifa á bjartsýninni að miklu
leyti. Gleðilegt sumar.
EINKAFRAM-
TAK OG FJÁR-
FESTINGAR-
STOFNUN
(^jtjórn Sambands ungra
Sjálfstæðismanna hefur
sent frá sér ávarp um opin-
bert framtak og einkarekst-
ur- Ávarp þetta er hógvært,
en það einkennist af rök-
festu. Með sterkum rökum
er vakin athygli á því, að
rík tilhneiging virðist vera
til ^stöðugt aukinna áhrifa
opinberra aðila á atvinnu-
rekstur og um leið vantrú á
að samtök einstaklinga geti
leyst þau viðfangsefni, sem
krefjast úrlausnar á sviði
atvinnumála.
S áskorun Sambands ungra
Sjálfstæðismanna segir m.a.:
„Það er í hæsta máta ólík-
legt, að sá stóri hópur lands-
manna, sem veitt hefur einka
framtakinu brautargengi, sé
þess fús, að taka hugsanleg-
um afleiðingum ört vaxandi
ríkisreksturs, er kunna að
draga úr hagvexti og þrengja
að lýðræðislegum stjórnar-
háttum. Sporna ber gegn
auknum ríkisrekstri með því
að gera einkaframtakinu
kleyft að takast á við stór-
verkefni framtíðarinnar. Al-
menningshlutafélagsformið
er líklegast til að leysa þenn-
an vanda, en til þess þarf að
búa þessu rekstursformi
eðlileg lífsskilyrði m.a. með
stofnun fjárfestingarbanka.
Fjárfestingarbanki hefur það
hlutverk að fylgjast með
nýjum hugmyndum að arð-
vænlegum fyrirtækjum, að-
stoða við undirbúning at-
vinnureksturs með könnun
á gildi hugmyndanna og
leggja til fé í byrjun á móti
einkafjármagni með hlutafjár
framlögum og lánum. Þegar
slík fyrirtæki komast á legg
og þau eru farin að skaþa
sér traust, þá selur fjárfest-
ingarbankinn hlutabréf sín
almenningi. Hann fjárfestir
síðan í nýjum fyrirtækjum
koll af kolli“.
Það er sannarlega ánægju-
legt að ungir áhugamenn um
stjórnmál hafa gert sér grein
fyrir þeirri hættu, serri fylgir
sívaxandi viðleitni ríkis-
valdsins til þess að auka
áhrif sín í atvinnurekstri
landsmanna. Sú viðleitni
mótast jafnframt af óþarfa
trú á því, að einkafram-
takið geti ekki sinnt hlut-
verki sínu í atvinnulífinu,
sem það getur, ef því er sköp
uð eðlileg starfsaðstaða.
Þá er einnig í þessari
áskorun drepið á merkt mál,
sem er fjárfestingarstofnun,
sem ýmist lánar eða leggur
fé í ný atvinnufyrirtæki
meðan þau eru að komast á
legg en selur síðan hlut sinn
til almennings- Það mál er
þess virði að því verði nánari
gaumur gefinn.
Rússor beðnir að hætta
íhlutun í téhknesk múlelni
— segja heimildir í Prag
Prag, 23. apríl — AP
ÞESS var farið á leit við Sov
étríkin í dag, að þau hættu
að skipta sér af tékkneskum
innanríkismálum, eða þau
mættu eiga það á hættu, að
fulltrúar Tékka gangi af al-
þjóðlegri ráðstefnu kommún
ista í Búdapest á morgun,
miðvikudag, að því er áreið-
anlegar heimildir herma.
Fréttastofa AP skýrir ekki
frá því hverjar þessar heim-
ildir eru.
Heimildir þessar segja, að
tékkneska sendinefndin á ráð-
stefnunni hafi fengið fyrirmæli
um að gera fulltrúum Sovétríkj
anna það ljóst, í eitt skipti fyrir
öll, að tékkneska stjórnin vilji,
að Kreml hætti íhlutun í innan-
ríkismál Tékkóslóvakíu. Stjórn-
in í Kreml hefur stutt eindregna
andstæðinga frjálslyndis tékkn-
eska flokksleiðtogans, Alexand-
ers Dubceks. Fyrrv. leiðtoga
tékkneskra kommúnista, No-
votny, hefur verið vikið frá völd
um, en hann á enn sæti í mið-
stjórn flokksins.
Heimildirnar segja, að for-
manni sendinefndarinnar, Josef
Lenart, hafi verið heimilað að
ganga af fundi, ef Sovétfulltrú-
arnir ráðiist gegn nýrri þróun
mála í Tékkóslóvakíu.
Mynd þessi sýnir hluta flaks-
ins af Boeing-707 farþegaþot-
1 unni, sem fórst í Suður-Afríku
s.l. laugardag, en í slysi þessu I
létu 122 manns lífið. Að sögn i
var orsök slyssins sú að eldur ,
kviknaði í öðrum hreyfli þot-
unnar undir vinstri væng, en)
samskonar farþegaþota fórst {
á Heathrowflugveli við Lond |
on nýlega af sömu sökum. Þá
tókst þó betur til, því aðeins I
fimm manns fórust þar en 119 {
Enn ferst þota at
gerðinni F1U-A
Saigon, 23. apríl. AP-NTB. j
BANDARÍSK þota af gerðinni ■
F-lll A fórst í gær í árásarleið- j
angri á N-Vietnam, að því er
bandaríska herstjórnin í Saigon
upplýsti í dag. f tilkynningu her
stjórnarinar um málið segir:|
„Þota frá flughernum, F-llll A,
týndist aðfaranótt mánudags og
er talin hafa farizt í Thailandi.
Engar frekari upplýsingar liggja
fyrir“. Þetta er þriðja F-lll A
þotan sem ferst í SA-Asíu eftir
að þessar þotur voru teknar í
gagnið í Vietnam-styrjöldinni
fyrir fjórum vikum.
F-lll A er háþróaðasta og um-
deildasta þota bandaríska flug-
hersins og kostar smíði hennar
6 milljóir dollara. Sex þotur af
þessarj gerð komu til bækistöða
sinna á Takhli-flugvellinum í
Thailandi 17. marz sl., og þær
hófu loftárásir á N-Vietnam 25.
marz. Þrjár þessarra þota hafa
nú farizt, eins og fyrr segir
Mest nýjung við F-lll A þotuna
eru vængirnir, sem eru hreyf-
anlegir í samræmi við flughæð
og braða. Þá er talið, að ýmis
njósnatæki séu um borð í vél-
inni, sem gætu komið kommún-
istum í SÁ-Asíu í mjög góðar
þarfir. Fyrsta þotan af þessari
gerð, sem fórst, hefur aldrei
fundizt og er álitið að hún bafi
verið skotin niður yfir N-Viet-
nam eða Laos. Önnur þotan fórst
í N-Thailandj og komust báðir
flugmennirnir af. Ekki er vit-
að um örlög flugmánna þotunn-
ar, sem fórst í gær.
Sendiherra Hanoi ræð-
ir við Mexico-forseta
—Orðrómur um að undirbúningsfundur um
frið í Viefnam verði í Mexicoborg
París, Varsjá, 23. apríl —
AP-NTB —
AÐALRITARI SÞ, U Thant,
sagði í dag, að hann vonaði
að undirbúningsfriðarviðræð
ur stjórnanna í Washington
og Hanoi gætu hafizt við
fyrsta tækifæri, ef til vill
í þessari viku. Sagði U
Thant, að þessar viðræður
gætu farið fram í Phnom
Penh ,höfuðborg Kambódíu,
Varsjá, Genf eða París.
Bandaríkjastjórn vill hins
vegar hvorki fallast á
Phnom Penh eða Varsjá
sem æskilega fundarstaði
,.með það í huga að tefja
fyrir viðræðunum og veikja
stöðu N-Vietnam-stjórnarinn
ar“, að því er segir í aðal-
málgagni pólska hersins í
dag.
S'á orðrómur gekk í Washing-
ton í dag, að Bandaríkjastjórn
og stjórnin í Hanoi hefðu kom-
izt að samkomulagi um fundar-
staðinn, en því var neitað af
hálfu opinberra yfirvalda
bandarískra.
Sendiherra N-Vietnam á
Kúbu fór flugleiðis til höfuð-
borgar Mexíkó í dag' til við-
ræðna við forseta Mexíkó,
Gustavo Diaz Ordaz og mexí-
kanska utanríkisráðherrann. Sá
orðrómur komst þegar á kreik,
að Hanoi-stjórnin væri að kanna
möguleika á því að halda undir-
búningsfundinn í Mexíkóborg.
Talsmaður mexíkanska utanrík-
isráðuneytisins sagði, að viðræð
ur Ordaz og sendiherrans færu
fram að beiðni stjórnar N-Viet-
nam, þótt ekkert stjórnmála-
samband sé á milli N-Vietnam
og Mexíkó. Tilgangur þessara
viðræðna var samkvæmt opin-
berri yfirlýsingu, að skýra af-
stöðu Hanoi til Vietnam-striðs-
ins. Tengsl Mexíkó og Banda-
ríkjanna eru mjög náin og
hyggst Johnson Bandaríkjafor-
seti þitta Ordaz að máli seinna
á þessu ári í sjötta sinn á for-
setaferli sínum.
Samkomulag
Moskvu, 20. apríl. — AP:
AL.ÞJÓÐLEGT samkomulag um
björgun geimfara, sem lenda
kunna í hættum á jörSu niðri,
verður undirritað í Moskvu,
London og Washington nk. mánu
dag.
Samkomulag þetta hefur
náðzt fyrir milligöngu Samein-
uðu þjóðanna og geta allar þjóð
ir gerzt aðilar að því. Undirritun
samkomulagsins fer fram með
viðhöfn í höfuðborgunum þrem
ur, Moskvu, London og Washing
ton, utanríkisráðherrarnir skrifa
undir hver á sínum stað, en sendi
herrar landanna í hinum borg-
unum.