Morgunblaðið - 25.04.1968, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 19«8
Vigfús Þórðarson fram-
kvœmdastj. - Stokkseyri
Við erum stundum átakanlega
minnt á fallvalltleik lífsins.
Föstudagskvðldið 19. þ.m. laust
fyrir kvöidmatartíma gekk Vig-
fús Þórðarson, framkvæmda-
stjór Hraðfrystihúss Stokkseyrar
útaf skrifstofu verkalýðs- og
sjómannafélagsins Bjarma, glað-
ur og hress. Innan klukkustund-
ar er mér tilkynnt lát hans. Hann
varð bráðkvaddur á heimili sínu
á Stokkseyri, aðeins örfáum mín
útum eftir að hann kom heim til
kvöldverðar þetta kvöld. Maður
stendur orðvana við slíkum at-
burðum og þarf tíma til að átta
sig á að þetta geti raunveruiega
svona verið.
Og þó erum við svo oft vitni
þess hve bilið milli lífs og dauða
er skammt. Hér fellur frá maður
á bezta aldri, aðeins 54 ára gam-
all, í fullu starfi frá ótal óleyst-
um verkefnum, sem kröfðust
einmitt starfsorku hans og hugs
unar til að uppfylla vonir fólks
um að farsællega yrðu leyst. ,
Vigfús Þórðarson kom hingað
til Stokkseyrar í marzmánuði
1964 og hafði því verið hér í að-
eins fjögur ár, er hann féll frá.
Fyrirtækið, sem hann þá tók við
forstöðu fyrir var í rúst fjárhags
lega og allskonar erfiðleikar,
t
Faðir okkar,
Ólafur Guðmundsson
frá Dröngum,
Skjólbraut 4, Kópavogi,
andaðist í Borgansjúkrahús-
inu þriðjudaginn 23. apríl.
Börnin.
t
Útför
Guðsteins Gíslasonar
slökkviliðsmanns,
Hringbraut 66, Keflavík,
fer fram frá Keflavíkur-
kirkju laugardaginn 27. apríl
n.k. kl. 14 s.d.
Ólafía B. Guðmannsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
Arent Claessen,
fyrrverandi aðalræðismaður,
verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 26.
apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega
afbeðin, en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á
líknarstofnanir.
Sigríður J. Claessen.
t
Útför móður okkar,
Sigríðar Sigurðardóttir,
fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 26. apríl n.k. og
hefst kl. 13.30. Blóm og
kransar afbeðnir. Þeim sem
vildu minnast hinnar látnu
er bent á líknarstofnanir.
Viktoría Hannesdóttir,
Guðmunda Hannesdóttir,
Jóhannes Hannesson,
Guðmann Hannesson.
sem steðjuðu að. Aðkoma var
því ekki glæsileg. En Vigfús var
frálbærum hæfileikum gæddur
til að taka að sér starfið. Hann
hafði aflað sér yfirgripsmikillar
þekkingar á þeim viðfangsefn-
um, sem við var að fást, vinnslu
sjávarafurða og rekstri fisk-
vinnslustöðva. Hann hafði verið
skipstjóri á togurum, fiskimats-
maður, verkstjóri í frystihúsum
og auk þess var hann með verzl-
unarskólamenntun, sem gerði
honum kleift með glöggri bók-
haldsþekkingu sinni að hafaf ulla
yfirsýn yfir öll atriði mála, er
snertu reikningshald fyrirtækis-
ins.
Þessir hæfileikar hans sögðu
líka fljótt til sín í starfi hans við
fyrirtækið. Undir öruggri og há-
vaðalausri stjóm hans tók það
skjótum og ánægjulegum breyt-
ingum. Nýrra tækja var aflað,
hagræðingu í breyttum vinnuað
ferðum komið fram, samið um
hagkvæmari lánakjör og undir-
stöður að rekstri fyrirtækisins
treystar, þrátt fyrir efiðleika á
óal sviðtun, sem yfistíga varð,
svo sem skort á hráefni til
vinnslu, sem mjög háði fyrirtæk
inu á ýmsum árstímum.
Og Vigfús vann við fyrirtækið
af mikilli eljusemi og ábyrgðar-
tilfinningu. Um og fyrir kL 8 að
morgni var hann mættur á skrif
stofu sinni eða vinnustað, væri
hann ekki í útréttingum útí frá.
Leit eftir öllu og hafði gát á
hverjum hlut. Fór þar ekkert
fram hjá honum, sem sinna
þurfti og gildi hafði fyrir rekst-
ur fyrirtækisins. Og Vigfús var
í senn stórfeuga og víðsýnn at-
hafnamaður. Hann vildi gera
fyrirtækið að sofnun, sem væri
virt og metin, sem skilastofnun,
sem viðskiptaaaðilar gætu treyst.
Því marki hafði hann þegar niáð,
er hann féll frá, þó starfstími
t
Maðurinn minn, faðir okkar
og tengdafaðir,
Vigfús Þórðarson,
framkvæmdastjóri,
Njálsgötu 35,
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 26.
apríl kl. 3 e.h.
Blóm eru vinsamlegast af-
þökkuð.
Arnfríður Jóhannesdóttir,
Sigríður Vigfúsdóttir,
Halldór Steinarsson,
Kristin Hrönn Vigfúsdóttir,
Þórður Vigfússon,
Guðrún Kristín Antonsdóttir,
Þuríður Vigfúsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðar-
för móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
Matthildar Sigurðardóttur
Sörlaskjóli 5.
Elísabet Magnúsdóttir,
Halldóra Magnúsdóttir,
Karitas Magnúsdóttir,
Ingólfur Guðmundsson,
Guðrún Magnúsdóttir,
Jóhann Jóhannsson,
Rósa Magnúsdóttir,
Karl Þórðarson,
Hallgrímur Magnússon,
Svala Eiríksdóttir,
ísleifur Magnússon,
Fjóla Gnðmundsdóttir
Jón Magnússon,
Guðrún Bjarnadóttir,
Grimur Magnússon
Fríða Þorláksdóttir
og barnabörn.
feans við fyrirtækið yrði svo
stuttur, sem raun er á orðin.
En margt var óunnið og áreið
anlega voru mörg áformin í huga
hans um frekari aðgerðir til
uppbyggingar og aukningar at-
vinnulífs á Stokkseyri. Nýlega
hafði hann, í samráði við forráða
menn Stokkseyrarhrepps gengið
frá samningi um smíði tveggja
báta. Fullvíst er að höfuðþungi
þeirra framkvæmdaráðstafana
hefðu á honum hvílt.
Skarð hans stendur nú autt og
verður vandfyllt.
Á þeim fjórum árum, sem
Vigfús starfaði hér hafði ég við
hann mikil samskipti. Ég þurfti
svo til daglega að eiga við hann
viðræður um margskonar við-
fangsefni. Oft vorum við ósamí
mála um ýmis atriði og mörg
voru málin, sem við þurftum að
leysa og höfðum ólíkar skoðanir
á og vissulega kom stundum til
nokkurra átaka um ágreinings-
málin.
En ég mat Vigfús mikils, hæfi-
leika hans og mannkosti. Persónu
leg kynni mín af honum voru
líka öll á einn veg. Þar fór sam-
an prúðmannleg framkoma hans,
ágæt greind ,sem glöggt kom
fram I viðræðum við hann um
menn og málefni, ástúðlegar við-
tökur á 'heimili hans og hans
ágætu eiginkonu Arnfríðar Jón-
t
Alúðarþakkir til allra þeirra
sem vottuðu okkur samúð við
fráfall og jarðarför
Þóroddar Oddgeirssonar,
Bekansstöðum.
Valgerður Vestmann
og börn.
t
Þökkum innilega samúð við
andlát og útför,
Jóhannesar Jóhannessonar
Safamýri 93.
Sérstakar þakkir færum við
hjúkrunarfóiki á St. Jóseps-
spítala, sem veitti honum
fórnfúsa umönnun.
Margrét Finnbogadóttir,
Sigurgeir Svanbergsson.
t
Innilegt þakklæti fyrir sýnda
samúð við andlát og jarðar-
för elsku litla drengsins okk-
ar,
Halldórs Andréssonar,
Hrisateig 30,
sem lézt 15. apriL
Svanhvít Skúladóttir,
Andrés Jónsson
og börn.
hanngdóttur og j'áfnvægl feahs í
skapi og framkomu, hvenær og
hvar sem hann var að htta. Ég
minnist sérstaklega átta daga
ánægjulegrar dvalar með þeim
hjónum í Hveragerði á s.l. hausti.
Vgfús var fastur fyrir og ákveð
inn í skoðunum og hélt fast á mál
stað þeim, er hann gerði að sín-
um. Hann var drengskaparmað-
ur, hjálpfús og ráðfeollur vinum
sínum og samstarfsmönnum.
Glaðlyndur var hann og skemmt
inn í hópi vina og kunningja. Ég
sakna Vigfúsar verulega úr hópi
minna fáu vina. Fráfall hans
svona snöggt og óvænt kom sem
reiðarslag yfir Stokkseyri.
En enginn má sköpum renna,
Árin hans fjögur á Stokkseyri
verða í sögu þessa byggðarlags
athyglisverður þáttur úm starf,
dugnað og stórhug þess manns,
er tilviljun avikanna færði okk-
ur á réttu augnabliki, þegar þörf
in var mest.
,Stokkseyringar kveðja Vigfús
Þórðarson með þakklæti ’og virð
ingu. Vigfús verður jarðsettur
frá Fossvogskapellu kl. 3 á morg
un . ,
Ég sendi konu hans, börnum
og öðrum ástvinum, er svo mikið
hafa misst, mínar dýpstu samúð-
arkveðjur.
Blessuð sé hans minning.
Björgvin Sigurðsson.
Að kveldi hins 19 apríl barst
sú sorgarfregn út um byggðar-
lagið á Stokkseyri að Vigfús
Þórðarson framkvæmdastjóri
hefði þá um kveldið látizt að
heimili sínu þar í kauptúninu
Fregn þessi kom eins og reiðar-
slag yfir alla er til þekktu þar
eð Vigfús hafði verið í fullu
starfi hinn síðasta ævidag sinn
eins og alla aðra.
Slík skyndileg burtköllun
manns á besta aldri mitt í á-
byrgðarmiklu starfi vekur skelf
ingu og óhug og er sem leifr-
andi áminning um fallvaltleika
lífsins og jafnframt áminning
til þeirra sem lengra líf er léð
að hver ævidagur meðan heilsa
og kraftar endast er dýrmæt
gjöf sem ekki má sóa heldur
nota vel því engin veit nær nótt
in kemur og ekki verður unnið
þótt fátækleg orð sséu á slíkri
saknaðarstundu þá finn ég mig
kúninn til að minnast Vigfúsar
Þórðarsonar hér í blaðinu með
fáum orðum. En útför hans fer
fram frá Fossvogskirkju á morg
un. Vigfús Þórðarson fæddist í
Reykjavík 23 júní 1913 og var
dóttur og Þórðar Vigfússonar.Á
ungum aldir missti Vigfús föð-
ur sinn í sjóinn og kynntist
Þrátt fyrir erfiðleikana, braust
hann til mennta og lauk prófi
frá Verzlunarskóla fslands 17
ára gamall Fljótt eftir það hóf
hann sjómennsku á togurum en
sjósóknin var hans starf meiri-
hluta ævinnar Á árunum 1937-
38 var hann við nám í Stýri-
mannaskólanum og lauk þaðan
prófi var hann eftir það lengst-
um fyrirmaður á togurum og
oft skipstjóri hann átti heimili
á Patreksfirði á árunum 1939-
46. Og sigldi þaðan sem skip-
stjóri. Öll stríðsárin til Bret-
lands. Vafasamt er hvort fslendk
ir menn hafa nokkru sinni innt
af hendi hættulegri störf en
þessar siglingar stríðsáranna
voru enda var sá margur sem
ekki kom aftur. Þær voru mikil
þrekraun ekki aðeins fyrir þá
sem sigldu heldur og einnig fyr
ir ástvinina sem heima biðu.
Árið 1946 flutti Vigfús aftur
til Reykjavíkur og átti þar heim
ili lengstum síðan eða þar til
hann flutti til Stokkseyrar á
síðustu æviárum sínum. Árið
1957 hætti Vigfús sjámennsku
og var næstu árin við ýmis störf
m.a- við fiskmat á vegum Sölu-
Og á árunum 1962-64 verkstjóri
við hraðfrystihús Meitilsins hlf.
í Þórlákshöfn. Þann 12 nóv.
1939 kvæntist Vigfús eftirlif-
andi konu sinni. Arnfríði Jó-
hannesdóttur bónda að Sandá í
Svarfaðardal Stefánssonar.
Þeim hjónum var 4 barna auð
ið en þau eru Sigríður húsfreyja
í Reykjavík gift Halldóri Stein
aresyni skipasmið, Kristín starf-
stúlka hjá Loftleiðum Þórður
við nám í iðnaðarverkfræði í
Þýzkalandi kvæntur Heiðrúnu
Antonsdóttur og Þuríður sem er
við nám í gagnfræðaskóla. Árið
1964 urðu þáttaskil í lífi Vig-
fúsar Þórðarsonar. Snemma á
því ári réðist hann til Hrað-
frystihúss Stokkseyrar sern
framkvæmdastjóri og gengdi því
starfi til dauaðdags. Er hann
réðist til hraðfrystihússins stóð
það fyrirtæki á tímamótum.
Byggt hafði verið veglegt hús
yfir starfsemi þess og var það
mikið átak miðað við aðstæður
allar Miklar vonir voru tengd-
ar hinni nýju starfsaðstöðu enda
þar við bundin framtíð byggðar
lagsins í atvinnumálum. Er alger
forsenda þess, að þær vonir
mættu rætast, var að hæfur mað
ur fengist til að veita því for-
stöðu. Var hins nýja fram-
kvæmdasrtjóra beðið með mikilli
eftirvæntingu. Störf hans öll
við fyrirtækið urðu með þeim
ágætum að ekki varð á betra
kosið. rekstur þess tók algjör-
um stakkaskiptum svo þar má
heita að skeð hafi kraftaverk.
í dag hefur Hraðfrystihús
Stokkseyrar komist í tölu hinna
bezt reknu fyrirtækja sinnar
tegundar hér á landi og það svo
að athygli hefir vakið. Þetta er
fyrst og fremst verk Vigfúsar
Þórðarsonar enda hafði hann til
að bera felsta þá hosti sem for-
ustumann í atvinnumálum við
sjávarsíðuna þurfa að prýða.
Fyrst hafði hann með námi lagt
undirstöðu að víðtækri þekk-
ingu sinnii og aukið hana síðan
með áratugastarfi við sjósókn
og meðferð sjávarafurða. Eitt af
því sem gerði hann sérlega hæf
an til framkvæmdastjórastarfs-
ins var að þekking hans var
jafnvíg bæði í skrifstofu og bók
haldsstörfin annare vegar og á
vinnslu meðferð og mati fram-
leiðslunnar hinsvegar. Jafn al-
hliða þekking á öllum þáttum
starfsins og hann hafði til að
bera er fágæt enda varð ár-
angur starfs hans eftir því.
Sama var uppi á teningnum er
snerti öll viðskipti er hann
þurfti að annast vegan fyrir-
tækis síns út á við þá reyndist
hann snjall og hygginn með víð-
tæka þekkingu á fjármálum og
viðskiptamálum. Enda naut hann
trausts og virðingar allraþeirra
er hann þurfti að sækja til og
eiga skipti við. Starfsmönnum
sínum við fyrirtækið var hann
góður húsbóndi og var sam-
vinna hans og þeirra með ágæt-
um og taldi hann sjálfur það
eina meginforeendu þess góða
árangurs sem hann náði í starfi.
En þótt hagnýtt nám og þjálfun
langrar starfsreynslu sé hvoru
tveggja mikilvægt þá er þó sjálft
manngildið sem ræður. Engum
sem kynni hafði af Vigfúsi
Þórðarsyni duldist að þar fór
maður frábærlega traustur ein-
arður og fylginn sér og hinn
bezti drengur. Ég hygg, að I
byggðarlaginu sem hann helg-
aði krafta sína síðustu æviárin
hafi engin maður um langt ára-
biil notið jafn almenns trausts
og virðingar sem ahnn sökum
verka sinna og allrar framkomu
Ekki þarf að orðlengja hver
sjónarsviptir er við sviplegt frá
fall slíks manns. Þar er miss-
irinn að vonum mestur hjá eig-
inkonu og börnum og skulu
þeim færðar hér hlýjar samúð-
arkveðjur. Vigfúsi Þórðarsyni
eru fluttar hér af hrærðum hug
þakkir fyrir öll störf og öll
kynni liðinna ára sem aldrei
bar skugga á.
Hér á Stokkseyri er nú vissu-
lega söknuður i hvers manns
hug og hjarta. Söknuður sem
blandaður eru ugg og kvíða um
framkvæmd hinna mörgu verk-
efna sem nú eru forstöðulaus.
En látum þann ugg víkja fyrir
þeirri von að höfundur lífsins
sá er bjó hinn látna við okkar
frábærum starfskröftum og veitti
okkur það lán að njóta þeirra
þó um allt of fá ár væri gef
gefi okkur sem eftir lifum vit
og vilja til þeirra ráða ertryggi
áfram þá uppbyggingu sem hér
er hafin. Slíkt væri hinn verð-
ugasti minnisvarði er við gæt-
um reist Vigfúsi Þórðareyni og
án efa honum mest að skapL
Helgi ívarsson.