Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 196«. 10UAJLI/GAM rö7&? Rauðarárstíg 31 S'imi 22-0-22 IViAGIMÚSAR ‘SKIPHOLTI21 SÍMAR21190 1 eftir lokun simi 40381 ^ l ^SÍM' I-44-44 mmmifí Hverflsgötu 193. Siml eftir loktm 31160. LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 1497« eða 81748 SipirSnr Jónsson. BÍLALEIGAIM - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. BÍLALEIGAN AKBRAUT NÝIR VW 130« SENDUM SÍMl 82347 Skolphreinsun Losa um stífluð niðurfalls rör. Niðursetningu á brunn- um. — Smáviðgerðir. Vanir menn. Sótthreinsum að verki loknu. — Sími 23146. í sveitinn Strigaskór lágir og uppreim- aðir, gúmmískór, gúmmístíg- vél, sandalar sterkir og ódýr- ir. Einkennileg nafngift „Sproti“ skrifar: ,kæri Velvakandi! Nú les ég í fréttiuim, að fara eigi að stofna nýjan skeonmti- stað hér í Reykjavik. Hér er um svoíkallað „discotfheque" að ræða, en fyrir nokikrum érum komust skemmitistaðir af þess- ari tegurud í tízku bæði austan ag vestan Atlantahafs. Ég hef komið í mairga slika skemmtistaði erlemdis og haft mjög gaman af. >ess vegna fagna ég því, að hér skuíli ein- um sMkum komið á fót, og vona, að hann verði léttilega og skemmtilega retkinn, þax sem frjálsræði ríkiir án suibbuskapax Og vandræðapeyja, en enfitt getur verið að finna rétta málli- ieið í rekstri slikra staða. Ungt fiólk hér sem annars staðair þarf að eiga sér stað af þessu tagi. Nú þýðSr orðið „discotheque" einfaldlega „kringluíbúr" eða „skífulhilaða“, vegna þess að þetta er hljómplötusafn um leið og gkemmtistaður. Hvernig sem menn vilja nú þýða þetta orð, þá finnst mér undarleg nafn- gift sú, sem staðmum hefur ver- ið valin, skv. blaðafréttum. Nafnið er „Las Veigas“. Torskilin tengsl í fynsta lagi þýðir þetta nú bara sléttuir (á Spóni) eða tóbaksekrur (í suðvestunhluta Bandaríkjanna), og eru tengsl þessara spönsku orða við skemmtistað í Reykj&vík vand- fundin. f öðru lagi er þetta heiti ein- ungis frægt af einum stað, það er samnefndni borg í Nevada- riki í Bandaríkjunum. Sú borg er að vísu mákil skemmtiborg, en skemmtanimar þar eru af ailt öðm tagi en því, sem vænta má hér í Reykjavík. A.m.k. hef ég ekki lesið, að hér verði mið- nætursýningar ag ijárhættuspil. Af þessum ástæðum er fárán- legt að nota nafnið „Lás Vegas“ hér; þar er ekki um neinn skyldleika eða hugrenninga- tengsl að ræða, eða þá a.m.k. mjög torskilin. f þriðja lagi man ég ekki betur en bannað hafi verið fyrdr nokkrum árum að nota erlend heiti í nöfnum fyrir- tækja. Vildi ég því beina þeim til- mælum til eigenda Plötustafl- ans, að þeir finni stað sínum skemmtilegra nafn, áður en hann verður opnaður almenn- ing)i. — Men ellers til Lykke: Sproti“. ^ Náungakærleikur í f jölbýlishúsum takmarkaður? Díana skrifar: „Herra Velvakandi: Stiundum hefur birzt í dálk- um þínum gagnrýni á uimgengn isvenjur ísfendinga. Stundum hafa íslendingar skrifað gagn- rýnina, en stundium útlending- ar, og man ég sérstaklega eftir ummælum danskrar konu. Nú þykiir sjáifsaigit sliettireku- skapur aí útiendni konu að fara að skipta sér af almennri hegð- un íslendinga og umgengni þeirra hver við annan, — en glöggt er gestsaugað, segir ís- lenzkt máltæki. Ég hef nú búið hér svo lengi, að ég tei mig hálfgi'ldings ísfending. Ég kemst að sömu niðurstöðu og annar bréfrdtari: fslendingar kunna ekki eða geta ekki búið í fjölbýlishús- um. Tillitsleysi við náungann og al'ls konar yfirtToðsla kemur í veg fyrir friðsamfegt sambýli, nema hjá þeim, sem eru sam- mála uim ókurteásina. Nefná ég þetta við íslenzka vini mána, er sagt með stoltá: Við enuim svo milklir einstaklingshyggjumenn. Að mínu áliti á slíkt lundarfar ekkert akylt við það, hvort hægt er að sýna náunganum tillitssemi eða ekki. ★ Mörlandinn er á móti biðröðum Mér líkar sarat að flestu vel við íslendinga, — þeir eru frjálsir í lund og hrednskilnir, en það er ekki nóg. Má ég nefna eitt, sem ég alidrei fæ skilið: Af hverju eru fslendingar á mióti því að standa í biðröð, þegair þess gerist þörf? Yfiirleiitt tekst aldrei að mynda biðröð, en sé það hægt, eru alltaf einhverjir, sem troðast fram fyriir, óskamm feilnir. Það eir sama, hvort maður stendur við sjoppufliúgu eða bankaafigxeiðslu. Sé loksins hægt að búa til biðraðarnefnu, eru óðara komnir eiinhverjir, sem ryðjast firam fyrir. ^ Aristókratískar sauðkindur? Spyrji ég ísfendinga um þetta furðulega fyrirbæri (eða skort á sjálfsagðri hagræðingu, ötlum til þæginda og flýtis- auika), þá er svarið gjarnan: Við eruim svo mifldir einstakl- ingshyggjumenn, firjálsbornir aristókratar í eðli oikkar, að við getum ekki látið raða okk- ur í biðröð eins og sauðkindum. Á rnóti segi ég: aristókratar ryðjast ekki fram fyrir, og sauð kindur kunna ekki að mynda biðröð“. Lengra er bróf Díönu, og verður e.t.v. birt meira úr þvi síðar. Til hægri, mínir elskanlegu: Þá er það mál málanna 1 dag: Tíl hægri snú: Nú beylgjum við allir tdl hægri, bræður góðir ( og syst- ur) og Látum okkur hvergi fat- ast við afcstuirinn. Með ofurlít- illi umhugsun og aðgsetni er þetta enginn vandi. Bezt er að venja sig við breyttar venjur, eins fljótt og unnt er. Því ættu sem flestir að fara sem fyrst út að aka, hægt ag rófega fyrst í stað, meðan verið er að venj- ast skrítilegíheitunum. Annars er þetta furðufljótt að kioma, eins og þeÍT vita, sem ekið hafa erlendis. Það er um að gera að viðhafa fulia að- gæzlu og vera vel vakandi. Það gilidir raunar alltaf í umferð- inni, en efcki safcar að vera í „extrastuði" í dag og næstu vikur. Þegar þetta er komið upp í vana, getum við leyfit okkur að brosa að úrtölu.seggj- unum, sem spáðu næstum því heimsenidi. „Klinikdama66 Stúlka óskast til tekniskrar vinnu og venjulegrar aðstoðar á tannlæknastofu frá tuttugasta júlí. Tilboð ásamt mynd, er endursendist leggist inn á afgr. blaðsins merkt: „8730“. I SVEITINA Gallabuxur, terylenebuxur, peysur, skyrtur, nærföt, sokkar, hosur, úlpur, regnkápur, belti, axlabönd og húfur. Ó.L.,Laugavegi 71. Nauðimgaruppboð Húseignin Hafnarstræti 4, Flateyri, eign Rafns A. Péturssonar, forstjóra, Flateyri verður eftir kröfu Iðnaðarbanka íslands, Reykjavík og Harðar Ólafs- sonar hrl. Reykjavík seld á opinberu uppboði sem fram fer í dómsal sýslunnar á ísafirði miðviku- daginn 5. júní nk. kl. 13.30. Uppboð þetta var áður auglýst í Lögbirtinga- blaði nr. 23, 25 og 27/1966. Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 21. 5. 1968. Jóh. Gunnar Ólafsson. NÝTT! GÓLFLISTAR í viðareftirlíkingu, er alla tíð hefur vantað við viðar- þiljur og parketgólf. Framleiddir úr plast- húðuðu masonit, mjög fallegir og vandaðir. Innréttingabúðin, Grensásvegi 3, sími 83430. Félag gœzlusystra heldur aðalfund sinn að Þinghól föstud. 31. maí kl. 8.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Mætið vel og stundvíslega. STJÓRNIN. Atvinna óskast Ég er ung stúlka (19 ára), og mig vantar tilfinnan- lega góða atvinnu. — Ýmislegt kemur til greina. Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Atvinna — 8706“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.