Morgunblaðið - 26.05.1968, Page 15
MORGUNBL.AÐIí), SUNNUDAGUR 26. MAl 1968,
15
— Sjómannadagnrinn —
ar þágu og fáum unga áhuga-
menn til liðs við okkur, þá er
ég viss um að togaraútgerðin
verður bjargvættur þjóðarinnar
eins og fyrr. Tæknileg menntun
og fjölþætt starfsþekking verður
að koma til. Aukin kunnátta
þýðir aukinn og verðmætari afla.
Rannsóknir og tilraunir með
veiðarfæri hafa ekki verið til
og leiðbeiningarstöð fyrir skip-
stjórnar- og útgerðarmenn í því
efni er engin til. Verðmætum
tima hefir verið kastað á glæ
SVEINBJÖRN Helgason vélstjóri
er 59 ára gamall og stundar nú
nám í Vélskólanum, í „Öldunga-
deildinni", en þar eru vél-
stjórar sem ekki hafa tekið vél
stjórapróf frá Vélskólanum.
Við ræddum við Sveinbjörn:
— Hvað ert þú búinn að vera
lengi til sjós?
— Ég er búinn að vera til
sjós í sl. 20 ár og alltaf á Úran-
usi. Ég byrjaði sem kyndari á
Úranusi og er núna 1. vélstjóri,
en það hef ég verið sl. 5 ár.
— Nú stundar þú nám í vél-
stjómarfræðum 59 ára gamall.
og sjómenn hafa sjálfir orðið að
þreifa sig áfram í blindni til
að ná þeim árangri, sem þeir þó
hafa náð til þessa. Auðvitað nær
þetta engri átt.
Og ef við förum ekki strax
að gera eitthvað í þessum málum
þá missum við frá okkur þá fáu
menn, sem ennþá starfa að tog-
araútgerð í landinu.
Ég tel þetta mál málanna hvað
við kemur sjávarútvegi okkar í
dag, sagði Loftur Júlíusson að
lokum.
— Já, þetta hefur verið prýði-
legt í skólanum, þar mæt-
um við framúrskarandi
kennslu. Skólastjóri og
kennarar vilja allt fyrir okk-
ur gera til þess að þetta verði
okkur sem að mestu gagni. Við
höfum náttúrlega margir ágæta
reynslu, en við fáum hér nýja
þekkingu, sérlega í smáatriðum
og það veitir betri innsýn. Kann
ég skólastjóra og kennurum
beztu þakkir fyrir lipurð og vel-
vilja til okkar allra.
— Er eitthvað sériega minnis
stætt fyrir þig frá sjómennsk-
Sveinbjörn Helgason.
unni?
— Það er náttúrlega margt
minnisstætt, en mér kemur í hug
þegar við fengum brotsjóinn á
Úranusi á hafinu á milli Fær-
eyja og íslands. Það tók af okk-
ur báða björgunarbátana og sjór
inn braut allt fram að brú. Ann
ars er æði margt sem komið hef
ur fyrir á langri leið.
— Og svo er það sjórinn aft-
ur?
— Já, skipið bíður og maður
er nú orðinn órólegur að kom-
ast ekki á sjó, það er komið nóg
af landi í bili- Þetta eru ekkert
nema helgidagar, þegar maður er
í landi.
Sveinbjörn Helgason, vélstjóri:
„ Þetta eru ekkert nema helgi-
dagar, þegor moður er í landi"
Þorvaldur Ottóson, skipstjóri:
„Ég vil ekki vinna í landi“
ÞORVALDUR Ottóson er skip-
stjóri á eigin bát m.b. Tvisti, sem
er 15 tonn að stærð með 4 áhafn
armeðlimi.
Við ræddum stuttlega við Þor
vald:
— Hvað ert þú búinn að eiga
þjnnan bát lengi?
— Síðan í vetur, við byrjuð-
um um miðjan apríl og höfum
verið á handfærum síðan.
— Hvernig hefur gengið?
— Það hefur gengið svona
frekar stirt. Ég hef aldrei ver-
ið á færum fyir og er því ókunn
ugur miðunum. Það hefur verið
mikið að segja að þekkja mið-
in.
— Eru þetta ungir menn, sem
eru hjá þér?
— Já, allt ungir menn. Það
er meiningin að fara norður í
sumar og vera á skaki þar, ef þá
ísinn fer.
— Líkar ykkur vel á sjónum?
— Já, mjög vel. Ég vil ekki
vinna í landi, sjórinn togar mann
alltaf aftur til sín. Ég vonast
bara til að þetta gangi vel, og
þá er að fá sér stærri bát.
Þorvaldur Ottóson.
Forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson í fylgd Guðmundar Odd
ssonar, skoðar bátslíkan af segl-og áraskipi.
Því er slegið föstu: Hvergi meira fyrir ferðapeningana:
IVVallorca og London 17 dagar krónur 8.900—
NÝJUNC:
Á 4 tímum beint til Mallorca
með Boeing-þotu Flugfélags
íslands.
Nú komast íslendingaT eins og aðrar þjóðir ódýrt til sólskinsparadísarinnar á Mallorca,
vinsælasta ferðamannastað álfunnar. Mallorca er vinsælust allra staða vegna þess að
sólskinsparadísin þar breg'st ekki og þar er fjölbreyttasta skiemmtanalíf og mestir
möguleikar til skoðunar og skeimmtiferða um eyjuna sjálfa sem er stærri en Borgar-
fjarðar- og Mýrarsýslur til samans og einnig hægt að komast í ódýrar skemmtiferðir
t:l Afríku, Barcelona og Madrid (dagsferð r). Monte Carlo og Nizza. Flogið beint til
Spánar með íslenzkri flugvél. Tveir heilir sólarhringar í London á heimleið. Þægilegar
ferðir tiil eftársóttra staða.
SUNNUFERÐIR eru ferðirnar sem fólkið velur.
Brottfarardagor annan hvorn miðvikudag
Næstu ferðir: 5. júní, 19. júní, 3. júlí, 17. júM, 31. júlí,
14. ágúst (fullbókað), 28. ágúst (fuffllbókað, 11. septemiber
(fullbókað), 25. septemiber, 9. öktóber og 23. október.
Ferðaskrifstofan
Athugið aff SUNNA hefir fjölbreytt úrval annarra hópferffa einnig meff íslenzkum fararstjórum. Og ferða-
þjónusta SUNNU fyrir hópa og einstaklinga er viffurk ennd af þeim mörgu sem reynt hafa.
Bankastræti 7
símar 16400 og 12070.
SUIMIMA