Morgunblaðið - 30.04.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 196«
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
BJARNI BENEDIKTS-
SON SEXTUGUR
¥ íklega gera menn sér al-
mennt litla grein fyrir
því gífurlega álagi, sem fylg-
ir þýðingarmestu stjórnmála-
störfum dag hvern, en hitt
ætti varla að fara á milli
mála, að þriggja áratuga for-
usta í hinum þýðingarmestu
þjóðmálum krefst meira
þreks en okkur er almennt
gefið
Bjarni Benediktsson vissi
það hálf þrítugur jafn vel og
allir aðrir, að hann hefði get-
að orðið mikill fræðimaður
á sviði lögvísinda. Honum
hefur vafalaust verið það
ljóst, að hann gæti á því
sviði vel þjónað þjóð sinni
og borið hróður hennar að
minnsta kosti á meðal frænd-
þjóðanna. Engu að síður
valdi hann sér hið erfiðara
hlutskipti, stjórnmálin, og
eftir því mun hann aldrei
hafa séð.
Saga stjórnmálaafskipta
Bjarna Benediktssonar verð-
ur ekki skráð nú, og sjálf-
sagt mundu menn ekki telja
Morgunblaðið hlutlausan
dómara, er fjallað er um
áhrif þau, sem Bjarni Bene-
diktsson hefur haft í ís-
lenzku þjóðlífi.
Um hitt geta menn ekki
deilt, að fáir eða engir menn
höfðu meiri áhrif á það en
Bjarni Benediktsson, að lýð-
veldi var stofnað á íslandi
1944 og íslendingar skipuðu
sér síðar í sveit frjálsra
þjóða til að tryggja öryggi
sitt og sjálfstæði. Þetta eitt
mundi auðvitað nægja til að
gera þátt hans í stjórnmála-
sögu landsins veigamikinn.
Sjálfstæðisflokkurinn bar
gæfu til þess að velja Bjarna
Benediktsson ungan til
mestu áhrifastarfa. Hann
stóð síðan við hlið Ólafs
Thors til hins síðasta, og hin
glæsilega forysta Ólafs og
Bjarna tryggði Sjálfstæðis-
mönnum mest og heilla-
drýgst áhrif í íslenzkum
stjórnmáþim.
Síðan Bjarni Benediktsson
varð forsætisráðherra hefur
enn meiri þungi hvílt á hans
herðum, og glíman við efna-
hagsörðugleika ekki verið
honum jafn geðfelld og stór-
orusturnar til að tryggja
sjálfstæði landsins.
En Bjarni Benediktsson
valdi sér sjálfur erfiðleikana,
og stærstur er hann þegar
þeir eru mestir. Þetta vita
samherjar hans og þess
vegna treysta þeir honum,
dómgreind hans og heiðar-
leika, allir sem einn, ekki sízt
þegar syrtir í álinn.
Á sextugsafmæli Bjarna
Benediktssonar flytur Morg-
unblaðið honum og fjöl-
skyldu hans beztu óskir og
þakkir fyrir allt það, sem
hann hefur fyrir blaðið gert,
og öllum íslendingum óskar
blaðið þess, að þeir megi enn
um langt skeið njóta starfs-
orku Bjarna Benediktssonar
og einstæðra hæfileika — og
við Morgunblaðsmenn vitum
hvers við erum að óska.
SLYSAVARNA-
FÉLAGIÐ 40 ÁRA
1 \ landsþingi Slysavarna-
* félags íslands lauk um
helgina og var þess m.a.
minnzt á þinginu, að 40 ár
eru liðin frá stofnun Slysa-
varnafélagsins.
Starfsemi Slysavarnafélags
íslands og deilda þess víðs
vegar um landið er einn feg-
ursti vottur þess hverju frjáls
samtök fólksins, fórnfýsi og
einskær dugnaður geta feng-
ið áorkað. Meðlimir Slysa-
varnafélagsins allt í kringum
landið hafa átt þátt í því að
bjarga fjölmörgum manns-
lífum úr sjávarháska bæði
innlendum og erlendum sjó-
mönnum. Slysavarnafélagið
hefur byggt upp af eigin
rammleik öryggiskerfi, sem
ekki bregzt, ef nokkur mann-
legur máttur getur komið
þeim til bjargar, sem í nauð-
um eru staddir — og stund-
um hefur slysavarnafólkið
gert meira en með nokkru
móti var hægt að krefjast.
Starfsemi Slysavarnafélags-
ins hefur ekki sízt sótt styrk
og kraft til þeirra fjölmörgu
kvenna, um allt land, sem
hafa starfað ötullega í þess
þágu ekki sízt við fjársöfnun
vegna starfsemi félagsins.
Þáttur kvennanna er stór og
ekki að ástæðulausu. Hverj-
ir eiga fremur um sárt að
binda, þegar hafið tekur sitt
en einmitt konur og börn.
Á 40 ára afmæli Slysa-
varnafélagsins er ástæða til
þess að landsmenn allir
muni eftir starfi þess og
fyrst og fremst er rík ástæða
til að hvetja unga fólkið í
landinu til þátttöku í starfi
Sly&avarnafélagsins. Eldra
fólkið hefur lagt ótrúlega
mikið af mörkum til slysa-
varna á íslandi og það hefur
veitt fordæmi sem hinir yngri
eiga vissulega að fylgja.
UTAN ÖR HEIMI
í fótspor Hemingways um Spán
! - Ekkja hans aðsfoðar við gerð heimildar-
kvikmyndar um landið, sem Ernest unni
Ekkja rithöfundarins Ern-
est Hemingway, Mary, dvel-
ur um þessar mundir á Spáni
og er það í fyrsta sinn í ára-
tug, að hún kemur þangað.
Blaðamaður frá International
Herald Tribune reit grein um
frúna í blað sitt og birtist
hún hér í endursögn.
Mary Hemingway er orðin
hvíthærð, en hún er iðandi af
lífi og lífsorku, sem fylgt hef
ur henni um viðburðarríka
ævi: fyrst sem blaðamaður, er
lendur fréttaritari, villidýra-
veiðimaður, fiskimaður og síð
ast en ekki sízt eiginkona
mikils rithöfundar.
í fylgd með henni er kvik-
myndaframleiðandinn Lester
Cooper og kona hans. Þau
eru komin til Spánar til að
fara í fótspor Ernest Heming
way um þetta land, sem hann
unni mjög. Þau eru að vinna
að heimildarkvikmynd um
„Spán Emest Hemingways“
fyrir bandaríkst sjónvarpsfyr
irtæki.
Eitt kvöidið snæddi hún
með Antonio Ardonez, nauta
bananum, sem Hemingway
dáði mjög og gat hans í verk
um sínum.
„Það var einkar skemmti-
legt,“sagði hún. „Við borðuð-
um allar mögulegar tegundir
af spönskum smáréttum. Ekki
veit ég, hvernig Spánverjar
fara að því að innbyrða all-
an þennan mat.“
Og venjulega snæðir hún
léttan meðdegisverð, en komi
gestir til hennar pantar hún
samstundis veizlumat og ókjör
af víni. Hún fer manna síðust
úr samkvæmum, yngri gest-
um til óblandinnar undrunar.
Hún er tæplega sextug að
aldri.
Hún segir, að sér reynist
erfitt að muna nákvæmlega,
hve víða hún fór um á Spáni.
En Spánverjar muna efrir
henni. Þegar hún kom inn á
veitingahúsið E1 Callejon, en
þangað sækja gestir aðallega
vegna þess að Hemingway
var tíður gestur þar á sínum
tíma, þá var henni fagnað
eins og sigursælum hershöfð-
ingja.
Hún segir ennfremur, að
Spánarferðin sé hvíld frá
verki, sem hún er að vinna
að. Hún vill ekki útskýra til
fulls, í hverju það felst, en
að sjálfsögðu snýst það um
eiginmann hennar. Hún segir:
„Ég veit ekki, hvað verður
úr því. Ég hef unnið við það
í þrjú ár og á enn miklu
ólokið. Hvað viðkemur frek-
ari útgáfu á óprentuðum verk
um Ernest er að minnsta kosti
ein bók óútkomin."
Handrit og skjöl Heming-
ways verða sett á Minningar
og bókasafn John F. Kenne-
dys heitins. Hún segist vera
stuðningsmaður Roberts
Kennedys og mundi leggja
honum það lið sem hún mætti
í kosningabráttunni í Banda-
ríkjunum. Þvínæst beindist
talið að styrjöldinni í Viet-
nam, sem hún fór um hörðum
orðum og sagði að Banda-
ríkjamenn væru að leggja
landið í rúst til þess að halda
fótfestu þar. Henni fannst
ekki úr vegi, að hernaðar-
kynntu sér verk Sun Tlu,
sem skrifað hefði hálfgild-
kennslubók í hernaðarlist fyr
ir þúsund árum.
Mary Hemingway og fylgd
arlið hennar fengu kulda og
fannkomu á fjöllum Guad-
arrama, en þar var Heming-
way í spönsku borgarastyrj-
öldinni, þegar hann starfaði
m.a. sem fréttamaður. Einnig
er ferðinni heitið til Pamp-
lona, þar sem víðfræg nauta-
öt eru haldin. Hemingway
notaði þann stað í sögu sína
„The Sun also Rises“. Og
þau ætla ennfremur að heim-
sækja Malaga og Sevilla.
Átvinnuflugmenn mæla
mei flugvelli á Álftanesi
ATVINNUFLUGMENN hafa nú
tekið afstöðu til þeirra tveggja
tillagna, sem fram komu, er flug
vallarnefnd klofnaði um val flug
vallar á Álftanesi. Mæla þeir
með tillögu minnihluta nefndar-
innar, sem lagði til, að flugvöll-
urinn lægi á miðju nesinu og að
brautirnar mynduðu L, þ.e.
væru hornréttar hvor á aðra.
Meirihluti nefndarinnar áleit að
völlurinn ætti að vera á Bessa-
staðanesi, austan við Bessastaði
Stóri Jarðborinfli
b Biesugróf
í sumar
HAFNAR eru jarðboranir að
nýju með stóra jarðbornum í
Blesugróf. í fyrra voru boraðar
þar tvær holur með þessum bor,
og hefur fyrri holan gefið mjög
góða raun, en hin síðari brást.
Fyrir hálfum mánuði var svo
byrjað á þriðju holunni, og hef-
ur nú verið borað niður á 150
metra. Er verið að fóðra holuna
ofan til áður en lengra verður
haldið. Útilokað er að segja
nokkuð til um árangur fyrir-
fram, en borinn verður við þess-
ar framkvæmdir í sumar og
svæðið kannað eins og kostur er.
og skyldu brautirnar mynda þar
X. Fundarsamþykkt atvinnuflug
manna fer hér á eftir:
„Almennur félagsfundur í Fé-
lagi íslenzkra atvinnuflugmanna
haldinn 18. apríl 1968, beinir
þeirri eindregnu áskorun til rík-
isstjórnar og flugmálayfirvalda,
að nú þegar verði hafizt handa
við að tryggja land undir fram-
tíðarflugvöll á Álftanesi, fyrir
Reykjavík og nágrenni.
Fundurinn leggur megináherzlu
á, að tryggja land þannig, að
hægt verði að byggja flugvöll í
samræmi við L tilhögun flugvall
ar eins og fram kemur í nefnd-
aráliti minnihluta flugvallarnefnd
ar 1965-1967, og að tryggðir verði
fullir stækkunarmöguleikar slíks
flugvallar.
Sú tilhögun hefir að mati flug
manna alla flugtæknilega kosti
fram yfir fyrirkomulag X, sem
meirihluti nefndarinnar mælir
með.
Flugmenn líta svo á, að um
nægilega erfiðleika sé að ræða
vegna staðhátta á ýmsum flug-
völlum úti á landi, þó ekki verði
vitandi vits byggður flugvöllur
á Álftanesi þannig að flugtækni-
legir kostir svæðisins séu ekki
notaðir til hins ítrasta.
Þá krefst fundurinn þess, að af
öryggisástæðum verði ekki
kreppt meira að Reykjavíkur-
flugvelli en orðið er meðan ann
ar flugvöllur er ekki fyrir Reykja
víkursvæðið".
Óhogstæðui
vöruskiptu-
jöfnuður
HAGSTOFAN hefur sent frá sér
bráðabirgðatölur um verðmæti
út- og innflutnings fyrir fyrstu
þrjá mánuði þessa árs. Vöru-
skiptajöfnuðurinn er óhagstæður
þessa þrjá mánuði um 528.5
milljónir en var á sama tíma í
fyrra óhagstæður um 327.8
milljónir. I marzmánuði var
hann óhagstæður um 184.1
milljón, en í fyrra um 89.1
milljón.
AUs hefur verið innflutt þessa
þrjá miánuði fyrir 1387.9 miillj-
ónir, en í fyrra var sambærileg
tala 1293.2 milljónir, IninMalinn
í þessum tölum er inniflutningur
til Búrfelsrvirkjunar og íslenzka
álfélagsins. Innflutningur til
þessaar aðila nam fyrstu þrjá
mánuði þessa árs 111.3 miilljón-
um, en í fyrra 35.7 milljónum.
Tölur inn- og útfLutnings 1967
eru reiknaðar á því gengi, sem
gJlti fyrir 24. nóvemiber 1967, en
tölur 1968 eru miðaðar við það
gengi, er tók gildi þainn dag.