Morgunblaðið - 30.04.1968, Side 24
24
MOHGUNBL.AÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 198«
■4-
Frá athöfninni í Holmenskirk ju.
Frá útför Pouls Reumerts
Fré útför Pouls Reumerts....
Síðastliðinn fimmtudag var
gerð frá Holmens kirkjn í
Kaupmannahöfn útför Ponls
Reumerts, að viðstöddu miklu
fjölmenni. Voru þar m.a. Hen-
rik prins, fulltrúar stjórnar og
þings, sendimenn erlendra
ríkja, m. a. Gunnar Thorodd-
sen, sentliherra íslands, og fjöl
margir fulltrúar hins danska
leiklistarlífs, með konunglegu
leikkonuna Clöru Pontoppida
í broddi fylkingar.
Að lokinni athöfninni í
kirkjunni fylgdu einungis ætt
ingjar og nánustu vinir kist-
unni í Mariebjerg kirkjugarð
inn, þar sem eiginkona hins
látna, Anna Borg, hvílir. Þar
var Poul Reumert jarðsettur
við látlausa og hátíðlega at-
höfn. Mselti elzti sonur hans,
Michei Reumert, hæstaréttar-
lögmaður, síðustu orðin yfir
kistu föður síns; lagði áherzlu
á að þakka bæri hversu auð-
ugt lif hins látna hefði verið,
hversu vel honum hefði auðn
azt að nýta hæfileika sína og
ná árangri í lífsstarfi sínu.
„Song vor á ekki að vera bit-
ur sorg, sagði hann, aðeins
angurværð. Á þessari stundu
hljótum við að gleðjast yfir
því, að hinu litríka lifi hans
skyldi ljúka svo fallega......
Það hæfði vel, að hann skyldi
ekki falla fyrir stormi, jafn-
vel þótt hann yrði oft alvar-
lega veikur. Hann fann ekki
til neinnar sorgar yfir að dey-
ja. Hann dó, þegar hann vildi
deyja og var saddur líf-
daga.....“
Hblmens kirkja var fagur-
lega skreytt, mest me'ð hvít-
um blómum og birkilaufi.
Fjöldi blómsveiga hafði bor-
izt hvaðanæva að, m.a. frá
dönsku konungshjónunum,
leikhúsum og samtökum leik-
ara á Norðurlöndum, sendi-
ráði Islands, fjölskyldu Önnu
Borg og fjölmörgum samtök-
um og einstaklingum öðrum
Börge Örsted dr. theol
jarðsöng og Öperukór og
hljómsveit Konunglega leik-
hússins flutti þætti úr Requi-
em eftir Mozart.
Sumarbúslaður
Vandaður sumarbústaður við Eliiðavatn til sölu.
Vel einangraður, ræktað land.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 4. maí merkt:
„Sumar-f-vetur — 8026“.
Slökkviliðið var í gær kvatt að V
esturgötu 10, en þar er Naust til
húsa eins og kunnugt er. Þar
höfðu börn þá kveikt í kössum
og drasli og tókst slökkviliðinu
að slökkva bálið þegar í stað.
Einnig hafði verið kveikt í drasli
við hús Heildverzlunarinnar Ed
du við Grófina og tókst einnig að
slökkva þar áður en eldurinn náð
i sér á strik. — Myndin sýnir slö
kkvistarfið við Naust.
- MINNING
Framhald af bls. 22
svo virðist, sem skapanornirnar
stjórni þar mestu.
Ingimar fór ekki varhluta af
mótlæti lífsins, því að um 30
ára skeið þjáðist hann af þrá-
látum sjúkdómi. En með hinum
sterka lífsþrótti ásamt léttri lund
fleyttu honum yfir alla ervið-
leika, ásamt hinni styrku stoð
eiginkonunni, sem stóð honum á
vallt við hlið í erfiðleikun-
um.
Lengst af hafði Ingimar sjálf-
stæðan atvinnurekstur, og nú
síðustu 20 árin rak hann Kex-
verksmiðju undir sínu eigiri
nafni á Sólbakka í Fossvogi.
Þegar farfuglarnir flugu til
sumarheimkynna sinna hér á ís-
landi, kvaddi Ingimar Jónsson
jarðlífið og sveif inn í móðuna
miklu.
Minningarnar ljúfar lifa og
létta böl í sorgarranni.
Guð blessi minningu góðs
drengs.
Aðstandendum öllum votta ég
og fjölskylda mín innilega sam-
úð.
Guðjón Sveinbjörnsson.
- AFMÆLI
Framhald af bls. 23
hans ágætu starfskrafta. Hann
er einn af stofifrndum þess og
hefur verið í stjórn frá byrjun
og er enfi. Hann er fyrsti heið-
ursfélagi Átthagafélagsins. Það
er gott að vinna að félagsmálum
með Axel Clausen. Hann er til-
lögugóður gætinn og samvinnu-
þýður, en þó ýtinn, og heldur
vel á sínum skoðunum. Honum
hafa verið falinn fjöldamörg
trúnaðarstörf um dagana, fyrir
byggðalög og ýmiskonar félags-
samtök, og verður ekki frá því
skýrt í fáum orðum. Þó er eitt
félag, sem ég get ekki látið hjá
líða að minnast á, en það er
Góðtemplarareglan. Fyrir hug-
sjón hennar hefur hann unnið
mikið og óeigingjarnt starf um
áraraðir, bæði meðal eldri og
yngri. Fyrir hönd Átthaga-
félags Sandara færi ég
þér árnaðaróskir með 8fl ára
aldursdag, og þakka þér
gott og gifturíkt starf, í þágu
þess. Þegar sólin sezt og gyllir
hér sundin blá, og Snæfells-
jökull rís við hafsbrún, kannt
þú manna best að sýna honum
þakklæti og virðing, fyrir tign
hans og fegurð, og oft hefur mér
fundist sem þú bærir með þér
eitthvað af björtu yfirbragði og
reisn þessa fjallakonungs okkar
heimabyggðar.
Sigurður Bjarnason
Hjallabrekku 21
Félagsmenn
o
Viljum minna yður á að sækja veiðileyfin fyrir
4. maí n.k.
Skrifstofan er opin kl. 5—7 e.h„ nema laugar-
daga kl. 10—12 f.h.
Stangaveiðifélag Re.vkjavíkur
Bergstaðastræti 12 B.
ATVINNA
Kvenmaður vanur bókhaldi, getur fengið atvinnu
við bókhald og gjaldkerastörf. Umsóknir með upp-
lýsingum um fyrri. störf, aldur, menntun, kaup-
kröfu ásamt meðmælum ef til eru óskast sent
Morgunblaðinu fyrir 5. maí n.k. merkt: „Bókhald
— 8114“.
Kjöarskrá
fyrir Keflavíkurkaupstað til forsetakosninga sem
fram eiga að fara 30. júní 1968 iiggur frammi í
bæjarskrifstofunni, Hafnargötu 12, frá 30. apríl til
27. maí 1963. Kærum vegna kjörskrár ber að skila
skrifstofu bæjarstjóra í síðasta lagi 8. júní 1968.
Bæjarstjórinn.
- PLASTIÐ
Framhald af bls. 3
— Hvernig er aðstaðan gagn
vart erlendum aðilum?
— Aðstaðan er dálítið erfið
og tollar á sumum efnisþátt-
um dálítið einkennilegir, eins
og t.d. á járnum í lausblaða-
bækurnar, en þeir eru 80%
en hins vegar ekki nema 70%
á þeim í möppunum fullunn-
um, ef þær eru fluttar inn.
Islenzku vörurnar eru dýrari
en þær útlendu, en þó virð-
ast þær meira keyptar, enda
teljum við, að þær séu á marg
an hátt betri en þær erlendu
Við höfðum mikla umsetningu
í töskufra-mleiðslu og einnig í
regnfatnaði, en með tilkomu
frjálsa innflutningsins minnk
aði töskuframleiðslan og fram
leiðsla á regnfatnaði féll al-
gjörlega niður, enda voru
fluttar inn regnkápur, sem
voru ódýrari en hráefnið okk
ar.
— Á sumum sviðum höfum
við verið þess megnugir að
flytja út, þótt í litlum mæli
sé. Hafa það verið eldspýtna-
hulstur og hulstur undir far-
miðaskirteini, sem hafa ver-
ið seld til Bandaríkjanna, ír-
lands og Noregs.
— í útboðum höfum við
yfirleitt fengið verkin. Það'
er ef til vill öðrum þræði
vegna þess, að framleiðendur
telja sér oft hagkvæmara að
fá vöruna jafnóðum, en ekki
alla í einu, ef um er að ræða.
Sem dæmi um þess konar út-
boð get ég nefnt, að við ger-
um möppurnar undir „Vísi í
vikulokin."
— Hvað eru það margir,
sem starfa við plastframleiðsl
una hjá ykkur?
Það eru milli 15 ag 20
manns sem vinna við plast-
ið, margt þeirra öryrkja, enda
er fyrirtækið styrkt af S.f.B.
S. og rekið á þess vegum. En
plastframleiðslan fer mest
fram í vélum, sem eru nokk-
uð dýrar og fljótar að ganga
úr sér. Á ég þar við, að fram
farir eru svo miklar á þessu
sviði, að þær verða úreltar á
tiltölulega stuttum tíma,
tveim til þrem árum. En það
sem hefur kannski koipið okk
ur að mestum notum er, að
við erum þeir einu hér á
landi, sem fáumst við þessa
tegund framleiðslu, svo að
vélakostur okkar hefur nýtzt
eins vel og kostur var á.