Morgunblaðið - 26.05.1968, Page 17

Morgunblaðið - 26.05.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1968. 17 Aldarafmæli séra Friðriks Nú í d»g, laugardaginn 25. maí, eru liðin 100 ár frá fæð- ingu séra Friðrika Friðriksson- ar. Fáir samtímamenn séra Frið- riks á íslandi höfðu meiri áhrif um sína daga né eru enn svo lifandi í hugum margra sem hann. Þetta á ekki við íslend- iniga eina. Einn helzti valdamað- ur í Danmörku, atkvæðamikill ráðherra í hinni nýju ríkisstjórn þar í landi, hafði í vetur orð á því við íslending, að séra Frið rik hefði haft mikil áhrif á sig Þessi mynd er tekin í bás S. V. F. í. á sýningunni Islendingar og hafiö og sýnir líkan af björg- un úr strönduðum togara við brimaða strönd. björgum mót við Ránar regin fár, vit þó samt, að voðamagn þitt digra, vinnur aldrei sama tjón sem fyrr: æðra magn þinn æðiskraft mun sigra unz þú flýr’ð um Heljar dyr! Veit ég glöggt, þú þykist sá hinn sami, suttungs arfinn jökulrami, þyrstur enn í íslands merg og blóð. En þó fjari fjörið mitt og þorni, fagna ég með hverjum nýjum morgni, meðan sólin signir mína þjóð. Víst má segja margt sé enn í molum, meir, því meir sem lengra áfram vinnst, raunir líka þyngri þolum, þar til hjálparráðið finnst. Og á meðan völd þín þverra og þrotna, þrældómsfjötrin sundur brotna, þar til hrökkva hinztu landsins bönd. Glatt mun þá á bláum bárulegi, betra þó á sléttum ísarnvegi, bezt í lofti fljúga strönd af strönd.“ REYKJAVÍKURBRÉF á æskuárum. Svipað hefur Kan- adamaður, uppalinn í Winnipeg, sagt og var þó ekki af íslenzk- um uppruna en hafði haft sam- gang við vestur-íslenzk ung- menni um þær mundir, sem séra Friðrik dvaldi þar vestra. Kunn- astur varð séra Friðrik þó að sjálfsögtðu í heimalandi sínu og áhrif hans mest hér. Séra Frið- rik hafði einstakt lag á því að skilja imglinga og ná tökum á þeim. Hann var ætíð léttur og kátur, skrafhreifinn, hugmynda- ríkur, vei hagmæltur, hafði gam- an af söng, kryddaði ræðu sína skemmtilegum sögum, ólatur tS gönguferða, hvatti unglinga til íþróttaiðkana, átti þátt í stofn- un Vals og efndi til skátafélags, Væringja, svo að nokkur dæmi séu nefnd. í fáum orðum sagt, þá var séra Friðrik öllum mönn- um óeigingjarnari og lifði fyrir þá hugsjón að efla kristna trú á meðal ungra manna. Hann skildi, að það varð ekki gert með þurri bókstafsboðun, heldur víðfeðmu starfi og þátttöku í lífi þeirra, sem hann vildi vinna fyrir. Að sjálfsögðu geðjaðist mönnum, jafnt ungum sem gömlum, mis- jafnlega að boðskap séra Frið- riks, en enginn, sem honum kynntist, getur neitað ávinning af þeim kynnum. Séra Friðrik var ekki eingöngu einlægur trú- maður, heldur sannmenntaður á gamla vísu, mikill latínumaður, gerkunnugur hinum sígildu höf- undum á því máli. Þess vegna höföu einnig þeir menntamenn, er aldrei hrifust af trúarboðskap séra Friðriks, á honum miklar mætur sem menningarfrömuði. íslendingar hafa ekki reist lík- neski af mörgum sinna merkis- manna, allra sízt í lifanda lífi. Svo var þó gert af séra Friðrik og þótti flestum eðlilegt og eng- um starf hans þar með of þakk- að. Ægifögur sýn Það var ægifögur sýn að fljúga yfir ísland og umhverfis mikinn hluta þess sl. laugardag, hinn 18. maí. Þó að túnblettir inn á milli húsa í Reykjavik væru að- eins að byrja að grænka, var úti á landi úr lofti naumast að sjá stingandi strá. Allur Borg- arfjörður var enn með visnum vetrarsvip. Það var ekki fyrr en flogið var inn yfir landið austan frá yfir Meðalland og Álftaver að sjá mátti grænum lit bregða fyrir á túnum svo að nokkru næmi. Mátti þó fremur merkja litaskipti vegna löngunar til að sjá þau, heldur en þau í sjálfu sér skæru í auga. Hrútafjörður ■Laugardagur 25. maí var fullur af ís og íshrafl víða um Húnaflóa. Siglingaleið var hins vegar opin fyrir Horn, Strandafjöll og öll fjöll önnur austur um alla leið að Horna- firði spegluðust í sjó, þar sem hann var ekki ísilagður, því að blæjalogn var og bjart yfir. Úr lofti var lítinn ís a'ð sjá á Skaga- firði og Eyjafirði, og ekki mik- inn á vestanverðum Skjálfanda, enda voru bátar á veiðum á öll- um þessum slóðum. Úti við hafs- brún sýndist hins vegar liggja samfelld ísspöng svo langt sem augað eygði. Eftir því sem aust- ar kom þéttist ísinn og virtist með öllu ósiglandi fyrir Langa- nes. Frá Langanesi alla leið vest- ur að Ingólfshöfða var ístunga með landinu og fyllti firði og víkur eftir því, sem séð varð, en komst þó ekki inn á Horna- fjörð sjálfan e'ða lónin þar fyr- ir austan. Þessi ístunga var breiðust nyrzt, áreiðanlega nokk uð yfir 10 sjómílur, um 3 sjóm. út af Hornafirði en mun mjórri þegar nálgaðist Ingólfshöfða. Allur er þessi ís lagnaðarís og hvergi borgarísjaka að sjá. Hátt úr lofti skoðað er ísinn gersam- lega flatur, en þegar neðar kem- ur birtast töluverðar ójöfnur. Jakarnir eru mjög mismunandi stórir, minnka eftir því sem sunnar dregur, enda er ekki um að villast, að sjávargangur og hiti smávinna á ísspönginni og mola hana í sundur. Ekki tjáir að æðrast Úr lofti og talsverðri fjarlæg'ð ytfir hafi virtist Norð-Austur- land sem samfelldur jökull nið- ur að sjávarmáli og landföst ís- breiða fyrir utan og mátti telja með ólíkindum, að hægt væri fyrir venjuleg skip að brjótast þar í gegnum. Þegar komið var suður undir Skrúð, þá lá strand- ferðaskipið Blikur þar fyrir utan ísröndina, og sýndist ekki líklegt að það mundi skjótlega ná til lands, því að þéttur ís lá me'ð strandlengjunni. Daginn eftir tókst skipinu þó að komast inn á Stöðvarfjörð. ísinn er á stöð- ugri hreyfingu, svo að vakir myndast ætíð öðru hvoru. Hin sífellda hreyfing gerir hinsvegar erfiðara að opna braut, t.d. með ísbrjót, því að allar líkur benda til að hún fyLltist jafnóðum aftur. Allt þetta verður nú bet- ur kanna’ð. Víst er það, að ís- inn hefur valdið miklu tjóni, hindrað flutninga, stöðvað sjó- sókn og haft kulda í för með eér. Engu að síður verður að vona, að komið verði í veg fyrir beina neyð af þessum sökum. Hryll- ingsskrif Tímans af þessu tilefni eru engum til framdráttar. Hjört ur Hjartar varð sér til lítillar sæmdar með því að reyna a'ð snúa sjónvarpsviðræðum í stjórnmálakarp. Ingólfur Jónsson svaraði eins og efni stóðu til, en Tíminn reynir síðan að ó- frægja hann gersamlega að ástæðulausu. Ásakanir um sein- virk störf hafísnefndar eru og algjörlega út í hött. Að sjálf- sögðu hefði fulltrúa Framsóknar verið auðvelt að fá fund í nefnd- inni, ef hann hefði borið fram kröfu um það. Hvorki hann né aðrir sáu fyrir, hvernig fara mundi og flestir vonuðu um sl. imiánaðamót, að mesta hættam væri liðin hjá. Hinsvegar hefur ríkisstjórnin að sjálfsögðu ætíð fylgzt með málum, þ.á.m. greitt fyrir að nægar fóðurvörur væru til í landinu og verið reiðubúin til að aðsto'ða við flutninga efti* því sem óskir hafa komið fram og efni hafa staðið til. Hvorki nú né ella tjáir að æðrast yfir örðugleikum, heldur leitast við að bæta úr þeim eftir föngum og læra tii undirbúnings fyrir fram- tíðina. „Lamlsins forni fjandi“ Að undanförnu hefur mörgum orðið á að halda, að hafísinn væri úr sögunni, bæ'ði vegna breytts veðurfars og vegna þess að með nútímatækni yrði tiltölu- lega auðveldlega við hann ráðið. Reynslan á eftir að skera úr um hið síðartalda. Hinu verðum við að vera viðbúnir, að hafis eigi enn eftir að hrella okkur um ó- komin ár. Af nýlegum skrifum mætti ætla, að t.d. á síðustu öld hafi það verið undantekning, ef hafís bar að landi. Sannleikurinn er hinsvegar sá, að undanteknimg var, ef hann kom ekki, þó að hann væri að vísu mjög misjafn- lega nærgöngull og þar með skaðsamlegur. Þess vegna var það, sem Matthías Jochumsson kvað fyrir 80 árum, á laugar- dag fyrir páska 1888, sitt fræga kvæði, er byrjaði svo: „Ertu kotttinn, landsins forni fjandi? Fyrstur varstu enn að sandi, fyr en sigling, sól og bjargarráð. Silfurfloti, sendur oss að kvelja! situr ei í stafni kerling, Helja, hungurdiskum hendandi yfir gráð?“ Hvar er hafið? Þegar menn fljúga yfir hafís- brei’ðuna vaknar ætíð þessi spurning: Hvar er hafið? Það, sem gerði ístunguna, er teygði sig alhvít suður með landinu svo ægifagra, var einmitt að sjá fyrir utan hana hið opna, bláa frjálsa haf. Litaskiptin voru ó- gleymanlega fögur og mikilfeng leg, en ægilegt var að hugsa til þess hvílíkan skaða þessi mjóa tumga, er sleikti landið, gæti gert. Þeir, sem innan við búa sjá ekkert nema hvítan, hljóðlaus- an, nístingskaldan ísflötinn. Eins og Matthías segir í sama kvæði: „Hvar er hafið? hvar er beltið bláa, bjarta, frjálsa, silfurgljáa? Ertu horfin svása svalalind? — Þá er slitið brjóst úr munni barni; björn og refur snudda tveir á hjarni, gnaga soltnir sömu beinagrind. Þá er úti um frið og fagra daga, frama, dáð og vit og hreysti- þrótt, þá er búin þjóð og saga, þá er dauði, reginnótt". Nú á hátíðisdegi sjómanna er sérstök ástæða til þess að minn- ast þess, hvílík lífslind hafið er Íslendingum og hvílíka hreyati sjómenn okkar hafa fyrr og síðar sýnt við að sækj a þangað lífisbjöng. Skáldið lét og ekki bugast heldur segir í síðasta erindi þessa kunna kvæðis: „Veikur maður, hræ'ðslu eigi, hlýddu, hreyk þér eigi, þoldu, stríddu. Þú ert strá, en stórt er Drottins vald. Trú þú: — upp úr djúpi dauða, Drottins rennur fagrahvel." „Vinimr aldrei sama tjón sem fyrr“ 28 árum síðar kveður Matthí- as nýtt hafískvæði, „Hafismál hin nýju.“ Hann gerir það hinn 31. maí 1915, þegar ísinn fyllti Akureyrarpoll. Þá minnist hið áttræða skáld síns gamla kvæð- is, þykir ísinn „hlæja og storka sér“ en svarar: „Grimmdar seggur! fer þér aldrei aftur? Undrar mig þinn fítons kraftur, eftir talin tuttugu og átta ár! Nærri sjálfum Niflheim áttu sæti, Norðri þó að börn þín sundur tæti, Víst má segja að margt sé enn í molum Þessar hendingar sanna, að hið áttræða skáld hefur hvorki skort bjartsýni, andagift né framsýni, og heldur ekki það raunsæi, sem e.t.v. er mest um vert. Hann viðurkennir, að margt sé enn í molum, en bætir við þeim sann- indum, sem vi'ð enn eigum ákaf- lega erfitt með átta okkur á en verða nú með hverjum deginum ljósari ekki eingöngu hér á landi heldur miklu fremur og enn átakanlegar úti í hinuim stóra heimi, að það er eins og því fleira verði í molum, „því meir, sem lengra áfram vinnst.“ En þó að margt sé í molum, þá skapar frelsi þjóðarinnar og tækn in nýja möguleika til að sigrast á hinum ytri erfiðleikum, með siglingum á sjó, með vegum á landi, — járnbrautum ef svo vill verkast — og með því er eftirtektarverðast af öllu er, að áttrætt skáld skyldi sjá fyrir 1915, a'ð í baráttunni við hafís- inn yrði „bezt í lofti fljúga strönd af strönd“. „Annar jötunn ógurlegri æðir“ Þess vegna óttast hið áttræða skáld ekki lengur svo mjög landsins forna fjanda, heldur segir: „Annar jötunn ógurlegri æðir, allra þjóða menning hræðir, miklu meir en eldur, ís og él, Það er mannsins æfagamla æði, eldra en sögur, þjóðir, Nóaflæði' auðs og valda óþrotlegu él! Allur heimsins ís er lítilræði á við etríðsins blinda heljar fár: Þá er lokið líkn og næ'ði, lífið orðið blóð og tár.“ Þetta orti Matthías Jochumsson í upphafi heimsstyrjaldarinnar fyrri á meðan hún enn var barna leikur miðað við það, sem hún sjálf síðar varð, svo að ekki sé talað um þau ósköp, er eftir áttu að gerast fram á þennan dag. Enn sjáum við „mannsins æfa- gamla æði“ í fullum kratfti. Jafn vel á okkar litla landi hafa öfl- ugir talsmenn þess efnt til ófrið- ar og reyna að koma illu af stað, hvetjandi til þess, að í stað rök- ræðna og skynsamlegrar íhugun- ar, þá sé tekið upp skrílsræði, grjótkast og ofbeldi. Ömurlegast af öllu er þó, þegar þeir, sem blása sig út af fordæmingu yfir stríðsvilja og siðleysi annarra gera sig sjálfir seka um siðleysi gagnvart þeim, sem þeim er trú- að fyrir, og prédika að stétta- stríð og innbyrðis hatur sé ráð- fð til þess að lækna hin sárustu þjóðarmein.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.