Morgunblaðið - 25.04.1968, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1968
31
Nv hlið á McCarthy
hann yrkir Ijóð í tómstundum
Öldungadeildarþingmaður-
inn Eugene McCarthy hefur
nú gert heyrum kunna nýja
hlið á hsefileikum sínum:
hann fæst við að yrkja ljóð,
og tímaritið Life birti fyrir
skemmstu tvö ljóða hans. >ví
kann svo að fara, að skáld-
menni setjist í forsetastól í
Bandaríkjunum á næsta ári,
ef vel viðrar fyrir Mc-
Carthy.
Annað tveggja ljóðanna,
sem prentuð voru í Life,
heitir „Lament for an Aging
Politician", lauslega þýtt
mætti kannski kalla það
„Harmaslagur aldurhnigins
stjórnmálamanns“.
Á ensku er kvæðið svo-
hljóðandi:
„The dream of Gerontion
is my dream
And Lowell’s self-salted
Night sweat, wet, flannel,
My morning’s shoulder
shroud,
Now, far sighted, I see the
distant danger
Beyond the coffin confines
of the telephone booths
My arms stretched to read,
in vain
Stubbornness and penicillin
hold the aged above me.
My metaphors grow cold
and old,
Eugene McCarthy
My enemies, both young
and bold
I have left Act I, for an
involution
And Act II. There mired in
complexity I cannot
write Act III.“
Ef ske kynni, að vefðist
fyrir lesendum, að skilja boð-
skap ljóðsins, lét öldunga-
deildarþingmaðurinn nokkrar
skýringar fylgja með. í I.
Vinnumiðlun kennuruskólunemu
f FRÉTT, sem Mbl. hefur borizt
frá Félagi kennaraskólanema,
segir á þessa leið:
Stjórn skólafélagsins hefur
ákveðið, að gangast fyrir vinnu
miðlun, kennaranemum og vinnu
veitendum til hægðarauka.
Skólafélagið hyggst koma
þessu í framkvæmd á þann hátt,
að fá menn úr sínum hópi til
að veita vinnuveitendum og
kennaranemum fyrirgreiðslu í
síma 32290.
Mánudaga kl. 1—3 e.h.
Þriðjudaga kl. 1—3 e.h.
Mðivikudaga kl. 1—3 e.h.
til 20. maí í vor.
Stjórn skólafélagsins vonast
til þess, að vinnuveitendur, sem
hug hafa á, að ráða kennara-
nema í þjónustu sína, leiti til
skrifstofunnar hið fyrsta. Til
álita koma öll algeng störf.
þætti er vandamálið skýrt. í
II. þætti er fjallað um flækj-
ur þess og afleiðingar, og í
III. þætti er greint og leyst úr
vandamálinu.
„Eg er sjálfur aðalpersónan
í II. þætti, Lyndon hirðir nær
eingöngu um III. þátt. Bobby
Kennedy kemur fram í I.
þætti, og lýsir því yfir að hér
sé vandamál á ferðinni. Hann
kærir sig yfirleitt kollóttan
um II. þátt, en er líkast til
byrjaður að athuga III. þátt
núna. Ógséfa Bobbys er
reyndar sú, að ætli hann að
sigra mig verður hann að
eyðileggja bróður sinn“.
Lowell sá, sem minnzt er á
í kvæðinu, er skáldið Robert
Lowell, en hann styður Mc-
Carthy í baráttu sinni um að
ná útnefningu Demókrata-
flokksins til forsetakosning-
anna n.k. haust.
Öldungadeildarþingmaður-
inn hefur nýlega fengið
skáldaköUun sína, raunar
er ekki nema eitt ár liðið síð-
an hann hóf yrkingar — þá
var hann 51 árs að aldri. Drög
að ljóðunum gerir hann á
ferðalögum sínum, gjarnan
í flugvélum og á hótelher-
bergjum. Síðan fágar hann
þau og endurskrifar, þegar
hann er kominn á skrifstofu
sína í öldungadeildarbygging
unni í Washington. Það fylg-
ir sögunni, að McCarthy muni
nú eiga í fórum sínum um 50
frumort ljóð.
Ný lit-
kvikmynd
um Island
Vm 20 nemendur í íslenzku-
deild Monitobnhóskóln
NEMENDUR við íslenzkudeild
Manitobaháskóla í Kanada eru
nú að meðaltali um 20. Deildin
var sett á stofn árið 1951 og
fyrsta árið voru nemendur 6. f
— Sovézk skáld
Fnamh. af bls. 1
vegis. Þetta hefur orðið til þess,
að sumir rithöfundanna hafa
dregið mótmæli sín til baka, og
ýmsir lýst því yfir, að þeir hafi
látið blekkjast af áróðri spilling
araflanna.
Bókmenntatímaritið Litera-
turna Gazeta fjallar um málið
í grein og fer háðulegum orð-
um um þau skáld, sem hafi lát-
ið undan þvingunum utan frá
og skrifað undir mótmælaskjöl.
Er lagt til, að rithöfundasam-
tökin sýni þeim höfundum í
tvo heimana, láti þeir ekki segj-
ast.
- MIKIÐ TJÖN
Framh. aT bls. 32
skrifstofur sveitarstjóra, en svo
vel vildi til að allt bókhald
vikjandi var heima hjá sveitar-
stjóra. Verðmæt skjöl hreppsins
voru í eldtraustum skáp og
oakaði þau ekki. Áhöld hússins,
vélar og aðrir innanstokksmun-
ir skemmdust mikið. Loftkynd-
ingartæki eru í húsinu og mun
það fremur hafa stuðlað að út-
breiðslu eldsins.
Tjón hefur ekki verið metið,
en það veltur á háum upphæð-
nýútkominni bók um íslenzka
þjóðarbrotið í Kanada, skrifar
Walter J. Lindal að fyrir sér-
staka hæfni í kennslu og með
góðri upplýsingastarfsemi hafi
próf. Haraldi Bessasyni, sem nú
veitir deildinni forstöðu, tekizt
að auka áhugann og fjölga nem
endum.
íslenzkudeildin starfar í ná-
inni samvinnu við ensku- og
frönsku- og þýzku deildirnar í
háskólanum, segir Líndal enn-
fremur. Sumir nemendanna eru
ekki af íslenzkum ættum. Jud-
ith Taylor, sem lauk námi í deild
inni, er hefur fengið námsstyrk
Háskóla íslands og stundar þar
framhaldsnám.
Þá segir Líndal: Reynslan hef-
ur sýnt, að nemendur eru ekki
reiðubúnir til að ferðast langar
leiðir til að stunda íslenzkunám
við Manitobaháskóla. Það er
lekki tilefni vonbrigða heldur
miklu fremur hvatning. Sá dag-
ur er ef til vill ekki svo fjarri
þegar stúdent frá Manitobahá-
skóla, sem útskrifaður er í ís-
lenzku þaðan, býðst til að fara
til annars háskóla í Kanada og
kenna þar íslenzku. Þannig
mætti koma íslenzkunámi inn í
háskóla eins og British Columb-
ia, Toronto, Queens og Laval.
í sambandi við íslenzkudeild
Manitobaháskóla er gott bóka-
safn, sem hefur 10 þúsund bindi
af bókum, og er talið eitt af
beztu bókasöfnum með vinnuað-
stöðu (working libraries) fyrir
íslenzkar bókmenntir og sögu,
að því er segir í ofanefndri bók.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ og
upplýsingaþjónusta Atlantshafs-
bandalagsins hafa látið gera kvik
[ mynd um fsland, en síðafnefndi
aðilinn hefur unnið að landkynn
ingar- og fræðslumyndum um öll
löndin í bandalaginu. Var mynd
in um fsland sýnd gestum í gær.
Kvikmyndin heitir „Prospect
of Iceland*' og er gerð í mjög
fallegum litum. Höfundur hennar
er Henry Sanders, sem 1952 gerði
svart-hvíta kvikmynd um fs-
land. En í flokki kvikmyndatöku
manna erú íslendingarnir Þor-
geir Þorgeirsson og Osvaldur
Knudsen. Hljómlist er með mynd
inni, „Úr Bjarkamálum" eftir
Jón Nordal og leikur Sinfóníu-
hljómsveit íslands hana.
Sonja og
Haraldur gifta
sig 29. ágúst
Osló, 24. apríl, — NTB —
ÁKVEÐINN hefur verið gift-
ingardagur Haralds, ríkisarfa
Noregs, og Sonju Haraldsen,
og fer vígslan fram í Ósló-
ardómkirkju fimmtudaginn
29. ágúst n.k. Fridtjov S. Birk
eli, biskup mun gefa hjóna-
efnin saman.
Búizt er við, að nokkrar end
urbætur og lagfæringar verði
gerðar á dómkirkjunni, aðal
lega á kómum. Ólafur kon-
ungur og Marta heitin krón-
prinsessa voru gefin saman í
þessari sömu kirkju þann 21.
marz 1929.
Gooafoss seldur
Eimskip undirbýr smíði 3ja skipa
M.S. „GOÐAFÖSS“, aem er elzta
skip Eimskipafélagsins, byggt
hjá skipasmíðastöð Burmeister
& Wain í Kaupmannahöfn 1948,
hefur verið á sölulista um nokk
urt skeið. Hafa nú tekizt samn-
ingar um sölu á skipinu til skipa
félagsins Cape Hom Shipping
Development Corportation í Mon
rovia í Líberíu. Verður skipið
væntanlega afhent kaupendum í
síðari hluta júnímánaðar.
Félagið hefur nú í undirbún-
ingi smíði tveggja nýrra frysti-
skipa og eins skips til almennra
vöruflutninga. Er gert ráð fyrir
að byggingu þeirra megi ljúka
á árunum 1970 og 1971. Skipin
munu verða útbúin öllum ný-
tízku tækjum, sjálfvirkni í vél-
arrúmi og verða lestar og lest-
arbúnaður gerður með það fyr-
ir augumáð tryggja fljóta ferm-
ingu og affermingu.
(Frá Eimskipafélagi íslands).
48.577 d kjörskrd í Beykjo-
vík við iorsetokjör
- 1396 20 óra
VIÐ forsetakosningarnar, sem
fram eiga að fara 30. júní n.k.
verða 48577 á kjörskrá í Reykja
vík samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Manntals-
skrifstofu Reykjavíkurborgar.
Við alþingiskosningarnar á sl.
sumri voru 46,292 kjóseindur á
kjörskrá í Reykjavík, en sú aukn
ing sem nú er á kjörskránni, staf
ar m.a. af því, að kosningarétt-
ur manna var færður niður í 20
ára aldur. Tala þeirra, sem nú
eru á kjörskrá og verða tvítug-
ir áður en kosning fer fram er
1396.
f viðtali blaðsins við Jónas
Hallgrímsson forstöðumann
Manntalsskrifstofunnar tjáði
hann blaðinu, að fyrirkomulag
og framkvæmd forsetakosning-
anna verði svipað og við und-
anfarnar kosningar og ekki er
búizt við að kjörstöðum eða kjör
hverfum verði fjölgað frá því,
sem hefur verið, þrátt fyrir
stækkun borgarinnar.
Hdtíðohöld sumardagsins
fyrsta í Kópavogi
HÁTÍÐAHÖLD sumardagsins
fyrsta í Kópavogi hefjast með
útisamkomu við Kópavogsskóla
kl. 1.30 e.h. Skólahljómsveitin
leikur undir stjóm Björns Guð-
jónssonar. Elín Finnbogadóttir,
kennari, setur samkomuna og
stjórnar henni. Andrés Kristj-
ánsson, ritstjóri, heilsar sumri
með stuttu ávarpi. Síðan verð-
ur þjóðdansasýning. Samkór
- UMBÓTAÁÆTLUN
Framh. af bls. 2
verjum, Ukraínumönnum og
Þjóðverjum, sem búa í Tékkó-
slóvakíu. Einnig vildi stjómin
koma í veg fyrir að of mikið
vald kæmist í hendur eins
manns.
Forsætisráðherrann greindi
einnig frá því, að leynilögreglan
yrði sett undir stjóm ríkisstjóm
arinnar og þingsins og sagði, a'ð
dregið yrði úr hömlum á ferða-
frelsi og öllum borgurum tryggt
að útvega sér lögfræðing í mála-
ferlum. Hann kvaðst ekki telja,
að neyðarástand ríkti í efnahags
málunum, en játa yrði að mörg
tækifæri hefðu glatazt og mik-
ilvægum breytingum væri ekkl
hægt að koma til lelðar í einu
vetfangi.
Kópavogs syngur undir stjóm
Jan Moraverks og loks leikur
hljómsveit ungra manna. Barna
skemmtanir verða í Kópavogs-
bíói kl. 3 og kl. 4.30 síðd. Merki
dagsins eru seld og rennur all-
ur ágóði af hátíðahöldum dags-
ins til sumardvalarheimilis Kópa
vogs í Lækjarbotnum.
Þing Slysovarno-
iélags 'islands r
sett í dag
LANDSÞING Slysavarnafélag
íslands hið fjórtánda í röðinni,
verður sett í dag. Hefst athöfn-
in með messu í Dómkirkjunni
kl. 5, þar sem biskupinn yfir ís-
landi, herra Sigurbjörn Einars-
son, prédikar.
Að guðsþjónustunni lokinni
verður Slysavarnaþingið síðan
sett í kvöldverðarboði í húsi
Slysavarnafélagsins við Granda-
garð. Forseti Slysavamafélags-
ins, Gunnar Friðriksson, setur
þingið.
Hátt á annað hundrað full-
trúar sækja þing Slysavarnafé-
lagsins að þessu sinni.
Gamlir bílar
Vil gjarnan kaupa bíla og/eða mótorhjól, árgerð
um 1900 — 1930. Ástand farartækisins skiptir ekki
máli (Má vera skrjóður). Sendið ljósmynd ef, hægt
er, ásamt nánari upplýsingum. (Verð o. s frv.).
Skrifið gjarnan á sænsku, ensku eða íslenzku til
Lars Öhman, Renstiernasgata 28, 116-31, Stockholm
Sö. Sverige.
* *
VI. ’58 VI. ’58
Aðgöngumiðar að nemendasambandsmótinu verða afhentir á skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykja-
Reykjavíkur, Austurstræti 17 föstudaginn 26. og
laugardaginn 27. apríl STJÓRNIN.