Morgunblaðið - 26.05.1968, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 196«.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 - Sími 30135.
Sófasett — sófasett Verð aðeins 18.900,-. Hag- kvæmir greiðsluskilmálar. Nýja Bólsturgerffin, Lauga vegi 134, sími 16541.
AEG og Bosch heimilistæki. Sérstök af- borgunarkjör. Sendi um allt land. Guðmundur Kjartansson Isafirði. Sími 507.
Keflavík — Suðurnes Volkswagen, hraðbátar, úr val bíla. Góðir greiðsluskil málar. Bílasala Suffurnesja, Vatnsnesveg 16, Keflavik. Sími 2674.
Tökum að okkur klæðninigar, gefum upp verð, áður en verk er haf- ið. Úrval áklæða. Hús- gagnaverzlunin Húsmunir Hverfisgötu 82. S. 13655.
Skrifstofuhúsnæði Til leigu skrifstofuhúsnæði við Laugaveginn. UppL í síma 15508 og 34608.
Iðnaðarhúsnæði Til leigu húsnæði fyrir léttan og þrifalegan iðnað. Uppl. í síma 15508 og 34608.
Skrúðgarðagerð og lagfæring lóða. Skrúffgarffa- og lóffa- skipulag s.f., símar 14149 - 17730.
Kona óskar eftir vinnu margt kemur til greina. Uppl. í síma 84004.
2ja—3ja herh. séríbúð jafnvel einbýlishús á ró- legum stað í Rvík óskast milliliðalaust, ef gott tilb. fæst. Tiib. senöist Mbl„ menkt „8751“.
Keflavík — Suðurnes Höru. og Politex-málning, verkfæri, plastþvottahús- vaskar, garðyrkjuáhöld. Stapafell, sími 1730.
Til sölu lítiff einbýlisihús á falleg- um stað í útjaðri borgar- innar. Uppl. í síma 84111.
4ra—5 herbergja íbúð óskast til leigu. UppL í símum 41037 og 51676.
Barngóð stúlka óskar eftir vist. Sími 99-4135.
íbúð óskast til leigu tveggja til þriggja herb. Sími 37531.
ódff&L
að 1 tilefni H-dagsins ætlaðihann
að vera sérlega H-tíðlegur í dag,
enda má geta þess, að annað sæm-
ir ekki, með tilliti til þess, að
þeir standa á H-lum ís fyrir norð-
an og austan ennþá. Svei mér, ef
mér finnst ekki, að framkvæmda-
nefnd H-umferðar ætti að stofna
H-stúku, þar sem allir hægri menn
gætu notið samvistanna við hvern
annan.
Og svo flaug ég þá niður í borg
í síðasta skipti í vinstri umferð,
brá mér svona stundum út á hægri
kant, þótt albannað sé öllum að
æfa sig í H-umferð fyrr en á H-
dag, nema þeim, sem virðast hafa
meiri nauðsyn á æfingu en aðrir,
svosem eins og lögregla og slökkvi
lið, en þau lið fengu heila flug-
braut tii æfinga, og ekki nema gott
eitt um að segja.
En eins og allir vita, ber fólki
að vera skælbrosandi að hvert öðru
á H-dag, og ekki einu sinni bíl-
beyglur mega koma I veg fyrir
það, að menn geti brosað til hægri
á þessu Brosandi landi, og jafn-
vel þótt eitthvað því líkt, sem Sig-
mund, vinur minn, teiknar hér fyr
ir ofan, komi fyrir, sem við skul-
um vona að Guð forði, þá eiga
menn bara að brosa til hægri, og
segja: „Þakka þér kærlega fyrir
vinur.“ Svona kemst náungarkær-
leikurinn á H-púnkt á H-degi.
Og með það var storkurinn flog-
inn upp í H-aloft, og sönglaði á
fluginu af gleði yfir öllu brosinu,
og ákvað einnig að hafa í H-veg-
um daginn 26. maí framvegis.
Því að Drottinn huggar lýð sinn,
leysir Jerúsalem (Jes.52,9).
í dag er sunnudagur 26. maí og
er það 147. dagur ársins 1968.
Eftir lifa 219. dagar.
í dag er H-dagur, og hægri um-
ferð hefst á íslandi. 6. sunnu-
dagur eftir páska. Rúmlega vika.
Tungl fjærst jörðu.
Árdegisháflæði kl. 5.51
Dpplýslngar u/n iæknaþjðnustu I
norginni eru gefnar i gíma 18888,
simsvara Læknafélags Reykjavík-
or.
Slysavarðstofan i Heilsuverndar-
stöðinni. Opin allan sólarhringinn
— aðeins móttaka siasaðra —
ifmi: 2-12-30.
Læknavarðstofan. Opin frá kl. 5
(iðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
nlla helgidaga. — Sími 2-12-30.
Neyðarvaktln i»varar aðeins á
vrrkum dögum frá kl. 8 tll kl. 5,
•imi 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar
oic hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4—5, viðtalstími prests,
þriðjud. og föstud. 5—6.
Kvöldvarzla í lyf jabúðum
í Reykjavík vikuna 25. mal -
1. júní er i Lyfjabúðinni Iðunni
og Garðsapóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði,
helgarvarzla laugard. mánudags
morguns, 25.-27 maí: Eiríkur Bjöms
son sími 50235, aðfaranótt 28. maí
Grímur Jónsson sími 52315
Næturlæknir í Keflavík
24.5 Arnbjöm Ólafsson
25.5 og 26.5 Guðjón Klemenzson
27.5 og 28.5 Kjartan Ólafsson
29.5 og 30.5 Ambjöm Ólafsson
31.5 Guðjón Klemenzson
Keflavikurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð 1 Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þrlðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sér«tök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtimans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutima er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavaraia, 18-230.
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, 1 SafnaðarheimiU
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð Hfsins svarar í síma 10-000.
sá NÆST bezti
Kristján frá Garðsstöðum, kom inn í bakarí á ísafirði á sunnoi-
degi. Hann bað um þrjár tebo'llur og tvö vínarbrauð, en segir svo.
„Nei, ætli það sé ekki bezt að hafa tebolluirnar fjórar, það gætu
komið gestir“.
BROSi-p s\joúrie> .
'I HfiEQRÍ UMFERÐÍMM/
UÍÐ £RUtf ÖLL
«3 .o
y?
ífctfOMD-
FRETTIR
KFTJM og K, Reykjavík
Aldarafmæli séra Friðriks
Samkoma kl. 8.30 Efni: „Boð-
andinn“. Sigurbjörn Þorkelsson flyt
ur inngangserindi. Lesnir kaflar úr
ræðum séra Friðriks. Kórsöngur.
Einsöngur.
Kirkja Óháða safnaðarins
Messa kl. 11 árdegis (athug-
ið breyttan messutíma). Séra
Emil Björnsson.
V erðlaunagiipir
Gluggasýning í verzluninni Sport
Laugavegi 13
Um þessar mundlr eru til sýnis
í glugga verzlunarinnar Sport, flest
ir verðlaunagripir, þeir, sem um
verður keppt á Evrópumeistara-
móti Sjóstangaveiðimanna, sem hér
á landi verðnr haldið um Hvíta-
sunnuna. AIls verður keppt um 75
verðlaun á mótinu, en keppendur
verða um 140, þar af helmingur
útlendingar. Róið verður frá Kefla
vík.
Bænastaðurinn Fálkagata 10
Kristileg samkoma sunnudaginn
26. mai kl. 4. Bænastund alla virka
daga kl. 7 e.m. Allir velkomnir.
Vottar Jehóva í Reykjavík, Hafn
arfirði og Keflavík.
örn Kaldalóns flytur í dag kl. 5
fyrirlestur í Rvík í Félagsheimili
Vals við Flugvallarbraut. Ræðan
heitir: „Hagnaður okkar af Ljóða-
ljóðum Salómons".
í Keflavík kl. 8 verður bibliu-
legi fyrirlesturinn: „Lambið og brúð
ur þess vinna lokasigur yfir öll-
um óvinum Guðs“.
í Hafnarfirði flytur Guðmundur
H. Guðmundsson opinberan fyrir-
lestur í Verkamannaskýlinu kl. 8
Ræðan heitir: „Þeir, sem kallaðir
eru til himnesks ríkis Guðs“.
Allir eru velkomnir á samkom-
umar.
Kvenfélag Kópavogs
fer í skemmtiferð þriðjudags-
kvöldið 4. júní nk. Lagt af stað
frá Félagsheimilinu kl. 8 stund-
víslega.
Konur vitji farmiðanna í Fé-
lagsheimilinu föstudaginn 31.
maí kl. 8—10 e.h.
Vegaþjónustubílar F. í. B.
verða á H-dag á þjóðvegum út
frá Reykjavik. Kranaþjónusta FÍB
er, eíns og fyrr, starfrækt, og verð
ur sími varðmanns á H-dag 50628,
nætursími 52450.
Hjálpræðisherinn
Sunnud. kl. 11 helgunarsamkoma
kl. 4 útisamkoma á Lækjartorgi.
kl. 8.30 Hjálpræðissamkoma. Flokks
foringjar og hermenn taka þátt i
samkomum dagsins.
‘Hjálpræðisherinn
Munið skemmtiferð Heimilasam-
bandsins á mánudag þ. 27. maí.
Lagt af stað frá Herkastalanum
kl. 1 stundvíslega.
Kristileg samkoma
verður i samkomusalnum Mjóu-
hlíð 16 sunnudagskvöldið 26. maí,
kl. 8 verið hjartanlega velkomin.
Stýrimannafélag íslands.
Orlofsheimili Stýrimannafélags ís
lands í Laugardal verður opnað 1.
júní. Væntanlegir dvalargestir eru
beðnir að hafa samband við Hörð
Þórhallsson hafnsögumann í síma
12823 sem allra fyrst.
Átthagafélag Kjósverja
heldur aðalfund smn í Tjarnar-
búð (uppi) þriðjudaginn 28. maí kl.
9.
Kvenfélag Neskirkjn
Aðalfundur verður haldinn
fimmtudaginn 30. maí kl. 8.30 i fé-
lagsheimilinu. Frú Geirþrúður Bern
höft flytur erindi um velferðamál
aldraðra. Myndirnar frá afmælis-
hófinu tilbúnar. Kaffiveitingar.
Kristniboðsfélag Karla.
Fundur mánudaginn KL. 8.30 í
Betaníu. Haraldur Ólafsson kristni-
boði talar. Allir karlmenn velkomn
ir.
Fíladelfía Reykjavík.
Almenn samkoma laugardags og
sunnudagskvöld 25. og 26. þ.m„
bæði kvöldin kl. 8 Jón Andersson
frá Glasgo talar. Hann dvelst hér
aðeins yfir þessa helgi. Safnaðar-
samkoma kl. 2 á sunnudag.
Hægri nmferð
Sjónvarpið er sallafínt
sizt þar lýgi mælir nokkur.
H-daginn það hefir brínt i
í hundruð skipti fyrir okkur.
Kastar engu korni á glæ
kunnum öll það vel að meta.
Alltaf sagt hann sé í maí
seinni partinn, þess má geta.
Þrotlaust hefir þetta H
þrumað fyrir eyrum vorum.
Og í myndum máttum sjá
menninguna í hægri sporum.
Þó er eins og þetta allt
þvælist fyrir okkur lengi.
Vinstri og hægri vega salt
vitaskuld á lágu gengi.
Þótt við séum þunn og sljó
þreytist ekki Sjónvarpsgreyið.
Aldrei verður nærri nóg
nýtt á stalli gamla heyið.
Nú er allt í H-dags hrinu
hátt til lands og út með sæ
Séð og heyrt í Sjónvarpinu,
I sunnudaginn 12. maí.
Góð ábending fyrir fólk
fróðlegt var að sjá og heyra.
Hver sem drekkur H-dags
mjólk
hugsar ekki um vinstri meira.
Drekki allir sopann sinn
sæmilega af H-mjólkinni.
Töluvert mun traffíkin
traustari í umferðinni.
Reyndar svo á réttri mjólk
rennum áfram breiða veginn.
Eflaust verðum fínna fólk.
förum alltaf hægra megin.
Hvoli, Innri-Njarðvík, 15. maí
Guðmundur A. Finnbogason.
í dag eiga gullbrúffkaup hjónin frú Þórunn Jónsdóttir og Eyjólfur
E. Jóhannsson, rakarameistari. Eyjólfur er flestum Reykvíkingum
aff góffu kunnur, enda vafalaust komið viff hár flestra, en hann
hefur um langan aldur stundað rakaraiffn hér í borg. Heimili þeirra
er aff Sólvallargötu 20.