Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 1
32 SIIIliR Oi; 11 SIU>k
107. tbl. 55. árg.
SUNNUDAGUR 26. MAI 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hægri umferð á Islandi
M£g*8$^&
Þessi mynd af vinstri umferð var tekin um hádegið á föstudag
á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar. — Til samanburðar er
spegilmynd af sömu gatnamótum, einskonar hægri umferð.
(Ljósm. Ól. K. M.)
Tveir í fromhodi
til forsetakjörs
Frakkland logaöi í deiröum
Á MIÐNÆTTI í kvöld er útrunn-
inn framboðsfrestur til forseta-
kjörs. Morgunblaðinu er ekki
kunraugt um nema tvo fraimbjóð-
endur, þá dr. Gunnar Thotrodd-
sen, sendiherra, og dr. Kriistján
Eldjárn, þjóðminjavörð. í blaðinu
í dag eru samtöl við báða fram-
bjóðendur, á bls. 10 við dr. Gunn-
ar og á bls. 11 við dr. Kristján.
— Pompidou segir þœr tilraun til að
koma at stað borgarastyrjöld
— mörg hundruð manns meiddust
og tveir biðu bana í nótt
París, 25. maí — AP-NTB:
Blóðugar óeirðir brutust út í
Dr. Gunnar Thoroddsen
Dr. Kristján Eldjárn
Paris og viðar um Frakkland
klukkustundu eftir, að de
Gaulle hafði lokið ræðu sinni til
þjóðarinnar í gærkvöldi. Tveir
biðu bana, mörg hundruð manns
meiddust og um 200 manns voru
handteknir.
Philippe Matherion, 26 ára gam
all Parísarbúi varð fyrsta fórn-
arlamb hinna blóðugu og ofsa-
fengnu óeirða. Hann fannst stung
inn hnífi í hjartastað í latínu-
hverfinu í morgun. Hann hafði
numið raffræði við Sorbonne og
átti þar marga vini og fórþang-
að oft til skrafs við kunningja.
Hann var ekkjumaður og átti 6
ára gamlan son.
f Parisarborg einni munu hátt
á fimmta hundrað manns hafa
meiðzt og sumir hættulega. 1
Framhald á bls. 3'1.
Heræfingar Varsjár-
bandalagsins
— hetjast í Tékkóslóvakiu og Póllandi
í júmmánuði
Prag, Varsjá. 25. maí. AP. NTB.
TILKYNNT var í Prag og Varsjá
í dag, að miklar heræfingar
verði fyrir herforingja Varsjár-
bandalagsins í Póllandi og Tékkó
slóvakíu og hefjast þær í næsta
mánuði. Pólska fréttastofan Pap
og tékkneska fréttastofan Cedeka
birtu orðsendingar þessa efnis
og segir þar að æfingarnar verði
haldnar í samræmi við áætlun
yfirstjórnar Varsjárbandalagsins.
Öll lönd Joandalgasins munu eiga
aðild að æfingum þessum.
Tilgangur heræfinganna er að
samræma yfirstjórn herjanna í
nútíma hernaðaraðgerðum og'
auka á orustuhæfni liðsins og
yfirstjórnarinnar, segir í orösend
ingunni, og þar er þess og getið
að sovézki hershöfðinginn Ivan
Jakubovsky verði yfirstjórnandi
heræfinganna.
Alkunna er, að hin nýja for-
ysta í Tékkóslóvakíu er andvíg
því að verja miklu fé til heræí-
inga meðan efnahagur landsins
er ótraustur.