Morgunblaðið - 26.05.1968, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAl 1968.
Kristján Karlsson
sextugur á morgun —
KTÍstján Karlsson, áður skóla-
stjóri á Hólum í Hjaltadal, á sex-
tíu ára afmæli á morgun, hinn
27. maídag.
Hann er fæddur að Landa-
móti í S.-í>ingeyjarsýslu, kom-
inn af kjarnmiklum bændaætt-
um, sonur Karls Arngrímssonar
bónda þar og konu hans Karitas-
ar Sigurðardóttur. Er Kristján
systursonur Sigurðar búnaðar-
málastjóra, og því eðlilegt, að
honum sé ræktun, atorka og um-
bótaáhugi í e'ðli borið.
Snemma reyndist Kristján af-
kastamaður í störfum og í
fremstu röð námsmanna. Eftir
viðbúnaðarnám hér heima lauk
hann cand. agric-prófi við Land-
búnaðarháskólann í Kaupmanna
höfn árið 1933. Gerðist hann
skólastjóri bændaskólans á Hól-
um tveimur árum síðar og hélt
því starfi til 1961, lengur miklu
en nokkur annar hefur gert til
þessa tíma. Mun það einróma álit
nemenda hans og allra, er
þekktu, að það starf hafi hann
rækt með sæmd og hlíft sér
hvergi. Fór saman hjá honuna,
að hann var ágætur skólamaður
og framsýnn og atorkusamur
bóndi. Hann var starfsamur
vökumaður, jafnan við því búinn
að samhæfast nýjum tíma, ást-
sæll af nemendum og naut vin-
sælda nágranna og héraðsbúa.
Hann kunni vel fræði sín og allt
það, er hann hafði numið, en
bezt mundi hann jafnan skyldur
sínar. í>að er einkenni Kristjáns,
að hann virðir aðra menn, þótt
þeir standi honum miklu neðar
í stöðu og að manngildi og lítur
á þá sem jafningja sína. En slíkt
hefur marga mikilhæfa menn
skort raunarlega. Þeim hefur sézt
yfir þáð, að enginn nýtur virð-
ingar, nema hann kunni að virða
aðra.
Nú hefur Kristján breytt um
starf. Hann er hættur að rækta
jörðina og búféð, en er erindreki
Stéttarsambands bænda. Enn
vinnur hann bændastéttinni af
árvekni og trúmennsku allt, er
hann má.
Nú er ég að kvöldi dags rek
minningar mínar frá heimaslóð-
um og heimasveít, verða mér
Hólar í Hjaltadal ofarlega í huga.
Þó eru mér ekki síður í Ijósu
minni margar ágætar stundir,
sem ég átti þar með Kristjáni
skólastjóra og hinni mikilhæfu
og gáfuðu konu hans, Sigrúnu
Ingólfsdóttur frá Fjósatungu. Lifi
ég þá upp aftur dýrmæt kynni,
sem ég hafði þar af þeim góðu
hjónum, og sendi þeim hljóðar
þakkir fyrir órofa vináttu, dáð
og dug.
Vil ég að síðustu, fyrir mína
hönd, konu minnar og dætra,
senda Kristjáni Karlssyni og fjöl
skyldu hans hugheilar árnaðar-
óskir. Megi starfsfjör, starfsþrek
og vinnugleði endast honum enn
um langa framtíð. Og auðnist
honum að sjá allar dýrmætustu
óskir sínar rætast.
26. maí 1968.
Kolbeinn Kristinsson.
Hús^affnasmiðir
o
Húsgagnasmiður óskast.
llúsgagnaverkstæði ÞÓRS & EIRÍKS
Súðavogi 44 — Sími 31360.
Hórgreiðslustoía Kópovogs
HRAUNTUNGU 3 1.
Athugið nýja símanúmerið okkar er
42240
Hárgreiðslustofa Kópavogs.
Húsnæði til leigu
Þrjár efri hæðirnar og hluti af neðstu hæð hús-
eignarinnar Brautarholti 18 eru til leigu.
Nánari upplýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
og Guðmundar Péturssonar,
Aðalstræti 6. Símar: 12002, 13202, 13602.
í glæsilegu úrvali.
Ódýr ensk og þýzk
gólfteppi
Nauðungaruppboð
Eítir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins, Fiskimála-
sjóðs, Búnaðarbanka fslands og Brunabótafélags Is-
lands, verður sildar- og fiskvinnshistöð við
Brekkustíg 32—34, Ytri-Njarðvik, þinglesin eign
Áka Jakobssonar, seld á nauðungaruppboði, sem
háð verður á eigninni sjálfri þriðjudaginn 28. maí
1968, kl. 4.00 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 11., 14. og 16. tölia-
blaði Lögbirtingablaðsins 1966.
Sýsluntaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Nemendasamband
Kvennasknlans
í Reykjavík
heldur árshátíð í Leikhúskjallaranum fimmtudag-
inn 30. maí er hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Danssýning (Heiðar Ástvaldsson) og fleiri
skemmtiatriði. Illjómsveit hússins leikur.
Aðgöngumiðar afhentir í Kvennaskólanum mánu-
daginn 27. og þriðjudaginn 28. maí kl. 5—7 eftir
hádegi.
STJÓRNIN.
Sængurveradamosk
lakaefni, frottehandklæði
Hefi fengið nokkur stóra sendingu af þeirri vöru,
en vegna sérstakra hagkvæmra innkaupa, get ég
nú selt þær mun ódýrara en áður og get ég afgreitt
út á land í póstkröfu.
Verzlunin H. TOFT
Skólavörðustíg 8 — Sími 11035.
FYHIR HVÍTASUNNUNA
Tjöld
Allar stærðir
með og án
himins.
Kaupið
vörumar
hjá þeim
sem hafa
reynslu
í notkun
hennax.
Svefnpokar
Dúnpokar islenzkir og enskir
teppapokar íslenzkir, enskir
og sænskir.
Gasprímusar
litlir og stórir eins ag tveggja
hólfa.
Pottasett
litffl og stór með og án fötu.
Vindsængnr
5 gerðir með 1 árs ábyrgð
frá kr. 595.—
SKÁTABÚÐIN, Snorrabraut 58. Sími 12045.
Lítið í gluggana.
Drætti verður ekki frestað
+ Vinningxir: Mercedes Benz 220, ný gerð. Dregið: 16. júní 1968.
+ Styrkið starf Rauða kross-deildarinnar í Reykjavík.
Happdrætti Reykjavíkurdeildar Rauða kross Islands