Morgunblaðið - 26.05.1968, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 196«.
Á síðasta sjómannadegi, 28.
maí 1967, Var sr. Jón Thor-
arensen um borð í m.s. Dranga
jökli, þar sem skipið var á
siglingu á Miðjarðarhafinu. í
tilefni dagsins gekkst sr. Jón
fyrir messu um borð. Skip-
ið var stöðvað og öll áhöfn-
in kölluð á bátaþilfar til þess
að hlýða á messu. Var þetta
mjög hátíðleg athöfn og virðu
leg. — Jóhannes Ingólfsson,
sem þá var skipstjóri á
Drangajökli, hefur sent blaðinu
ræðu sr. Jóns, sem hér fer á
eftir, með ósk um að hún
yrði birt núna á sjómanna-
daginn.
Sjómannadagsræða
um borð í Dranga j ökli á IVIiðjarðarhafi
Drangajökull á siglingu.
eftir sr. Jón Thorarensen
Himneski faðir!
Þú sem ert Herra himins og
jarðar og stjórnar hafinu og
lögmálum þess, lof sé þér og veg
semd og þökk. Vér þökkum
þér fyrir Frelsara vom Ðrott-
in Jesú Krist. Vér biðjum
um þína náð og blessun fyrir
alla ástvini vora nær og fjær,
og um hjálp þína og huggun fyr-
ir alla sjúka og sorgmædda. Vér
biðjum þig, að blessa og varð-
veita þessa skipshöfn hér, og
skipið sem vér erum á í Jesú
nafni Amen.
Á þessum Drottins degi sem
er fyrsti sunnudagur eftir Trini
tatis og um leið sjómannadagur-
inn íslenzki er texti minn úr
Hebrea bréfinu og hljóðar
svona: Guðs traustið er akkeri
sálarinnar. Amen.
Það er hátíðlegt að geta minn-
st Sjómannadagsins hér í Mið-
jarðarhafinu, því Miðjarðarhafið
er kölluð vagga sjómennskunnar.
Þúsund ár á undan Rómverjum
voru Fönikíumenn fyrsta sigl-
ingaþjóðin á Miðjarðarhafinu,
og stofnuðu borgirnar Marseille
og Napólí svo nefnd séu dæmi.
Og Miðjarðarhafið er líka vagga
Kristindómsins hér á jörðu, því
ó sjóferðum um þetta haf byggð
ist útbreiðsla hinnar Kristnu
trúar, og hér lenti Páll Postuli
í sjóhrakningum við eyna Möltu
og Lúkas Guðspjallamaður var
skipslæknir á stóru fornaldar-
skipi sem gekk hér um Miðjarð-
arhafið. Þannig mætti halda
lengi áfram að tala um Miðjarð-
arhaifið í sambandi við sjó-
nennskuna því ekkert haf er
sögu ríkara um siglingar en það.
En vér skulum nú snúa hug-
um vorum heim til Fósturjarðar
vorrar á þessum Sjómannadegi.
í upphafi voru íslendingar
miklir farmenn og áttu skip sín
sjálfir allt til þess tíma að
Gamli Sáttmáli var gerður á
milli fslendinga og Noregskon-
ungs. Þá var útlendum mönnum
falið, að sjá um siglingar fyrir
fslendinga, og þá hófst niður-
lægingartímabil þjóðar vorrar,
með fækkandi skipum og þverr-
andi flutningum. Menning og
velmegun hefur alltaf fylgt í
kjölfarið hjá siglingaþjóðum, en
niðurlæging og fátækt þegar
skipum hefur fækkað og skipa-
skortur orðið. Þetta alvörumál
þekkir íslenzka þjóðin vel. End-
urreisn íslenzku þjóðarinnar
hefst ekki fyrr en að íslending-
ar fara á þessari öld að eignast
stór skip og annast millilanda-
siglingar sjálfir. Á sjómanna-
stéttinni hvílir mikið hlutverk.
Þeir afla yfir 90 af öllum út-
fluttum verðmætum þjóðarinnar,
og þeir annazt hinar dýrmætu
Sr. Jón Thorarensen
uppbyggjandi millilandasigling-
ar, sem eru hverri þjóð hin
mesta lífsnauðsyn.
Gott dæmi um það hve far-
mennskan hefur verið rík í eðli
fslendinga alla tíð, er Ögmund-
ur Pálsson, sem var síðasti Kaþ
ólski biskupinn í Skálholti. Þá
voru siglingar islenzku þjóðar-
innar svo að segja engar, og
skipakostur íslenzkur yfirleitt
ekki til. En Ögmundur Pálsson
var bæði biskup og lærður er-
lendis í siglingafræði. Hann var
bæði framkvæmda- og hugsjóna-
maður. Hann var skipstjóri áður
en hann varð biskup, og stjórnaði
seglskipi fyrir Skálholtsstað, en
skip hans var í flutningum milli
Kaupmannahafnar og Þorláks-
hafnar.
Frægustu orð um sjómennsk-
una, sem eru heimsfræg voru
sögð hér við Miðjarðarhafið af
Pompeusi, rómverska stjórnmála
manninum, en þau orð eru þessi:
„Nevigare Necesse". sem þýða,
það er nauðsynlegt að sigla.
Þessu mega stjórnmála- og for-
ystumenn þjóðanna aldrei
gleyma. Farmenn eeu hin dýr-
mæta eign hverrar þjóðar. Þeir
eru langdvölum að heiman frá
ástvinum sínum og skyldfólk-
inu sem er heima: Hvar skyldi
hann nú vera? Og hvernig
skyldi honum líða? Þetta eru
spurningar á andvökunóttum
þeirra sem heima eru, sem elska
þig, fórna sér fyrir þig, vona á
þig og treysta þér.
Svona er lífið allt jafnvel í
meðlæti og sólskini er það
blandað með söknuði og oft með
tárum.
En þessir menn sem sigla um
höfin eru hinir dýrmætu synir
þjóðanna og metnaður hverrar
þjóðar og heilög skylda er að
gera ávallt vel við þessa stétt,
og það eiga forystumennirnir
hiá þjóðunum ætíð að muna.
í fornöld, löngu á undan
Krists-fæðingu var grískur skip-
stjóri staddur í ofsaveðri úti á
Grikklandsbafi. Hann ákallaði
hárri röddu í neyð sinni og
Poseidon, sj ávarguðinn með
hárri röddu í neyð sinni, og
mælti: Faðir minn, þú sem ræð-
ur yfir hafinu, bjargaðu okkur
og gefðu okkur blíðan sjó, en
ég skal gera skyldu mína meðan
mín nýtur við til hinztu stundar.
Og ósýnileg rödd svaraði í
eyra hans. Af því að þú ert
vakandi skyldurækinn og trúr
skal ég bænheyra þig, og svo
batnaði veðrið. Þessi saga flyt-
ur oss enn í dag mikinn lærdóm.
Skipstjórinn ákallaði Guð sinn,
sem hann trúði á, og hann fékk
bænheyrzlu. Og orð Biblíunnar
eru eins og staðfesting á þess-
ari sögu, því í Guðs orði standa
þessi orð: Guðs traustið er akk-
eri sálarinnar. Jesús Frelsari
vor og Drottinn sagði lærisvein
um sínum alltaf að vaka og
biðja, að vera vakandi yfir
skyldunni og lifa í trú, trausti
og bæn til Guðs-
Gróðurluis
Gróðurhús um 80 ferm. til sölu til brottflutnings.
Upplýsingar í sima 13072.
í hinum stormasama heiml
mannlífsins, þar sem skiptist á
skin og skúrir, og gleði og sorg,
og þar sem líf manna er ákaf-
lega fallvallt eins og allir vita,
þar er Guðs traustið akkeri sál-
arinnar. Það er hin æðsta nauð-
syn að ákalla Guð Faðir á hverj
um degi, því hann ræður yfir
hafinu og lögmálum þess. Hann
ræður yfir hinu mikla hafdjúpi
sem aðskilur þetta líf og hið
komanda. Hann ræður yfir
heilsu vorri og kröftum, hann
verndar og varðveitir ástvini
vora sem eru í fjarlægð.
Og allt lífið frá vöggu til
grafar er ein stór sjóferð hjá
öllum um lífsins haf.
Þetta fundu Postulamir sem
skrifuðu Heilaga Ritningu. Þeir
voru fiskimenn og farmenn. Jes-
ús valdi þessa menn til þess að
fylgja sér, það voru sjómenn,
sem fyrstir boðuðu kristindóm inn
hér á jörðu eru helguð þessum
farmönnuim fornaldarinnjar, en
ekki biskupum eða prestum.
Allir sjómenn ættu að minn-
ast þess, að það voru stéttar-
félagar þeirra í fomöld sem
lögðu grundvöllinn að kristin-
dóminum hér á jörðu, fyrst hér
í löndunum við Miðjarðarhafið,
en héðan breiddist hann út. Nú
er Kristindómurinn sem Jesúis
flutti okkur, sem okkur finnst
æðsti og bezti boðskapur lífs-
ins, orðinn að heimstrúarbrögð-
um fyrir löngu.
Blessaðir séu allir sjómenn lífs
og liðnir.
Ég óska þess og bið á þessum
hátíðisdegi ykkar sjómannanna,
megi Guðs varðveizla vera með
öllum farmönnum. Ég bið Guð
föður að blessa og varðveita
ykkur alla skipsmenn hér um
borð, varðveita líf ykkar og
heilsu og starfskrafta. Ég bið
þess að Guð blessi öll verk
ykkar, svo að lán og farsæld
fylgi öllum störfum ykkar, ég
bið Guð föður að vernda ykkur
frá öllum hættum, hvar sem þið
stigið á land, og veita ykkur þá
náð að þið komfð alltaf heilir
og farsælir um borð aftur, en
fyrst og síðast bið ég þó þesa
að þið komið alltaf heilir og
hraustir úr hverri sjóferð hekn
til ástvina ykkar og skyldfólks-
ins ykkar heima á íslandi. Ég
bið fyrir konum ykkar og börn
um, foreldrum og systkinum,
skyldfólki og tengdafólki og
öllum þeim sem eru ykkurhjart
fólgnir og kærir heima á föður-
landi.
Ég bið fyrir þessu faHega og
yndislega skipi, sem við siglum
á, að Guðs blessun sé alltaf yfir
því, hvar sem það fer, og hverj-
ir sem við því taka.
Blessaði Himneski Faðir! Þú
sem ræður yfir hafinu og yfir
örlögum mannlegs lífs, já yfir
hafdjúpum lífs og dauða. Vér
þökkum þér fyrir þá náð þína,
að vér megum vera hér saman
komin, glöð og heilbrigð á þess-
um hátíðisdegi. Vér þökkumþér
alla varðveizlu allt til þessa
dags, og vér felum þér, í nafni
Jesú Krists allt Uf vort og aUa
framtíð vora, því að traustið til
þín er hið óbilandi akkeri sál-
ar vorrar í Jesú nafni Amen.
UTGERÐARMENN
Stórkostleg verðlœkkun á þorskanetum var hjá okkur í fyrra.
Við bjóðum þorskanet frá Kóreu, Japan og Þýzkalandi
Cjörið svo vel og leitið upplýsinga
Sjáið útstillingu okkar á
sýningunni „íslendingar og hafið‘
HrÍAljrm (] OLInAnw
Hverfisgötu 6,
sími 20000.