Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1966. 23 Skipstjórinn af Þðrsnesi fær afreksverðlaun sjómannadagsins Afreks-björgunarverðlaun sjó- mannadagsins verða að þessu sinni afhent í Stykkishólmi. Þau hlýtur Kristján O. Jónasson, skipstjóri á ms. Þórsnesi. Hann vann það afrek 26. marz í vetur að bjarga stýrimanni bátsins, sem féll útbyrðis á bafi úti í slæmu veðri. Var stýrimaðurinn ósyndur og var hann að sökkva í þriðja sinn, er skipstjórinn stakk sér útbyrðis, eftir að hafa stöðvað bátinn og gefið sínar Skipanir um borð. Mátti engu muna, enda gaf skipstjórinn sér ekki tíma til að varpa af sér hlífðarfötunum, var m. a. í þykkri gæruúlpu, og var svo þungur orðinn af bleytunni, að bátsverjar þurftu að setja á hann band til að hala hann um borð aftur. En honum tókst að bjarga stýrimanni sínum og vekja hanin til lífs. AfreksbjörgunarVerðlaunin, sem er veglegur silfurbikar, gef- inn af Félagi ísl. botnvörpuskipa- eigenda, verður afhentur við há- tíðahöld sjómannadagsins í Stykkishólmi. Nauðungaruppboð annað og síðasta á landspildu í Hvassahraunslandi í Vatnsleysustrandarhreppi ásamt sumarbústað, sem á spildunni stendur, fer fram á eigninni sjálfri mið- vikudaginn 29. maí 1968, kl. 2.00 e.h. Sýslumaöurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. — Sieira Leone Framh. af bls. 16 ar ættflokkadeilur ríktu í landinu svo og stjórnmála- ókyrrð, til þess að unnt yrði að vera án hinnar styrku hendi NRC. Almenningur brást hins vegar við þessu af svo mikilli andúð, að banna varð fundahöld og önnur nefnd stofnuð til þess að gefa ráðleggingar, á hvern hátt völdin skyldu látin í hendur borgarlegu stjórninni stig af stigi. J uxon-Smith hershöfðingi gaf það skýrt til kynna, að hann vildi almennar kosning- ar, sem færu fram efíir vand- legan undirbúning, sem myndi taka mjög langan tíma. Nefnd in komst samt að þeirri niður stöðu, að engin þörf væri á nýjum kosningum og gaf þá ráðleggingu, að borgaralleg stjórn yrði tekin upp aftur í júní. Þessi ráðlegging nefnd- arinnar var kunngerð vikuna á undan, áður en byltingin var gerð í landinu, og það var greinilega tregða NRC, til þess að framkvæma hana, sem varð til þess, að þolin- mæði fólks í Sierre Leone þraut, en það hafði fengið nóg af herstjórninni. Spilling og misferli. Herstjórnin hafði á engan hátt reynzt betri stjórn SIPP undir forystu Sir Alberts. Þvert á móti hafði efnahags- lífið staðnað meira en nokkru sinni fyrr og at- vinnuleysi, skattar og mennt unarkostnaður fóru stöðugt vaxandi. Það var þó eitt, sem NRC gerði fyrir Sierre Leone; þ.e. svipta hulunni af þeirrj ótrúlegu spillingu, og mis- ferli, sem átt höfðu sér stað á stjórnartíma SLPP. Unnt er að gera sér nokkra grein fyrir spillingunni með því að líta á það misferli, sem játað var af fúsum og frjáls- um vilja. Fjármálaráðherrann fyrrverandi hefur t.d. játað að hafa tekið við 43.000 ster- lingspundum sem „pólitísk- um gjöfum" á sex ára tíma- bili. Fyrrverandi utanríkis- ráðherra játaði, að það hefðu átt sér stað mikil „hrossa- kaup“ um flestar framkvæmd ir á vegum stjórnarinnar, og þegar Sir Albert Margai var ásakaður um að hafa notað penginga, sem ætlaðir voru til endurbóta á hinum opin- bera embættisbústað hans, í sitt eigið hús, sagði hann: „Ég get ekki neitað þessu“. Banguar ofursti, formaður millibilsnefndar þeirrar, sem vék Juxon-Smith frá völdum, heldur því fram, að spillingin á stjórnartíma NRC hafi ver- ið jafnvel verri en á stjórnar- tíma Sir Alberts — ásökun, sem virðist nær óhugsandi með tilliti til nýjustu upp- Ijóstrana, enda þótt fólk í Sierra Leone viriðst ekki eiga erfitt með að trúa því. (Þegar Juxon-Smith tók við völdum í fyrra, lýsti hann yfir, að sérhver eyrir, sem landið eignaðist, myndi verða notað- ur í þágu þess. „Ég ágirnist ekki peninga; ég vil ekki spilla sál minni með auvirði- legum gróða . . . Siaka Stevens og Sir Henry Lightfoot-Boston eru nú báðir komnir aftur til Sierra Leone. Stevens er fyrrverandi verka- lýðsleiðtogi, sem var, áður en landið varð sjálfstætt 1961, andvígur varnarsamningi þeim, sem tillögur komu fram um, að gerður yrði milli Sierra Leone og Bretlands. Hann er fylgjandi hlutleysi. Flokkur hans er sagður vera róttækari en SLPP, en hugmyndafræðilegur munur þeirra skiptir litlu máli nú. Það sem máli skiptir, er, hvort Stevens muni verða þess megnugur að koma á heiðarlegri stjórn í landi sínu, þegar hann tekur við völdum, að öllum líkindum í júní. Þetta er ástæðan fyrir því, að fólk greiddi honum at- kvæði í kosningunum í fyrra og það er þetta, sem það væntir af honum nú. (Observer: Öll réttindi áskilin). Ambassodor í Póllandi hættir til að vinna fyrir HumphreY Varsjá 23. maí. AP. NTB. SENDIHERRA Bandaríkjanna i Póllandi, John A. Gronouski til- kynnti í Varsjá á fimmtudag, að hann mundi láta af sendiherra- embætti nú um helgina og snúa sér að kosningabaráttu Huberts Humphreys, varaforseta. Grounski studdi John F. Kenne dy í kosningabaráttunni 1960 og var póstmálaráðherra í stjórn Kennedys og síðan Johnsons. Grounski sagði, að Humprhey bæri höfuð og herðar yfir aðra keppinauta um forsetaútnefningu og hann væri heiðarlegasti og gáfaðasti máðurinn í bandarísk- um stjórnmálum um þessar mundir. Hesteigandi í Kardimommubæ hefur tapað brúnum hesti. Hesturinn er meðalstór útigenginn og skeifulaus. Þeir sem geta gefið upp- lýsingar um hestinn eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 51870 eða 19422. Gísli Guðlaugsson. BAHAMAEYJARNAR EIGIN LÓÐ Á HINNI FÖGRU ABACO Útborgun s.kr. 135,- Á mán. s.kr. 135,- Heildarverð s.kr. 8.370,- Lóðirnar, sem eru 900 ferm. liggja nálægt fögrum strandstöðum. Á hitabeltiseyjunni ABACO er sum- ar allt árið, baðstaðir, vatnasport, veiði og siglingar. Sendið þessa úrklippu og þér fáið ókeypis bækl- ing í litum, lóðakort og allar upp- lýsingar um ABACO. Bahama Property Development, Rindögatan 28, S-115 35, Stockholm, Sverige. Simi 67 57 20. Nafn ....................................... Sími ......... Heimili ......................................... Mbl. 26/5. (blokkletur). Upplýsingar á □ ensku, □ sænsku. IMýkomnir kvenskór, sandalar kven-, karlmanna- og barna. Ódýrir og góðir. Léttir sumarskór kven- og karlmanna. SKÖVERZLUN Wetwis /Jnd/iósso*uvi Laugavegi 96. ■ Næstu viku seljum við með 20% AFSLÆTTI gegn stuðgreilslu svefnsófasett — 1 og 2ja manna svefnsófa — svefnbekki — hjónarúm — dívana. Þér getið ekki gert betri kuup SVEFNBEKKJAIÐJAN Laufásvegi 4 — Sími 13492.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.