Morgunblaðið - 25.04.1968, Síða 17

Morgunblaðið - 25.04.1968, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1988 17 Þokusól á sumarmálum 'ÞOKUSÓL Á SUMARMALUM ÞAð VAR fimmtudagur síðast- 'Vr í vetri, — þessi undarlegi ng óvenjulegi morgun þegar þok ían var svo þykk að þílar urðu •að aka með fullum ljósum á götum höfuðstaðarins löngu eft- ■ir sólarupprás. — Samt leið ekki á löngu áður en Akra- ■borgin kom í leitirnar við Sprengisand, þar sem hún lá, •nýförðuð og fín eins og pipar- mey, sem finnst einhver tilgang- ur í að halda sér til fyrir heim- inum. Svo er haldið af stað á stundinni kl. 8. Þetta er óvenju- legt ferðalag á þessari sjóleið. Það hefur verið hlakkað til að njóta fegurðar landsins þennan lognkyrra morgun. En hvað skeð ur! Það sést ekki nema örfáa metra út fyrir borðstokkinn. Haf yngri og æskufjörið þeim mun méira áberandi. Þetta eru rösk- legir og tápmiklir strákar, sem ljóma af líkamshreysti og lífs- gleði, klæddir svörtum Hvann- eyrarpeysum sínum í hvítu sól- skini vorsins. Allar búsáhyggjur út af lítilli mjólk og lágum fall- þunga eru svo blessunarlega fjarri. Þegar maður er orðinn bóndi og á svo mikið undir sól og regni þá verður nógur tími til að berja sér og kvíða fyrir köldum v orum, graslitlum sumr- um, hretviðrum haustsins og vetrarhörkum og öðrum venju- legum búmannsraunum, en í dag á fögrum æskunnar vegi og glöðum skóladegi á slíkt engan rétt á sér. I stuttri blaðagrein verður ekki drepið á nema fátt eitt af Nemendur við vélfræðinám. ið er dáið og landið er horf- ið og heimurinn er ekki lengur til utan þessa litla skips. Hér er obboð rólegt og lítið um að vera — 2 bílar og örfóir farþegar, sem láta fara vel um sig í þægi- legum farþegasalnum. Farið kost ar 155 kr. (single) og þó okk- ur þvki það mikið, þá segir það sjálfsagt lítið upp í allan út- gerðarkostnaðinn. Undirballans- inn erfiða skattþegarnir eftir öðrum leiðum og hvað er að fást um það á þessum örðugu tímum almenns hallareksturs til sjós og lands. Vel skilaði Akraborgin sínum fáu farþegum á ákvörðunarstað — 7 mínútum á eftir áætlun þrátt fýrir hnausþykka þokuna. Út úr þykkninu kemur borg Skagans á móti okkur með sín- um snotru, nosturslegu húsum og hvorki ryk né slor. Þó er sem- entsvinnsla og útgerð blóðgjaf- ar athafnalífsins í þessum bæ, síðan hætt var að rækta hinar landskunnu Skaga—kartöflur. Þokan skilur ekki við okkur hana mótar óglöggt fyrir grá- hvítum kringlóttum bletti all— þó á land væri komið. Gegnum hátt á austurlofti. Þótt ótrúlegt sé, er þetta sólin sjálf. Því skyldi enginn trúa. Og ólík er hún því, sem gekk til viðar eins og rauðmálaður tunnubotn vestur við Jökul seint um kvöld ið þennan sama dag. Og á milli hádegis og sólarlags gerist sú saga, sem hér verður sögð. Sögu sviðið er miðstöð íslenzkrar búnaðarfræðslu, Hvanneyri. Þangað er alltaf ánægjulegt að koma og njóta gestrisni frú Ragnhildar og Guðmundar skóla stjóra. Þetta er síðasti kennsludagur- inn. Á morgun byrjar upplestr- arfríið. Svo koma prófin hvert af öðru. Fyrir miðjan næsta mán uð verður skólanum lokið að þessu sinni — nema fram- haldsdeildinni. Eftir hádegisverð hefur þok- unni létt. Þá er gengið með nemendum og kennurum út í skólagarðinn þar sem brjóst- myndir gömlu skólastjóranna horfa af stöllum sínum á þenn- an ókvíðna, æskuglaða hóp. Hann ber á sér sama svip og nemendurnir, sem þeir voru að búa undir búskapinn og lífið á sínum tíma, aðeins 2—3 árum því sem gestur á Hvanneyri fær heyrt og séð á þessu gamla og virðulega skólasetri, sem er í stöðugri eflingu og framför í samræmi við kröfur tímans. Hér eru heimilisfastir um 70 manns, skólastjóri, kennarar og starfs- að tvískipta eldri deild í fram- tíðinni. Til þess þarf aukna kennslukrafta og til þeirra þarf meiri peninga. Vonandi reynist þetta kleift með góðri fyrir- greiðslu stjórnarvalda, enda hafa þau sýnt góðan skilning á bættri aðstöðu fyrir búnaðar- fræðsluna í framtíðinni. Er bygg ing nýja bændaskólans á Hvann eyri ljósasti votturinn um það. Nemendur á Hvanneyri í vet- ur er úr öllum sýslum lands- ins nema tveim. Höfuðborgin á þar líka sína fulltrúa eins og venjulega. Félagslífið segja nem endurnir hafi verið með líkum hætti og undanfarin ái\ Þeir hafa með sér taflfélag og íþrótta félag, hestamannafélag og mál- fundafélag til að æfa sig í að koma fyrir sig orði. Skólinn er aðili að samstarfsnefnd skólantia í héraðinu, sem starfað hefur með ágætum árangri, ekki sízt að gagnkvæmum kynnum og heimsóknum við stúlkurnar í húsmæðraskólanum á Varma landi- Ennfremur hafa þeir heim sótt húsfreyjuefni Suðurlands á Laugarvatni. Skal maður vona, G. Br. skrifar: að slíkt framtak beri þann bless unarríka á rangur, þótt seinna verði, að einsetumönnum í sveit- unum fari fækkandi í framtíð- inni. Eins og yfrr segir geta nem- endur lokið almennu bú fræði- fræðinámi á Hwanneyri á 12 árum eftir því hverja undirbún- ingsmenntun þeir hafa. Um fram haldsdeildina gildir að nokkru leyti það sama. Stúdentar, sem jafnframt hafa búfræðipróf, geta orðið kandidatar eftir 3ja ára nám, aðrir, gagnfræðingar og Grétar Einarsson talaði um Jarðvegstætara, Jón Hólm Stef- ánsson um Jarðveg og jarð- vinnslu, Valur Þorvaldsson um Áburð og áburðaráætlanir, Jó- hannes Torfason um Klaufhirð- ingu nautgripa, Ólafur Geir Vagnsson um Ræktun og notkun fóðurkáls, Áslaug Harðardóttir um ftölu (ákvörðun um tölu þess búfjár, sem reka má til af- réttar) og Gunnar Sigurðsson ræddi um Áhrif verkunaraðferða á efnainnihald heys. Prófnefnd framhaldsdeild- arinnar á Hvanneyri er skipuð af landbúnaðarráðherra. í henni eiga sæti þeir Kristján Karls- son, fyrrv. skólastjóri, Pálmi Einarsson, landnámsstjóri og Pét ur Gunnarssön, forstjóri. Á Hvanneyri er fleira stund. að í þágu búmenntunar og bún- aðarfræðslunnar heldur en kennslan ein. Þar eru samdar kennslubækur go fleiri rit um búnaðarmál. Skemmst er að minn ast hinnar miklu og nýstárlegu búfjárfræði Gunnars Bjarnason- ar, sem Bókaforlag Odds Björns sonar gaf út. Gunnar hefur líka samið Búnaðarsögu og kennar- arnir Magnús Óskarsson og Ótt- ar Geirsson hafa samið mikið rit: Jarðræktarfræði í þremur bindum, (Áburðarfræði, Jarð- vegsfræði, (Vatnsmiðlun). Eru þessar tvær síðasttöldu bækur fjölritaðar á Hvanneyri og not- aðar við kennsluna. Þessarar bókagerðar er minnst hér vegna þess að nú hafa Hvanneyringar nýlokið við mik- sem er skrá um ritgerðir, sem komið hafa í tímaritum og viku- blöðum fram að aldamótum um búnaðarmál, flokkaðar eftir efni og aldri. Enda þótt skrá þessi sé ekki tæmandi um ísl. búnað- arritgerðir, er hún mikið verk og til ómetanlegs hagræðis fyrir alla þá, sem vilja kynna sér fólk við skólann, ásamt fjöl- skyldum sínum, sóknarprestur og búvélatilraunastjóri, sem líka eru kennarar, dýralæknir, starfs menn búfjárræktarstöðvar (sæð ingarstöðvar) Búnaðarsambands ins o.s.frv. Hér fjölgar húsum og vex byggð. Nú ber vitanlega mest á stórbyggingu búnaðar- menn að einangrun og innrétt- ingu á þeirri álmunni, sem ris- in er. Þar verða emenda- og kennaraíbúðir. Það er mikið hús og rúmgott, þó ekki nema nokkur hluti byggingarinnar nemendur í heimavist. Nokkur herbergi hafa þegar verið tekin þar í notkun fyrir yngstu nem- endur framhaldsdeildar. En álíka margir og hið heim- ilisfasta fólk á Hvanneyri er, koma nemendurnir á haustin. í vetur hafa þeir verið 67, þar af 19 í yngri deild, 32 í eldri deild og 16 í framhaldsdeild. Af eldri deildar nemendum eru allt af allmargir, sem Ijúka námi á einum vetri. Og eftir aðsókn- inni undanfarið og eftirspurn- inni eftir skólavist næsta vetur að dæma, mun ekki vanþörf á Nemendur Hvanneyrarskóla. landsprófsmenn með búfræði- prófi, stunda nám við deildina áratugir síðan framhaldsdeildin var stofnuð. í vor munu út- skrifast þaðan 7 kandidatar. Allir munu þeir fá verkefni við rannsóknar- og leiðbeiningar- störf í þágu landbúnaðarins félagssamtaka hans og stofnana. Má af því marka að þörfin er ærið brýn fyi rrmenn með þá menntun, sem framhaldsdeildin veitir. Margir af þeim afla sér síðan frekari undirbúnings und ir lífsstarf sitt með framhalds- námi ytra. í hópi landbúnaðar- kandidatanna í vor er ein stúlka, Ásalug Harðardóttir úr Reykjavík. Er það önnur konan sem útskrifast úr framhaldsdeild inni. Þótt þess hafi ekki verið get- ið, er það máske engin nýjung, að elstu nemendur framhalds- deildar fara á fundi í hreppa- búnaðarfélögum í nágrenninu og verkefni, sem þeir hafa lagt sér- staka stund á í námi sínu, sum- ir jafnvel gert að sínu sérefni, ef svo mætti segja. Hér skulu nefnd ræðuefni þeirra sem út- skrifast í vor: það, sem ritað hefur verið um íslenzkan sveitabúskap. Það fyrsta, sem ritað var um búnaðarfræðsluna var hugvekja Jóns Sigurðssonar: Um Bænda- skóla á íslandi í Nýjum Félags ritum 1849. Margt í ritgerð J.S. Aslaug Haröardóttir í fram- haidsdeildinni á Hvanneyri: Skortur á góðutn sumarhögum rnikið vandamái. á við enn í dag. Námið á ekki að vera þurrt og ófrjó þekk- ingarleit heldur standa í nánu sambandi við líf og starf, svo að það komi að praktiskum not- um. Þannig farast forsetanum orð: „í allri þessari vísindalegu kennslu yrði að haía nákvæmt tillit til alls þess, sem nytsamt getur orðið í framkvæmdinni og þess vegna má ekki heldur vanta að auki tilsögn og æfingu í öll- Um verkum, sem til búskapar heyra. Piltar verða að taka þátt í allskonar vinnu, svo að þeir hafi gott verksvit. Þeir sem hag- ir eru, yrði að geta tekið sér fram í því. Þeir þurfa að sjá verklega, hversu koma má við allskonar jarðrækt, þekkja og kunna að beita verkfærum þeim, er þar til heyra. Þeir þurfa æfingu í að stjórna fólki og segja fyrir verkum. Þeir þurfa einnig að læra að leggja niður fyrir sér alla aðferð, alla vinnu og öll fyrirtæki í búskapnum, svo hver geti æfinlega séð fjár hag sinn glögglega og ætlast á um sérhvað, sem hann hefur fyr ir stafni eða ætlar að byrja, hvers árangurs hann muni geta vænt sér af því.“ Þó að menn mundu nú sjálf- sagt orða þetta eitthvað á ann- an veg heldur en Jón Sigurðs- son gerði í Nýjum Félagsritum fyrir 120 árum, þá má með sanni segja að þetta sé hlutverk bún- aðarfræðslunnar enn í dag, þ.ó. a.s. að búa nemendurna þannig undir ’ífsstarfið að þeir nái þeim tökum á verkefnum sínum að þau geti „orðið nytsöm í framkvæmdinni." Þetta hefur verið skemmtileg- ur og fróðleiksríkur dagur hér á Hvanneyri, þótt fátt af því, sem fyrir augun ber sé skráð í þessu greinarkorni. Sól hefur 1 skinið í heiði síðan aftíðandi há- I degi að hún þurrkaði þokuna I burt. Það kular með kvöldinu. ! Fjörðurinn ýfist af örsmáum bár ! um. Vorköld og sinugrá kemur ! jörðin úr sólbaði dagsins. Sum- ; armálarökkrið breiðir b’æju sína i yfir landið. Skólastjóri og kennarar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.