Morgunblaðið - 30.04.1968, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUlí 80. APRÍL 196«
31
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins í Reykjavík, heldur
basar og kaffisölu í Lindarbæ
1. maí n.k. kl. 2 sd. Á boðstól-
um verða margir fallegir mun-
ir. Ennfremur verður veizlu-
kaffi og vel til þess vandað.
Deildin hefur nú starfað í
fimm ár, og á þvi tímabili
haldið marga fræðslu- og
skemmtifundi, auk þess, sem
hún hefur gengizt fyrir handa
vinnunámskeiðum fyrir fé-
lagskonur. Deildin hefur
styrkt Utanfararsjóð sjúkra í
Skagafjarðarsýslu, sem var
stofnaður fyrir nokkru, og
mun gera það áfram. Seinna
í suraar verður svo farið i
ferðalag og verður Hallgrím-
ur Jónasson kennari væntan-
lega fararstjóri þar.
Á myndinni sjást félagskon-
ur við veizluborð i gestaboði
Jónus Kristjónsson foimuðui
Bluðumunnufélugs íslunds
AÐALFUNDUR Blaðamannafé-
lags íslands var haldinn að Hót-
el Sögu um helgina. Jónas Kristj
ánsson, ritstjóri Vísis var þar
kjörinn formaður og tók hann
við af Kristjáni Bersa Ólafssyni,
ritstjóra Alþýðublaðsins. Aðrir
stjórnarmenn voru endurkjörn-
ir eða þeir ívar H. Jónsson, Þjóð
viljanum, Atii Steinarsson, Morg
unblaðinu, Tómas Karlsson, Tím
anum og Árni Gunnarsson, Út-
varpinu.
Margt bar á góma á fundin-
um. M.a. kom í ljós að blaða-
mannaskóli er mikið áhugamál
meðal blaðamanna og var stjórn
inni falið að vinna áfram að
framgangi þess máls á sama
- LITLU MUNAÐI
Framhald af bls. 32
Það sem hélt barninu uppi
var loft í úlpu þess. Ég náði
drengnum strax og hélt hon-
um upp úr sjónum. Þá greip
hann strax andann á lofti og
mér virtist hann vera með
rænu. Þegar ég var búinn að
ná honum og var a‘ð synda að
bryggjunni kom Adoltf Ósk-
arsson og stakk sér líka í sjó-
inn.
Stefán Runólfsson,
yfirverkstjóri.
grundvelli og gert hafði verið. í
Lífeyrissjóði blaðamanna er nú
um 5.5 milljónir króna, en um
800 þúsund eru í Menningarsjóði
blaðamanna.
Jónas Kristjánsson.
- FYRSTUR
Framhald af bls. 32
■ . . Sato skipstjóri brosir
vandræðalega . . . en því mið-
ur er ég ekki vel heima í mat
reiðslu. En þannig fram bor-
in þykir loðnan allavega ágæt
is matur. En á íslandi?
Nú er komið að okkur að
brosa vandræðalega, þegar
við segjum Sato skipstjóra, að
loðnan þyki hér heldur léleg-
ur matfiskur, en sinn er sið-
urinn í hverju landi, segjum
við.
— Fyrirtækið, sem á þetta
skip — The Kyokuyo Hogei
Co, Ltd. í Tokyo — er það
með stærstu útgerðarfyrirtækj
um í Japan?
Sato skipstjóri hugsar sig
um.
— Við skulum nú sjá. Ætli
það sé ekki númer fjögur í
röðinni. Það á flutningaskip,
verksmiðjuskip, hvalbáta, tog-
ara og minni fiskibáta, svo
þið sjáið, að fyrirtækið er
víða heima í útgerðarmálun-
- SMYGLMÁLIÐ
Framhald af bls. 32
og innsiglaði þá og gerði sýslu-
manni aðvart, sem kom þegar á
vettvang og fyrirskipaði rann-
sókn á innihaldi pakkanna.
í ljós kom við rannsóknina, að
pakkarnir höfðu að innihalda 94
heilar flöskur af genever og eina
brotna. í einum pakkanum voru
13 flöskur og auðvitað sú 13
brotin. Einnig voru 114 lengjur
af Camel-vindlingum, 3 bílvið-
tæki og 12 brúsar af hárlakki.
Varningurinn hefur nú verið
sendur til Reykjavíkur og málið
kært til tollgæzlustjóra“.
Morgunblaðið hafði í gær tal
af sýslumönnunum á Seyðisfirði,
Erlendi Björnssyni og Eskifirði,
Valtý Guðmundssyni.
Erlendur kvað hér hafa verið
um 12 pappakassa og ferðatösk-
ur að ræða. Pappakassarnir
hefðu verið 7 talsins, en ferða-
töskurnar 5. Yfirheyrzlur yfir
einu vitni í málinu fóru fram hjá
lögreglunni á Seyðisfirði, og var
vitnið afgreiðslumaður Olíu-
verzlunar íslands. Afgreiðslu-
maðurinn kvaðst oft gera sjó-
mönnum greiða og hefði hann
tekið við pökkunum af vélstjór-
anum á Mánafossi og síðan komlð
farangrinum á bíl, án þess að
vita, hvert innihald pakkanna
var.
Valtýr Guðmundsson, Eski-
firði, kvaðst þegar hafa farið til
Egilsstaða á föstudagskvöldið og
honum hafði borizt málið til
eyrna og fóru þá strax fram yfir
heyrzlur. Sýslumaðurinn kvað
pakkana hafa verið merkta vél-
stjóra á Mánafossi, er verið hef-
ur í fríi að undanförnu. Valtýr
kvað mennina, sem að smyglinu
stæðu hafa verið mjög óvar-
kára, er þeir sendu smyglvarn-
inginn á þennan hátt og vekti
það grunsemdir um að þettá
væri ekki í fyrsta sinn, sem
slík viðskipti færu fram. Toll-
gæzlan hefur og grunað skips-
höfnina um smygl og ekki er
langt síðan leitað var hátt og
lágt um allt skipið í Reykjavík,
en þá fannst ekkert, er bent gæti
til smygls. Valtýr kvað verð-
mæti varningsins vera á annað
hundrað þúsund krónur.
Þess má geta að Mánafoss fór
á fimmtudagskvöld áleiðs til
Þýzkalands.
um, segir Sato skipstjóri og
brosir.
— Hefur þú siglt víða?
— Já, já. Ég hef komið
víða við. Ég byrjaði til sjós
fyrir 13 árum, en hef verið
skipstjóri á þessu skipi í þrjú
ár. En þetta er mín fyrsta
ferð til Norðurlanda. í þess-
ari ferð lestuðum við fyrst
í Las Palmas og Bergen, en
komum svo hingað. Mér finnst
mjög ánægjulegt að svo skuli
vilja til, að ég er fyrstur jap-
anskra skipstjóra í íslenzka
höfn. Það er eiginlega smá-
ævintýri út af fyrir sig.
— Da Iho Maru. Hvað þýð-
ir það?
— Da Iho þýðir eiginlega:
djúpa gröfin. En Maru er gam
alt orð, sem er í nafni allra
japanskra skipa og á bak við
það er forn saga, sem ég skal
segja ykkur, svolítið um.
Fyrir langa löngu, ja, 150
til 200 árum, var uppi í Jap-
an mjög hraustur maður.
Þessi hrausti maður bjó í
rammgerðum kastala og þeg-
— Við hjólpuðumst svo við
að koma drengnum upp á
bryggjuna. Þá var lögreglan
komin og við fórum með
drenginn í lögreglubílnum á
sjúkrahúsið, þar sem dælt var
upp úr honum. Læknirinn
sagði, að hann hefði sopið
miikinn sjó. Drengurinn á að
vera í sjúkirahúsinu í nótt, en
var talinn úr allri hættu.
Þairna mátti ekki miklu muna.
Við höfðum samband við
foreldra Baldurs Óla, hjónin
Kristínu Baldursdóttur og
Bingi Antonsson og voru þau
að vonum hamingjusöm vegna
björgunar sonaa- síns. Kimna
þau björgunanmönnum beztu
þakkir fyrir björgunina.
— A. J.
K. Sato skipstjóri í brúnni.
ar hann eignaðist sinn fyrsta
son, nefndi hann hann Maru.
Maru þýðir svo margt, en þó
það bezta af öllu: hraustastur,
beztur, tignastur o.s.frv. Þeg-
ar tímar liðu komst orðið
Maru inn í öll japönsk skipa-
heiti og ef þið sjáið nú þetta
orð í skipsnafni einhvers stað
ar, þá getið þið gengið að því
vísu, að þar er japanskt skip
á ferðinni.
— Hvað ætlið þið að hafa
langa viðdvöl hér?
— Við förum eftir 4 daga
segir í áætluninni og höldum
beint heim í gegn um Pan-
amaskurðinn. Til Tokyo verð-
um við svo komnir eftir mán
uð eða svo.
— Þið siglið ekki í gegn
um Súezskurðinn?
— Nei, það er styttra að
fara Panamaleiðina og auk
þess er Súezskurðurinn lok-
aður eins og er, segir Sato
skipstjóri um leið og við höld
um frá borði.
Björn Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, segir
okkur að verðið fyrir loðn-
una sé um 4 krónur kílóið,
flutt um borð. Þetta er í fyrsta
skipti, sem íslendingar flytja
út frysta loðnu og segir
Björn, að góðar vonir eru um,
að áframhald geti orðið á þess
um útflutningi.
- YFIRMAÐUR
Framhald af bls. 1
hefði verið sendur til Prag árið
1951 til að flytja forseta Tékkó-
slóvakíu, Klement Gottwald, fyr
irmæli Stalíns. Síðan segir Bac
ilek orðrétt:
„Mikoyan kvartaði fyir því, að
meðan Pólverjar og Ungverjar
héldu réttarhöld yfir málpípum
Títóismans þá færu engin slík
réttarhöld fram í Tékkóslóvak-
íu . . . .Þótt talið væri að mið-
stöð Títóismans væri þar“.
Uppljóstrarnir Bacileks benda
sterklega til þess, að fyrrum
forseti landsins og Antonin nov
otny bæru ábyrgðina á því, að
fyrirmælum Stalíns var hlýtt.
Novotny var sviptur völdum
fyrr á árinu. Sovétmenn tóku
að sér alla „rannsókn“ Slansky-
málsins og foringi þeirra var
Anatoli Likhaýhev, sem einnig
kemur við sögu í Masaryk-mál-
inu alræmda.
Bacilek kvaðst ekki hafa haft
hugrekki til að synda á móti
straumnum og segja sig úr ör-
yggisþjónustinni í mótmæla-
skyni við Slansky-réttarhöldin.
Hann sagði, að sovézkur liðs-
foringi, Alexei Betchastov, að
nafni hafa eitt sinn varað hann
við þessu.
„Félagi Bacilek, maður segir
sig ekki úr öryggiaþjónustunni."
Orðrómur er á kreiki um að
sjálfsmorð Podcepickys, sem áð-
ur er getið kunni að standa í
einhverju sambandi við upp-
sjóstranir Bacileks.
Sjálfsmorð
Síðla í kvöld Uipplýsti frétta-
stofan Ceteka, að Josef Pod-
cepicky, hefði framið sjálfsmorð
með því að hengja sig í skógi
í grend við Marienske Lanzne,
fyrrum Marienbad, í Vestur-Bæ
heimi. Var Podcepicky á heilsu-
bótarhæli í Marienske Lazne.
Hann er fjórði háttsetti vanda-
maðurinn i Tékkóslóvakíu sem
fremur sjálfsmorð á skömmum
tíma.
— Kosningasigur
Framhald af bls. 1
pásftana.
Adolf von Thadden, leiðtogi
þjóðernissinnaflokksins, sfcoraði,
á Þjóðverja að vakna til nýrrar
þjóðernisvitundar í kosningabar
áttu sinni og skoraði á kjósend-
ur að mótmæla kröftuglega með
atkvæðum sínum aðgerðum þeim
sem vinstri sinnaðir öfgahópar
stúdenta hefðu staðið fyrir í
Vestur-Þýzkalandi, nú síðast í
sambandi við morðárásina á leið
toga þeirra, Rudi Dutschke.
Von Thadden sagði, eftir að
úrslit kosninganna voru kimn,
að afleiðingar þeirra gætu ein-
ungis orðið þær, að stjórnar-
flokkarnir yrðu fljótlega að láta
efna til nýrra kosninga til sam-
bandsþingsins. Von Thadden
vildi ekki fallast á þá skoðun,
að það hefðu verið stúdentaó-
eirðirnar í Berlín um páskana,
sem hefðu skapað andúð fólks
og á þann hátt aflað þjóðern-
issinnaflokknum margra nýrra
atkvæða. SkoðanakönnuT hefði
leitt í ljós fyrir fjórum vikum,
að 8% af kjósendunum myndu
greiða NPD atkvæði sitt, sagði
von Thadden. Þegar hann á
sunnudaginn var kom til bygg-
ingar fylkisþingsins, mættu hon
um hróp mannfjöldans, þar sem
hann var kallaður: „Nazisti, naz
isti!“
Kiesinger kanzlari sagði, að
hann væri ánægður með árang-
ur flokks síns í kosningunum,
en hann kvaðst hafa búizt við
því, að sósíaldemókratar stæðu
sig betur. Hann benti á, að margt
fólk erlendis liti eflingu þjóð-
ernissinnaflokksins sem endur-
fæðingu nazismans, enda þótt sú
lýsing ætti ekki við um marga
kjósendur þjóðernissinnaflokks-
ins. — Af þessum ástæðum mun
kosningasigur NPD þýða mik-
inn hnekki fyrir samskipti okk-
ar við aðrar þjóðir, sagði kanzl-
arinn. Hann sagði samt sem áð-
ur vera þeirrar skoðunar, að úr-
slitin myndu verða á annan veg
en nú við kosningarnar til sam-
bandsþingsins á næsta ári.
Kvaðst hann álíta, að aðalástæð
an fyrir kosningasigri NPD
hefðu verið óeirðirnar í þýzk-
um borgum um páskana.
Mörg hundruð manns fóru i
gærkvöldi í mótmælaigöngu fyrir
utan byggingu fylkisþingsins í
Banden-Wúrtemberg í Stuttgart.
Báru þeir skili með áletrunun-
um: „10% nazistar — Okkar
hneisa".
- NASSER
Framhald af bl?
innar til að samein-ast til að berja
á ísraelsmönnum og sagði, að
ekkert yfirnáttúrulegt væri við
hernaðartækni þeirra né her-
mennsku. Hann sagði, að styrj-
öldin sem óumflýjanlega væri
framundan mundi verða löng og
ofsafengin, en Egyptar og aðrar
Arabaþjóðir yrðu að fórna öllu
til a'ð sigra, enda væri líf þeirra
sem þjóða í veði. Þá sagði Nass-
er, að Egyptar mundu aldrei
semja við ísraelsmenn um frið
því það jafngilti uppgjöf. Þá
þakkaði Nasser Sovétríkjun'um
fyrir veittan stuðninig og sagði,
að fyrir þeirra tilstilli væru
Egyptar nú betur búnir en nokk-
ru sinni áður til að mæta óvinin
um. Þetta er harðorðasta iræða,
sem Nasser hefur haldfð síðan
júní-styrjöldinni lauk í fyrra.
Hersýning í Jerúsalem.
Öryggisráðið samþykkti ein-
róma á laugardagskvöld, að fara
þess á leit við ísraelsmenn, að
þeir aflýstu hersýningu, sem
fram á að fara nk. fimmtudag í
tilefni 20 ára afmælis Gyðinga-
ríkisins. Ambassador ísraels hjá
SÞ, Yosef Tekoah, kvað ályfctun-
ina fjarstæðukennda og sagði, að
löndin fyrir botni Miðjarðarhafs
þyrftu með annarskonar ráðlegg
inga en þessarar. Sagði Yefcoah,
a‘ð þjóð Gyðinga hefði beðið eftir
þessum hátíðahöld'um í 2000 ár.
Forsætisráðherra ísraels, Levi
Eshkol, lýsti því yfir á sunnudag,
að hersýningin mundi fara fram
á boðuðum tíma, þrétt fyrir and-
stöðu Sameinuðu þjóðanna. Her-
sýningin hefur vakið mikla reiði
meðal Araba í þeim hluta Jerú-
salem, sem ísraelsmenn hernámu
í júní-stríðinu, og í Amman, höf-
uðborg Jórdaniu.
Æfingar fyrir hersýninguna
halda áfram að fullum krafti,
heirflokkar þramma um götuir
Jerúsalem-borgar og orrustuþot-
ur eru á stöðuglu flugi yfir borg-
inni. í vopnabúri því, sem ísraels
menn munu sýna eru skriðdipek-
ar og eldflaugar, af rússneskri
ger’ð, sem ísraelsmenn hertóku í
styrjöldinni í fyrra. Miklar örygg
isráðstafanir hafa verið gerðar til
að koma í veg fyrir hermdarverk
Araba á fimmtudaginn, og sveitir
lögreglumanna og hermanna
munu halda vörð um leiðina, sem
herflokkarnir fara.