Morgunblaðið - 30.04.1968, Qupperneq 32
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA-SKRIFSTOFA
SÍMI 10.100
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1968
AUGLYSUMMR
SÍMI SS*4*8Q
r
Ekki mátti miklu muna
— segir Stefán Runólfsson, sem bjarg-
aði 3/o ára dreng frá drukknun
f Eyjum í gœr
Vestmannaeyjum, 29. apríl.
ÞAÐ slys varð hér í gær, að
þriggja ára drengur Baldur
Óli Birgisson, féll í sjóinn af
Nausthamarsbryggju. Verk-
stjóri í Fiskiðjunni, Stefán
Runólfsson sá er barnið féli í
sjóinn og ók hann hið snar-
asta á vettvang, því til
hjálpar. Bjargaði hann barn-
inu með aðstoð Adolfs Óskars
sonar pípulagningarmeistara.
Mbl. hafði í gær tal af
Stefáni Runólfssyni og sagðist
honum svo frá:
— Það var hrein tilviljun,
að ég var staddur úti við, hjá
Fiskiðjunni um það bii 300 m
frá bryggjunni. Þá sá ég að
barn féll fram af bryggjunni
í sjóinn. Ég snairaðist inn í bíl
og ók að slysstaðnum og henti
mér umsvifalaust í sjóinn.
— í sjónum flaut barnið á
grúfu og var andlitið í kafi
Framhald á bls. 31
Innritun á iðnaðar-
ráðstefnuna í dag
FIMMTUDAGINN 2. maí næst-
komandi hefst 1 Reykjavík
þriggja daga ráðstefna fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisfélaganna um ís-
lenzka iðnþróun og er þetta viða
mesta ráðstefna um iðnaðarmál,
sem haldin hefur verið hér á
landi.
Þeir sem hug hafa á að taka
þátt í ráðstefnu þessari þurfa að
láta skrá sig til þátttöku í síma
17100 eða 18192 helzt í dag.
Á ráðstefnunni verður m. a.
fjallað um áhrif hugsanlegrar
aðildar íslands að Fríverzlunar-
bandaiaginu á íslenzkan iðnað,
svo og flesta þætti iðnaðarmála.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins og borgarstjórinn í Reykja-
vík munu taka virkan þátt í
ráðstefnunni. Iðnrekendur og
Reykur
í hóteli
SLOKKVILIÐIÐ var i gærmorg-
un um kl. 7.30 kvatt að City
Hoteli, en þar lagði reyk um all-
ar vistarverur, gestum hótelsins
til armæðu. Er slökkviliðið kom
á vettvang kom í ljós að skamm
hlaup hafði orðið í útvarpskerfi
gistfhússins og stafaði reykurinn
af þvi.
áhugamenn um iðnaðarmál sem
fylgja Sjálfstæðisflokknum að
málum eru eindregið hvattir til
að láta skrá sig til þátttöku í
dag.
Egilsstaðalögreglan með smyglv arninginn úr Mánafossi.
1
%
OSSl
95 geneverbrúsar og 114 vindlingalengjur ásamt fleiru, inni-
hald 12 pakka, er senda átti frá Egilsstöðum til Reykjavikur
KOMIZT hefur upp um allmik-
ið smygl úr Mánafossi, skipi
Eimskipafélags íslands. Var
skipið statt á Seyðisfirði síðast-
liðinn fimmtudag og á föstudag
var reynt að senda með flugi til
Reykjavíkur 95 flöskur af gene-
ver, 114 vindlingalengjur, 3
Blaupunkt-viðtæki í bila og 12
brúsa af hárlakki ásamt ýmsum
fleiri varningi. Sendandi frá
Seyðisfirði var vélstjóri á Mána-
fossi og sendi hann smyglvam-
inginn til starfsfélaga sins, er
var í leyfi heima hjá sér í
Reykjavik. Mánafoss fór frá
Austfjarðarhöfnum síðdegis á
fimmtudag til Þýzkalandshafna.
Hér fer á eftir frétt fréttarit-
ara Mbl. á Egilsstöðum, Hákonar
Aðalsteinssonar.
,,Egilsstaðir, 20. april.
Á föstudaginn kom upp óvenju
legt mál hér í Egilsstaðakaup-
túni, er upp komst um smygl.
Smyglvarningur úr Mánafossi,
sem var að lesta á Seyðisfirði
var upptækur ger hjá hrepp-
stjóranum á Egilsstöðum.
Forsaga málsins er sú, að mað
ur frá Egilsstöðum, er staddur
var á Seyðisfirði var beðinn um
að taka þar nokkra pakka og
flytja til Egilsstaða í veg fyrir
flugvél suður til Reykjavíkur.
Þegar maðurinn var kominn í
norðurbrún Fjarðarheiðar kastað
aðist farmurinn til í bifreið hans,
vegna þess hve vegurinn var
j ósléttur. Gaus þá upp megn
áfengisþefur í bílnum og fór
manninn þá að gruna margt.
Þar eð maðurinn ér löghlýðinn
borgari sneri hann sér tii hrepps
stjórans á Egilsstöðum og tjáði
honum, að hann myndi vera með
allóvenjuiegan farangur í bíln-
um. Hreppstjórinn tók pakkana
Framhald á bls. 31
Fyrstur japanskra skip-
stjóra í íslenzkri höfn
Alþýðubandalagið á Akureyri:
Kveðst engan þátt
hafa átt í dreifingu
Víetnamsbréfs
— Stutt spjall við Sato skipstjóra, sem
sœkir hingað frysta loðnu og hrogn
K. SATO varð fyrstur jap-
anskra skipstjóra til að sigla
í islenzka höfn, þegar skip
hans DA IHO Maru lagðist
upp að Ægisgarði laust eftir
hádegi í gær. Hingað er skip-
ið komið til að lesta 500 tonn
af frystri loðnu og 135 tonn
af frystum og söltuðum hrogn
um, sem Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og sjávarafurða
deild S.Í.S. selja til Japan.
Við brugðum okkur um
borð í DA IHO Maru og hvít-
klæddur þjónn vísaði okkur
veginn upp í brúna, á fund
skipstjórans. Sato skipstjóri er
37 ára, dökkur á brún og brá,
og fremur lágvaxinn á okkar
vísu, eins og raunar allir skip
verjar hans. Hann bauð okk-
ur þegar niður ,í setustofu og
lét bera okkur japanskt kaffi.
— Hvað er skipið stórt.?
— DA IHO Maru er 2000
tonn að stærð og í eigu The
Kyokuyo Hogei Co, Ltd. í Tok
yo. Áhöfnin er venjulega 23
manns, en við erum 22 núna,
því einn skildum við eftir á
sjúkrahúsi í Las Palmas.
— Og hérna lestið þið
loðnu?
— Já, við eigum að taka
500 tonn af frystri loðnu, 125
tonn af frystum þorsk-, ýsu-
og ufsahrognum og 10 tonn af
söltuðum grásleppuhrognum.
— Okkur er sagt, að í Jap-
an þyki loðnan herramanns-
matur.
— Já, já. Við steikjum hana
Framhald á bls. 31
MBL. hefur borizt yfirlýsing
frá Alþýðubandalaginu á
Akureyri þess efnis, að þau
félagssamtök hafi engan þátt
átt í því „uppátæki 2ja
menntaskólakennara og nokk
urra nemenda þeirra að
lauma svokölluðu Víetnam-
bréfi innan í Morgunblaðið“,
eins og komizt er að orði í
yfirlýsingunni.
Yfirlýsingin fer hér á eftir:
„Að marggefnum tilefnum vil
ég sem formaður Alþýðubanda-
lagsins á Akureyri lýsa því yfir
að hvorki Alþýðubandalagið hér
í bænum, né nokkur stofnun
þess, á hinn minnsta hlut að máli
í sambandi við það uppátæki
2ja menntaskólakennara og
nokkurra nemenda þeirra að
lauma svokölluðu Víet-Nam-bréfi
innan í Morgunblaðið til þess að
spara sér fé og fyrirhöfn vegna
dreifingar bréfs þessa.
Persónulega tel ég athæfi
þetta óviðurkvæmilegt og til
þess eins fallið að skaða góðan
málstað baráttunnar gegn striði
Bandaríkjanna gegn Víet-Nam-
þjóðinni“.
Akureyri 28. apríl 1968. ,
Jón Helgason
(sign)
Læknoskipti
ó Eskiiirði
í LÖGBIRTINGABLAÐINU er
frá því skýrt að hinn 1. april
1968 hafi forseti íslands veitt
Jónasi Oddssyni, héraðslækni I
Eskifjarðarhéarði lausn frá em-
bætti. Jafnframt er sagt frá því
að sama dag hafi dóms- og kirkju
málaráðuneytið sett cand. med
& chir. Þorvarð Brynjólfsson til
að gegna héraðsæknisembættinu
í Eskifirði til 30. júní.
/