Morgunblaðið - 26.05.1968, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ
Poul Engberg
— sextugur —
HANDRITAMÁLIÐ hefir sýnt
oss og sannað, að ísland á’
marga ágæta vini í Danmörk.
Einn af þeim er Poul Engberg,
lýðskólastjóri í Snoghöj við
Litlabelti. Hann á nú sextugsaf-
mæli í dag (26. maí) og mættu
íslendingar senda honum margar
hlýjar kveðjur og árnaðaróskir
og sýna með því, að þeir kunna
að meta góðvini.
. Engberg er lögfræðingur að
menntun og stundaði lögfræði-
að hann lauk námi. En þá gerð-
ist hann kennari við lýðskólann
í Askov, en sá skóli er mörgum
fslendingum að -góðu kunnur.
Þarna kynntist hann fljótlega
Bjarna M. Gíslasyni rithöfundi.
Þeir voru jafnaldra og tókst þeg.
ar með þeim kær vinátta, er
haldizt hefir æ síðan.
Á árunum 1951—1958 var Enig-
berg skólastjóri lýðskóla danskra
verzlunarmanna, en að því loknu
stofnaði hann lýðskólann í Snog-
höj. Formaður skólanefndar þess
skóla er hinn kunni íslandsvin-
ur, Bent A. Koch ritstjóri, og í
skólanefndinni á Bjarni M. Gísla
son einnig sæti. Má því segja að
Engberg hafi úrvalsmenn sér við
hlið, enda hefir skóli hans þegar
hlotið verðskuldaða viðurkenn-
ingu einkum sem boðberi og
vígi norrænnar menningar.
Engberg hefir ferðast víða um
Norðurlönd og flutt fyrirlestra
til eflingar norrænum bróðurhug
og norrænu menningarstarfi. Og
það var einmitt vegna brennandi
áhuga hans á þessum málum, að
bann gerðist framherji í barátt-
unni um lausn handritamálsins
og kvikaði aldrei frá þeirri
kröfu, að íslendingar fengi hand.
ritin. Hann ritaði margar grein-
ar um málið og lét sig hvergi
vanta á þeim vettvangi þar sem
harðast var deilt um það mál.
M. a. má benda á mynd, sem
birtist í Morgunblaðinu 1961 af
hinum merkilega stúdentafundi,
sem haldinn var í Kaupmanna-
höfn, skömmu áður en afhend-
ing handritanna var samþykkt,
og á þessari mynd má sjá hann
heldur ætti hauka í horni meðal
danskra menntamanna.
Enberg er heilsteyptur maður
og öll lítilmennska er honum
viðurstyggð og þvi hefir stund-
um staðið nokkur styr um hann.
Hann er sístarfandi ,eigi aðeins
sem skólamaður, heldur einnig
sem rithöfundur. Hann hefir rit-
að bók um Grundtvig á þýzku
og var hún gefin út í Stuttgart
1950. Þá hefir hann og samið
yfirlit um sögu og starf allra
norrænna lýðskóla og kom það
út 1948. En merkasta bók hans
mun vera „Romantikken og den
danske folkehöjskole“ og kom
hún út 1940. Þax sýnir hann
hvernig mikilvægustu áhrif róm-
antísku stefnunnar, þjóðernis-
kenndin, hefir umskapazt í lýð-
síkólunum. dönsku.
Með þessum fáu orðum viljum
vér þakka Engberg skólastjóra
fyrir heilan hug hans til íslands
í handritamálinu, og óska hon-urn
og skólanum hans í Snoghöj
allra heilla.
— Á.
stórf um tveggja ára skeið eftir
VÉLAMARKAÐUR
Höfum opnað vélamarkað að Seljavegi 2. Margs konar vélar og
vélahlutir, nýtt og notað.
Nýjar járnsmíðavélar
Kr. Kr.
Borvél VS-32 55.800.— Vélsög 16” 41.300,—
Rafsuðuvél „Triodin 320A 44.300.— Rafsuðutæki TR-260 19.845.—
Rennibekkur „Lesto“ 24.000.— Loftpressa 70 cu. fet
,,Stenhoj“ 29.900,—
Notaðar jársmíðavélar
Kr. Kr.
Súluborvél 5/8’’ 18.000.— Súluborvél 1” 30.000,—
Rennibekkur „Nebel“ 9” 75.000.— Slípivél „Norton“ 80.000.—
Planhefill 20.000.— Rennibekkur, lóðréttur 60.000,—
Punktsuðuvél 25.000.— Vökvapressa m/dælu 30.000.—
Hraðsteypuvél 30.000,— Gasskurðarvél 20.000,—
Rafsuðutæki ,,Esab“ 350A 24.000,— Rafsuðutæki „Esab“ 200A 16.000.—
Rafsuðuvél „Esab“ 250A 25.000,—
Ýmsar vélar og tæki
Kr. Kr.
Vél fyrir trésköft 4.000,— ísblásari 15 tonna m/mótor 45.000.—
Mjólkurkælir m/kælivél 8.000.— Rennilokar st. járn 6”—14 »»
Loftviftur margar stærðir Rafmagnstalíur
Dælur margar stærðir Tannhjól
Rafmagnsspil Rafmótorar
Hlaupakettir Reimskífur
Snekkjudrif
Gangsetjarar
KOSTABOÐ.
„Stroj“-rafsuðuþráður 3.15 — 4.0 — 5 m/m, 30 kg. pakkinn kr. 150.00.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Komið og skoðið. — Hafið samband við söludeild. — Gengið inn um skrif-
stofudyr.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN SÍMÍ 24260
sitjandi á fremsta beikk. Það var
á þessum fundi, að Bjarni
M. Gíslason var málshefjandi
og tætti sundur villukenningar
prófessors Bröndum-Nielsen, sæll
ar minningar, en þá var það að
Enigberg vildi með nærveru sinni
stappa stálinu í vin sinn og sýna
honum að hann stæði ekki einn,
Nauðungariippboð
Eftir kröfu Tryggingarstofnunar ríkisins, Búnaðar-
banka íslands og Framkvæmdasjóðs íslands, verður
síldar- og fiskvinnslustöð við Brekkustíg 36, Ytri-
Njarðvík, þinglesin eign Áka Jakobssonar, seld á
nauðungaruppboði, sem háð verður á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 28. maí 1968, kl. 4.45 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 11., 14. og 16. tölu-
blaði Lögbirtingablaðsins 1966.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI 10*100
10 ARA ABTRGÐ
TVÖFALT
EINANGRUNAR
hérlendis
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON «CO HF
10 ÁRA ÁBYRGÐ