Morgunblaðið - 26.05.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1968.
21
FYRIR DA6INN
Kðflðttar naiklnsbuxur i bsrn ig ungllnga
IMWMDJM HEKLA
Merkið
tryggir
gœðin.
wella-
grnm EEEEŒBM
flex
HALLDÓR JÓNSSON H.F.
Hafnarstræti 18. — Sími 2 2170.
Minning:
Haukur Oddsson
Fæddur 4. september 1920.
Dáinn 16. maí 1968.
Á morgun, mánudag, verður
til moldar borinn Haukur Odds-
son sjómaður, Holtsgötu 41. Hann
varð bráðkvaddur á hafi á heim
leið frá Bretlandi með b/v Karls
efni fimmtudaginn 16. þ.m.
Fyrir nokkrum árum gekk
hann undir læknisaðgerð er-
lendis og mun aldrei hafa orðið
alheill síðan.
Haukur var fæddur hér í
Reykjavík 4. september 1920.
Hann var sonur Rannveigar Guð
mundsdóttur og Odds Tómasson-
ar málarameistara, en uppeldi
frá fyrstu bernsku hlaut hann
hjá föðurforeldrum sínum, Vil-
helmínu S. Sveinsdóttur og
Tómasi Jónssyni skipstjóra, þar
eð vegir foreldanna skildu. Gift-
ist Rannveig síðar í Danmörku,
en er nú látin, Oddur er enn á
lífi og á hann heima hér í
Reykjavík.
Haukur naut mikils ástríkis
hjá afa sínum og ömmu, enda
alla tfð sem þeirra eigið barn,
alinn upp með þeirra börnum og
einum fósturbróður. Haukur átti
fjögur hálfsystkini frá föðurnum,
og sex frá móðurinni.
Haukur var Vesturbæingur í
þess orðs fyllstu merkingu, því
að þar átti hann alla tíð heima
að undanteknum tveim árum, er
hann barnungur dvaldist með
fósturforeldrum sínum í Viðey.
Hann átti um árabil heima að Jó-
fríðarstöðum við Kaplaskjólsveg,
en síðast að Holtsgötu 41.
Ungur hug’ðist Haukur læra
málaraiðn, en hvarf frá því, þar
sem hann þoldi ekki starfið. Upp
frá því lagði hann fyrir sig sjó-
mennsku, sem varð hans ævi-
starf.
Árið 1941 kvæntist hann Mál-
fríði Jónsdóttur og eignuðust þau
þrjú börn og eru tvö þeirra á lífi,
Loftur, sem kvæntur er Margréti
Jóhannsdóttur, og eiga þau þrjá
syni, — og Oddbjörg Kolbrún,
sem gift er Gunnari Þorlákssyni,
og eiga þau þrjú börn. Þau
Haukur og Málfríður slitu síðar
samvistum.
Haukur kvæntist öðru sinni
eftirlifandi eiginkonu sinni, Sig-
ríði Önnu Magnúsdóttur, og hafa
þau eignast þrjú börn. Arnar 20
ára, sem nú í vor lýkur stúdents
prófi frá Verzlunarskólanum,
Vilhelmínu 17 ára er stundar
nám í Verzlunarskólanum, og
Tómas Reyni, sem er 11 ára að
aldri.
Var sambúð þeirra hjóna alla
tíð með miklu ástríki og auð-
kenndist af gagnkvæmri vir'ð-
ingu og umhyggju fyrir húsi og
heimili. Stjúpsyni sínum, Hafliða
Kristjáni Péturssyni, reyndist
Haukur sem umhyggjusamur fað
ir og sannur vinur í raun, enda
alla tíð með þeim mikil og inni-
leg vinátta.
Milli Hauks og Odds föður
hans voru alltaf mjög náin tengsl.
ÍI)úð til leigu
Alveg ný hæð á Melunm til leigu. 4 svefnherbergi,
gólfteppi, giuggatjöld, eldavél og ísskápur fylgja.
Ennfremur getur nokkuð af húsgögnum fylgt.
Þeir, sem hafa áhuga, skrifi í pósthólf 756.
Reyndist Haukur honum sem
sannur sonur og sýndi honum um
hyggju og ástúð, góðvild og rækt
arsemi. Þannig var hann og öll-
um ástvinum sínum, fósturfor-
eldrunum, afa of ömmu, og frænd
liði.
Haukur var vinmargur og
munu þess vegna nú margir
minnast góðs drengs, sem hlaut
að kveðja löngu fyrir aldur fram.
Hann var mikill vinur vina
sinna, hjálpsamur, greiðvikinn og
glaðlyndur, hrókur alls fagnaðar
á vinafundum, enda greindur vel
og skemmtilegur. Hann var hlýr
í viðmóti og umhyggjusamur,
nærgætinn og dagfarsprúður og
þess vegna sérstaklega umgengn
isgó'ður.
Ferðin til Aberdeen í Skotlandi
átti að verða hans seinasta um
hríð, því að hann hugðist að
henni lokinni taka sér frí um
tíma, er heim kæmi. Og þessi
ferð varð og hans seinasta, þótt
það yrði með öðrum hætti en á-
formað var. Hann hafði hlakkað
mikið til þeirrar stundar, er son
urinn Arnar lyki stúdentsprófi,
•en þeirrar gleði fékk hann ekki
notið í lifenda lífi. Þannig er það,
að vér kunnum ekki að telja
daga vora, því að vér höfum ekki
öðlast alviturt hjarta'.
Haukur var hin síðari árin sjúk
ur maður, en hann bar þjáningar
sínar eins mikið einn og hann
gat. Honum var ekki um að bera
tilfinningar sínar á torg fyrir
aðra, sízt hi'ð neikvæða, því að
svo var hann gerður, að hann
vildi ekki annarra hryggð.
Nú, þegar þessi mæti drengur
hlýtur að kveðja,, hvarflar hugur
inn heim til ástvinanna, til eigin
konunnar og barnanna og allra
þeirra, sem um sárt eiga að binda
eftir þungbæran ástvinarmissi.
Megi Guð styrkja þau öll og
gefa þeim frið og huggun í hug
og hjarta, að þau megi gleðjast í
voninni um endurfundi handan
við gröf og dauða.
Heim, heim, er orð svo signað
sætt,
þa'ð sálu veitir ró.
Heim, heim. er orð, sem böi fær
bætt
og blíða skapað fró;
í klukknahringing hljómar það
í helgra tóna sveim,
sem himindagga blessað bað
og býður sálu heim.
(Fr. Fr.)
Vinur.
Nýkomið - gott
verð
Telpnasiá og buxnapils
loOöíri
Laugavegi 31 — Sími 12815.